Fréttablaðið - 09.09.2011, Síða 22
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sveinn Guðmundsson
rafmagnsverkfræðingur,
Aðalstræti 8, 101 Reykjavík,
lést á lungnadeild Landspítala í Fossvogi
7. september síðastliðinn.
Ingrid Guðmundsson
Sólveig Sveinsdóttir Thierry Clairiot
Guðmundur Sveinsson Arianne Gähwiller
Sigrún Sveinsdóttir Yosihiko Iura
Sveinn Ingi Sveinsson Sigrún Ásta Gunnlaugsdóttir
Ríkharður Sveinsson Jóna Kristjana Halldórsdóttir
Benedikt Sveinsson Anna White
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jenný Jónsdóttir
andaðist að Dvalarheimilinu Kjarnalundi, Akureyri,
föstudaginn 26. ágúst.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu.
Sveinn Þórðarson
Margrét Þórðardóttir Grettir Frímannsson
Jóna Þórðardóttir Steindór Kárason
barnabörnin og barnabarnabörnin
Hjartkær bróðir okkar og mágur,
Gunnar Örn
Hámundarson
bankamaður,
Barónsstíg 43, Rvk,
varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn
4. september. Útför fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 15. september kl. 15.
Hrafnhildur Hámundardóttir
Kolbrún Hámundardóttir Jón Guðnason
Bróðir okkar,
Birgir Helgason
trésmiður,
Skúlagötu 20, Reykjavík,
andaðist þriðjudaginn 6. september.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valdimar Helgason
Kristín Helgadóttir.
Elskuleg eiginkona mín,
Drífa Konráðsdóttir
Grýtubakka 32,
lést á heimili sínu 20. ágúst sl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hennar.
Ingi Gunnar Benediktsson
Svala Konráðsdóttir
Erna Konráðsdóttir Sveinbjörn Jónsson
Mjöll Konráðsdóttir Hauby Kristensen
Elskuleg frænka okkar,
Margrét Pétursdóttir
Hrafnistu, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 12. september kl. 15.00.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Dóra Pétursdóttir
Pálína Margrét Rúnarsdóttir
Guðrún Brynja Rúnarsdóttir.
80 ára afmæli
Í tilefni af 80 ára afmæli
Þóru Eyjólfsdóttur
8. september
eru ætting jar og vinir boðnir velkomnir í kaffi frá kl. 15
sunnudaginn 11. september að heimili dóttur hennar og
tengdasonar, Brekkuhlíð 6, Hafnarfi rði.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fóstur-
faðir, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi,
Jón Gísli Grétarsson
pípulagningameistari,
Snægili 3b, Akureyri,
lést á Hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
3. september. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 12. september kl. 13.30. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Anna Kristín Guðjónsdóttir
Róbert Freyr Jónsson Anna Hlín Erlingsdóttir
Grétar Jónsson
Edda Björk Viðarsdóttir Brynjólfur Hjartarson
Kristín Baldvina Jónsdóttir Grétar Óttar Gíslason
Margrét Vala Grétarsdóttir Jón Gunnar Guðmundsson
Baldvin Þór Grétarsson Jóhanna Sigríður
Sigurðardóttir
Kristín Sigrún Grétarsdóttir Hörður Már Guðmundsson
Anna María Grétarsdóttir Erlendur Níels Hermannsson
og afabörn
Elskulegi eiginmaður minn,
faðir okkar og afi,
Jón Guðlaugur
Antoníusson
lést að kvöldi 6. september á Hjúkrunarheimilinu
Mörk.
Elísabet Jóna Erlendsdóttir
Gerður Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir
Birna Jónsdóttir
Erlendur Jónsson
Gísli Jónsson
Elísabet Sara Gísladóttir
Arnar Logi Gíslason.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Magnús Baldvinsson
múrarameistari, til heimilis að
Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð
í Garðabæ, áður Grænuhlíð 7,
lést í Holtsbúð sunnudaginn 4. september.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
13. september kl. 13.00.
Arndís Magnúsdóttir Hafsteinn Filippusson
Benjamín Grendal Magnússon Guðbjörg Kristjánsdóttir
Sæunn Grendal Magnúsdóttir Grétar Sveinsson
Baldvin Grendal Magnússon
Sigrún Grendal Magnúsdóttir Guðmundur J. Guðlaugsson
Sigurður Grendal Magnússon Sigríður Björk Bragadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
Helga Kristín Helgadóttir
frá Siglufirði,
andaðist á Líknardeild Landspítalans Kópavogi
5. september sl. Útför fer fram frá Áskirkju
20. september kl. 15.00.
Helgi Kr. Eiríksson Katrín Gunnarsdóttir
Martha Eiríksdóttir Andrés Magnússon
Diðrik Eiríksson Viktoría Valdimarsdóttir
Inga Rós Eiríksdóttir Halldór Sverrisson
og barnabörn
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
timamot@frettabladid.is
„Jú jú, það þýðir ekkert að reyna að leyna því,“ segir Örnólfur
Thorlacius, fyrrverandi rektor, hress í símann þegar blaða-
maður spyr hvort ekki megi segja frá stórafmæli hans í Frétta-
blaðinu. Örnólfur er áttræður í dag en hélt upp á daginn ásamt
fjölskyldu og vinum í fyrradag.
„Synir mínir héldu mér boð svo það er afstaðið að mestu.
Hingað kom fjöldi manns svo ég hef bara hægt um mig í dag.
Ég er nú ekki sprettharður lengur og rúlla á undan mér grind,
en að öðru leyti er ég við góða heilsu,“ segir Örnólfur en hann
hefur búið undanfarin ár á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund ásamt konu sinni Rannveigu Tryggvadóttur. Móðir
Örnólfs, Áslaug Ester Thorlacius Kristjánsdóttir, býr einnig
á Grund.
„Konan mín verður reyndar 85 ára þegar líður á árið og
móðir mín verður 100 ára í nóvember, svo það ætti að vera nóg
að gera í merkisafmælum hjá okkur. Hér fer afskaplega vel um
okkur og ég hef líka aðstöðu til að vinna.“ Þegar blaðamaður
forvitnast um að hverju Örnólfur sé að vinna segist hann vera
að skrifa örlítið.
„Ég er að skrifa dýrafræði sem ég byrjaði á fyrir 60 árum.
Ég á nú miklu meira eftir en ég er búinn með, það vill nú oft
verða þannig. Þetta áttu að vera nokkrir kaflar í lítilli alfræði-
bók sem kom svo aldrei út. Svo hefur þetta hlaðið utan á sig
og verður kannski að allsherjar fræðiriti fyrir almenning. Ég
verð bara að sjá til hvað ég endist lengi,“ bætir Örnólfur við.
Örnólfur hefur enda skrifað margar kennslubækur í
náttúru fræðum og einnig þýtt bækur, þar á meðal eru Bókin
um vatnið, Bókin um hjólið og Tilraunabók barnanna. Örnólf-
ur var rektor Menntaskólans við Hamrahlíð og kenndi einnig
náttúruvísindi við skólann. Aðspurður segist hann ekkert endi-
lega nota stórafmæli til að líta um öxl en láti bara hverjum degi
nægja sína þjáningu. Hann segist hafa gaman af því að skrifa
og ætli að halda því áfram sem lengst.
„Ég var nú búinn að orða það við Magnús Skarphéðinsson, að
hann útvegaði mér miðil sem ritara svo ég gæti haldið áfram
að lesa fyrir, þó ég væri kominn yfir um. Hann gaf nú lítið út
á það svo ég verð víst að halda mig að þessu,“ segir Örnólfur
og hlær. heida@frettabladid.is
ÖRNÓLFUR THORLACIUS FYRRVERANDI
REKTOR: ER ÁTTRÆÐUR Í DAG
Ekki eins
sprettharður
DUNDAR ENN VIÐ SKRIFTIR Örnólfur Thorlacius er áttræður í dag og
tekur aldrinum létt. Hann býr á Dvalarheimilinu Grund og situr við
skriftir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA