Fréttablaðið - 09.09.2011, Page 26
2 föstudagur 9. september
Full búð
af nýjum
vörum
núna
✽ Kertaljós og ljúfir tónar
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Gunnar V. Andrésson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
meðmælin
HEILLANDI Leikkonan Selma Blair
sótti kvikmyndahátíðina í Venice í
þessu fallega rauða kjól frá Lanvin.
Hún tók sex vikna gamlan son sinn
með sér á hátíðina. NORDICPHOTOS/GETTY
Hin unga Tavi Gevinson er orðin ritstýra vefritsins Rookie en
það mun flytja tískufréttir ætl-
aðar táningsstúlkum. Gevinson
var aðeins þrettán ára þegar hún
vakti fyrst athygli fyrir tískublogg
sitt og varð fyrir vikið einn helsti
tískubloggari heims.
Rookie mun fjalla um tísku,
menningu og annað sem ungar
stúlkur hafa áhuga á án þess þó
að sverja sig í ætt við tímariti á
borð við Seventeen. „Það góða við
netið er að þar fá ólíkar skoðan-
ir að njóta sín og síður sem fjalla
um önnur mál en þau sem venju-
leg tískublöð fjalla um,“ sagði Ge-
vinson í viðtali við Fashionista.
Þegar Gevinson var að lokum
spurð út í tískufyrirmyndir sínar
nefndi hún meðal annars Wed-
nesday Adams úr Adamsfjöl-
skyldunni, Audrey Horne og Línu
Langsokk. - sm
Tavi Gevinson heldur áfram skrifum sínum:
Fimmtán ára
gamall ritstjóri
Efnileg Tavi Gevinson er orðin ritstjóri
vefritsins Rookie og er líklega einn yngsti
ritstjóri heims. NORDICPHOTOS/GETTY
GÓÐIR HÁRDAGAR Þessi nýja hárvara frá L‘occitane inni-
heldur fimm ilmkjarnaolíur sem laga og bæta þurrt og illa farið hár.
Hárið fær náttúrulegan gljáa og verður auðveldara í meðhöndlun.
Hentar bæði sléttu og krulluðu hári.
Heima er best
Listasýningin Homies Where My
Heart Is var opnuð um síðustu helgi
og lýkur henni í kvöld. Sýningin er
hópverkefni ungra myndlistar-, og
tónlistarmanna
sem hafa tekið
yfir kjallara í
Þingholtun-
um. Það brakar
í gólffjölum húss-
ins og listaverkin
leynast í hverjum
krók og kima.
Einstök sýn-
ing í einstöku
rými sem eng-
inn listaaðdá-
andi má missa
af! Sýningin fer fram
við Laufásveg 14.
Metsölubókin
Bókin Einn dagur, eftir David Nic-
holls, segir sögu Emmu, stúlku frá
Norður-Englandi,
og glaumgosans
Dexters sem er frá
London. Emma og
Dexter kynnast er
þau eru bæði við
háskólanám í Edin-
borg og eyða nótt-
inni eftir útskrift
saman. Upphefst
áralöng vinátta og fylgist lesandi
með lífi Emmu og Dexters á þess-
um sama degi, 15. júlí, næstu tutt-
ugu árin. Sagan er ágæt og hin fín-
asta afþreying en þýðingin mætti
vera betri. Það er til dæmis allt-
af leiðinlegt þegar nöfn breytast er
líður á textann.
Í ris Eggertsdóttir myndlistarkona hefur hannað fatnað í rúmt ár undir nafninu
Líber og hafa flíkurnar fallið vel í kramið
hjá íslenskum konum.
„Mamma er klæðskeri og ég hef því
verið viðloðandi saumaskap alveg frá því
ég man eftir mér. Ég ákvað þó að feta ekki
í fótspor mömmu og fór í myndlistarnám
og er því myndlistarmaður og starfa við
það í dag,“ útskýrir Íris. Hún segist vinna
mikið með form og liti þegar hún hannar
og tvinnar þannig saman saumaskapinn
og myndlistina.
Íris reynir að sinna myndlistinni til
jafns við hönnunina en viðurkennir
að undanfarið ár hafi meiri tími farið í
saumaskapinn. „Ég hef gefið hönnuninni
aðeins meiri tíma undanfarið. Það fer oft-
ast bara eftir skapi eða flæðinu hvað ég
gríp í þann daginn. Ég hef mjög gaman
af þessu og draumurinn er að ég geti
haft lifibrauð mitt af þessu í framtíðinni.
Nafnið Líber þýðir frelsi og tengist því að
ég vilji fá að gera mitt og ekki elta sér-
staka tísku eða stefnu.“
Íris er með opið á vinnustofu sinni við
Hverfisgötu 50 alla fimmtudaga og föstu-
daga á milli 11.00 og 18.00. „Fyrst var ég
með opið frá klukkan tíu á morgnana
en þá eru fæstir komnir á fætur þann-
ig ég ákvað að seinka opnunartímanum
um klukkustund,“ segir hún glaðlega að
lokum. - sm
ÍRIS EGGERTSDÓTTIR MYNDLISTARKONA HANNAR UNDIR HEITINU LÍBER:
FRELSI TIL AÐ FARA
EIGIN LEIÐIR
Frjáls Íris Eggertsdóttir myndlistarkona hefur fært sig út í saumaskap og hannar nú flíkur undir nafninu Líber, sem þýðir
frelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON