Fréttablaðið - 16.09.2011, Blaðsíða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
RISAlagersala Forlagsins
er á Fiskislóð 39
90%
afslát
tur
allt a
ð
Yfir
1000
titlar
M y s u p r ó t e i n n ý t i s t l í k a m a n u m
b e s t a f ö l l u m p r ó t e i n u m o g e r
e i n s t a k l e g a g o t t f y r i r m e g r u n
o g v ö ð v a u p p b y g g i n g u .
STYRKUR
Föstudagur
skoðun 16
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
i í
16. september 2011
216. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Heilsudagar karla verða haldnir í Vatna-skógi um helgina en þeir eru ætlaðir körlum
á aldrinum 17 til 99 ára. Tilgangurinn er að
styrkja líkama, sál og anda. Meðal dagskrár-
liða eru golfmót, innibolti, Müllersæfingar og
vinna í þágu Vatnaskógar. Sjá nánar á www.
kfum.is.
M jólkurfræðingurinn Þórarinn Þórhalls-son hefur verið ötull í vöruþróun undan-farin ár. Hann stofnaði Osta-húsið í Hafnarfirði fyrir nítján árum, en það er þekkt fyrir ýmsar nýjungar á markaði, eins og ostarúllur og ýmsa eftirrétti. Nýjustu afurðir Ostahússins eru smurostar með fersku íslensku grænmeti. „Hugmyndin kvikn-aði fljótlega eftir að við sam-einuðumst Í einum grænum, dótturfélagi Sölufélags garð-yrkjumanna, fyrir nokkrum árum, en fljótlega eftir það sett-um við fyllta sveppi með rjóma-osti á markað. Okkur langaði að blanda ostinum og grænmetinufrekar saman og úr ðéð
Grænmetisbragðið skilar sér
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fiskur
6–800 g af íslensku spergilkáli4 stk. íslenskar gulrætur1 dós 180g af sveppasmurosti frá Ostahúsinu
600 g af fiski að eigin valiólífuolía
salt og pipar
Hellið ólífu-
olíunni á
pönnu, dreifið skornu græn-metinu jafnt yfir. Dreifið
smu ií litl b
Kjúklingur
4 kjúklingabringur1 rauð íslensk paprika1 græn íslensk paprika
1 gul íslensk paprika4 íslenskar gulrætur1 dós 180g papriku-smurostur frá Ostahúsinumatreiðslurjómiólífuolía
kjúklingakrydd eftir smekk
Hellið ólífuolíu í botninn á eldföstumóti Skerið kjúk
FISKUR MEÐ SVEPPASMUROSTI og kjúklingur með paprikusmurosti HVOR RÉTTUR FYRIR FJÓRA
Smurostur með fersku íslensku grænmeti er nýjasta afurð Þórarins Þórhallssonar hjá Ostahúsinu.föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
ELVA BJÖRK
16. september 2011
Óður til Helenu og Óðins
Jana María Guðmundsdóttir og Ívar
Helgason flytja söng- og sögudagskrá
helgaða Helenu Eyjólfsdóttur og Óðni
Valdimarssyni í Salnum í kvöld.
allt 2
Hjálpað í Esjuhlíðum
Dagur íslenskrar náttúru
haldinn í fyrsta sinn í dag.
tímamót 18
Nýtt tvíeyki
Leikstjórinn Baldvin Z gerir
bíómynd eftir handriti
Bigga í Maus.
fólk 34
RIGNING S- OG V-TIL Í dag
verður SA 5-13 m/s. Úrkoma S-
og V-lands en sínu mest SA-til.
Úrkomulítið NA-lands. Hiti 8-15
stig. VEÐUR 4
14
1012
11
12
UTANRÍKISMÁL Barack Obama
Bandaríkjaforseti fyrirskipaði í
gær að grípa skyldi til ýmiss konar
diplómatískra þvingunaraðgerða
gegn Íslendingum vegna hvalveiða
í atvinnuskyni. George W. Bush gaf
út sams konar fyrirmæli árið 2004 á
grundvelli svokallaðs Pelly-ákvæð-
is í þarlendri fiskveiðilöggjöf.
Fyrirmælin sem Obama hefur
kynnt ríkisstjórn sinni og þinginu
eru í sex liðum og snúa eingöngu
að pólitískum samskiptareglum.
Fyrirmælin nú eru mun sértækari
og nákvæmari en þau sem Bush gaf
út fyrir sjö árum.
Viðskiptaráðherra Bandaríkj-
anna lagði til við forsetann um
miðjan júlí að grípa til aðgerðanna.
Forsetinn hafði þá sextíu daga til að
bregðast við tilmælunum, sem hann
gerði formlega í gær og tók í einu og
öllu undir tillögur ráðherrans. „Ég
tel að þessar aðgerðir séu vænleg-
asta leiðin til að fá Íslendinga til að
draga úr hvalveiðum sínum,“ segir
Obama í yfirlýsingu sinni vegna
málsins.
Samkvæmt fyrirmælunum
skulu bandarískar sendinefndir
viðra áhyggjur sínar af hvalveið-
um Íslendinga á öllum fundum með
íslenskum stjórnvöldum og leita
leiða til að hindra þær.
Bandarískir ráðherrar skulu
meta það hversu viðeigandi það er
að heimsækja Ísland í ljósi stöð-
unnar og innanríkisráðuneytinu er
gert að fara yfir samstarfsverkefni
um Norðurskautið og skilyrða þátt-
töku Bandaríkjamanna í þeim eins
og kostur er við breytingar á hval-
veiðistefnu Íslands. Síðustu þrír
liðirnir snúast svo um að stofnanir
ytra skuli fylgjast náið með vend-
ingum í málaflokknum og þrýsta
áfram á íslensk stjórnvöld að stöðva
veiðarnar.
Hægt er að beita þjóðir viðskipta-
þvingunum á grundvelli hins fjöru-
tíu ára gamla Pelly-ákvæðis, en til
þess ráðs hefur hins vegar aldrei
verið gripið. Viðskiptaráðherrann
hefur nokkrum sinnum lagt það
til vegna veiða annarra þjóða en
forsetinn aldrei fallist á það.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, lýsti því yfir
í júlí að það væri fráleitt af hálfu
Bandaríkjamanna að beita Íslend-
inga þvingunum vegna málsins og
honum þætti ósennilegt að af því
yrði. Jón vildi ekki tjá sig frekar
um málið í gærkvöldi. Ekki náðist
í Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra. - sh
Obama fyrirskipar aðgerðir
gegn Íslandi vegna hvalveiða
Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að Íslendingar skuli beittir diplómatískum þvingunaraðgerðum vegna
hvalveiða. Hvatt til þess að þátttaka í samstarfi um Norðurskautið verði skilyrt við breytta hvalveiðistefnu.
STJÓRNMÁL Helle Thorning-Schmidt,
leiðtogi sósíaldemókrata, verður
næsti forsætisráðherra Danmerk-
ur eftir nauman sigur bandalags
vinstri flokka í gær. Hinu svokall-
aða rauða bandalagi hafði verið
spáð ögn stærri sigri.
Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi
Venstre og núverandi forsætisráð-
herra, játaði ósigur í gærkvöld.
Hægriblokkin hefur verið við völd
í Danmörku síðastliðinn áratug.
Flokkarnir á vinstri væng
stjórnmálanna unnu með 50,2 pró-
sentum atkvæða og 89 þingsæt-
um á móti 49,7 prósentum hægri
blokkarinnar, sem fær 86 þing-
sæti. Niðurstaðan lá ljós fyrir um
klukkan tíu í gærkvöldi þegar búið
var að telja 99,1 prósent atkvæða.
Sósíaldemókratar töpuðu einu
þingsæti frá síðustu kosningum.
Stuðningsflokkarnir, Róttæki
flokkurinn og Einingarlistinn, eru
raunverulegir sigurvegarar kosn-
inganna en þeir bættu verulega
við sig. Sá fyrrnefndi hlaut sautján
þingsæti, tæplega tvöfalt fleiri en
í þingkosningunum árið 2007. Ein-
ingarlistinn náði tólf þingsætum,
sem er þrefalt meira en í síðustu
kosningum.
Af úrslitunum er ljóst að Helle
Thorning-Schmidt verður fyrsti
kvenforsætisráðherra Danmerk-
ur. Rasmussen tilkynnti stuðnings-
mönnum sínum í gærkvöldi að hann
hefði hringt í hana og óskað henni
til hamingju. „Við höfum nú skrif-
að nýjan kafla í sögu Danmerkur,“
sagði Thorning-Schmidt. - jab
Helle Thorning-Schmidt fyrsta konan í embætti forsætisráðherra Danmerkur:
Rauðu flokkarnir unnu nauman sigur
NÝR FORSÆTISRÁÐHERRA Helle Thorn-
ing-Schmidt var ákaft fagnað þegar úrslit
lágu fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
KVENNALANDSLIÐIÐ GLEÐUR BÖRNIN Margrét Lára Viðarsdóttir og hluti kvennalandsliðs
Íslands í knattspyrnu glöddu börn sem dvelja á Barnaspítala Hringsins með gjöfum í gær. Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari
segir bæði landslið karla og kvenna líta orðið á það sem lið í upphitun fyrir landsleiki að heimsækja börnin á spítalann. Kvennalands-
liðið tekur á móti Norðmönnum á Laugardalsvelli á morgun í undankeppni Evrópumóts kvennalandsliða. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég tel að þessar
aðgerðir séu væn-
legasta leiðin til að fá Íslend-
inga til að draga úr hval-
veiðum sínum.
BARACK OBAMA
BANDARÍKJAFORSETI
FÓLK Kvikmyndaleikarinn og leik-
stjórinn Ben Stiller undirbýr
tökur á kvikmynd á Íslandi. Um
er að ræða endurgerð sígildrar
kvikmyndar,
The Secret
Life of Walter
Mitty, frá 1947.
Hluti myndar-
innar gerist
hér á landi í
nýju handriti
Stevens Conrad.
Stiller kom
til landsins á
miðvikudag og
hefur skoðað mögulega tökustaði
auk þess að kynna sér land og
þjóð. Framleiðslufyrirtækið True
North aðstoðar Stiller við undir-
búninginn hér á landi.
Leikarinn hefur greint frá
ferðum sínum í véfréttastíl á
Twitter-síðu sinni. Í gærkvöld
birti hann meðal annars mynd
frá Djúpavogi. - fgg / sjá síðu 34
Ben Stiller með stór áform:
Tekur upp bíó-
mynd á Íslandi
BEN STILLER
KR aftur á toppinn
Stjarnan vann ÍBV og
KR nægði jafntefli til að
endurheimta efsta sætið.
Sport 28 og 30