Íslendingur - 18.01.1946, Síða 1
LISTI SJÁLFSTÆÐIS-
MANNA A AKUREYRI
ER
D -Jisti
XXXII. árg.
Föstudaginn 18. janúar 1946
3. tölublað
Fjárhagsáætlun bæjarins
fyrir árið 1946 afgreidd
--—O—o-
Ötsvörin áœtluð yfir 3 miliönir krðna.
ICOSNINGASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISMANNA
er í HAFNARSTRÆTI 101, II. hæð (innst á ganginum).
Opin 10—12, 13—19 og 20—22.
Sjálfstœðismenn! Komið á skrifstofuna til viðtals, og takið þátt
í undirbúningi bæjarstjórnarkosninganna. Sími skrifstofunnar er
nr. 354.
Fulltrúaráðið.
/ ;
Eidur yfir Vatnajökli
Miklir vatnavextir i ánni Súiu,
ÝMSAR
FREGNIR
Vetrarvertíð er nú nýhaíin á Suð-
urlandi. Taka færri hátar þátt í ver-
tíðinni að þessu sinni heldur ení
fyrra, og veldur því meðal annars
ekla á sjómönnum. Flestir bátar
munu verða gerðir út frá Vestmanna
eyjum, eða um 70 talsins. Frá öllum
höfnum á Suðurlandi róa um 170—
180 bátar, en frá höfnum við Breiða
fjörð og Vestfirði um 50—60 bátar.
—- Afli hefir víðast hvar verið treg-
nr ennþá.
★
Talsvert af síld hefir undanfarið
veiðzt í Viðeyjarsundi og Elliðaár-
vogi. Hafa fjögurra manna för aflað
allt að 35 tunnum á dag af vel feitri
hafsíld. Þess munu ekki dæmi fyrr,
að síld hafi vaðið í sundunum inn úr
Faxaflóa um þetta leyti árs.
★
Menntamálaráð íslands hefir til-
kynnt, að þ. 15. febrúar n. k. muni
það úthluta nokkrum ókeypis far-
miðum með skipum Eimskips milli
íslands og'útlanda til námsfólks, sem
hefir í hyggju að fara af landi burt
til náms á fyrri helmingi þessa árs.
Skulu umsækjendur snúa sér til skrif
stofu Menntamálaráðs, Hverfisgötu
21, Reykjavík.
*
Guðni Jónsson, magister, hefir
verið settur skólastjóri Gagnfræða-
skóla Reykvíkinga, í stað Knúts Arn-
grímssonar, sem lézt fyrir nokkru.
*
Snemma í þessum ínánuði hrann
til kaldra kola íbúðarhús nemenda
við Reykjaskóla í Hrútafirði. Skeði
atburður þessi snemma dags, er nem
endur og kennarar skólans sátu að
morgunverði. Bar eldinn svo brátt
að, að ekki varð við neitt ráðið. —
Urðu margir nemendur þarna fyrir
tilfinnanlegu tjóni á fatnaði, bókum
og fleiru, þótt húsið sjálft hafi ver-
ið vátryggt.
*
Asgeir Hjartarson, sagnfræðing-
ur, hefir nú verið skipaður bóka-
vörður við Landsbókasafnið í stað
Hallgríms Hallgrímssonar, magisters.
★
Nýlega kom til Reykjavíkur appel-
sínufarmur með einu af leiguskipum
Eimskipafélagsins. Voru það 9300
kassar, fluttir inn af Innflytjenda-
sambandinu. Ekki er blaðinu kunn-
ugt, hvort eitthvað af sendingu þess-
ari kemur hingað til Akureyrar eða
ekki.
★
Við bæjarstjórnarkosningar þær,
sem frttm fara þ. 27. þ. m., verða um
28.600 manns á kjörskrá í Reykja-
Á síðasta fundi bæjarstjórnar var
fjárhagsáætlun bæjarins fyrir yfir-
standandi ár til 2. umræðu og fulln-
aðarafgreiðslu. Ýmsir gjaldaliðir
hækka að verulegum mun og nýir
bætast við. Veldur þetta slórfelldri
hækkun á útsvörum er nemur á áætl-
un um 835 þús. kr. frá því í fyrra.
— Helztu tekjuliðir eru áætlaðir
þannig:
Kr.
Skattar af fasteignum 21300
Tekjur af fasteignum 107700
Endurgr. fótækrastyrkir 80000
Ýmsar tekjur 240150
Tekjur af vatnsveitu - 72000
Þáttt. hafnarsj. í löggæzlu 25000
Framl. Tryggingarst. ríkisins
til ellilauna og örorkubóta 220750
Framl. úr jöfnunarsjóði 20000
Hluti bæjarsj. af stríðsgróða-
skatti 100000
Sætagjald kvikmyndahúsa 13000
Útsvör 3115100
GJÖLD:
Kr.
Vextir og afb. fastra lána 43800
Stjórn kaupslaðarins 210900
Löggæzla 150500
Heilbrigðisráðstafanir 37000
Þrifnaður 125000
Vegir og byggingamál 180000
vík. Nákvæm lala liggur ekki fyrir
ennþá, þar sem eftir er að athuga
kærur, sem borizt hafa, svo og að
strika þá út, sem fallið hafa af
skránni, síðan hún var samin í febr.
í fyrra. N
Við síðustu bæjarstjórnarkosning-
ar, í marz 1942, voru 24.456 manns
á kjörskrá í Reykjavík.
♦
Karlakór Reykjavíkur hefir verið
ráðinn í þriggja mánaða söngför til
Bandaríkjanna og Kanada á næsta
hausti. Gert er ráð fyrir, að sam-
söngvar verði haldnir í 50—60 borg-
um vestra, þ. á. m. í Washington,
New York, Chicago, Boston og
Winnipeg.
Einsöngvarar verða Stefán íslandi
og Guðmundur Jónsson.
Til nýrra vega o. fl. 550000
Kostn. við fasteignir 107400
Eldvarnir 107400
Framfærslumál 388000
Lýðtrygging og lýðhjálp 571500
Menntamál 706100
Ýms útgjöld 852100
Framl. til bvggingarsj. Ak. 50000
Til verkfærakaupa 50000
Rekstursútgj. Vatnsveitu 89000
Til dagheimilis og vöggust. 20000
Hæsti útgjaldaliðurinn er „ýms út-
gjöld“, enda eru færð undir hann
öll framlög til nýbygginga á vegum
bæjarins, til fegrunar á bænum og
fjárframlög til stofnana og félaga.
Til nýbygginga eru ætlaðar þessar
upphæðir:
Kr.
Sjúkrahús Akureyrai' 150000
Gagnfræðask. Akureyrar 100000
Matthíasarbókhlaða 100000
Til barnaskólabyggingar 100000
— húsmæðraskóla 50000
— bygging v. sundstæðið 50000
— íþróttahússins 35000
Samtals kr. 585000
/
Nýir liðir á fjárhagsáætlun eru
þessir helztir:
— Kr.
Til Tónlistarskóla 15000
— trjáræktarslöðvar 15000
— Vinnuheimilis SÍBS 10000
— Fjórðungssamb. Norðl. 3000
— Góðtemplarareglunnar 2000
Þá hafa og framlög til barnaleik-
valla og til Leikfélags Akureyrar ver
ið hækkuð. Ýmsir aðrir gjaldaliðir
hafa hækkað meira og minna, svo
sem Löggæzla, og stafar sú hækkun
af því, að ríkið liefir sagt upp þeim
4 lögregluþjónum, sem bætt var við
hér fyrir fám árum, en hins vegar
ekki tiltækilegt að minnka lögg&zl-
una í bænum um helming.
Á sama fundi bæjarstjórnar voru
fjárhagsáætlanir hafnarinnar, Laxár
virkjunarinnar og Rafveitu Akureyr
ar afgreiddar.
Eldur sqst þann 9. þ. m.
yfir Vatnajökli. Sást hann
frá Skaftafelli í Öræfum í
A.-Skaftafellssýslu og bar
á milli Færinestinda og
Krossgilstinds.
Oli, sonur Runólfs bónda í Skafta-
felli, sá eldinn, er hann kom á fætur
rétt fyrir klukkan 7. Virtist honum
ekki vera um goseld að ræða, heldur
miklu fremur,eins og olíu liefði verið
hellt á eld og taldi þá einna mestar
líkur fyrir því, að flugvél hefði hrap
að og væri að brenna.
Er Óli hafði horft nokkura stund
á eldinn, fór liann inn í bæ og skýrði
kvenmanni, sem kominn var á fætur,
frá sýn þessari. Fór stúlkan út, og sá
hún einnig eldinn.
Eflir stefjiunni að dæma virðist
eldur þessi hafa verið í námunda við
Grænalón, sem er uppistaða 1 Vatna-
jökli eða Grænafjall, en einmitt á
þeim slóðum ó áin Súla upptök sín,
sem nú er í óvenjulegum vexti.
í sambandi við þetta má geta þess,
að fyrir nokrum dögum sá fólk suð-
ur í Skaftártungum eld á lofti, en
hann bar yfir Mýrdalsjökul. Virtist
þeim, er sáu þessa loftsýn, líkast því
sem kastljósum væri brugðið á loft.
Datt fólkinu í hug, að þar myndi
vera um flugvél að ræða, sem væri að
hrapa, enda þóttist það sjá eld bera
yfir jökulinn á eftir.
\ msir þar eystra hafa einnig reynt
að setja þessar loftsýnir í samband
við sýnir þær, sem borið hafa fyrir
augu ýmissa manna á Suðvestur-
landi, m. a. í Reykjavík. En eftir lýs-
ingu að dæma virðast þessir eldar,
sem sézt hafa austur í Skaftafells-
sýslu, vera nokkurs annars eðlis en
„eldsprengj usýnir“ þær, sent Reyk-
víkingar og fleiri hafa séð á Suð-
vesturlandi.
UTAN ÚR HEIMI
Verkföll í Bandaríkjunutn
Stórfelld verkföll standa nú yfir í
Bandaríkjunum, og er úllit fyrir, að
þau eigi ennþá eftir að breiðast frek
ar út. Helztu verkföllin, sem nú
standa yfir, eru í bílaiðnaðinum,
vérkfall símamanna, slótrara og kjöt-
pökkunarmanna, en horfur eru á, að
bæði stáliðnaðarmenn og rafmagns-
iðnaðarmenn bætist í hópinn á næst-
unni. Eiga þá yfir 3 millj. manna í
verkföllum í Bandaríkjunum.
¥
Ríkisskuldir Dana
Fjármálaráðherra Dana hefir sagt
í ræðu, að starfræksluútgjöld danska
ríkisins á yfirstandandi fjárhagsári
séu áætluð 1900 milljónir króna, þar
af 500 millj. aukaútgjöld vegna
styr j aldarlokanna. Ríkistekj urnar
eru um 1200 milljónir. Ríkið hefir
tekið við skuld Þjóðverja við
Nationalbanken, að upphæð 8 millj-
arða króna. Eftir það eru ríkisskuld-
irnar 10 milljarðar á móti hálfum
öðrum milljarð fyrir stríðið. Duldar
eignir, sem námu 2,7 milljörðum,
komu í ljós við hið óvenjulega eigna-
uppgjör í sl. júlímónuði.
¥
Mikil en þó ónóg mafarhjólp
Yfirstjórn UNNRA, — hjálpar-
stofnuu hinna sameinuðu þjóða, —
tilkynnti nýlega, að stofnunin hafi
til nóvemberloka sl. flutt yfir 3 millj.
smálesta af matvælum til Evrópu-
landa, sem stofnunin aðstoðar. Er
verðmæti vara þessara áætlað 202
millj. sterlingspund.' Þrótt fyrir
þessa miklu matvælahjálp vofir hung
urdauði yfir fjölda manns, ef ekki
berst aukin hjálp í ríkum mæli fram
eftir vetrinum.