Íslendingur - 08.02.1946, Page 1
V
M U N I Ð
aðalfund útgáfufélags-
ins á skrifstofu blaðsins,
i) Hafnarstrœti 101, n. k.
mánudag kl. 4 e. h.
<-■-----------------------4-^1
- ■ XXXII. árg.
Málefnasamningur
St/órnmá/af/okkarnir í bæjarstjórn
Akureyrar hata komið sér saman um
éftirfarandi má/efnasamning
1. Endurnýjuð sé umsókn bæj-
arins á 2 togurum af þeim
30, sem ríkisstjórnin hefir
f§st kaup á í Englandi, og
einstaklingum eða félögum
boðið að kaupa þann togara,
sem ekki er þegar ráðstafað
til Útgerðarfélags Akureyr-
inga. Fáist ekki k'aupandi að
binum togaranum, verði Ut-
gerðarfélagi Akureyringa
gefinn kostur á að kaupa
bæði skipin, og bærinn og
stofnanir hans auki þá bluta
fjárframlag sitt upp í allt að
50% gegn jafnháu framlagi
frá bæjarbúum.
Fáist ekki framlag þetta,
yfirtékur bærinn kaup og
rekstur annars togarans.
Bæjarstjórn stuðli að því,
að höfð verði sameiginleg
iramkvæmdastjórn beggja
skipanna.
2. Að unnið verði að hafnar-
garðinum á Oddeyri og hon-
um komið svo langt á þessu
ári, að þar skapist aðstaða
fyrir dráttarbrautir, og unn-
ið sé að því, að dráttarbraut
konilist upp, eins fljótt og
unnt er.. Ennfremur sé gerð
gangskör að því að útvega
nauðsynlegar vinnuvélar til
framkvæmdanna og samið
um leigu á hentugu upp-
moksturskipi.
Fengið verði skipulag af
svæðinu sunnan Strandgöt-
unnar.
5- Nú þegar verði hafinn undir-
búningur að stækkun Torfu-
nefsbryggjunnar, svo að stór
vöruflutningaskip geti feng-
ið afgreiðslu við hana, og
stækkunin verði framkvæmd,
jafnskjótt og hægt er, vegna
! dráttarbrautarinnar. Unnið
Verði einnig að byggingu
bafnarhúss með hæfilegum
vöruskeipmum.
4. Tekin verði upp þegar í stað
náin samvinna við Nýbygg-
ingarráð og ríkisstjórn um,
að Akureyrarbær hljóti veru
^egan hlut af iðnaðarnýsköp
átt ríkisins, svo sem niður-
suðuverksmiðju, áburðar-
verksmiðju og lýsisherzlu-
stöð. Verði niðursuðuverk-
smiðjan ekki reist af ríkinu,
vinni bæjarstjórn að því, að
aðrir aðilar reisi slíka verk-
smiðju hér.
5. Taki ríkið ekki að sér tunnu-
verksmiðju bæjarins, verði
þegar í stað gerðar ráðstaf-
anir til kaupa á vélum og
efni, svo að tunnusmíði geti
liafizt á næsta hausti.
6. Framkvæmdar verði aðrar
aðgerðir til útrýmingar at-
vinnuleysinu eftir samkomu-
lagi við flokkana.
7. Meðan húsnæðisskortur er,
vinni bærinn að því, að sem
flestar íbúðir verði byggðar
árlega á vegum Byggingar-
félags Akureyrar og sam-
vinnubyggingafélaga í bæn-
um, og verði væntanleg lög
um byggingamál kaupstað-
anna samþykkt, láti bæjar-
stjórn byggja 25 íbúðir á
ári lianda þeim, sem ekki
geta byggt yfir sig sjálfir.
Ef ekki verður af framan-
greindri lagase'tningu, láiti
þó ba^rinn byggja ekki færri
en 10 íbúðir árlega.
8. Hraðað verði byggingu
sjúkrahúss, svo sem fram-
ast er unnt.
9. Stækkun Laxárvirkjunarinn-
ar verði undirbúin og fram-
kvæmd, og rafveitukerfi
bæjarins aukið eftir þörf-
um.
10. Bærinn taki upp rekstur
kvikmyndahúss, ef hagkvæmt
reynist við rannsókn, og fái
lög samþykkt um eignarnám,
ef nauðsyn krefur.
11. Unnið verði að því, að bær-
inn kaupi Krossanesland og
bær eða ríki kaupi verk-
. smiðjuna þar, ef eignir þess-
ar. fást við bagkvæmu verði.
12. Hafinn verði undirbúningur
að byggingu barnaskóla á
Oddeyrinni.
13. Unnið verði að því, að í-
þróttafélögunum verði sem
fyrst sköpuð góð aðstaða til
íþróttaiðkana í bænum.
14. Byggðar verði hentugar ver-
SamningsgrundvöllurJ
Sðsialista-, Framsóknar- og Alþýðuflokksins, er Sjálfstæðisflokknum var
boðið að gerast aðili að, er birtur hér á eftir, t il þess að menn geti 'borið
hann saman við samninginn, og séð breylingar þær, sem fulltrúar Sjálf-
stæðisflokkins komu að.
1. Að komið verði á bæjarútgerð mcð einum togara, auk þátttöku bæj-
arins i útgerð eins togara í Utgerðarfélagi Akureyringa, og unnið
verði að því, að þeir verði reknir báðir undir sameiginlegri fram-
kvæmdastjórn.
2. Að unnið verði að hafnargarðinum á Oddeyri, og honurn komið
svo langt á þessu ári, að þar skapist aðstaða fyrir dráttarbiaut. og
unnið sé að því, að dráttarbraut komist upp svo fljótt sem unnt er.
3. Nú þegar verði hafinn undirbúningur að stækkun Torfunefsbryggj-
unnar, svo að stór vöruflutningaskip geti fengið afgreiðslu við hana,
og stækkunin verði framkvæmd, jafnskjótt og hægt er, vegna drátt-
arbrautarinnar.
4. Unnið verði að því, að ríkið setji fyrirhugaða niðursuðuverksmiðju
hér á Akureyri. en verði það ekki, þá vinni bæjarstjórn að því, að
aðrir aðilar reisi slíka verksmiðju hér.
5. Að hér verði sett og rekin tunnuverksmiðja.
6. Framkvæmdar verði aðrar aðgerðir til útrýmingar atvinnuleysinu
eftir samkomulagi við flokkana og í samræmi við bæjarmálastefnu-
skrá þeirra.
7. Meðan húsnæðisskortur er, vinni bærinn að því, að sem flestar íbúð-
ir verði byggðar árlega á vegum Byggingarfélags Akureyrar og
samvinnubyggingarfélaga í bænum, og verði væntanleg lög um
byggingarmál kaupstaðanna samþykkt, láti bæjarstjórn byggja 25
íbúðir á ári handa þeim, sem ekki geta byggt yfir sig sjáljir. Ef ekki
verður af framangreindri lagasetningu, láti þó bærinn byggja ekki
færri en 10 íbúðir árlega.
8. Hraðað verði byggingu sjúkrahúss, svo sem framast er unnt.
9. Stækkun Laxárvirkjunarinnar verði undirbúin og framkvæmd og
rafveitukerfi bæjarins aukið eftir þörfurn.
10. Bærinn taki upp rekstur kviknryndahúss og fái lög sanrþykkt uirt
eignarnám, ef nauðsyn krefur.
11. Að unnið verði að því, að bærinn kaupi Krossanesland og bær eða
ríki kaupi verksmiðjuna þar.
1 12. Flokkarnir skuldbindi sig allir til að vinna að því við Alþingi og
ríkisstjórn, að væntanleg áburðarverksnriðja verði reist á Akureyri.
Sömuleiðis verði væntanlegri lýsisherzlustöð valinn staður á Akur-
eyri.
13. Bæjarstjórn samþykkir að kjósa bæjarráð o. s. frv. (Þessi liður er
tekinn upp í samningsgrundvöllinn eftir áður framkominni tillögu
fulltrúa Sjálfstæðisnranna).
búðir fyrir smábátaútveg
bæjarbúa á góðum stað við
höfnina.
15. Bæjarstjórn stuðli að því, að
Ellibeimili komist senr fyrst
upp í bænum.
16. Bæjarstjórn sanrþykki að
kjósa bæjarráð, er liafi með
höndum störf eftirtalinna
nefnda: fjárhagsnefnd, vatns
veitunefnd, veganefnd, jarð-
eignanefnd, sundnefnd, hús-'
eignanefnd, bitaveitunefnd,
allsherjarnefnd. Bæjarráð
skipi 4 aðalnrenn og 4 vara-
menn, allir kosnir innan
bæjarstjórnarinnar. Sé bæði
aðalmaður og varamaður
forfallaður, geti flokkarnir
látið varafulltrúa sína mæta.
Bæjarráð haldi fundi reglu-
lega einu sinni í viku og oft-
ar, ef þörf krefur að dómi
bæjarstjóra eða tveggja bæj-
arráðsmanna.
Bæjarráð sé skipað til
eins árs í senn.
Bæjarráðsfundur er lög-
mætur, séu minnst 3 bæjar-
ráðsmenn rnættir. Laun bæj-
arráðsmasna séu kr. 100.00
á mánuði að viðbættri dýr-
tíðaruppbót.
Alþýðuflokksins, Framsóknar-
Bæjarstjórnar
tundur.
Fyrsti fundur hinnar nýkosnu bæj
arstj órnar Akureyrarkaupstaóar var
haldinn sl. þriójudag. Var aðalefni
hans að kjósa embættismenn bæjar-
stjórnarinnar, bæjarstjóra, bæjarráS
og nefndir.
Forseti var endurkosinn Þorst. M.
Jónsson með 11 atkv. Varaforseti,
einnig endurkosinn, Indriði Helga-
son, með 10 atkv., 1 seðill auður.
Skrijarar voru kosnir Steindór
Steindórsson og Steingrímur Aðal-
steinsson.
Bœjarstjóri til næstu fjögurra ára
var kosinn Steinn Steinsen með 6
atkv. 5 seðlar auðir. Hinir tveir fram
bjóðendurnir fengu því ekkert at-
kvæði.
Bœjarráð. Samþykkt var tillaga
úr málefnasamningi flokkanna um
kosningu bæjarráðs. Tekur það við
störfum 7 fastanefnda, sem lagðar
eru niður: Fjárhagsnefnd, vatns-
veitunefnd, veganefnd, jarðeigna-
nefiuh sundnefnd, húseignanefnd og
allsherjarnefnd. Við kosningu til
bæjarráðs og annarra nefnda kom að
eins fram einn listi í hvert sinn. -—
Höfðu flokkarnir komið sér sam-
an um hverja kjósa skyldi. — í
bæjarráð voru kosnir sem aðalmenn:
Friðjón Skarphéðinsson, Jakob
Frímannsson, Tryggvi Helgason og
Indriði Helgason. — Varamenn:
Steindór Steindórsson, Þorst. M.
Jónsson, Steingr. Aðalsteinsson og
Jón G. Sólnes.
Rafveitunefnd: Steindór Steindórs
son, Jónas Þór, Áskell Snorrason,
Indriði Helgason, Jón E. Sigurðs-
son.
Bygginganefnd: Þorst. M. Jónsson,
Svafar Guðmundsson, Erlingur Frið-
jónsson, Oskar Gíslason.
Brunamálanefnd: Sveinn Tómas-
'son, Marteinn Sigurðsson, Gestur
Jóhannesson, Jón G. Sólnes.
Kjörskrárnefnd: Brynjólfur Sveins
son, Þórður Valdemarsson, Svafar
Guðmundsson.
Carolinu-Rest-nefnd: Marteinri
Sigurðsson, Loftur Meldal, Svafar
Guðmundsson.
Spítalanefnd: Stefán Árnason, Sig-
ríður Þorsteinsdóttir, Svafar Guð-
mundsson. — Til vara: Brynjólfur
Sveinsson, Lárus Björnsson, Helgi
Pálsson.
Framfœrslunefnd: Kristbjörg Dúa-
dóttir, Jóhannes Jónasson, Elísabet
Eiríksdóttir, Tryggvi Emilsson,
Jakob Ó. Pétursson. — Varamenn:
Bragi Sigui jónsson, Helga Jónsdótt-
ir, Ingunn Eiríksdóttir, Loftur Mel-
dal, Helgi Pálsson.
Frœðsluráð: Þórarinn Björnsson,
Þorsteinn M. Jónsson, Elísabet Ei-
ríksdóttir, Brynleifur Tobíasson. —
Varamenn: Steindór Steindórsson,
Marteinn Sigurðsson, Hreiðar Stef-
ánsson, Svafar Guðmundsson.
Hafnarnefnd: Marteinn Sigurðs-
son, Tryggvi Helgason (innan bæj-
Undirritaðií bæjarfulltrúar
flokksins, Sósialistaflokksins og Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn Akureyrar hafa komið sér saman um framangreindan
málefnasamning, sem gildi yfirstandandi kjörtímabil 1946—
1950. |jjj
Akureyri, 4. febr. 1946.
Friðjón Skarphéðinsson. Steindór Steindórsson.
Jakob Frímannsson. Þorsteinn. M. Jónsson. Marteinn Sigurðsson.
Steingr. Aðalsteinsson. Tryggvi Helgason. Elísabet Eiríksdóttir.
Sv. Guðmundsson. Jón G. Sólnes. Indriði Helgason.