Íslendingur - 27.04.1946, Page 1
*
tvnn
XXXILárg.
Laugai daginn 27. apríl 1946
17. tbl.
Leikfjelag Akureyrar:
Brimhljóð
Frumsýning miðvikudaginn 24. þ. m.
Síðasta vetrardag hafði Leik-
fjelag Akureyrar frumsýningu á
sjónleiknum Brimhljóð eftir Loft
Guðmundsson. Sjónleikur þessi ger-
ist í Vestmannaeyjum og er í fjór-
um -þáttum. Efni leiksins er í stuttu
máli það, að sálsjúk stúlka, Bergljót,
elskar sjómanninn og fullhugann
Bryngeir, en af einhverjum óskilj-
anlegum ástæðum giftist hún hin-
um kalda kaupsýslumanni Sighvati,
sem* henni þykir ekkert vænt um,
þótt hún reyni að telja sér trú um
það. Bergijót kemur í veg fyrir sam-
viniiu Bryngeirs og Sighvats um
nýjan bát handa Bryngeir, kémur
Bryngeiri óbeinlínis til þess að rjúka
á sjó á ónýtum hát í aftakaveðri/
og í þeirri sjóferð fcrst hann. Þá
verður Begrljót vitlaus fyrir fúllt
og allt, sjer ofsjónir og heyrir radd-
ir og hleypur frá manni sínum beint
í sjóinn. Tjaldið.
Það verður að segja höfundi þessa
leiks til hróss, að leikurinn er á
vissan hátt vel byggður. Yfirleitt er
stígandi í hverjum þætti og stígandi
í leiknum í heild, sem nær hámarki
í síðasta þætti, óveðursnóttinni,
drukknun Bryngeirs, sjálfsmorði
Bergljótar. En að öðru leyti er leik-
urinn heldur ómerkilegur, samtöl
löng og stundum stirð, heilmikið af
ljelegri og margtugginni heimspeki
um hitt og þetta, sem betur væri
sleppt. '
Um meðferð leikaranna á leikn-
um Brimhljóð, er það að segja, að
að mínu viti vár hún góð yfirleitt
og sums'staðar ágæl. Jeg sá leikinn
á frumsýningu í Reykjavík haustið
1939, og eftir því sem jeg man bezt,
þá þarf Leikfjelag Akúreyrar síður
en svo að hræðast samanburð við
þá sýningu. Það, sem mjer fannst
helzt mega að leiknum finna, var
frá höfundarins hendi, ekki leikar-
anna.
Aðalhlutverk leiksins, Bergljótu,
Ijek Margrjet Ólafsdóttir Kond'rup,
og gerði það vel, ágætlega með
köflum má hiklaust fullyrða. Styrk-
ur Margrjetar liggur í hreyfingum
og' fasi, það nægir oft að horfa á
hana til þess að skilja, livað er að
gerast. Hins vegar hættir henni til
að tala of hratt, bera of ört á og tala
of mikið í sama dúr, þannig að,
þegar hún talar langt mál, verður
úr því einhver sviplaus flatneskja.
Þetta getur Margrjet vafalaust lag-
að, og ef það tekst, þá er jeg viss
um, að hún er ein með betri, ung-
urn leikkonum, sem völ er á hjer ,
um slóðir. I þessu hlutverki vgx
Margrjet að leik í hverjum þætti og
tekst bezt í síðasta þætli, enda er sá
þáttur beztur að öllu leyti, þrátt fyr-
ir draugagang, dauðs manns óp óg
móðursýki í tonnatali.
Hólmgeir Pálmason leikur Sig-
lival kaupmann, mann Bergljótar.
Hlutverkið hæfir honum vel, hinn
settlegi talandi Hólmgeirs passar vel
fyrir kaupsýslumannjnn, sem er svo
hugaður að þora að láta herja sig
án þess að svara í sömu mynt. Ann-
ars verð jeg að segja, að jeg kann
ekki ve! við áhéfzlur Hólmgeirs í
tali, en hann er jafnan skihnerkileg-
ur í framsögu og leikur oft ágæt-
lega.
Jón Norðfjörð, sem jafnframt
annaðist leikstjórn, ljek Bryngeir
formann. Gerfi haiA er golt og leik-
urinn .sömuleiðis, stundum prýðileg-
ur. I Reykjavík fór Valur Gíslason
með þetta hlutverk, og mjer fannst
hann skilja það og skila því með
nokkuð öðrum liætti en Jón..Mjer
fannst Jón hetri í fyrsta þætti, hann
var ekta drabbari og þó fullhngi á
sjó og landi. I síðari þáttum á hann
að vera eins ög jeg skil hann, þyngri,
ekki eins ofsafenginn og hávær. og
mjer fannst Jón gera þar á fulllítinn
mun og í fyrsta þætti, en 'annars tel
jeg leik Jóns yfirleilt eins góðan og
heilsleyptan og hlutverkið gefur til-
efni til. Leikstjórnina hefir hann
innt af höndum með prýði, fyrir ul-
an nokkra statista, en aukápersónur
eru fyrirbrigði á leiksviði, sem oft-
ast er ómögulegt að sansa, og verð-
ur að taka því með þögn og þolin-
mæði.
Þá er ótalið hlutverk Höllu gömlu,
en með það fór Svava Jónsdóttir, og
þar er fátt mn að segja. Leikur
Svövu í hlutverki þessarar gömlu og
lífsreyndu konu var eins og bezt
verður kosið, Þar var hvorki blettur
né hrukka. Svava liefir skilið hlut-
verkið og skilað því af vandlátri
smekkvísi.
Onnur hlutverk í leiknum eru lítil.
Björn Sigmundsson ljek Högna vjel-
stjóra prýðilega, skenuntilega fullur
í fyrsta þætti og enn skennntilegri
kjaftaskur í þriðja þætti í beitinga-
skúrnum. Elías Kristjánsson og
Jenný Jónsdótlir fóru laglega með
lítil hlutverk. Elíasi er að fara frain,
þótt lítið reyndi á það að þessu sinni.
Hann talar miklu rólegar en hann
gerði í Ljenharði. Stefán Ilalidórs-
son, júlíus Oddsson (Grímur gamli,
sem sjer draug og fer á sjó, þótt
hann viti, að hann muni drukkna, og
hefir pontuna sína með sjer, af því
að enginn er til að erfa hann), Jó-
hann Ögmundsson, Víkingur Björns-
son og Jón Ingimarsson leika sjó-
nfenn, sem varla verður sagt, að sjá-
ist ndkkurn tíma framan í, en flest-
ir segja þeir vel það, sem þeim er
falið að segja.
Frumsýningin á þessum leik var
ekki vel sótt, og er það undarlegt, að
það er eins og Akureyringar sjeu
hræddir við frumsýningar, en venju-
lega er alis pkkert að óttast, nema ef
j vera skyldu bekkirnir í húsinu, þessi
brakandi og ískrandi morðtól. Ef
jeg ætti mjer ósk, þá gæti jeg vel
trúað, að jeg óskaði þess, að bless-
uð bæjarstjórnin okkar væri dæmd
til þess að sitja á þessum samkomu-
1 lnissbekkjum á bæjarstjórnarfund-
um. jeg er hárviss um, að nýir og
betri bekkir birtust í Samkomuhús-
inu í hvelli, ella yrði bæjarstjórnin
spítalamatur innan fárra vikria. —
Leikarar og leikhúsgeslir lifa í von
'Uwt botri 4rekkl~i"5'ámkom u 11 úsið fyr-
ir næsta leikár.
Að svo mæltu þakka jeg Leikfje-
lagi Akureyrar fyrir leikinn, leik-
stjóra og leikurum, og vona, að bæj-
arbúar sýni áhuga sinn á leiklistar-
starfseminni jneð því að sækja
þennan leik sem allra mest. Hann er
vel þess virði,
BárSur Jakobsson.
Kvenfjelagið Hlíf
gekkst fyrir merkjasölu, bazar,
kaffisölu, ásamt fjölbreyttri kvöld-
skemmtun og dansleik í Samkomu-
húsi bæjarins á sumardaginn fyrsta.
Agóðanum af þessari starfsemi mun
verða varið til yð reisa barnaheim-
ili hjer við bæinn. Hefir frú Gunn-
hildur Ryel í þessu skyni gefið fje-
laginu ræktaða laðdsspildu ofan við
bæinn. Allar þessar framkvæmdir
sýna glögglega frábæran dugnað og
ósjerhlífni kvennanna, enda er lijer
hið mesla þarfamál á ferð. Hefir
Kvenfjelagið Hlíf um langt skeið
helgað starfsemi sína svipuðum mál-
um. Því miður virðist nokkuð tóm-
læti ríkjandi hjá bæjarbúum í þess-
um efnurn, og fer fjarri því, að þeim
sje syndur jafnalmennur áhugi og í
höfuðstaðnum, þar sem sumardag-
urinn fyrsti er af einhug helgaður
fjáröflun í þágu barnanna.
H1 j ómleikar Tónlist-
arfjelagsins
Á miðvikudagskvöldið var fóru
fram í Nýja-Bíó fyrstu hljómleikar
Tónlistarfjelags Ak. að þessu sinni.
Ljeku þeir Árni Kristjánsson píanó-
leikari og Björn Ólafsson fiðluleik-
ari sónötu fyrir fiðlu og pianó, í A
dúr op. 47 eftir Beethoven. Þá ljek
Árni sónötu fyrir pianó, í E dúr op.
109, einnig eftir Beethoven. Loks
ljek BjÖrn Ólafsson fiðlukonsert í
e moil op. 64 eftir Mendelsolm.
Hljómleikarnir vofu fyrir styrkt-
arfjelaga Tónlistarfjelagsins og gesti
þeirra, og var húsið þjettskipað. —
Hrifning áheyrenda var mikil, og
bárust listamönnunum blómvendir.
Á sumardaginn fyrsta ljeku lista-
mennirnir fyrir kennara og nemend-
ur Menntaskólans við ágætar undir-
tektir.
Templarar lief ja kvik-
myndarekstur
Á sumardaginn fyrsta var blaða-
mönnum, bæjarstjórn, bæjarfógeta
og ýmsuni öðrum gestum boðið á
kvikmyndasýningu í Skjaldborgar-
bíói hjer í bænum. Eru það templ-
arar lijer í bæ, sem tekið hafa að
sjer í-ekstur kvikmyndahússins, en
það hefir ekki verið starfrækt um
skeið. Áður en sýningin hófst ávaxp-
aði Stefán Ág. Kristjánsson gestina
og bauð þá velkomna. Kvað hann
lemplara hugsa gott til þessarar
starfsemi og ljet í Ijós þá von sína,
að hún mætti verða til að auka og
þróska menningarlíf þessa bæjar.
Myndir hefir Skjaldborgaibíó tryggt
sjer frá Tjarnarbíó í Reykjavík, sem
eins og kunnugt er hefir ávallt kapp-
kostað að hafa eingöngu úrvals-
myndir upp á að bjóða. Gagnger
breyting hefir nú farið fram á sæt-
um hússins, og eru þau nú mjög
viðunanleg. Einnig skýrði Stefán
Ág. frá því, að í næsta inánuði ætti
bíóið von á nýrri og fullkomnari
sýningartækj um með nýtízku tal- og
tóntækjum.
Stjórn Skjaldborgarbíós skipa
Stefán Ág. Kristjánsspn, Hannes J.
Magnússon og Kristján S. Sigurðs-
son.
Mynd sú, er gesturn var sýnd, var
forkunnarfögur hljómmynd, í eðli-
legum litum, og fjallaði hún um
ævi pólska tónskáldsins og píanó-
snillingsins Frederick Chopin. Má ó-
hikað telja þessa mynd með þeim
allra beztu, sem sjest hafa hjer.
Frjettatilkynningar ‘
frá ríkisstjórninni
Aðalfundur í brezku deild norska
Rauða Krossins var haldinn í
London hinn 9. apríl sl.
Á fundi þessum voru bornar fram
þakkir til íslendinga fyrir þau fjár-
framlög og aðra aðstoð, er borist
hafði Norðmönnum hjeðan. Var
þess sjeistaklega getið, að fjárfram-
lög þau, sem frá íslandi bárust, hafi
verið þau mestu, sem Rauða Kross-
inum norska hefðu borist, og var
fulltrúa frá sendiráði íslands í
London, er var á fundinum, sjerstak-
lega falið að bera fram þakkir
norsku þjóðarinnar fyrir þau og
þann bræðrahug, er gjafirnar sýndu.
Reykjavík, 17. apríl 1946.
Á dánardegi Roosevelts forseta,
12. april sl., var bústaður hans í
Hyde Park afhentur ríkinu sem
minjasafn. Frú Roosevelt afhenti
Krug innanríkisráðherra eignina, en
Ti uirian forseti flutti ræðu.
Óllum sendiherrum erlendra ríkja
var boðið að vera viðstaddir athöfn-
ina, og voru meðal viðstaddra Thor
Thors, sendiherra íslands, og kona
hans.
Reykjavík, 14. apríl 1946.
Hinn 10. þ. m. fór hjeðan Eggert
Kristjánsson stórkaupmaður áleiðis
til Moskva lil samninga um sölu á
ýmsum íslenzkum afurðum og kaupa
á rússneskum framleiðsluvörum.
Með honurn í samningum þessum
verða þeir Ársæll Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri og Jón Stefánsson,
skrifstof ustj óri Síldarútvegsnefndar,
en þeir eru sem stendur staddir í
Stokkhólmi.
Reykjavík, 14. apríl 1946.
INGIMUNDUR ÁRNASON, söng-
stjóri er nú kominn suður til Rvík-
ur til söngæfinga ásamt níu kór-
fjelögum úr „Geysi“, þeim Árna
Ingimundarsyni, Guðm. Gunnars-
syni, Henning Kondrup, Hermanni
Stefánssyni, Jóhanni Guðmundssyni,
Ólafi Magnússyni, Victor Aðalsteins-
syni, Tómasi Steingrímssyni og Erni
Snorraayni. Munu þeir taka þátt í
söngför S. í. K. til Norðurlanda í
næsta mánuði. Leggja söngmennirn-
ir af stað með Drottningunni 5. maí
n. k.
Útvarpsuinrœður um tillögu Fram
sóknarmanna um vantraust á ríkis-
stjórnina fóru fram í gærkvöldi og
verður haldið áfram í kvöld. Enn
er ekki vitað, hvenær Alþingi getur
lokið störfum.