Íslendingur


Íslendingur - 27.04.1946, Qupperneq 1

Íslendingur - 27.04.1946, Qupperneq 1
* tvnn XXXILárg. Laugai daginn 27. apríl 1946 17. tbl. Leikfjelag Akureyrar: Brimhljóð Frumsýning miðvikudaginn 24. þ. m. Síðasta vetrardag hafði Leik- fjelag Akureyrar frumsýningu á sjónleiknum Brimhljóð eftir Loft Guðmundsson. Sjónleikur þessi ger- ist í Vestmannaeyjum og er í fjór- um -þáttum. Efni leiksins er í stuttu máli það, að sálsjúk stúlka, Bergljót, elskar sjómanninn og fullhugann Bryngeir, en af einhverjum óskilj- anlegum ástæðum giftist hún hin- um kalda kaupsýslumanni Sighvati, sem* henni þykir ekkert vænt um, þótt hún reyni að telja sér trú um það. Bergijót kemur í veg fyrir sam- viniiu Bryngeirs og Sighvats um nýjan bát handa Bryngeir, kémur Bryngeiri óbeinlínis til þess að rjúka á sjó á ónýtum hát í aftakaveðri/ og í þeirri sjóferð fcrst hann. Þá verður Begrljót vitlaus fyrir fúllt og allt, sjer ofsjónir og heyrir radd- ir og hleypur frá manni sínum beint í sjóinn. Tjaldið. Það verður að segja höfundi þessa leiks til hróss, að leikurinn er á vissan hátt vel byggður. Yfirleitt er stígandi í hverjum þætti og stígandi í leiknum í heild, sem nær hámarki í síðasta þætti, óveðursnóttinni, drukknun Bryngeirs, sjálfsmorði Bergljótar. En að öðru leyti er leik- urinn heldur ómerkilegur, samtöl löng og stundum stirð, heilmikið af ljelegri og margtugginni heimspeki um hitt og þetta, sem betur væri sleppt. ' Um meðferð leikaranna á leikn- um Brimhljóð, er það að segja, að að mínu viti vár hún góð yfirleitt og sums'staðar ágæl. Jeg sá leikinn á frumsýningu í Reykjavík haustið 1939, og eftir því sem jeg man bezt, þá þarf Leikfjelag Akúreyrar síður en svo að hræðast samanburð við þá sýningu. Það, sem mjer fannst helzt mega að leiknum finna, var frá höfundarins hendi, ekki leikar- anna. Aðalhlutverk leiksins, Bergljótu, Ijek Margrjet Ólafsdóttir Kond'rup, og gerði það vel, ágætlega með köflum má hiklaust fullyrða. Styrk- ur Margrjetar liggur í hreyfingum og' fasi, það nægir oft að horfa á hana til þess að skilja, livað er að gerast. Hins vegar hættir henni til að tala of hratt, bera of ört á og tala of mikið í sama dúr, þannig að, þegar hún talar langt mál, verður úr því einhver sviplaus flatneskja. Þetta getur Margrjet vafalaust lag- að, og ef það tekst, þá er jeg viss um, að hún er ein með betri, ung- urn leikkonum, sem völ er á hjer , um slóðir. I þessu hlutverki vgx Margrjet að leik í hverjum þætti og tekst bezt í síðasta þætli, enda er sá þáttur beztur að öllu leyti, þrátt fyr- ir draugagang, dauðs manns óp óg móðursýki í tonnatali. Hólmgeir Pálmason leikur Sig- lival kaupmann, mann Bergljótar. Hlutverkið hæfir honum vel, hinn settlegi talandi Hólmgeirs passar vel fyrir kaupsýslumannjnn, sem er svo hugaður að þora að láta herja sig án þess að svara í sömu mynt. Ann- ars verð jeg að segja, að jeg kann ekki ve! við áhéfzlur Hólmgeirs í tali, en hann er jafnan skihnerkileg- ur í framsögu og leikur oft ágæt- lega. Jón Norðfjörð, sem jafnframt annaðist leikstjórn, ljek Bryngeir formann. Gerfi haiA er golt og leik- urinn .sömuleiðis, stundum prýðileg- ur. I Reykjavík fór Valur Gíslason með þetta hlutverk, og mjer fannst hann skilja það og skila því með nokkuð öðrum liætti en Jón..Mjer fannst Jón hetri í fyrsta þætti, hann var ekta drabbari og þó fullhngi á sjó og landi. I síðari þáttum á hann að vera eins ög jeg skil hann, þyngri, ekki eins ofsafenginn og hávær. og mjer fannst Jón gera þar á fulllítinn mun og í fyrsta þætti, en 'annars tel jeg leik Jóns yfirleilt eins góðan og heilsleyptan og hlutverkið gefur til- efni til. Leikstjórnina hefir hann innt af höndum með prýði, fyrir ul- an nokkra statista, en aukápersónur eru fyrirbrigði á leiksviði, sem oft- ast er ómögulegt að sansa, og verð- ur að taka því með þögn og þolin- mæði. Þá er ótalið hlutverk Höllu gömlu, en með það fór Svava Jónsdóttir, og þar er fátt mn að segja. Leikur Svövu í hlutverki þessarar gömlu og lífsreyndu konu var eins og bezt verður kosið, Þar var hvorki blettur né hrukka. Svava liefir skilið hlut- verkið og skilað því af vandlátri smekkvísi. Onnur hlutverk í leiknum eru lítil. Björn Sigmundsson ljek Högna vjel- stjóra prýðilega, skenuntilega fullur í fyrsta þætti og enn skennntilegri kjaftaskur í þriðja þætti í beitinga- skúrnum. Elías Kristjánsson og Jenný Jónsdótlir fóru laglega með lítil hlutverk. Elíasi er að fara frain, þótt lítið reyndi á það að þessu sinni. Hann talar miklu rólegar en hann gerði í Ljenharði. Stefán Ilalidórs- son, júlíus Oddsson (Grímur gamli, sem sjer draug og fer á sjó, þótt hann viti, að hann muni drukkna, og hefir pontuna sína með sjer, af því að enginn er til að erfa hann), Jó- hann Ögmundsson, Víkingur Björns- son og Jón Ingimarsson leika sjó- nfenn, sem varla verður sagt, að sjá- ist ndkkurn tíma framan í, en flest- ir segja þeir vel það, sem þeim er falið að segja. Frumsýningin á þessum leik var ekki vel sótt, og er það undarlegt, að það er eins og Akureyringar sjeu hræddir við frumsýningar, en venju- lega er alis pkkert að óttast, nema ef j vera skyldu bekkirnir í húsinu, þessi brakandi og ískrandi morðtól. Ef jeg ætti mjer ósk, þá gæti jeg vel trúað, að jeg óskaði þess, að bless- uð bæjarstjórnin okkar væri dæmd til þess að sitja á þessum samkomu- 1 lnissbekkjum á bæjarstjórnarfund- um. jeg er hárviss um, að nýir og betri bekkir birtust í Samkomuhús- inu í hvelli, ella yrði bæjarstjórnin spítalamatur innan fárra vikria. — Leikarar og leikhúsgeslir lifa í von 'Uwt botri 4rekkl~i"5'ámkom u 11 úsið fyr- ir næsta leikár. Að svo mæltu þakka jeg Leikfje- lagi Akureyrar fyrir leikinn, leik- stjóra og leikurum, og vona, að bæj- arbúar sýni áhuga sinn á leiklistar- starfseminni jneð því að sækja þennan leik sem allra mest. Hann er vel þess virði, BárSur Jakobsson. Kvenfjelagið Hlíf gekkst fyrir merkjasölu, bazar, kaffisölu, ásamt fjölbreyttri kvöld- skemmtun og dansleik í Samkomu- húsi bæjarins á sumardaginn fyrsta. Agóðanum af þessari starfsemi mun verða varið til yð reisa barnaheim- ili hjer við bæinn. Hefir frú Gunn- hildur Ryel í þessu skyni gefið fje- laginu ræktaða laðdsspildu ofan við bæinn. Allar þessar framkvæmdir sýna glögglega frábæran dugnað og ósjerhlífni kvennanna, enda er lijer hið mesla þarfamál á ferð. Hefir Kvenfjelagið Hlíf um langt skeið helgað starfsemi sína svipuðum mál- um. Því miður virðist nokkuð tóm- læti ríkjandi hjá bæjarbúum í þess- um efnurn, og fer fjarri því, að þeim sje syndur jafnalmennur áhugi og í höfuðstaðnum, þar sem sumardag- urinn fyrsti er af einhug helgaður fjáröflun í þágu barnanna. H1 j ómleikar Tónlist- arfjelagsins Á miðvikudagskvöldið var fóru fram í Nýja-Bíó fyrstu hljómleikar Tónlistarfjelags Ak. að þessu sinni. Ljeku þeir Árni Kristjánsson píanó- leikari og Björn Ólafsson fiðluleik- ari sónötu fyrir fiðlu og pianó, í A dúr op. 47 eftir Beethoven. Þá ljek Árni sónötu fyrir pianó, í E dúr op. 109, einnig eftir Beethoven. Loks ljek BjÖrn Ólafsson fiðlukonsert í e moil op. 64 eftir Mendelsolm. Hljómleikarnir vofu fyrir styrkt- arfjelaga Tónlistarfjelagsins og gesti þeirra, og var húsið þjettskipað. — Hrifning áheyrenda var mikil, og bárust listamönnunum blómvendir. Á sumardaginn fyrsta ljeku lista- mennirnir fyrir kennara og nemend- ur Menntaskólans við ágætar undir- tektir. Templarar lief ja kvik- myndarekstur Á sumardaginn fyrsta var blaða- mönnum, bæjarstjórn, bæjarfógeta og ýmsuni öðrum gestum boðið á kvikmyndasýningu í Skjaldborgar- bíói hjer í bænum. Eru það templ- arar lijer í bæ, sem tekið hafa að sjer í-ekstur kvikmyndahússins, en það hefir ekki verið starfrækt um skeið. Áður en sýningin hófst ávaxp- aði Stefán Ág. Kristjánsson gestina og bauð þá velkomna. Kvað hann lemplara hugsa gott til þessarar starfsemi og ljet í Ijós þá von sína, að hún mætti verða til að auka og þróska menningarlíf þessa bæjar. Myndir hefir Skjaldborgaibíó tryggt sjer frá Tjarnarbíó í Reykjavík, sem eins og kunnugt er hefir ávallt kapp- kostað að hafa eingöngu úrvals- myndir upp á að bjóða. Gagnger breyting hefir nú farið fram á sæt- um hússins, og eru þau nú mjög viðunanleg. Einnig skýrði Stefán Ág. frá því, að í næsta inánuði ætti bíóið von á nýrri og fullkomnari sýningartækj um með nýtízku tal- og tóntækjum. Stjórn Skjaldborgarbíós skipa Stefán Ág. Kristjánsspn, Hannes J. Magnússon og Kristján S. Sigurðs- son. Mynd sú, er gesturn var sýnd, var forkunnarfögur hljómmynd, í eðli- legum litum, og fjallaði hún um ævi pólska tónskáldsins og píanó- snillingsins Frederick Chopin. Má ó- hikað telja þessa mynd með þeim allra beztu, sem sjest hafa hjer. Frjettatilkynningar ‘ frá ríkisstjórninni Aðalfundur í brezku deild norska Rauða Krossins var haldinn í London hinn 9. apríl sl. Á fundi þessum voru bornar fram þakkir til íslendinga fyrir þau fjár- framlög og aðra aðstoð, er borist hafði Norðmönnum hjeðan. Var þess sjeistaklega getið, að fjárfram- lög þau, sem frá íslandi bárust, hafi verið þau mestu, sem Rauða Kross- inum norska hefðu borist, og var fulltrúa frá sendiráði íslands í London, er var á fundinum, sjerstak- lega falið að bera fram þakkir norsku þjóðarinnar fyrir þau og þann bræðrahug, er gjafirnar sýndu. Reykjavík, 17. apríl 1946. Á dánardegi Roosevelts forseta, 12. april sl., var bústaður hans í Hyde Park afhentur ríkinu sem minjasafn. Frú Roosevelt afhenti Krug innanríkisráðherra eignina, en Ti uirian forseti flutti ræðu. Óllum sendiherrum erlendra ríkja var boðið að vera viðstaddir athöfn- ina, og voru meðal viðstaddra Thor Thors, sendiherra íslands, og kona hans. Reykjavík, 14. apríl 1946. Hinn 10. þ. m. fór hjeðan Eggert Kristjánsson stórkaupmaður áleiðis til Moskva lil samninga um sölu á ýmsum íslenzkum afurðum og kaupa á rússneskum framleiðsluvörum. Með honurn í samningum þessum verða þeir Ársæll Sigurðsson fram- kvæmdastjóri og Jón Stefánsson, skrifstof ustj óri Síldarútvegsnefndar, en þeir eru sem stendur staddir í Stokkhólmi. Reykjavík, 14. apríl 1946. INGIMUNDUR ÁRNASON, söng- stjóri er nú kominn suður til Rvík- ur til söngæfinga ásamt níu kór- fjelögum úr „Geysi“, þeim Árna Ingimundarsyni, Guðm. Gunnars- syni, Henning Kondrup, Hermanni Stefánssyni, Jóhanni Guðmundssyni, Ólafi Magnússyni, Victor Aðalsteins- syni, Tómasi Steingrímssyni og Erni Snorraayni. Munu þeir taka þátt í söngför S. í. K. til Norðurlanda í næsta mánuði. Leggja söngmennirn- ir af stað með Drottningunni 5. maí n. k. Útvarpsuinrœður um tillögu Fram sóknarmanna um vantraust á ríkis- stjórnina fóru fram í gærkvöldi og verður haldið áfram í kvöld. Enn er ekki vitað, hvenær Alþingi getur lokið störfum.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.