Íslendingur


Íslendingur - 10.05.1946, Qupperneq 5

Íslendingur - 10.05.1946, Qupperneq 5
Föstudaginn 10. maí 1946 ÍSLENDINGUR 5 Svar Eimskipafjelags íslands til stjórnar Verziunarmannafjeiagsins á Akureyri „Rvík 30. apríl, 1946. Stjórn Verslunarmannafélagsins á Akureyri. Vér höfum móttekið heiðrað bréf yðar, dags. 29. mars, þar sem þér skýrið oss frá óánægju, sem fram kom á fundi í félagi yðar yfir sam- gönguerfiðleikum milli Akureyrar og annara landshluta, einkum nú i tnarsmánuði. Vér viðurkennum fyllilega, að I il-ieim mánuði var erfitt um samgöng- jUr við Akureyri, en fyrir því eru hinsvegar ýmsar ástæður, sem vér viljum leyfa oss að henda á. Það sem mestu hefir valdið um að ckki hefir verið unt að halda Uppi nógu greiðum samgöngum út Um land framan af þessu ári, er að ,Selfoss“, sem hefir verið svo að ^egja eingöngu í strandferðum, varð að fara í viðgerð til Skotlands í desembermánuði f. á. Sú viðgerð átti að taka 3—4 vikur, en skipið er nú búið að liggja þar í tæpa 4 'nánuði, og er viðgerðinni ekki lok- tð enn. Á síðastliðnu ári kom „Sel- foss“ 11 sinnum við á Akureyri bam í byrjun októbermánaðar, en k hófst, eins og yður er kunnugt verkfall á skipum vorum, sem ekki far fyllilega lokið, fyri' en eftir miðj- an desember, þannig að raunveru- lega hefir „Selfoss" ekki verið í ferð- am síðustu sex mánuði. Til þess að ráða bót á þessu hefir Fjallfoss“ verið lálinn annast trandferðirnar, meðan „Selfoss" i,efir verið í viðgerð og hefir skipið omið 4 sinnum við á Akureyri frá aví að verkfallinu lauk og fram til iiýrjunar mars. Þá varð „Fjallfoss“ innig að fara í viðgerð, sem ekki átti dragast, og tafðist við það frá i' 'lÍNgum uin nærri 3 vikur, ein- itt nú í mars-mánuði. Strax að lok- '■'I ii viðgerð (raunar vannst ekki ' íi til að ljúka henni að fullu) fór Vipið í strandferð vestur og norð- tr um land. En með því að mjög uikið lá þá í Reykjavík af efni til 'ýgginga Síldarverksmiðja ríkisins Skagaströnd og Siglufirði, var iltölulega lítið liægt að senda af íðrum vörum frá Reykjavík út á md vegna hinna mjög rúmfreku ara til verksmiðjanna. Skipið hefði. vo væntanlega getað farið fljótlega z iðra strandferð, hefði ekki staðið á, að það þurfti að taka nokkur ii' druð smálestir af óverkuðum ' 1 ó ýmsum höfnum úti um land dytja til Englands, en ekki mátti u gast að koma fiskinum þangað, salan ætti ekki að fara út um i 'fur. >,Brúarfoss“ var leigður bresku lórninni til febrúarloka þ. á. til 1 ,s að flytja frystan fisk, og höfð- j!j' v^r því ekki nein umráð yfir jipinu, þar til í byrjun mars. En ®gna þess að þá hafði verið seldur 'frnur af harðfrystum fiski til 'meríku, gat skipið ekki farið út á 'ád, heldur fór það þegar í stað ferma fiskinn og fór héðan um þ, 't ar> marsmánuð til New York. j jLagarfoss' hefir verið í ferðum ' Lautaborgar og Kaupmannahafn- , °S þar eð mikið hefir borist að af ,'rum’ sem nauðsynlegt var að ^ ttiust liingað fyrir ákveðinn tíma, sent efni og vélar til Síldarverk- smiðjanna og Andakílsvirkjunarinn- ar, vannst ekki tími til þess að láta skipið fara úl ó land í mars-mánuði. „Reykjafoss" var síðast á Akur- eyri 27. febrúar s. 1. og mestan hluta marsmánaðar var skipið í Englands- ferð. Þegar skipið konr úr þeirri ferð átti það að,fara þegar í stað til Antwerpen, en þangað hafði ver- ið selt lalsvert magn af fiskimjöli og von um sölu á meiru, ef unt væri að fá skip til þess að flytja það, auk þess sem nokkur hundruð smálestir af vörum lágu í Antwerpen, aðallega ýmiskonar byggingavörur, sem lengi hafði vantað. Þegar skipið kom til Reykjavíkur, kom í ljós að um 350 smólestir af lausum múrstein til Síldarverksmiðjanna á Siglufirði, voru í skipinu, en þar eð mjög erfitt er með umhleðslu á lausum múr- stein, var skipið látið fara skyndi- ferð eingöngu til Siglufjarðar til að afferma múrsteininn. Mátti ekki tefja skipið með því að láta það fara til Akureyrar í þeirri ferð eða taka neinar aðrar vörur, þar eð búið var að tilkynna vörusendendum í Ant- werpen, að skipið yrði þar í byrjun apríl. Vér höfum nú með þessu, gjört yður grein fyrir ástæðuin fyrir því, að ekki var mögulegt að láta neitt af eigin skipum vorum koma við á Ak. á tímábilinu frá 4. mars til 4. apríl er „Fjallfoss“ kom til Akureyrar, og væntum þér þess, að þér sjóið af þessu, að hér hefir frekar verið um óviðráðanleg atvik að ræða, en að vér höfum með vilja hagað sigling- um þannig. IJm amerísku leiguskipin er það að segja, að þau hafa eingöngu feng- ist leigð til Reykjavíkur, en enda þólt lieimilt væri að serula þau á aðrar íslenskar hafnir, þá kærni slíkt ekki til mála, þar séin skip þessi etu 5300 smálestir að stærð. Skipin eru því altof stór og dýr til að fara á hafnir úti um land og auk þess eru venjulega aðeins örfáar smólest- ii skrósettar beint út ó land í hverri ferð, og munum vér víkja að því atriði síðar. Skip, sem vér höfum leigt frá Norðurlöndum hafa heldur ekki fengist nema með því skilyrði, að þau færu ekki á hafnir úti um land. Þegar vér leigðum danska skip- ið „Anne“ lögðum vér fast að eig- endum, með að skipið mætti korna við á höfnum úti um land, en við það var ekki komandi, að skipið mætti koma annarsstaðar við en í Reykjavík og Hafnarfirði. Þegar leiga skipsins var framlengd fyrir rúmum tveim mánuðum endur- tókum vér ósk vora, en' svarið var algjörlega neitandi. Þegar „Anne“ var hér síðast í byrjun apríl, fórum vér fram ó, að skipið mætti fara beint til Akureyrar með vörur og koma hingað beina leið þaðan, en enn neituðu eigendurnir. Sama máli gegndi um áburðar- skipið „Maurita“, sem kom nýlega fró Noregi. Þó vitanlega hefði verið æskilegast, að það færi með áburð- inn á helstu hafnir úti á landi, vildu eigendur skipsins ekk'i, að það væri tafið um einn dag umfram það, sem þurfti til að afferma skipið hér. Það er hvorttveggja að eigendur skip- anna þekkja ekki hafnarskilyrði hér á landi, þannig að þeir álíta þau verri en þau eru, og sérslaklega telja þeir hættulegt að sigla hér kringum land að vetrinum til, og svo er hitt að skorturinn á skipum af þeirri stærð, sem oss hentar loest, er enn svo mikill í heiminum, að mjög erfitt er að fó leigð sicip af þessari stærð. Þá viljuin vér benda á, að þótt félagið hafi tryggt sér 13—14 leigu- skip og auglýst þau, með það fyrir augum, að-kaupsýslumenn geti gert ráðstafanir um vöruflutninga sína, þá má einnig sjó af þeim auglýsing- um, að skip þessi eru ekki öll kom- in í þjónustu félagsins enn, enda er þess jafnan getið hvenær skipin eigi að ferma í erlendri höfn, og sum þeirra eru ekki byrjuð að ferma enn, þrátt fyrir það að langt sé síðan þau voru leigð og óttu að byrja að ferma. Sem dæmi um þetta, viljum vér benda á. að frystiskipið „Lublin“, sem vér höfum tekið á leigu, átti upphaflega að afhendast hinn 20. febrúar síðastliðinn. Sömuleiðis átti leiguskipið „Horsa“, sem einnig hefir frystirúm, að vera tilbúin að ferma í iok marsmánaðar. Bæði skipin hafa tafist svo vegna viðgerða, að „Lublin“ er fyrst núna nýkomin til Reykjavíkur, en ,.Horsa“ verður ekki tilbúin fyrr en í næsta mánuði. Þegar svona er ástatt er ekki gott að gera áætlanir um ferðir skipanna, en þér kvartið einnig yfir því i bréfi yðar, að engar áætlanir séu gerðar um skipaferðirnar, og ekki auglýst livénær þau fari eða hvert þau fari. Skipalista þó, sem birtir eru í blöðum og útvarpi, iná þó skoða sein auglýsingar um skipa- ferðirnár, en venjulega er skýrt fró ferðum skipanna eins fljótt og mögu- legt er, og búið er að ákveða þær, eins og vér höfurn þegar skýrt frá um leiguskipin. Að öðru leyti vilj- um vér taka þetta fram um áætlanir fyrir skipin og auglýsingar þar að lútandi. 1. Leiguskipin frá Ameríku erú tekin fyrir eina ferð í einu eft- ir því hvað berst að af vörum fyrir vestan. Áður höfðum vér skipin í tímaleigu og sömu skipin voru þannig í ferðum alt árið, en á þessu ári hafa þau ekki fengist nerna fyrir eina og eina ferð í einu, og höfurn vér venjulega ekki vit- að um hvaða skip vér fengjum leigð fyrr en um það leyti sem þau byrja að ferma. 2. Um önnur leiguskip er óvissa venjulega svo mikil, bæði hvað snertir leigumála og afhend- ingartíma, að erfitt er að aug- lýsa þau öðruvísi en gert er í skipafréttunum, sem birtast í útvarpinu og Reykjavíkurblöð- um. 3. Eigin skip félagsins, sem fara út á land, hafa nú upp á síð- kastið venjulega verið full- fermd frá Reykjavík af um- hleðsluvörum og ekki getað tekið neinn flutning frá öðr- um af þeim ástæðum. Þess- vegna hefir ekki þótt rétt að auglýsa ferðir þeirra nema sem minnst, þegar svo hefir staðið á. Hafi skipin getað tek- ið einhverjar vörur hafa ferð- irnar altaf verið auglýstar. 4. Vegna hinnar miklu óvissu um sölu íslenskra afurða nú und- anfarið, hefir félagið einnig orðið að haga siglingum sín- um að miklu leyti eftir því hvert útflutningsvörurnar hafa átt að fara og á- hvaða höfn- um hefir átt að taka þær, eins og vér höfum þegar minnst á. Vér höfum því enn eigi talið fært að gera fastar áætlanir um ferðir skipa vorra, með því að altaf hefir mátt búast við breytingum á ferðunum, af þessum ástæðum. Vér höf- um þegar nefnt nokkur dæmi og viljum bæta því við að ein, mitt þessa dagana er „Brúar- foss“ í strandferð kringum land með fullfermi af tilbún- um áburði. Að sjálfsögðu var ráðgert, að skipið fermdi hraðfrystan fisk til útlanda, en þar eð engin vissa er enn fyrir hvenær eða til hvaða liafnar næsti farmur af hrað- frystum fiski fer, og ekki var hægt að lóta skipið bíða að- gerðalaust, var það í þess stað sent í strandferð með áburð- inn. Einnig liggur hér annað frystiskip „Lublin“ og er sem stendur helst útlit fyrir að það fari til Ítalíu með fiskfarm. Þá er nú búið að selja ullina, sem er meira en einn skips- farmur, og skip það sem kem- hr til með að flytja hana mun væntanlega verða að taka ull- ina á fjölda höfnum út um land. Ef búið hefði verið að gera áætlun um ferðir þessara skipa áður en vitað var um þe'ssa hluti, þó er augljóst, að sú áætlun hefði raskast all- mjög, og mætti þ>á búast við gagnrýni á félagið fyrir, að það héldi ekki þær áætlanir, sem það hef'ði auglýst. Vér efumst ekki um, að þér skiljið fyllilega þessar erfiðu aðstæður, en getum jafnframt fullvissað yður um, að strax og unt er, munum vér gera fastar áætlanir um ferðir þeirra skipa félagsins, sem vér teljum mögulegt. Utaf ummælum yðar um „þann ó- sið, sem tíðkast hefir undanfarin ár, að nær allar vörur séu settar á land í Reykjavík, og geymdar þar um lengri eða skemmri tíma áður en þær eru sendar til ákvörðunarstað- ar“, þá viljuin vér ekki kalla þetta „ósið“, heldur óumflýjanlega nauð- syn, sem orðið hefir til vegna styrj- aldarástandsins og viðskiftanna við Ameríku. Þó vér teljurn víst, að félagsmönn- um yðar sé fullkunnugt um, hvernig innkaupum vara liefir verið hagað Reykjafoss Empire Gallop Lagarfoss Long Splice Anne i Buntline Hitch Reykjafoss Lech Lagarfoss Empire Gallop Reykjafoss Anne Sinnet Buntline Hitch undanfarið, og er raunar enn, þykir oss rétt að benda á eftirfarandi stað- reyndir þessu viðvíkjandi. Mest af nauðsynjavörum lands- manna kemur með hinum stóru ame- rísku leiguskipum frá New York eða Halifax. Vörukaupum vestan hafs er þannig hóttað, að til þess að tryggja, að ekki verði vöruskortur í landinu, þá verða innflytjendur að kaupa vör- urnar í stórum slöttum oft löngu áð- ur en pantanir liggja fyrir frá kaup- mönnum eða kaupfélögum. Af þessu leiðir að enginn kostur er að ráð- stafa vörunum og skrásetja þær beint út á land, þegar skipin ferma vör- urnar. Farmur þessara skipa eru skrásettir nálega eingöngu til Reykja- vfkur, og verða vörurnar því að fara þar í land. Reynslan hefir einnig orðið sú, að bæði í stríðinu og síð- an því lauk, að oft líður langur tími fró því að skipin koma, þangað til innflytjendurnir ráðstafa vörunni til sendingar út á land. Við það getur félagið vitanlega ekki ráðið. Þó viljum vér taka skýrt fram at- riði, sem suinum virðist ekki full- ljóst, eftir ýmsum blaðaskrifum að dæma, ■— þó vér gerum tæplega ráð fyrir, að nokkur af félagsmönnum yðar sé í þeim hóþi, — að það er alls ekki á valdi Eimskipafélagsins að breyta þessu fyrirkomulagi. Það eru sem sé vörusendendur eða þeir sem vörurnar kaupa, sem ráða því hvernig sendingu þeirra er hagað. Ef þeir biðja um að vörurnar verði skrásettar til ákveðinnar hafnar úti á landi, þá er það gert, og Eimskipa- félagið flytur þær svo viðtakanda að kostnaðarlausu á þá höfn. Félagið hefir engan rétt til að ráðstafa vör- um, sem það tekur til flutnings, ann- að en þangað sem þær eru skrásett- ar, og það sem skrásett er til Reykja- víkur, er flutt áfram samkvæmt ósk- um eigenda varanna eftir reglum, sem settar hafa verið um þetta. Vér leyfum oss að senda yður eintak af þessum reglum hérmeð. Þær hafa verið prentaðar og sendar viðskifta- mönnum og afgreiðslumönnum fé- lagsins um land alt fyrir löngu. Reglurnat' eru settar í samráði við Viðskiftamálaráðuneytið og sant- þykktar af því með bréfi, dags. 12. apríl 1944, og hafa þannig verið í gildi tvö síðastliðin ár, eða frá 1. maí 1944. í sambandi við þetta viljum vér benda á, að af 112,720 smálestum af vörum, sem fluttar voru til landsins með skipum vorum og leiguskipum árið 1945, voru aðeins 1564 smá- lestir skrásettar beint til Akureyrar í 52 ferðum. Á þessu óri hefir eftir- farandi vörumagn verið skrásett beint til Akureyrar með þeim skip- um, sem komið hafa fil landsins á vorum vegum: Til Alls með A kureyrar skipinu 56 smál. 1067 smál. 27 — 2147 — 32 — 491 —* 17 — 3681 — 25 — 1347 — 9 — 3584 — 22 — 868 —* 74 — 1268 — 11 — 845 — 72 — 1897 — 30 — 1348 — 33 — . 720 — 35 — 3312 — 10 — 1483 — 5/1 6/1 21/1 21/1 29/1 7/2 8/2 9/3 10/3 23/3 24/3 30/3 1/4 7/4 Skipið fór til Akureyrar í þeirri ferð. Skýrsla þessi sýnir, að í 14 ferð- um hafa alls 449 smál. verið skrá- settar beint til Akureyrar af 24.057 smál. af vörum, sem hafa verið flutt- ar samtals með skipunum. Meðan þannig háttar til, er augljóst að ekki er raögulegt að taka upp reglubundn- ar siglingar út á land eingöngu vegna þeirra vara, sem þannig eru skrá- settar. Tafirnar yrðu óheyrilegar og kostnaður stæði ekki í neinu hlut- falli við gagnið, sem af því yrði. Meginhluti farmsins, þ. e. nauð- synjavörurnar, sem koma með leigu*

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.