Íslendingur


Íslendingur - 30.06.1946, Síða 2

Íslendingur - 30.06.1946, Síða 2
ÍSLENDÍNGUR Sunnudaginn 30. júní 1946 T Kjósendur, minhist þess, AÐ FRAMSÖKNARFLOKKURINN neitaði að sta"rfa rAeð öðr- íim flokkum að endurreisn íslenzks atvinnulífs og sköpun almennrar velmegunar og efnaliagslegs ör- yggis fyrir íslenzka alþýðu. AÐ FRAMSÓKNARFLOKKURINN hefir barizt gegn öUum þeim stórfelklu umbótum, sem núverandi ríkisstjórn hefir unnið að. Hann var andvígur togarakaupum, smíði vélbáta, bættum'kjörum opinberra starfsmanna og nú síðast almannatryggingunum. AÐ FRAMSÖKNARFLOKKURINN liefir með þessari afstöðii sinni tekið upp merki hins svartasta afturhalds, sem er í hrópandi mótsögn við þann vorhug og framfara- þrá, er allir dugandi Islendingar, sem trúa á land sitt og þjóð, bera nú í brjósti. AÐ ALÞÝÐUFLOKKURINN óskar einkis fremur en geta aft- lagzt í flatsængina með Framsókn og tekið á ný upp þá þröngsýnu og afturhaldssömu stjórnmálastefnu, sem réði ríkjum hér á landi í stjórnartíð þessarra flokka fyrir stríð. AÐ ALÞÝÐUFLOKIÍURINN liefir fyrst og fremst hugsað um það að tryggja forustu nönnum sínum feit emhætti I stað þess að vinna að hagsmunamálum alþýðunnar. AÐ ALÞÝÐUFLOKKURINN barðist eins lengi og hann gat gegn því, að ísleiizkt Iýðveldi væri stofnað áður en stríði væri lokið og frambjóðandi flokksins hér á Ak- ureyri var ákveðinn talsmaður undanhaldsstefnunn- ar. AÐ ALÞÝÐUFLOKKURINN vill koma hér á stórfelldari ríkis- rekstri en nokkur af hinum lýðræðissinnuðu verka- mannaflokkum Norðurlanda hefir reynt að koma í framkvæmd, þótt þeir hafi setið að völdum um langt skeið. Reynslan liefir sannað þessum floltkum, að stórfelldur ríkisrekstur hefir lamandi áhrif á þróun atvinnulífsins og leggur óeðlileg liöft á frelsi og fram tak horgaranna. AÐ ALÞÝÐUFLOKKURINN hefir aldrei sýnt sig færan til forustu í nokkru máli eg tafði eftir mætti fyrir mynd- , un núverandi ríkisstjórrar. AÐ SÖSlALISTAFLOKKURINN Iiét áður Kommúnistaílokkur Islands, en breytti um nafn til þess að geta hetur blekkt íslenzka alþýðu til fylgis við stefnu sína. AÐ SÓSÍALISTAFLOKKURINN hefir ekki breytt um fyrri stefnu Kommúnistaflokksins og berst því fyrir Jiví, að koma hér á kommúiúsílsl.a þjóasldpulagi cítir rússnesltri fyrirmynd. AÐ SÖSlALISTAFLOKKURINN hefir lýst yfir því, að hann vilji afnema ríkjandi þjóðskipulag og framfarastefna núverandi ríkisstjórnar sé ekki í anda flokksins. AÐ SÖSlALISTAFLOKKURINN vill koma hér á flokksein- ræði, afnema málfrelsi, skoðanafrelsi og ritfrelsi og banna alla aðra stjórnmálaflokka. AÐ SÓSIALISTAFLOKKURINN mun svipta verkamenn verk- fallsrétti og rétti til að semja um kaup og kjör með frjálsum samningum, ef liann fær aðstöðu til. AÐ MÁLGÖGN KOMMÚNISTA hafa varið öll ofbeldisverk Rússa gegn smájijóðum Austur-Evrópu. AÐ SÓSIALISTAR EÐA KOMMÚNISTAR telja ættjarðarást- ina úrelta dyggð og telja réttmætt að láta hagsmuni ættjarðarinnar víkja fyrir hagsmnnum hins aljíjóð- Iega kommúnisma. - > AÐ KOMMÚNISTAR hafa óvirt allt Jiað, sem íslenzku Jijóðinni er dýrmætast. Þeir hafa óvirt íslenzka fánann og til skammS tíma hafa Jieir ekki tekið ofan, Jiegar J»jóð- söngurinn liefir verið leikinn. Þeir hafa lýst andúð sinni gegn trúmálastarfseminni í Iandinu og barizt gegn kirkju og kristindómi. Þeir hafa að lokum óvirt mynd Jóns Sigurðssonar með |tví að nota hana í blöðum sínum og bæklingum til'eflingar liinni óþjóð- legu stefnu sinni. AÐ SÓSlALISTAFLOKKNUM getui* af þessum sökum aldrei orðið treyst til Jiess að vinna til langframa að um- bótum á ríkjandi lýðræðisjijóðskipulagi. AÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN berst fyrir friði óg alhliða samstarfi í Jtjóðfélaginu undir kjörorðinu Stétt með stétt. AÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hafði alla tíð forustu í sjáif stæðismálinu og J>að var leitt til farsælla lykta eftir hans leiðsögn. AÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN vill skapa öllum landsins börnum efnahagslegt öryggi með frjálsri samvinnu frjálsra einstaklinga og opinberra stjórnvalda. AÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN .hafði forustu um myndun núverandi ríkisstjórnar og mótaði hina stórhuga ' stefnu hennar í anda Sjálfstæðisstefnunnar. AÐ EINLÆGT SAMSTARF um áframhaklandi Jijóðfél.umbæt- ur verður því aðeins hugsanlegt, að flokkur alíra stétta, Sjálfstæðisflokkurinn hafi þar forustu. AÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN einn megnar að leiða til farsælla lykta Jiær miklu framkvæmdir, sem hafnar liafa verið. AÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefir með stjórnarforustú sinni sannað Jijóðinni það, að öryggi lands og þjóðar, út á við og-inn á við, er undir því komið, að liann sé nægilega sterkur til þess að geta áfram mótað gang þjóðmálanna í anda stefnu sinnar og stefnu Jijóðarinnar — Sjálfstæðisstefnunnar. Hið sívaxandi fylgi nnga fólks ins um allt land við Sjálfstæðis- flokkinn sannar betur en nokk- uð annað, að stefna hans er stefna framtíða-rinnar. Þetta viðhorf æskimnar er í fullu samræmi við eðli og við- horf allra heilbrigðra æsku- manna. Æskan er stórlmga og frjálslynd. Hún er andvíg öllum óeðlilegum höftum á frelsi sínu og krefst þess, að þjóðfélagið treysli henni til sjálfstæðia at- hafna. Ungt fólk vill lifa sem sjálfstæðir einstaklingar en ekki ósjálfstæðir hlutar í ríkisvél múg hyggjunnar, þar sem enginn má hreyfa sig, nema fá leyfi hinna almátlugu valdhafa. Sérhver frjálshuga æskumaður fordæm- ir því liþraunir kommúnista til þess að svipta æskuna réttinum til sjálfstæðra athafna og skoð- ana. Æskan er éinnig djörf og stór- huga. Ungt fólk fyrirlítur úr- ræðaleysi og barlóm. Það trúir á mátt sinn og megin, ef það fær tækifæri til þess. að sýna, hvað í því býr. Æskan fylkir sér því ætíð um þá menn og flokka, sem berjast fyrir miklum og stór- buga framkvæmdum. Af þessum sökum getur enginn framsæk- inn æskumaður fylgt þeim flokki, sem hefir valið sér rang- ncfnið Framsóknarf 1 okku r. Sjálfstæðisflokkurinn er flokk ur æskunnar, og því hópast unga fólkið nú undir merki hans í sí- fellt stríðari straumum. Sjálf- stæðisflokkurinn sameinar þessi tvö eðliseinkenni æskunnar: Hann vill miklar framkvæmdir og umbætur, og hann viii vernda frelsi og sjálfstæði einstakling- anna. Hann trúir á gelu æskunn- ar til þess að skapd hér fyrir- myndarþjóðfélag með frjálsum samtökum. Hann trúir á mann- gildi einstaklinganna, og hann er sannfærður úm það, að því að- eins geti hið unga lýðveldi blómgast, að það gefi borgurum sínum fullt tækifæri til þess að hagnýta til hlýtar hæfileika sína og hugvit. Sjálfstæðisflokkurinn veil, að æskan mun fúsari til at- liafna í þágu þjóðfélagsins, ef ríkisvaldið hvelur hana til frjálsra samtaka um nytsöm framfaramál heldur en ef á að knýja hana með valdboði. Sjálfstæðisflokkurinn fagnar íylgi æskunnar, og hann mun reyna að bregðast eklci trausti hennar. Stuðningur unga fólks- ins mun veila flokknum aukinn þróll til mikilla framkvæmda. Undir forustu Sjálfslæðisflokks- ins ‘hefir verið hafin stórfelld andleg og efnaleg endurreisn í íslenzku þjóðlífi til trýggingar sjálfstæði hins unga lýðveklis í framtíðinni. En öryggi lýðveldis ins er einfiig örygg'i æskunnar, og æskan á mest í lnifi, ef mis- tök verða á framkvæmd hinna miklu umbótamála. Þetta hefir okknum unga fólkið skilið, og því 'fylkir það sér nú um þann flokkinn, sem það treystir bezt til happa- sællrar forustu um þessi miklu hagsmunamál hennar. Unga fólkið • í Reykjavík tryggði sigur Sjálfstæðisflokks- ins þar í vetur og braut á bak aftur sókn austræna valdsins. Æskan hér á Akureyri mun í dag mýnda samskonar brjóst- vörn lil varnar Sjálfstæðisflpkkn um og framtíð sinni og gegn yf- irgangi austrætia valdsins og tryggja frambjóðanda Sjálfstæð- isflokksins, Sigurði E. Hlíðar, glæsilegan sigur. Sigur Sjálfstœðisflokksiiis er sigur æskunnar. Framsókii og skattarnir ,.DAGllIi“ hneykslast mjög á liinum háu sköttum, sem bœjarbúar verði að borga, og það 'er eins og Framsóknar- menn hafi þar hvergi nœrri komið. Ja, fyrr má. nú rota en dauðrota. Veit „Dagur“ ekki, að Framsóknarflokkurinn er allra flokka frægastur fyrir taumlaust skatlabrjálæði. —* Sjálfstœðismenn hafa alla tíð orðið að berjast gegn skatta- hækkunum Framsóknar, en nú er „Dagur“ allt í einu orðinn á jnóli ölluni sköttum — JAFNVEL STRÍÐSGRÓÐA- SKATTINUM. „Dágur“ ælli annars ekki að minnast á skalta liér á Ak- ureyri, því að allir bœjarbú- ar vita, að þeir vnrða, hver og einn, að borga nokkurn hluta þeirra gjalda, sem EKKI MÁ leggja á hið breiða bak KEA. Styrkur til aldraðra ekkna var hækkað- ur Steingrímur Aðalsteinsson hefir undanfarið biðlað mjög ákaft til mæðra og ekkna og sagzt vera þeirra eini sanni vinur. Hefðu Sjálfstæðis- menn og Alþýðuflokksmenn sameinazl um að fella niður styrk til þeirra, en hann qg aðrir kommúnistar hefði bar- izt þar vasklega á móti. Sigurður Hlíðar hefir þeg- ar rekið þau/ósannindi ofan í Steingrím, að styrkurinn hafi verið felldur niður. Ilins hefir ekki verið getið, sem er ennþá mikilvægara að styrkur til aldraðra mœðra og ekkna var verulega hækk- aður með samkomulagi Sjálf- stæðismanna og Alþýðuflokks ins. Steingrímur Aðalsteinsson hefir látið sér sæma að reyna að blekkja fátækar mæður og ekkjur til fylgis við sig með röngum upplýsingum um jjetta merka mál. Munu þær launa honum það að verðleik- um í dag. Steingrímur og kommúnist- ar urðu frægir að endemum fyrir framkomu sína í þessu mikla hagsmunamáli alþýð- unnar. Þeir báru fram hækk- unartillögur, sem námu 10 miljónum, en vildu jafnframt lækka iðgjöld um rúmar 2 miljónir. Enga leið bentu þeir á lil þess að ná í þessar 12 miljónir. Ef kommúnistar hefðu fengið að ráða, hefðu því almannatryggingarnar orðið fallegl pappírsplagg, en engar framkvæmdir. TALNING atkvæSa á Akureyri og öðr- um kaupstöðum fer fram þegar að loknum kjörfundi í kvöld. SJÁLFSTÆÐISKJÓSENDUR! Kjósið eins snemma dags og þér getið. Með því léttið þér störf kosningaskrifstofunnar. TILKYNNING frá SJÁLFSTÆÐISFLOKKNUM í dag, sunnudaginn 30. júní, verður aðalkosningaskrifstofa flokksins í Hafn- arstræti 69 (HúsgagnaT iiinustofu jóns Ilalls). UPPLÝSINGASÍMI ER NR. 545. BÍLASÍMI FLOKKSINS ER NR. 242.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.