Íslendingur - 09.08.1946, Page 4
4
ÍSLENDINGUR
Eostudaginn 9. ágúst 1946.
Á tengismálið.
Framhald af 1. síðu.
hluti þjóðarinnar sé fylgiandi
aðflutningsbanni á áfengi, og
auðvitað hlýtur það að vera
lokatakmarkið. Til þess að bann
geti náð tilgangi sínum verður
þó að hafa skapazt sterk andúð
gegn drykkjusiðunum og em-
bættismenn þeir, sem löggæzl-
una eiga að hafa með höndum,
verða að hafa hug á að fram-
kvæma lögin.
Þá er þess að gæta, að stór
hluti af tekjum ríkissjóðs eru af
áfengissölu. Verður því óum-
flýjanlegt að gera margvíslegar
ráðstafanir til þess að bæta rík-
inu þann mikla tekjumissi. Hins
vegar ætti það að vera hVerjum
manni Ijóst, að það er á engan
hátt sæmandi fyrir menningar-
ríki að láta fjárhagsafkomu rík-
isins vera því háða, að borgar-
arnir neyti sem mest af úrkynj-
andi og siðspillandi nautnalyfj-
um. ’
Hér þarf nýsköpun.
NÚ er mikið um stórfelldar
framkvæmdir í landi voru og
almennur áhugi á því að bæta
kjör þjóðarinnar á sem flestum
* sviðum. Fyrsta skilyrði þess, að
þessi stórhuga áform nái til-
gangi sínum er þó það, að þjóð-
in sjálf sé andlega og líkamlega
heilbrigð. Þjóðin er fámenn, og
hún þarf á allri orku sinni og
• siðferðisþreki að halda til þess
, að geta skapað hér það menn-
ingarþjóðfélag, sem vér getum
verið ánægð með. Áfengisnautn
in er dragbítur á framfarasókn
þjóðarinnar, og eigi hún að vera
fylgifiskur vor á sama hátt og
. hingað til, getum vér aldrei
skapað hér fullkomið menning-
arþjóðfélag.
Það er því óhjákvæmilegt, að
Alþingi og ríkisstjórn taki þeg-
ar í haust áfengismálið til ræki-
legrar meðferðar, því að varla
mun ofmælt, að það sé nú orðið
hið mesta vandamál, sem þjóð-
in á við að stríða.
Danskt tíniárit um liit-
un húsa og loftræst-
ingu
ÍSLENDINGI hefir nýlega borizt
danskt tímarit sem fjallar um hitun
húsa og loftræstingu. Er rit þetta gef
ið út af ýmsum sérfróSum aSilum
um þessi mál, þar á mcSal Teknolo-
gisk Institjit í Kaupmannahöfn.
Tímarit þetta nefnist ,,Varrne“, og
hefír ritstjóri þess beSiS íslending
aS vekja athygli íslenzkra sérfræ.S-
inga og fyrirtækja, er fást viS þessi
mál, á riti þessu, er hann segir vera
eina ritiS, sem gefiS sé úl í Dan-
mörku um þetta efni. KveSur rit-
stjórinn tímarit þetta leitast viS aS
fylgjast vel meS öilum nýungum á
þessu sviSi og birta fjölbreyttar grein
ar eflir faglærSa menn.
AskriftarverS ritsins er sex dansk-
ar krónur, og kemur þaS út annan
hvorn mánuS.
Nýja Akureyrartoprannm
hleypt af stokkunum 30. júlí.
IiLAUT NAFNIÐ „KALDBAKUR“ - EA 1
ÞANN 30. júlí sl. var hinum nýja
togara UtgerSarfélags Akureyrar
hleypt af stokkunum meS hátíðlegri
athöfn í Selby í Englandi. RæSis-
maSur íslands í Edinborg, Sigur-
steinn Magnússon, sá um atböfnina
í umboSi félagsins og bæjarins, en
kona lians, frú Ingibjörg, skírSi skip
iS. Hlaut þaS nafniS „Kaldbakur“
og fær einkennisstafina EA 1.
Myr.dir iú þessari athöfn munu
vera á leiS hingaS til lands nú, og
mun þá verSa birt ítarlegri frásögn
af athöfninni.
Gert er ráS fyrir, aS togarinn verSi
fullbúinn í desember, og er þaS
nokkru fyrr en upphaflega hafSi ver
iS ráS fyrir gert.
Mikilvægt að hlutafé safn-
ist greiðlega.
STJÓRN útgerSarfélagsins hefir
fyrir nokkru hafiS innköllun lofaSs
hlutafjár. Hafa menn yfirleitt brugS-
ist vel viS, enda er mjög nauSsyn-
legt, aS hlutafé fáist greitt sem fyrst,
svo aS fjárskortur þurfi ekki aS
verSa því til hindrunar, aS togarinn
verSi tekinn í notkun þegar, er smíSi
hans er lokiS. Er þess að vænta, að
allir þeir, sem lofaS hafa hlutafé,
bregSist vel viS, er greiSslu verSur
óskað.
FélagiS hefir ekki enn ráðiS sér
framkvæmdarstj óra, en formaður fé-
lagsstjórnarinnar, Guðmundur GuS-
mundsson, skipstjóri, mun gegna
framkvæmdastjórastörfum fyrst um
sinn.
Engin síldveiði siðustu daga-
Bræðslusíldaraflinn er nú orðinn rúmlega ein
miljón hektólítrar
Þann 3. ágúst s. I. var bræðslusíldaraflinn á öllu landinu
samtals 1.008.723 hektólítrar. Á sama tímá I fyrra var hann
364.570 hektólítrar og árið 1943 var aflinn 860.969 hektólítrar.
— Saltaðar höfðu verið á miðnætti S. 1. laugardag 63,568 tunnur.
Um sama leyti í fyrra kafði ekkert verið saltað af Norðurlandssíld.
Aflahæsta skip flotans er
m. s. Dagný frá Siglufirði, með
11,355 mál í bræðslu. — Næst-
hæsta skip er Fagriklettur frá
Hafnarfirði, með 9,549 mál og
350 tunnur í salt - og þriðja
hæsta skip er Gunn\’ör frá
Siglufirði, með 9,222 mál í
bræðslu og 252 tunnur í salt.
Hæst gufuskipanna ei’ Ólafur
Bjarnason frá Akranesi, með
8,817 mál síldar. Hæstu bátar,
tveir um nót, eru Ársæll og Týr.
með 3672 mál í bræðslu og 254
tunnur í salt. Flestar tunnur
hefur m. s. Sæmundur frá Sauð-
árkróki, 2,153 tunnur.
Verksmiðjurnar við Eyjafjörð
1 gær höfðu síldarverksmiöj-
urnar við Eyjafjörð fengið
bræðslusíld sem hér segir:
Krossanes......... 32,675 mál
Dagverðareyri .... 47.558 —
Hjalteyri .... rúm 80.000 —
Allar síldarverksmiðjur á
landinu munu nú vera síldar-
lausar, og hefir veiðiflotinn leg-
ið við land síðustu daga. Von-
ast sjómenn til að síldin fari að
vaða, þegar veður batnar.
FRIÐARRÁÐSTEFNAN í París
hefir nú staðið í nokkra daga, en
ekki hefir enn verið rætt um annað
en formsatriði í sambandi við' af-
greiðslu mála. Samkomulag hefir orð
ið um það, að utanríkisráðherrar
stórveldanna fimm verði fundar-
stjórar til skiptis. Mestum ágreiningi
liefir valdið sú lillaga utanríkisráð-
herrafundarins, að tvo þriðju hluta
atkvæða skuli þurfa til afgreiðslu
mála. Hafa fulltrúar smáríkjanna í
fundarskapanefndinni ekki viljað
fallasl á þessa lillögu og þótl hún ó-
lýðræðisleg. Fulltrúi Rússa hefir aft-
ur á móti haldið fast við kröfu sína
um 2/3 hluta atkvæða og segir hina
tillöguna vera fram komna til þess
að eyðileggja áhrif Rússa á fundin-
um. Virðist hann gera ráð fyrir litlu
fylgi Rússa á friðarráðstefnunni
engu síður en í öryggisráðinu.
X
KJARNORKUMÁLIN eru enn of-
arlega á baugi. Amerískir sérfræð-
ingar eru þeirrar skoðunar, að
kj arnorkusprengj utilraunirnar á
Kyrrahafi hafi leitl það skýrl í ljós,
að notkun kjarnorku í hernaði myndi
leiða til gereyðingar.
x
PALESTÍNUMÁLIN virðast ætla
að verða Bretum allerfið viðureign-
ar. Bæði Arabar og Gyðingar eru
óánægðir með allar lillögur, sem
fram hafa komið uin lausn á deilu-
málum Gyðinga og Araba. Vilja
hvorugir væga fyrir hinum. Þá hafa
áhrifamiklir Gyðingar í Bandaríkj-
unum sífpllt róið í rruman forseta
og er nú talið líklegt, að Bandaríkja-
stjórn muni ekki styðja lillögur
brezk-bandarísku Palestínunefndar-
innar um skiptingu Palestínu í tvö
ríki.
GJæsi/eg frammi'
staða íslenzkra
skákmanna.
Kirkjan. Messað að Lögmannshlíð n.k.
sunnudag kl. 1 e.h. — Akureyri kl. 5 e.h.
MessaS í Glœsibæ sunnudaginn 18. ág.
kl. 1 e. h. Prúfastsvísitasía.
Áheit ú Strandarkirlcju kr. 10.00 frá L.
E. Móttekið á afgr. Islendings.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af sóknarprestinum, sti Friðrik
J. Rafnar vígslubiskupi, ungfrú Hólrn-
fríður Guðlaug Jónsdópir, Sigurðssonar á
Gefjun, og Ingvi Sig. Ingvarsson, lögfræði-
nemi, Ákureyri.
Hjónaejni. Ungfrú Erna Sigurjónsdóttir,
Leifshúsum, Svalbarðsströnd, og Brynjólf-
ur Jónsson, bílstjóri, frá Hólum í Eyja-
firði.
Frásögn sú af banaslysinu að Torfufelli
í Saurbæjarhreppi, er birtist í síðasta tbl.
íslendings og var tekin eftir frétt Morg-
unblaðsins, hefir ekki reynzt algerlega ná-
kvæmó Eigi er ástæða lil að rifja málið
frekar upp. en blaðið biður hins vegar að-
slandcndur afsökunar á þessari leiðinlegu
misfellu. ,
Laugardagjnn 3. ágúst voru gefin sam-
an í hjónaband í Ileykjavík ungfrú Kristj-
ana Eggertsdóltir sjórkaupmanns Kristjáns
sonar og Magnús Ingimundarson fulltrúa
Arnasonar hér í bæ.
Skipakomur. Esja kemur hingað hrað-
íerð 11. ágúst. Snýr hér við suður.aftílr.
Natistaborgir. Danslcikttr verður hald-
inn að Naustaþorgum n. k. laugardags-
kvöld og hefst. kl. 22. Veitingar verða á
staðnurn. Hljómsveit leikur fyrir dansin-
unj,
Siljurbrudkaup eiga n. k. þriðjudag frú
Sigríður Benjamínsdóttir og Árntann ís-
leifsson, Aðalstræti 2 hér í bæ.
Fimmtugur verður þann 14. þ.m. Helgi
Pálsson, erindreki, formaður Sjálfstæðis-
félags Akureyrar.
Sextiigur verður 13. |). nt. Pálmi Þórð-
arson, oddviti í Núpufelli.
ÁttræS varð 7. jt. m. Ilallfríður Jóhanns-
dóttir, ntóðir þeirra Freymóðs, listmálara,
og Egils, skipstjóra á Snæfelli.
Kennsla
Sjölli-bekkingur í Mennta-
' skólanum næstkomand^i vet-
ur vill taka að sér kennslu.
Vpplýsingar hjú Ingibjörgu Jónsdóll-
ur, Brekkugötu 14.
500 kr
fær sá, sem getur útvegað ung-
um hjónum íbúð í hatist. íbúð-
in má vera hvort sem er stór eða
lítil. Tilboð merkt „íbúð 46“
leggist inn á afgreiðslu „íslend-
ings“ fyrir 15. þ. m.
VANTAR
nokkrar stúikur
Loftur. Einarsson. Sími 512.
Bifreiðar valda
skemmdum.
LÖGREGLAN hefir gefið
blaðinu þær upplýsingar, að bif-
reiðastjórar úr Reykjavík hafi
tvívegis valdið hér eignaspjöll-
um, án þess að gefa sig fram.
Fyrir nokkru ók bifreið á
girðingu við hús hér í bænum
og braut hana. S. 1. þriðjudags-
kvöld ók svo bifreið á ljósastaur
og braut hann, en vírar brunnu
ííundur. Munu þær skemmdir
nema um 1200 krónum.
Lögreglunni hefir tekizt að
upplýsa, hvaða bifreiðar muni
valdar að skemmdunum.
Auglýsið í'fslendingi
Baldur MÖller hæstur í landliðs-
Ilokki.
UNDANFARNA daga hefir
staðið yfir Norðurlandakeppni í
skák í Kaupmannahöfn og er
mótinu enn ekki lokið.
Fimm íslenzkir skákmenn
taka þátt í keppninni og hafa
þeir staðið sig með ágætum og
orðið landi sínu til mikils sóma.
Er Baldur Möiler nú hæstur í
landsliðsflokki. Hafa íslending-
arnir unnið ýmsa af beztu skák-
mönnum hinna Norðurland-
anna.
Dönsk blöð hafa talið frammi
stöðu íslenzku skákmannanna
mjög athyglisverða.
Nánar verður skýrt frá þess-
•ari eftirtektarverðu keppni, þeg
ar henni er lokið.
Góður gestur
Nteslkomandi mánudag adlar Rögn
valdur Sigurjánsson, píanósnilling-
ur, ai) loja okkur Akureyringum aS
heyra til sín. Heldur hann þá hljóm-
leika í Nýja-Bíó og fer með verk efl-
ir margra þjóða tónskáld. Er hann
dvaldi í Bahdaríkjunum, hélt hann
'bljómleika í Washington og hlaut
mikið lof fyrir. Og í utanför karla-
kóranna í vor, þar sem bann m. a.
lék einlcik á píanó, hlaut hann hina
ágætustu dóma. [fuilráðið mun véra,
að hann fari í hausl lil Bandaríkj-
anna í hljómleikaför.
Að sjálfsögðu munu bæjarbúar
ekki lála hjá líða, að sækja vel þessa
bljómleika Rögnvaldar á mánudag-
inn. Aðgöngumiðar verða seldir í
Bókaverzlun Þorsteins Thorlacius.
Sjá nánar götuauglýsingar.
J