Íslendingur - 16.08.1946, Side 1
XXXII. árg.
Föstudagurinn 16. ágúst 1946
35. tbl.
Mikil hátíðaiiöld á Akureyri
um næstii heloi.
Petta er verk Kaisers.
AmerísJci slóriðjuhöldurinn Henry Kaiser liefir vakið heimsalhygli
jyrir margvísleg afrelc sín <í sviði stríðsframlciðslunnar og unnið bug á
erfiðleikum, sem aðrir hafa talið óyfirstíganlega. Mynd J>essi sýnir eilt
stórvirki Kaisers, hina milclu Coulee-slíflu í Columbiafljóli, en þelta mikla
orlcuver framleiðir rajmagn handa flestúm hinum slóru verksmiðjum í
norðvesturhéruðum Bfindaríkjanna.
Islendinnar Ilkír Irui
- segir James Connolly, írskur meniitamaður,
sem var hér nýlega á ferð.
FYRTR rúmum mánuði síðan kom hingað lil lands írskur magister,
James ConnolIy.Hefir hann síðan farið víða uin land og dvaldi fyrir
skömmu nokkra daga hér á Akureyi i. Álti blaðið ])á viðlal við hann um
ferðir hans og álit hans á landi og þjóð.
Hornsteinn iagður að hinu nýja
sjúkrahúsi.
I
KvenféJagið Framtíðin efnir til fjöl*
hreyttra hátíðahalda tii ágóða fyrir
sjúkrahúsið.
— Tilgangurinn með komu minni
hingað lil lands er fyrst og fremst
sá að ganga frá samningum um
stúdentaskipti milli íslands og ír-
lands. Var í fyrstu gerl ráð fyrir að-
eins einum stúdcnt frá hvoru landi,
en nú þegar hafa finim íslenzkir
stúdentar óskað eftir að komast í
háskóla í írlandi.
— Það er full ástæða til þess að
auka kynni íra og Islendinga, því
að þjóðir þessar eru áreiðanlega
mikið skildar. Hefir það vakið eftir-
tekt mína, hversu margir íslending-
ar líkjast löndum mínuni að útliti.
Fannst mér engu líkara en ég yæri
kominn heim til Dublin, eri ég gekk
um götur Reykjavíkur og virti fyrir
mér fólkiðéþar.
Og hvernig lízt yður á
land og þjóð?
■— Ágællega. Eg hefi ferðast all-
mikið um landið, en þó er margt,
sem ég hefi ekki gctað skoðað, því
að ég er senn á förum þéðan. Eink-
um þykir mér leill að geta ekki séð
Y ' %
Dettifbss, sem kvað vera mjög fag-
ur. Einnig ætlaði ég méf að fara að
Mývalni, en varð að hætta við það
vegna óhagstæðs veðurs. Eg dvaldi
annars nokkra daga austur á Skinna-
stað og kom í Ásbyrgi, sem mér þótti
mjög fagurt og lilkomumikið. Mér
hefir geðjast ága;tlega að öllu því
fólki, er ég hefi kynnzt hér. Langar
mig mjög til þess að koma sem fyrst
aftur hingað til lands.
Hvert er förínni heitið
héðan?
,r— Fyrst heim til Dublin, en siðan
lil Frakklands. Mun ég dvelja þar í
vetur og flytja fyrirlestra um kelt-
nesk fragði við háskólann í Grenoble.
Mi'. Connolly kvaðst mundi skrifa
gueinar um Island í írsk blöð,' er
þann kæmi heim. Sagðiát hann liafa
skrifað nokkrar greinar um írland
fyrir íslenzk blöð og lofað fleiri
greinum. \
SKEMMDARVERK f
LYSTIGARÐINUM
LJÖT spellvirki voru framin
í List'igarðinum síðastliðið föstu
dagskvöld. Var traðkað á blóma
beðum og stilkar skornir af
plöntunum. Virtust fótspor
benda til þess, að stálpaðir
drengir hefðu verið hér að
verl*i. Er hér um að ræða leiðin-
legan atburð, sem vonandi er,
að ekki komi fyrir aftur/ því að
listigarðurinn er mesta bæjar-
prýði Akureyrar og sérhverjum
sönnum Akureyring hlýtur að
þykja vænt um þenna fagra
reit. Minnstu þakkirnar, sem
hægt er að sýna því fólki, er
lagt hefir fram ómetanlegt starf
við að koma lystigarðinum á
fót og fegra hann, er að ganga
þar vel unii
'treg síldveiði
. ÓHAGSTÆTT veður hefir að
mestu hamlað síldveiðum síc5-
ustu viku. Undanfarna daga
hafa skipin leitað út á mið-
in, en síldveiði hefir verið
mjög treg til þessa. Er útlit
mjög slæmt, ef ekki rætist úr
alveg á næstunni.
Síðastliðið' laugardagskvöld
var bræðslusíldaraflinn á öllu
landinu samtals 1.042.727 hektó
lítrar, og síldarsöltun nam
70.746 tunnum. Aflahæsta skip
var enn Dagný frá Siglufirði
méð 11.785 mál og 254 tunnur.
Þjóðræknisfélag íslendinga
FYRIR nokkru var stofnað félag
með þessu nafni í Rcykjavík. Er til-
gangur ])ess að efla eftir ]>ví sem við
verður komið, samstarf íslendinga
heima og erlendis. Hefir nú deild úr
félagi nu vcrið stofnuð hér á Akur-
eyri og erl Gunnl. Tr. Jónsson bók-
sali forrnaður hennar.
Rélt þegar blaðið var aij fara í
pressuna, barst því skeyti frá Mr.
Connolly. Segist hann hafa skroppið
lil Mývalns nú í vikunni og þólt þnr
fagurt um að litast. Einnig seniU
hann skemmtilega grein, 9em mun
birtast í næsta blaði.
EINS og gelið var um í síðasta
blaði íslendings, verður hornsteinn
hins nýja fjórðungssjúkrahúss á Ak-
ureyri lagður n. k. sunnudag. Fer sú
athöfn fram á*spítalalóðinni á Eyipr-
landstúni kl. 2 síðdegis. Er þess að
vænta, að bæjarbúar fjölmenni þang-
að.
Heilbrigðismálaráðherra Finnur
Jónsson leggur hornsteininn. Húsa-
meistari ríkisins, prófessor Guðjón
Samúelsson, bæjarstjórn Akureyrar,
spítalanefnd og ýmsir aðrir gestir
verða þarna viðstaddir.
Gert er ráð fyrir, að kjallari húss-
ins verði fullbúinn í hausl. Ilúsið
verður allt fjórar hæðir og kjallari
og því mikið stórhýsi. Ætlunin er,
að 110 sjúkrarúm verði í sjúkrahús-
inu, að fæðingardeild meðtalinni.
Hátíðarhöld
Framtíðarinnar
Kvenfélagið Framtíðin efnir til
fjölbreyttra hátíðahalda á laugardag
inn og sunnudaginn, og rennur allur
ágóði til sjúkrahússins. Verða há-
tíðarhöldin með svipuðn sniði og
hin ágæta Jónsmessuhátíð félagsins
í fyrra.
Hátíðin hefst kl. 8.30 á laugardags
kvöld og verða skemmtiatriði bæði
undir berum himni og í tjöldum.
Veitingar verða seldar í Gagnfræða-
skólanuni. Lúðrasveit Akureyrar
leikur, bál verða kynt, sungið og
dansað á palli.
Félagið hefir fengið Skagfirðinga-
búð að láni og verða þar fjölbreyttar
leiksýningar báða dagana. Auk þess
fjölbreyttir úlileikir.
Á sunnudaginn er gert ráð fyrir
að skennntanir haldi áfram að lok-
inni alhöfnínni á spítalalóðinni. —
Verða þá sýndir þjóðdansar, Karla-
kór Akureyxar syngur, leikjimi verð-
ur sýnd og dansað á palli eins og á
laugardagskvöldið. Hátíðinni lýður
svo á sunnudagskvöld með flugelda-
sýningu.
Mikil nýung er það, að skrautbú-
inn vagn mun fara um götur bæjar-
ins báða dagana. Merki verða seld,
og gilda merkin, sem seld verða á
sunnudaginn sem aðgöngumiðar að
hátíðasvæðinu.
Þá heldur félagið bazar í Gagn-
fræðaskólahúsinu. Hafa konurnar
útbúið sjálfar allskonar muni, sem
verða seldír þarna til ágóða fyrir
sjúkrahúsið.
Gera má ráð fyrir að mikið fjöl-
menni verði á þyssari fjölbreyttu há-
líð kvenfélagsins. Eiga konurnar
miklar þakkir skilið fyrir fórnfúst
og mikið slarf í þágu þessa mannúð-
armálefnis og er bæjarbúum skylt að
stuðla að því, að hátíðahöld þessi
fari fram með þeim menningarbrag,
■ sem konunum er kappsmál, að þar
ríki.
--------------------------1-------
Flugvél Frá Flugskóla Ak-
ureyrar flýgur inn að Laug
arfelli og lendir þar
Síðastliðinn sunnudag flaug ein af
flugvélum Flugskóla Akureyrar með
farþega inn að Laugarfelli. Lenti
flugvélin þar á sandfleti vestan við
norðurhorn fellsins kl. 2. Tókst lend-
ingin ágætlega. Var þessi staður
valinn til reynslu eftir tilvísan hfins
alkunna ferðagarps, Þorsteins Þor-
steinssonar, sem staddur var á þess-
um slóðum með hóp frá Ferðafélagi
Akureyrar. Flaug vélin eftir nokkra
stund aftur til baka.
Er þetta fyrsta reynsluflug með
farþega inn á öræfin, en eins og áð-
ur hefir verið frá skýrt, hefir Flug-
skólinn í hyggju að rannsaka fleiri
lendingarstaði í ’öræfunum í sam-
bandi við skennntiferðir þangað.
Flugmaður var Kristján Mikaels-
son, en farþegi Tryggvi Þorsteins-
son skátaforingi.
«