Íslendingur


Íslendingur - 16.08.1946, Blaðsíða 1

Íslendingur - 16.08.1946, Blaðsíða 1
XXXII. árg. Föstudagurinn 16. ágúst 1946 35. tbl. Mikil hátíðaiiöld á Akureyri um næstii heloi. Petta er verk Kaisers. AmerísJci slóriðjuhöldurinn Henry Kaiser liefir vakið heimsalhygli jyrir margvísleg afrelc sín <í sviði stríðsframlciðslunnar og unnið bug á erfiðleikum, sem aðrir hafa talið óyfirstíganlega. Mynd J>essi sýnir eilt stórvirki Kaisers, hina milclu Coulee-slíflu í Columbiafljóli, en þelta mikla orlcuver framleiðir rajmagn handa flestúm hinum slóru verksmiðjum í norðvesturhéruðum Bfindaríkjanna. Islendinnar Ilkír Irui - segir James Connolly, írskur meniitamaður, sem var hér nýlega á ferð. FYRTR rúmum mánuði síðan kom hingað lil lands írskur magister, James ConnolIy.Hefir hann síðan farið víða uin land og dvaldi fyrir skömmu nokkra daga hér á Akureyi i. Álti blaðið ])á viðlal við hann um ferðir hans og álit hans á landi og þjóð. Hornsteinn iagður að hinu nýja sjúkrahúsi. I KvenféJagið Framtíðin efnir til fjöl* hreyttra hátíðahalda tii ágóða fyrir sjúkrahúsið. — Tilgangurinn með komu minni hingað lil lands er fyrst og fremst sá að ganga frá samningum um stúdentaskipti milli íslands og ír- lands. Var í fyrstu gerl ráð fyrir að- eins einum stúdcnt frá hvoru landi, en nú þegar hafa finim íslenzkir stúdentar óskað eftir að komast í háskóla í írlandi. — Það er full ástæða til þess að auka kynni íra og Islendinga, því að þjóðir þessar eru áreiðanlega mikið skildar. Hefir það vakið eftir- tekt mína, hversu margir íslending- ar líkjast löndum mínuni að útliti. Fannst mér engu líkara en ég yæri kominn heim til Dublin, eri ég gekk um götur Reykjavíkur og virti fyrir mér fólkiðéþar. Og hvernig lízt yður á land og þjóð? ■— Ágællega. Eg hefi ferðast all- mikið um landið, en þó er margt, sem ég hefi ekki gctað skoðað, því að ég er senn á förum þéðan. Eink- um þykir mér leill að geta ekki séð Y ' % Dettifbss, sem kvað vera mjög fag- ur. Einnig ætlaði ég méf að fara að Mývalni, en varð að hætta við það vegna óhagstæðs veðurs. Eg dvaldi annars nokkra daga austur á Skinna- stað og kom í Ásbyrgi, sem mér þótti mjög fagurt og lilkomumikið. Mér hefir geðjast ága;tlega að öllu því fólki, er ég hefi kynnzt hér. Langar mig mjög til þess að koma sem fyrst aftur hingað til lands. Hvert er förínni heitið héðan? ,r— Fyrst heim til Dublin, en siðan lil Frakklands. Mun ég dvelja þar í vetur og flytja fyrirlestra um kelt- nesk fragði við háskólann í Grenoble. Mi'. Connolly kvaðst mundi skrifa gueinar um Island í írsk blöð,' er þann kæmi heim. Sagðiát hann liafa skrifað nokkrar greinar um írland fyrir íslenzk blöð og lofað fleiri greinum. \ SKEMMDARVERK f LYSTIGARÐINUM LJÖT spellvirki voru framin í List'igarðinum síðastliðið föstu dagskvöld. Var traðkað á blóma beðum og stilkar skornir af plöntunum. Virtust fótspor benda til þess, að stálpaðir drengir hefðu verið hér að verl*i. Er hér um að ræða leiðin- legan atburð, sem vonandi er, að ekki komi fyrir aftur/ því að listigarðurinn er mesta bæjar- prýði Akureyrar og sérhverjum sönnum Akureyring hlýtur að þykja vænt um þenna fagra reit. Minnstu þakkirnar, sem hægt er að sýna því fólki, er lagt hefir fram ómetanlegt starf við að koma lystigarðinum á fót og fegra hann, er að ganga þar vel unii 'treg síldveiði . ÓHAGSTÆTT veður hefir að mestu hamlað síldveiðum síc5- ustu viku. Undanfarna daga hafa skipin leitað út á mið- in, en síldveiði hefir verið mjög treg til þessa. Er útlit mjög slæmt, ef ekki rætist úr alveg á næstunni. Síðastliðið' laugardagskvöld var bræðslusíldaraflinn á öllu landinu samtals 1.042.727 hektó lítrar, og síldarsöltun nam 70.746 tunnum. Aflahæsta skip var enn Dagný frá Siglufirði méð 11.785 mál og 254 tunnur. Þjóðræknisfélag íslendinga FYRIR nokkru var stofnað félag með þessu nafni í Rcykjavík. Er til- gangur ])ess að efla eftir ]>ví sem við verður komið, samstarf íslendinga heima og erlendis. Hefir nú deild úr félagi nu vcrið stofnuð hér á Akur- eyri og erl Gunnl. Tr. Jónsson bók- sali forrnaður hennar. Rélt þegar blaðið var aij fara í pressuna, barst því skeyti frá Mr. Connolly. Segist hann hafa skroppið lil Mývalns nú í vikunni og þólt þnr fagurt um að litast. Einnig seniU hann skemmtilega grein, 9em mun birtast í næsta blaði. EINS og gelið var um í síðasta blaði íslendings, verður hornsteinn hins nýja fjórðungssjúkrahúss á Ak- ureyri lagður n. k. sunnudag. Fer sú athöfn fram á*spítalalóðinni á Eyipr- landstúni kl. 2 síðdegis. Er þess að vænta, að bæjarbúar fjölmenni þang- að. Heilbrigðismálaráðherra Finnur Jónsson leggur hornsteininn. Húsa- meistari ríkisins, prófessor Guðjón Samúelsson, bæjarstjórn Akureyrar, spítalanefnd og ýmsir aðrir gestir verða þarna viðstaddir. Gert er ráð fyrir, að kjallari húss- ins verði fullbúinn í hausl. Ilúsið verður allt fjórar hæðir og kjallari og því mikið stórhýsi. Ætlunin er, að 110 sjúkrarúm verði í sjúkrahús- inu, að fæðingardeild meðtalinni. Hátíðarhöld Framtíðarinnar Kvenfélagið Framtíðin efnir til fjölbreyttra hátíðahalda á laugardag inn og sunnudaginn, og rennur allur ágóði til sjúkrahússins. Verða há- tíðarhöldin með svipuðn sniði og hin ágæta Jónsmessuhátíð félagsins í fyrra. Hátíðin hefst kl. 8.30 á laugardags kvöld og verða skemmtiatriði bæði undir berum himni og í tjöldum. Veitingar verða seldar í Gagnfræða- skólanuni. Lúðrasveit Akureyrar leikur, bál verða kynt, sungið og dansað á palli. Félagið hefir fengið Skagfirðinga- búð að láni og verða þar fjölbreyttar leiksýningar báða dagana. Auk þess fjölbreyttir úlileikir. Á sunnudaginn er gert ráð fyrir að skennntanir haldi áfram að lok- inni alhöfnínni á spítalalóðinni. — Verða þá sýndir þjóðdansar, Karla- kór Akureyxar syngur, leikjimi verð- ur sýnd og dansað á palli eins og á laugardagskvöldið. Hátíðinni lýður svo á sunnudagskvöld með flugelda- sýningu. Mikil nýung er það, að skrautbú- inn vagn mun fara um götur bæjar- ins báða dagana. Merki verða seld, og gilda merkin, sem seld verða á sunnudaginn sem aðgöngumiðar að hátíðasvæðinu. Þá heldur félagið bazar í Gagn- fræðaskólahúsinu. Hafa konurnar útbúið sjálfar allskonar muni, sem verða seldír þarna til ágóða fyrir sjúkrahúsið. Gera má ráð fyrir að mikið fjöl- menni verði á þyssari fjölbreyttu há- líð kvenfélagsins. Eiga konurnar miklar þakkir skilið fyrir fórnfúst og mikið slarf í þágu þessa mannúð- armálefnis og er bæjarbúum skylt að stuðla að því, að hátíðahöld þessi fari fram með þeim menningarbrag, ■ sem konunum er kappsmál, að þar ríki. --------------------------1------- Flugvél Frá Flugskóla Ak- ureyrar flýgur inn að Laug arfelli og lendir þar Síðastliðinn sunnudag flaug ein af flugvélum Flugskóla Akureyrar með farþega inn að Laugarfelli. Lenti flugvélin þar á sandfleti vestan við norðurhorn fellsins kl. 2. Tókst lend- ingin ágætlega. Var þessi staður valinn til reynslu eftir tilvísan hfins alkunna ferðagarps, Þorsteins Þor- steinssonar, sem staddur var á þess- um slóðum með hóp frá Ferðafélagi Akureyrar. Flaug vélin eftir nokkra stund aftur til baka. Er þetta fyrsta reynsluflug með farþega inn á öræfin, en eins og áð- ur hefir verið frá skýrt, hefir Flug- skólinn í hyggju að rannsaka fleiri lendingarstaði í ’öræfunum í sam- bandi við skennntiferðir þangað. Flugmaður var Kristján Mikaels- son, en farþegi Tryggvi Þorsteins- son skátaforingi. «

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.