Íslendingur


Íslendingur - 27.09.1946, Síða 1

Íslendingur - 27.09.1946, Síða 1
XXXII. árg. Föstudagur 27. september 1946 41. tbl. Kommúnistiskir æsingamenn gera aðsúg að forsætisráðlierra og borgarstjóra. Síðastliðinn sunnudag gerðist sá fáheyrði atburður í Reykja- vík, að um 150 kommúnistar réðust með ofbddi inn á fund Sjálfstæðismanna í Sjálfstæðlshúsinu. Hafði skríll þessi í frammi öskur og háreysti á aðra klukkustund. Hátt á sjötta hundrað manns var á fundinum og vildu fundarmenn hrinda ofstopa- mönnunum af höndum sér, en forsætisráðherra bað fundar- menn að fara ekki í handalögmál við þenna lýð. Efir að skríllinn að lokum hörfaði á dyr, var fundi haldið áfram og forsætisráðherra ákaft hylltur af fundarmönnum. Þegar fundarmenn gengu af fundi, var allstór hópur af komm- únistiskum æsingamönnum fyrir utan húsið og gerðu þeir aðsúg að forsætisráðherra og borgarstjóra, svo að lögreglan varð að koma til aðstoðar. Hér er um að ræða atburð, sem hlýtur að vekja fyrirlitn- ingu og reiði allra þjóðhollra Islendinga. Ef friðsamir borgarar geta ekki rætt vandamál þjóðfélagsins óhultir fyrir óðum bylt- ingarlýð, þá er lítið orðið eftir af réttarörygginu í landi voru. Mun það óþekkt meðal siðaðra þjóða, að sjálfur forsætisráðherr- ann sé ekki öruggur fyrir árásum skríls, sem forustumenn flokks samráðherra hans í ríkisstjórn hafa æst til óhæfuverka. Eigi Island að geta talizt fullkomið réttarríki, verður að tryggja það, að svona atburðir geti ekki komið fyrir. Allir þegn- hollir borgarar hljóta að æskja þess, að ábyrg yfirvöld í land- inu efli svo löggæzluna, að slíkir atburðir geti ekki endurtekið sig. Þeir, sem kunna að efast um það. að forustumenn hins svokallaða sameiningarflokks alþýðu — sósíalistaflokksins hafi verið samþykkir aðgerðum þessa skríls, þurfa ekki annað en lesa „Þjóðviljann". Heimsfrægir tónlistarmenn heimsækja Akureyri. Fiðlusnillinguriim Adolf Buscli og píanósnillingurinn Budolf Serkin koma liingað um miðja næstu \iku. Þegar kunnugt var í vor að tónlistarsnillingar þessir myndu koma til landsins, sneri Tónlist- arfélag Akureyrar sér til for- manns Tónlistarfélags Reykja- víkur og æskti eftir að fá þá til Akureyrar. Þegar formaður Tónlistarfélags Akureyrar var í Reykjavík fyrir nokkrum dög- um, var það afráðið að þeir kæmu hingað og gengið frá samningum þar um, Eins og gera mátti ráð fyrir varð Tón- listarfélag Akureyrár að ábyrgj ast listamönnunum vissa upp- hæð, ef þeir ættu að koma hing- að, en í trausti þess að styrktar- félagarnir og ýmsir aðrir bæjar búar myndu ekki telja eftir sér að greiða aðgöngumiða hærra verði en vanalega, þegar um hessa heimsfrægu listamenn værl ræða, ákvað félagið að taka á.sig áhættuna og munu þeir því aö öllu forfállalausu koma hingað eftir næstu helgi. 1 för með þeim verður dóttir Busch, sem er kona Rudolfs Serkin, og ennfremur mun Björn Ólafsson konsertmeistari koma með þeim. - Hver styrktarfélagi Tónlistar félagsins getur fengið 2 að- göngumiða að hljómleikunum gegn lægra gjaldi en áðrir greiða. Afgreiðsla miðanna fer fram á skrifstofu Verzl. Ásbyrgi h. f. Skipag. 2, í kvöld kl. 6—7 og laugardag kl. 5—7. — Verði miðar styrktarfélaga ekki sóttir á þessum tímum verða þeir seld ir öðrum. Tekið á móti nýjum styrktarfélögum. — Staður og stund fyrir hljómleikana verður auglýst síðar. Bæjarverkfræðingur ráðinn. Bæjarstjórn hefir nýlega ráðið cand. polyt. Asgeir Markússon bæj- arverkfræðing. Hefir liann starfað hjá bænum í sumar. . KommúDistar reyna að efna til fjand- r skapar milli Islands og Bandarikjanna Nokkur atriði í samningnum þyrfti að orða nákvæmar, en allt tal kommúnista um dul- búnar lierstöðvar barnalegar firrur ' Samningsuppkast það, sem forsætisráðherra lagði fyrir Al- þingi fyrir nöklirum dögum, hefir liaft í för með sér atburði, sem fáa liefði órað fyrir að gerðust með þjóð, er telur sig mðeal fremstu meningarþjóa heimsins. Kommúnistar hafa beitt ógn- unum við æðstu stjórnarvöld landsins og reynt að hræða þing- menn til að taka ekki afstöðu til málsins eftir sannfæringu sinni. Komúnistar liafa misnotað vald sitt í verkalýðssamtökunum og fyrirskipað raunverulegt uppreisnarverkfall.Þessir atburðir hafa vakið þá ðpurningu í huga löghlýðinna borgara, hvort ekki sé meira réttaröryggi í landinu en svo, að æsingamenn geti notað sterk liagsmunasamtök til þess að ógna sjálfu löggjafarþingi þjáðarinnar. Stórtjón af völdum of- viðrisins um síðustu helgi Um síðustu helgi geisaði hið mesta stórviðri með feikna úr- komu hér norðanlands. Voru vatnavextir mjög miklir o^; sum staðar mikið tjón af völdum skriðnfalla. Kafmagnsíaust var á Akureyri á þriðjudagskvöid og fram á nótt. Mestar skemmdir urðu í Höfða- hverfi. Eyðilögðu skriðuföll tún og engi á nokkrum jörðum .Mestar skemmdir munu hafa orðið á jörð- unum Litlage'rði, Miðgerði og Ár- túni. Urðu skemmdir svo miklar á Litlagerðislandi, að jörðin er talin óbyggileg. Lólk flýði af bæjum þess- um í ofviðrinu á sunnudagskvöldið til Laufáss og Lómatjarnar. Skriðilr eyðilögðu að mestu leyti svokallað- an Gæsaskóg, vestan Lnjóskár. I Eyjafirði urðu skemmdir á tún- inu á Vatnsenda og skriða féll inn á túnið á Möðruvöllum í Hörgárdal. Vegurin yfir Vaðlaheiði varð um tíma ófær. Hér á Akureyri urðu víða nokkrar skemmdir í kjöllurum vegna vatns- rennslis og stórir lækir runnu eftir götunum og má nú víða sjá farvegi þeirra. Skriður féllu úr höfðanum ofan við Aðalstræli 70 og sömuleiðis úr höfðanum. sem kirkjan stendur á. Óglæsilegt að vakna dauður í I rúmi sínu. I fyrrakvöld efndu liinar kommunistisku stjórnir nokkurra verklýðsfélaga a Akur- eyri til almenns fundar í Samkomuhúsi bæjarins. Var ætlast til, að Akureyringar fylktu nú liði um hinar kommúnistisku sjálfstæðisiietjur. Akureyringar sýndu þó þarna sem oft áður, að þeir meta meira skynsamlega yfirvegun en æsingar. Létu fáir verkamenn sja sig og kom aðeins rúm lega hundrað rnanns. Varð fundurinn kommúnistum til mikilla vonbrigða. Ymsar helztu hetjur kommúnista komu þarna fram. Var innihahl ræðanna aðal- lega svívirðingar um Ólaf Thors og illmæli um Bandaríkin. Einum ræðumarma íannst % sérslaklega eftirtektarvert, hve Akureyr- ingar væru sinnulausir um velferð sína að mæta ekki á þessum fundi og taldi vera heldur seint fyrir þá að vakna, þegar þeir lægju dauðir í rúmi sínu. Illýtur það líka að vera mjög ónotalegt. Kommúnistar hafa undanfarið mjög reynt að slá sig til riddara sem liina einu sönnu ættjarðarvini og hafa rsynt að sannfæra þjóðina um það, að allir aðrir flokkar sætu á svikráðum við hana. Hefir þeim þó orðið furðulega lítið ágengt í þess- ari nýju áróðurskrossferð, því að flestir hafa gert sér ljóst, að hér byggi eflthvaib undir. Blöð kommúnista hafa undanfar- ið haldið uppi harðvítugum árásum gegn Bandaríkjunum og Bretum. Hafa málgögn þessi endurómað þar viðhorf llússa. Hefir verið engu lík- ara, en kommúnistar legðu allt kapp á að egna hér lil fjandskapar gegn Bandaríkj unum. Er r.akið í leiðara blaðsins í dag, hvaða ástæður muni i liggja liér til grundvallar. Hefir þetta berlegast orðið ljóst í sambandi við samningsuppkast það, sem nú liggur fyrir Alþingi. Engar herstöðvar Bandaríkin fóru á sínum tíma fram á það að fá hér leigðar her stöðvar til langs tíma. Allir flokkar og þjóðin öll hafnaði þeim tilmæl- um sem ósamrýmanlegum sjálfstæði þjóðarinnar. Kommúnistar hafa nú reynt að stimpla þá menn svikara, sem þá mæltu opinberlega gegn her- stöðvum, en neita nú að fallast á of stækisfullar árásir þeirra á Banda- ríkfn. Hefir þeim tekizt með ofstæki og landráðabrigslum að fá ýms fé- lagssamtök til þess að gera hróp að samningstilboði Bandaríkjanna. Eru þó samþykktir ýmissa þessara sam- taka eins og t. d. Stúdentafélags Reykjavíkur, byggðar á skynsam- Iegri iliugun en ekki pólitískum ofsa. Sannleikurinn er sá, að sú beiðni, sem Bandaríkjastjórn nú hefir sent íslenzku ríkisstjórninni er í grund- vallaratriðum allt annars eðlis en hin fyrri beiðni þeirra um leigu her- stöðva. í.slendingar hafa full yfir- ráð í landi sínu Í herstöðvabeiðninni var gert ráð fyrir því, að íslendingar afsöluðu sér yfirráðum yfir ákveðnum svæð- um á landi sínu og hér áttu að vera hópar manna, sem ekki lytu íslenzk- um lögum. Slíkt gat fullvalda ríki ekki fallizt á. I samningsuppkasti því, sem nú liggur fyrir, er skýrt fram tekið, að Islendingar skuli hafa full yfirráð yfir öllu sínu landi og þeir amerísku starfsmenn, sem hér dvelji, skuli lúta íslenzkum lögum og verða að fá landvistarleyfi hjá íslenzkum yfirvöldum. Keflavíkurflugvöllurinn á að verða skýlaus eign íslenzka rík- isins þegar í stað og öll föst mann- virki þar, og allur herafli Banda- ríkjanna verður fluttur á brott. Ýms atriði varðandi rekstur vallarins eiga eiga að vera samningsatriði milli ís- lands og Bandaríkjanna, meðan þau liafa afnot af vellinum, en þó er skýrt fram tekið, að slík ákvæði raski ekki „úrslitayfirráðum ríkisstj órnar íslands, livað umráð og rekstur flug- vallarins snertir.“ Er að þessu ljóst, að það er meginmunur á samningstil boði þessu og fyrri beiðni Banda- Framhald á 6. síðu.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.