Íslendingur


Íslendingur - 18.10.1946, Síða 1

Íslendingur - 18.10.1946, Síða 1
XXXII. árg. Föstudaginn 18. október 1946 44. tbl. Fyrsta ráðsteínan um byggingamál á Islandi var haldin i sumar Ráðstefna þessi gerði ýmsar merkilegar samþykktir um endur- bætur í byggingarmálum, og miða ýmsar þessara tillagna að því að reyna að læklta hirni feikiiega byggingarkostnað, sem er að gera einstaklingimi ókleyft að ráðast í byggingarframkvæmdir. Þyrfti nú þegar að láta fara fram ítarlega rannsókn á hinum ýmsu kostnaðarliðum við húsabyggingar, því að full ástæða er til að álíta, að þar sé á ýmsum sviðmn um hreinasta okur að ræða. Athugið Vegna breytinga á út- gáfu „tslendings“, kem- ,ur blaðið ekki út næstu viku. UTAN tR HEIMI Búlgaría: Hreinsun „Þjóðverjasinnaðra liðsforingja úr búlgarska Tiern- um er miklu róttækari en opin- berar skýrslur gefa til kynna. Næstum allir þeir liðsforingjar, sem ekki eru kommúnistar, hafa verið reknir úr stöðum sinum. Ýmsir ætla, að tilgangur inn með þessari róttæku hreins- un sé sá að neyða hermálaráð- herrann Velchev til þess að segja af sér, en hann er eini and kommúnistinn, sem gegnir mik- ilvægu embætti. Rússland: Rússar eru að koma sér upp mjög haganlegu viðskiftakerfi í AusturEvrópu. Þeir kaupa úr og vélar frá Sviss með timbri frá Austurríki og landbúnaðar- vörum frá Ungverjalandi. Vör- ur frá Svíþjóð greiða þeir með pólskum kolum. Otflutningur nauðsynjavara, sem Rússar hafa ekki þörf fyrir færir Austur-Evrópulöndunum erlend an gjaldeyri, sem síðan er hægt að nota til kaupa á tækj- um til framleiðslu iðnaðarvara handa Rússum. 50-60 þfis. kr lán óskast. Góð trygging. Til- boð merkt „Góðir vextir“ leggist inn á afgr. Islend- ings. Reiðhestur Til sölu er 6 vetra foli af bezta reiðhestakyni. — Nánari upplýsingar gefur Páll Friðfinnsson, útgm. Dalvík hú á Sjúkrahúsi Akureyrar. Barnavagnar Barnakerrur Aluminium tröppur Emailíeraðar fötur ^erzlunin Baldursliagi h. f. Ðanskt hvítkál nýkomið Verzlunin Baldursliagi h. f. Bergi Jónssyni saka- dómara vikið úr em- bætti. Dómsmálaráðherra, Finnur Jónsson, hefir vikið sakadómar- anum í Reykjavík, Bergi Jóns- syni, frá störfum og fyrirskipað réttarrannsókn gegn honum vegna ósæmilegra símtala við ráðherrann og fleiri menn. — Hefir Gunnar Pálsson, bæjar- fógeti á Norðfirði, verið skipað- ur til þess að rannsaka mál þetta. Eins og kunnugt er, þotti það hin mesta óhæfa, þegar Finnur Jónsson á sínum tíma skipaði Berg Jónsson sakadóm- ara til þess að geta komið flokksbróður sínum Guðmundi í. Guðmundssyni í bæjarfógeta- embættið í Hafnarfirði. Virðist það vera að sannast, sem á var bent þá, að veiting sakadómara- embættisins. hefði ekki verið skynsamleg. Að öðru leyti verð- ur ekki um það sagt nú, hve réttmæt brottvikning Bergs Jónssonar er. Mun réttarrann- sóknin leiða það í ljós. ★ Bæjarstjórn Akureyrar samþykkir að kaupa togara. BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefir riýlega borizt svohljóðandi bréf frá Nýbyggingarráði: „Með tilvísun til óska fulltrúa bæjarstjórnar við úthlutun tog- ara til yðar, hefir ráðið fyrir milligöngu fulltrúa ríkisstjórnar innar með byggingum í Bret- landi, aflað tilboðs í annan tog- ara handa yður af sömu gerð, byggður hjá Alexander Hall. Nauðsynlegt er að geta svarað tilboðinu fvrir helgi.“ Bæjarstjórn hélt fund um málið s. 1. föstudag og sam- þykkti að tdka tilboði Nýbygg- ingarráðs. Þó var það skilyrði sett, að togari þessi yrði eigi lakari að gæðum eða dýrari en þeir togarar, sem þegar hefir verið úthlutað. Bæjarstjórnin hefir áður sam þykkt að óska eftir að fá tvo togara, og er þessi afgreiðsla málsins ”því í samræmi við þá ályktun. Hér fara á eftir nokkrar at- hyglisverðustu ályktanir bygg- ingarráðstefnunnar: Byggingaráðstefnan 1946 á- lyktar að skora á stjórn Lands- sambands iðnaðarmanna að beita sér fyrir því að ákvæðis- vinnufyrirkomulag (verkskrár- vinna) verði viðhöfð í bygginga iðnaðinum þar sem því verður við komið. Byggingaráðstefnan 1946 beinir þeirri áskorun til ríkis- stjórnar og Alþingis, að tekið verði til rækilegrar yfirvegunar hvernig byggingaiðnaðurinn verður, að bezt manna yfirsýn. haganlegast sniðbundinn (stand ardiseraður), svo komið verði við einfaldari og hagkvæmari fjöldaframleiðslu. Byggingaráðstefnan 1946 beinir eftirfarandi áskorunum til bæja- og sveitastjórna í land- inu: a) að auka svo sem auðið er leiðbeiningarstarfsemi í húsagerð, m. a. með því að hraða svo sem frekast má verða framkvæmd heimildar laga um ræktun og húsagerð í sveitum. b) að stuðla að því, að efnalitl ir einstaklingar eigi aðgang að hagkvæmum uppdráttum og kostnaðaráætlunum, þar með taldir uppdrættir að járnalögnum, hitalögnum, raflögnum o. s. frv. c) að viðkomandi bæjarstjórnir og bygginganefndir geri strangari .kröfur en verið hefir víða til þeirra manna, er fást við teikningar og framkvæmdir verka á hverj- um stað. Byggingaráðstefnan 1946 telur brýna nauðsyn bera til þess, að nú þegar fari fram ræki leg athugun á vélakosti þeim, er þjóðfélagið á nú yfir að ráða til byggingariðnaðar, í þeim til- gangi að heildarsýn fáist um: a) hvað nú er til i landinu af slíkum vélum. b) hvað á skortir, að brýnustu þörfum í því efni verði full- nægt. c) Hversu bezt verði hagnýttar þær nýungar í véltækni, er fram koma á hverjum tíma í þágu byggingaiðnarins. Beinir ráðstefnan þeirri á- skorun til iðnaðarmálaráðu- neytisins, að það láti þessa at- hugun fara fram, í samráði við hinar ýmsu félagsheiidir bygg- ingaiðnaðarins. Byggingaráðstefnan 1946 beinir þeirri áskorun til félags- málaráðuneytisins að það skipi nú þegar nefnd til að gera til- lögur um skipulag á eldhúsi, er sameini eftir því sem kostur er á þægindi og hollustuhætti, en stilli þó þeim kröfum svo í hóf, að miðað sé við kaupgetu al- mennings. Byggingaráðstefnan 1948 skorar á ríkisstjórnina að láta rannsaka hvort ekki væri ráð- legt að setja á stofn verksmiðju til að vinna einangrunarefni til húsabygginga úr timbur- og pappírsafgöngum, sem ónothæf- ir eru til annara hluta. Byggingaráðstefnan 1946 skorar á ríkisstjórnina að gera eftirfarandi ráðstafanir til að tryggja að lög frá síðasta Al- þingi um opinbera aðstoð við byggingu íbúðarhúsa í kaupstöð Um og kauptúnum nái sem fyrst og hagkvæmast tilætluðum not- um. a) að tryggja lánsfé til bygg- ingafélaga verkamanna og byggingarsamvinnufélaga. b) að meðan takmarkað magn byggingarefnis fæst til lands ins, sé beitt ákvæðupi téðra laga til þess að láta íbúðar- húsabyggingar fyrst og fremst njóta fáanlegs bygg- ingarefnis. ENNÞÁ ENGIN STJÓRN- ARMYNDUN Ólafur Thors hefir tilkynnt forseta Islands, að hann telji ekki rétt, að hann, eða annar maður úr Sjálfstæðisflokkn- um reyni stjórnarmyndun, heldur væri eðlilegast að allir flokkar þingsins tilnefndu menn til þess að athuga möguleika á sem víðtækustu samstarfi um myndun ríkis- stjórnar og lausn þingmála. Munu allir flokkarnir hafa fallizt á þessa tillögu. „Dagur“ dregur í gær þá ógáfulegu ályktun af tilkynn ingu Ólafs Thors, að hún feli í sér uppgjöf nýsköpunar stefnunnar, því að Sjálfstæð- isflokkurinn og Alþýðuflokk- urinn hafi þingmeirihluta í báðum deildum. Þetta er hin mesta fjarstæða. Sjálfstæðis- flokkurinn mun áfram fylgja þeirri stefnu, sem mörkuð hefir verið með forustu hans í fráfarandi ríkisstjórn, en hins vegar var framkvæmd stefnu þessarar byggð á sam- starfi þriggja flokka, og „Degi“ ætti að vera það kunn ugt, að Alþýðuflokkurinn hef ir ekki talið sér fært að svo stöddu að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum ein um. KA vann haustmótið Undanfarið hefir staðið yfir haustmót í knattspyrnu hér á Akureyri. Lauk mótinu s. 1. laugardag. K. A. og Þór kepptu á mótinu, og sigraði Knatt- spyrnufélag Akureyrar í öllum flokkum. Orslit í einstökum leikjum urðu sem hér segir: 1 III. fl. vann K. A. Þór með 6 :2. 1 II. fl. sigraði K. A. með 3 :1.11. fl. vann K. A. Þór með 4 : 2, og í meistaraflokki sigraði K. A. 4 : 2. S. 1. sunnudag fór svo fram önnur keppni milli meistara- flokka K. A. og Þórs í knatt- spyrnu, og sigraði þá K. A. með 3:1. Píanóhariöiiifca til sölu. — A. v. á. Sendum heim milli Id. 4—6. Verzl. ESJA

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.