Íslendingur


Íslendingur - 08.01.1947, Síða 1

Íslendingur - 08.01.1947, Síða 1
XXXIII. árg. 1. tbl. Miðvikudagur 8. janúar 1947 Landsslminn íyrirhugar margvíslegar framkvæmdir. Sjálfvirka ketfiÖ á Akureyri væntan Jeg’t í byrjun næsta árs. UNDANFARIÐ liefir mikið verið rætt um símamálin, og það að von- um, þar sem vandræði liafa verið víða um land vegna skorts á símalín- um og tækjum. Þar við bætist nú alhnikil hækkun ýmissa símgjalda og fregnir um reksturshalla Landssím- ans. „Islendingur“ taldi því rétt að afla lesendum sínum nokkurra upplýsinga um þessi mál og álti því ritstjóri blaðsins í gær tal við Guðm. Hlíðdal póst- og símamálastjóra. Póst- og símamálastj óri telur höf- uðnauðsyn að koma sem fyrst öll- um línum niður í jörð (jarðsími). í allt sumar var unnið við jarðsíma- lagnir frá Hvalfirði að Hrútafjarð- ará. Á næsta suinri er ætlunin að reisa símahús í *Borgarnesi og við Ilrútafjarðará, og verður þá Borð- eyrarstöðin flult að Hrútafjarðará. Þar senr jarðsíminn er lagður langar leiðir þarf raforku til þess að magna hljóðið, sem deyfist. Til þess- ara stöðva þarf því að afla margs- konar véla og einnig þarf að tryggja nægilega raforku. Þegar er ákveðið að hraða lagn- ingu jarðsímans norður einí og frek- ast er unnt, en til þess að ljúka því verki mun landssíminn þurfa um 10 milj. kr. lán. Fáist lánið má vænta þess, að framkvæmdum verði að fullu lokið á næsta ári (1948). I jarðsímanum frá Hvalfirði að Hrútafjaj ðará eru 23 línur, sem eiga að geta afgreitt 30 samtöl. Nú sem stendur er einungis 1 lína norður með 4 samtölum. Af þessu hefir leitt að nokkurn hluta sólarhring'sins hafa næstum einungis fengist afgreidd hraðsímtöl. Þótt ástandið í þessum efnum sé þannig slæmt er það þó mun verra á Siglufirði og Isafirði. Fyrir all-lörigu síðan voru gerðar ráðstafanir íil þess að fá sjálfvirka slöð á Akureyri. Gangi að óskum má vænta þess, að stöðin komi upp á næsta ári. Ekki hefir þó fengist innflutnings- og gjaldeyrisleyfi til kaupa á vélum og áhöldum sein lil þurfa. Ovíst er, hvað mikið lagt verður af einkasímum næsta sumar, þar sem ekki er lokið við að ganga frá fjár- veitingu. Sennilega verður tekið fyr- ir ákveðið svæði Norðanlands, en póst- og símamálastj óri taldi æski- legra, að gengið væri í einu frá af- mörkuðum stöðum, fremur en að vera við lagnir úti um allt samtímis. Fyrirhugað er að ganga á næst- unni frá jarðsímalögn til Dalvíkur og þar næst til Siglufjarðar. Þó er enn ekki ráðið, hvort sú lína verður Eyjafjarðar- eða Skagafjarðarmeg- in. Kröfurnar um að flýta lausn um 7 miljóna þýzkra og japanskra her- fanga, sem enn eru í gæzlu Banda- manna, eru að verða háværari með degi hverjum. Áunnist hefir, að heim flulningur hermanna í Evrópu og Asíu hefir nú gengið betur en-áður. En þó munu líða mörg ár, áður en allir fangarnir verða frjálsir og mörg um þeirra mun sennilega aldrei auðn ast að sjá föðurland sitt aftur. Marg- ir áhrifamenn hafa látið í ljós ótta Aðalfundur Siálfstæðis- félags Akureyrar Sjálfstæðisfélag Akureyrar liélt ný- lega aðalfund sinn. Helgi Pálsson, framkvstj., var endurkosinn formað- ur félagsins, og Sveinn Bjarnason, framfærslufulltrúi, endurkosinn gjald keri. Jakob Ó. Pétursson, bóksali, var kosinn ritari og Karl Friðriks- son, verkstjóri, varaformaður. j fulltrúaráð voru kosnir, auk stjórnarinnar: Páll Sigurgeirsson, Valgarður Stefánsson, Karl Frið- riksson, Steinn Steinsen og Einar Sigurðsson. I Naustaborgarráð voru kosnir Karl Friðriksson, Guðmundur Guð- mundsson, Guðmundur Jónasson, Magnús Bj,arnason og Gunnar Jósefs son. Kostnaðurinn við allar fram- kvæmdir Landssímans hefir farið langt fram úr tekjurn. Horfið hefir því verið að því ráði að hækka ýmsa tekjuliðt. Talsímagjöld og sím- skeytagjöld innanlands haldast þó ó- breytt. Á árinu 1946 er greiðsluhalli Landssímans áætlaður rúmar 6 milj. króna. Þar kemur þó til greina nokk- ur eignaaukning, en jarðsíminn er talinn utan við hana. Á sínum tíma var tekið 12 milj. kr. lán og iefir af því þegar verið notaðar 6.6 milj. kr. Póst- og símamálastj óri tók það að lokum fram, að þótt þegar hefði verið gerð áætlun um framkvæmdir Landssímans, hefði þó Alþingi sein- asta orðið um það, hvort af þeirn verði. Einnig er allt undir því kom- ið að lánveiting fáist. um, að áfram haldandi varzla her- fanga verði til þess að auka hatur og hefndarþorsta hinna sigruðu þjóða, auk þess sent alvarlegur ágreiningur gæti risið milli stórveldanna um lausn málsins. Sigurvegararnir notfæra sér vinnu- afl fanganna til þess að lagfæra skemmdir, sem orðið liafa af völd- um styrjaldarinnar. Mestur hluti þeirra eru Þjóðverjar. 17 mánuðum eftir uppgjöf Þýzkalands voru yfir 5 miljónir lierfanga í liöndum Banda- manna. Þar af voru langflestir í Rússlandi. Rússar hafa Þjóðverja við alls konar vinnu. Fangar, scm látnir liafa verið lausir, segja að þeir hafi orðið að vinna 14 tíma á sólar- hring í verksmiðjum og námum og lifað við mjög þröngan kost. Annars eru kjör og aðbúnaður herfanga í Rússlandi mjög misjafn, en telja verður að liann hafi heldur batnað í seinni tíð. í Frakklandi munu vera um 700.- 000 þýzkra herfanga, sem litlar líkur eru lil að komist heim á næstunni. Ef Frakkar væru einráðir myndu þeir helzt aldrei sleppa þeim. Um 200.000 vinna við landbúnað, 55.000 í námum, 30.000 við skógar- högg og um 40.000 vinna við hygg- ingar, og viðgerðir á verksmiðjum. Mcssað' sunnudaginn í Akureyrarkirkju kl. 2 e. h. Sjónarhœð. Sunnudagaskóli kl. 1, opin- her sarnkoma kl. 5 e. h. á sunnudag. Bibl- íufyrirlestrarfundur þri'ðj udagskvöld kl. 8. Hjúskapur. Kristín Guðmundsdóttir og Snorri Guðjónsson. Aðalbjörg Lárusdóttir og Aðalsteinn Kristinsson. Helga Guðrún Sigurðardóltir og Þórður Snæbjörnsson. líjónaejni. Sigrún Eggertsdóttir Laxdal (listmálara) og Kristján Eiríksson, stud. jur. (Eiríks Krisljánssonar kaupmanns á Akureyri). Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trú- lofun sína ungfrú Marsilía Sigurðardóttir, Melgerði, Glerárþorpi, og Sigurður Odds- son, bóndi á Glerá, Glæsibæjarhreppi. Hlutaveltu og dans heldur Kvenfélagið „Voröld“ laugardaginn 11. jan. kl. 9 e. h. að Munkaþverá. Veitingar á staðnum. Áheit á Akureyrarkirkju. 25 kr. frá N. N., 20 kr. frá N. N., 60 kr. frá S. A. og 20 kr. frá N. N. — Þakkir. Á. R. Aheit á Strandarkirkju. Frá I. E. kr. 20.00. Móttekið á afgr. „fslendings“ og sent áleiðis. Aðfaranótt 2. jan. sl. var aftaka sunnan- veður um land allt. Ilér á Akureyri urðu allmiklar skemmdir á mannvirkjum. Skjól- garður Torfunefsbryggjunnar sópaðist í burtu, einnig urðu skemmdir á hafnar- hryggjunni. Skentmdir urðu á skipurn, sent lágu á höfninni (m.s. Þorsteinn, Dalvík, e.s. Bjarki, Ak., m.s. Kristján, Ak., m.s. Líf, Ak., m.s. Atli, Ak. og m.s. Eyfirðing- ur, Ak.). Póstbáturinn Drangur varð og fyrir nokkrum skemmdum. Gluggarúður brotnuðu víða í húsunt og ljósa- og síma- staurar brotnuðu. Lögreglan hefir tjáð blaðinu, að rólegt liafi verið hér í bænum um hátíðarnar, og skemmtanir yfirleitt farið friðsamlega frarn. MóttekiS á afgreiðslu „íslendings": Evrópusöfnunin. Til Finnlands. Jónína Jónsdóttir kr. 50.00. Sigríður Þorláksdótl- ir kr. 50.00. Austfirðingamót ver'ður haldið a'ð Ilótel Nor'ðurland laugardaginn 18. jan. n. k., ef nægileg þátltaka fæst, og hcfst me'ð borð- | Brellandi vinna 385.000 herfang- ar ýmiskonar vinnu, en flestir slarfa við landbúnaðinn. Á brezka hernáms svæðinu í Þýzkalandi, á Ílalíu og í Framh. á 8. síðu. Herfangahald stórþjóðanna get- ur stotnað friðnum í hættu. haldi kl. 7 e. h. Austfirðingar, sem taka vilja þátt í mótinu, eru góðfúslega beðnir að rita nöfn sín og gesta sinna á lista, er liggja frammi í Bókaverzlun Gunnl. Tr. Jónssonar og Hattabúð Lillu og Þyri, fyrir 12. þ. m. Aðgöngumiða sé vitjað á Hótel Norðurland dagana 14. og 15. þ. m. kl. 4—- 7 e. h. Farið var á bílum frá Akureyri til Rvík- ur 3. jan. og var færi dágott. Mun þetla vera einsdæmi. Stúkan 1 safold-Fjallkonan minnist 63 ára afmœlis síns með hátíðajundi í Skjald- horg næstkomandi mánudag kl. 8.30 s.d. Fundarefni; Inntaka nýrra félaga. Stutt erindi. Kvennakór syngur. Kvikmynd. Dans. Veitingar fást keyplar. Félögum stúkunnar Brynju er boðið á fundinn. ■— Akureyringar! Minnist þess, að þið eruð alltaf velkomnir í Regluna, ungir sem gamlir. Kornið og styðjið bindindismálið með því að ganga í Regluna. Til barnastúkufélaga á Akureyri. Kvik- myndasýning fyrir félaga allra barnastúkn anna á Akureyri verður að öllu forfalla- lausu næstk. sunnudag kl. 3 síðd. í Skjald- borg. Sýningin er ókeypis, en félagar greiði skuldir sínar, ef einhverjar eru. Að- göngumiðar verða afhentir santa dag í Skjaldborg kl. 10—12 árd. Sýningin er aðeins fyrir stúkufélaga. Skýrsla um áheit og gjafir til Hríseyjar- kirkju árið 1946. Áheit frá Margretu Gísladóttur kr. 50.00. Áheit frá Sigtryggi Brynjólíssyni og Sigrúnu Pálsdóltur kr. 50.00. Áheit frá ónefndum kr. 5.00. Áheit frá sjómanni kr. 20.00. Áheit frá hjónum kr. 200.00. Gjöf frá ónefndum kr. 100.00. Gjöf frá C. P. Holm kr. 200.00. Áheit frá Gísla Tryggvasyni kr. 100.00. Áheit írá Guðrúnu Björgu Sigurðardóttur kr. 50.00. Alls kr. 775.00. -— Beztu þakkir. Móltekið. Sóknarnefndin. „Geysis“-jélagar eru beðnir að mæta á æfingu á venjulegum stað og tíma annað kvöld — fimmtudag 9. þ. m. Merkjasala Góðtemplarareglunnar. Það hefir veri'ð fastur siður undanfarin ár, að Góðtemplarareglan hefir haft einn nierkja- söludag á ári hverju, til ágóða fyrir starf- semi sína. Fé þetta hefir jiö aldrei verið notað sem eyðslufé, heldur hefir því verið varið til einhverrar sérstakrar menningar- starfsemi innan Reglunnar. I þetla sinn fer merkjasala fram dagana 11. og 12. jan. n. k., og þá sennilega að rnestu leyti sunnudaginn 12. jan. Nú eru það barna- stúkurnar, sem sjá ttm merkjasöluna, og renntir helmingur fjárins til þeirra, en hinn helmiugurinn til umdæmisstúkunnar. Þess er vænst, að bæjarbúar bregðist vcl við, þegar stúkubörnin berja að dyrum og bjóða mcrki sín. Ef allir taka vel á méti þeint og kaupa af þeint merki, ættu þau ekki að þurfa að koma með nein óseld rnerki til baka.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.