Íslendingur - 22.01.1947, Síða 1
Pörf er einlægs samstarfsvilja en ekki álnalangra
Austræno „lýðræðið''' í ollri sinni dýrð.
Kommúnistar beita fáheyrðu
ofbeldi f pólsku kosningunum
Kommúnistor stórhrifnir of hinu nýja „lýðræði".
málefnasamninga.
Stjórnmálaóvissan hetir lam-
andi áhríf á allar tramkvæmdir
í landinu.
Mónuðum soman hofa nú fulltrúor þingflokkonna
reynt að bræða sig soman um myndun ríkisstjórnar og
enn situr allt við það sama. Alþingi hefir setið starfs-
laust allan þennan tíma, og hefir þetta vandræðaóstand
rýrt svo óhuga þingmanna, að oft hefir naumast verið
fundafært í þinginu. Á meðan er öllum vandamólum
slegið ó frest, og óvissan um framtíðina hefir fælt menn
fró að hefjast handa um nýjar framkvæmdir.
Formaður Alþýðuflokks-
ins heldur ófrom tilraun-
um til stjórnarmyrfdunar
Enn hefir ekki tekizt að mynda
ríkisstjórn. Gert hafði verið ráð
fyrir því, að formaður Alþýðu-
flokksins myndi' ljúka tilraunum
sínum til stjórnarmyndunar fyrir
helgi, en seint í gær héldu við-
ræður hans og fulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins og Framsóknarflokks-
ins enn áfram. Kvað Stefán Jó-
hann seint í gær ógerlegt að full-
yrða, hver niðurstaðan yrði.
Allar sögusagnir um það, að
formaður Sj álfstæðisflokksins
hafi tafið þessar samningatilraun
ir með því að taka á ný upp við-
ræður við Jcommúnista, eru til-
hæfulausar. Sjálfstæðisflokkurinn
er jafn einhuga um það nú og
hann hefir alltaf verið að mynda
sem fyrst starfhæfa ríkisstjórn.
Ifinsvegar eru allsterk öfl í Al-
þýðuflokknum, sem vinna ölul-
lega gegn formanni flokks síns í
þessu máli, og Framsóknarflokk-
urinn er klofinn um þetta mál
sem önnur og hefir allt á hornum
sér. Er því ekki gott að segja,
hver endanleg niðurstaða verður,
en talið er næstum víst, að þing-
ræðisstjórn verði ekki mynduð,
ef þessi lilraun mistekst.
25 MENN KOMU TIL
ATVINNULEYSIS-
SKRÁNINGAR
VINNUMIÐLUNARSKRIFSTOF-
AN lét fyrir skönnnu fara fram skrán
ingu atvinnulausra manna hér á Ak-
ureyri. 25 mættu til skráningar, en
sumir þeirra voru ekki með öllu at-
vinnulausir.
Áður hefir oft verið á það bent
hér í blaðinu, hversu nauðsynlegt það
sé, að framkvæmdum liins opinbera
sé þannig' hagað, að þær hagnýti
vinnuaflið þann tíma, sem fram-
leiðslan þarf ekki á því að halda.
Þótt atvinnuleysisskráningin sýni,
að hér sé ekki neitt teljandi atvinnu-
leysi, her samt hrýna nauðsyn til þess
að tryggja það, að enginn vinnufær
maður þurfi að ganga atvinnulaus,
bæði vegna þess að full þörf er á
starfi allra vinnandi handa, og eins
hins, að kaup almennra verkamanna
er ekki það hátt, í hlutfalli við sívax-
andi dýrtíð, að þeir megi við því að
ganga atvinnulausir -— jafnvel
skannnan tíma.
Þingkosningar þær, sem fram fóru
í Póllandi sl. sunnudag og allur undir
búningur þeirra, hafa vakið mikla
athygli um allan heim. Eru þær skýrt
dæmi um það, hvers vænta má, ef
kommúnistar ná völdum og fá að
framkvæma „lýðræðishugsjónir“ sín-
ar.
Stjórnarandstaeðingar
handteknir.
Hin kommúnisliska stjórnarsam-
steypa beitti hinu mesta ofheldi yið
allan undirbúning kosninganna. 250
af frambjóðendum stjórnarandstöð-
unnar, pólska Bændaflokksins, sem
hefir notið lang-mests fylgis hjá þjóð
inni, voru strikaðir út af framboðs-
listum með þeirri alkunnu röksemd
kommúnista, að þeir væru nazistar.
135 forustumenn flokksins voru
hnepptir í fangelsi, og hefir Mikol-
jczyk, foringi Bændaflokksins, skýrt
svo frá, að fimm þeirra hafi látizt af
illri meðferð. Allur kosningaáróður
Bændaflokksins var hindraður, og
ríkisútvarpið flutti sífelldan áróður
til stuðnings stjórnarflokkunum.
Kosningarnar sjálfar.
Kjörstjórnir allar voru skipaðar
eintómum stjórnarsinnum, og fékk
Bændaflokkurinn næstum hvergi að
liafa eftirlilsmcnn. Sumstaðar kom
til átaka, og er talið, að rúmlega 20
manns hafi látið lífið í óeirðunum.
Kosningarnar voru í rauninni ekki
leynilegar, því að stjórnin tilkynnti,
að rnenn hefðu rétt til þess að sýna
alkvæðaseðla sína. Víða voru kjós-
endur hindraðir í að komast á kjör-
stað. Erlendir blaðamenn fengu að
fylgjast með kosningunum sjálfum.
Hafa ýmsir þeirra skýrt svo frá, að
þeir hafi ekki orðið varir við, að
stjórnin hafi beilt þvingunum við
kjósendur á kjördegi, en talið hæltu
á því að kosningaúrslit yrðu fölsuð,
enda mun þeim yfirleitt ekki hafa
verið leyft að fylgjast með talningu
atkvæða.
Úrslitin talin fölsuð.
Útvarpið í Moskva skýrði svo frá
í gær, að stjórnarflokkarnir hefðu
hlotið um 13 atkv. gegn hverju einu
atkv. Bændaflokksins. Endanleg úr-
slit eru enn ekki kunn, en Mikol-
jczyk hefir látið svo um mælt, að úr-
slitin séu stórlega fölsuð, enda hafi
Bændaflokkurinn lilotið meiri hluta
atkvæða í þeim fáu kjördeildum, þar
sem hann fékk að hafa fulltrúa við
atkvæðatalninguna. Kveðst hann
muni kæra kosningarnar fyrir hæsta
rétti Póllands. Jafnframt hefir hann
látið í Ijós ótta um þáð, að hann
muni verða handtekinn og flokkur
hans bannaður.
Enn er ekki kunn afstaða Breta og
Bandaríkjamanna íil þessara ofbeld-
islegu kosninga, en Rússar hafa þeg-
ar lýst velþóknun sinni á þeim. Ekki
er að efa, að íslenzku kommúnista-
blöðin muni lelja kosningarnar mik-
inn sigur „lýðræðisins". Það er ekki
að furða, þótt kommúnistar harmi
að geta ekki innleitt þetta „lýðræði“
hér á íslandi.
HINN NÝI BRUNA-
BÍLL BÆJARINS ÓK
ÚTAF VEGINUM
Annar bilstjórinn slasaðist
svo, að hann beið bana
Sl. mánudag kom cil Akureyrar 5
smálesta brunaliðsbifreið, sem bær-
inn hefir nýlega keypt, og er búin
allmiklu betri tækjum en bifreið sú,
sem brunaliðið hefir haft til afnota.-
Bifreið þessi lagði af stað úr Hafn-
arfirði sl. laugardag, og óku tveir
bifreiðastjórar henni til skiplis.
Skammt frá Blönduósi fór hifreiðin
út af veginum. Beið annar bifreiðar-
stjórinn bana, en hinn mun ekki hafa
sakað. Bifreiðarstjóri sá, sem lét líf-
ið, var frá Hafnarfirði, kvæntur og
átti tvö hörn.
Bifreiðin mun ekki hafa skemmzt
mjög mikið.
TALSAMBAND VIÐ
BANDARÍKIN
Fyrir skönnnu komst á beint tal-
samband milli íslands og Banda-
ríkjanna. Eilt viðlalsbil — þrjár mín
útur — kosta 78 krónur.
Með hverjum deginum, sem líður,
kemur það æ betur í ljós, hversu
mikil ógæfa það er fyrir þjóðina,
að enginn einn flokkur skuli hafa
meiri hluta á Alþingi. Hver stjórn-
málaleiðtoginn tekur við af öðrum
við að reyna að sanuæma sjónarmið
nægilegs meiri hluta þingmanna, en
án' sýnilegs árangurs, enn sem komið
er. Virðast ýmsir flokkar vera komn
ir inn á þá hæpnu braut að vilja
gera fyrirfram sanminga um livert
einasta atriði, sem stjórnin kunni
að þurfa að taka til meðferðar. Er
að sjálfsögðu gott að hafa skýran
málefnasanming, þegar um er að
ræða samstarf ólíkra flokka, en það
er fáránlegt að ætla sér fyrirfram
að semja um lausn hvers máls. Það
á að marka meginstefnuna í stórum
dráttum, en einstök mál verða að
sj álfsögðu að leysast með hliðsjón
af hinum ýmsu aðstæðum á hverj-
um tíma. HöjuðatriðiS er }>að, að
fyrirfram sé fyrir hendi einlœgur
vilji samstarjsflokkanna að leysa
hvert vandamál með heildarliags-
muni þjóðarinnar fyrir augum, en
láta ekki von um flokkslegan ávinn-
ing freista sín til gönuhlaupa. Sé
sá ásetningur ekki fyrir hendi, eru
allir málefnasamningar gagnslausir.
Ástæðulaust brotthlaup kommúnista
í haust sannar þetta.
Myndo verður nú þegar
sterka stjórn.
Áframhaldandi stjórnmálaöng-
þveiti getur reynzt þjóðinni Örlaga-
ríkt. Þótt sleppt sé þeim hnekki, sem
þingræðið myndi bíða, ef þingið
gæfist upp við stjórnarmyndun, er
það ef til vill ekki það alvarlegasta
fyrir þjóðina. Þingið hefir nú verið
forustulaust og aðgerðalaust síðan
stjórnin baðst lausnar. Þingmenn
hafa misst allan áhuga fyrir þing-
störfum, nema helzt þeir, sem leggja
sig fram um að spilla fyrir stjórn-
armyndun. Margir hafa dregið að
sér hendurnar frá ýmsum fram-
kvæmdum vegna óvissu um hugsan-
lega stjórnarstefnu. Margir atvinnu-
rekendur hafa óttast rauða upplausn
arstjórn undir forustu höfuðandstæð
ings nýsköpunarinnar, er hefja
myndi ofsóknir gegn öllum frjáls-
um atvinnurekstri. Hefir þetta dreg-
ið mjög úr þeim athafnahug, sem
endurreisnarstefna fráfarandi r-íkis-
stjórnar skapaði.
Óial vandamól bíða
úrlausnar.
Verkefnin bíða hvarvetna hinnar
nýju ríkisstjórnar. Ráðast verður
gegn dýrtíðinni og tryggja starf-
rækslu hinna nýju alvinnutækja.
Taka verður skattamálin til ræki-
legrar endurskoðunar. Koma verður
í veg fyrir það, að lánastarfsemin
dragist úr höndum bankanna í hend-
ur einstaklinga, er láni út fé með ok-
urvöxtum. Endurskoða og endur-
skipuleggja þarf allan ríkisrekstur-
inn og starfsemi allskonar ráða og
nefnda. Gera þarf ráðstafanir til þess
að tryggja framleiðslunni við sjó
og í sveit nægt vinnuafl. Endurskoða
þarf starfshætti Viðskiptaráðs og
skipulag innflutningsverzlunarinnar.
Framhald á 8. síðu.