Íslendingur - 05.03.1947, Síða 8
NÝIR KAUPENDUR að „íslend-
ingi" geto enn fengið ókeypis
fjölbreytt jólablað og hina
skemmtilegu framhaldssögu fró
upphafi. Gerizt því kaupendur
þegarí dag.
fcA
Miðvikudagur 5. marz 1947
AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ!
Vegna stóraukinnar sölu blaðs-
ins borgar sig æ betur aS aug-
¥T lýsa í því. Munið að koma aug-
lýsingum til afgreiðslu biaðsins
fyrir hódegi ó þriðjudaga.
Maðurinn minn og faðir okkar, BJARNI JÓNSSON,
er andaðist 26. f. m. verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 6. marz kl. 1 e. h.
Svanfríður Hrólfsdóttir. Laufey Bjarnadóttir.
Inga Bjarnadóttir. Gyða Bjarnadóttir.
títför EGGERTS STEFÁNSSONAR, heildsala, er and-
aðist að heimili sínu hinn 26. febrúar s. 1., fer fram frá Akur-
eyrarkirkju n. k, laugardag 8. þ. m. og hefst kl. 14.00.
Aðstandendur.
HALLAMÁL,
VINKLAR,
SKRtJFJÁRN,
SPORJÁRN,
MEITLAR,
SAGIR
o. m. fl., o. m. fl.
Byggingavöruverzl Akureyrar h.f.
SKÍÐMÁL,
KRUMMÁL,
SKRUFUR, járn og kopar, allar teg.
LAMIR, jám og kopar
HENGILÁSAR, margar teg.
HANDFÖNG, úti- og innidyra.
BjgginBavörBverzlun Akureyrar h.f.
Gjaldskrá fyrir vörubifreiðar
Samkvæmt samningi Bílstjórafélags Akureyrar og
Vinnuveitendafélags Akureyrar, skal gjald fyrir
vörubifreiðar innanbæjar, tveggja tonna og þar yfir,
með vélsturtum, vera sem hér segir:
Dagvinna pr. klst............... kr. 22.50
Eftirvinna pr. klst............... — 27.00
Nætur- og helgidagavinna pr. klst. — 31.50
Fyrir akstur á kolum í bing, greiðist kr. 1.50 hærra
pr. klst.
Minnsta gjald kr. 6.00.
BlLSTJÓRAFÉLAG AKUREYRAR.
Enginn mjólkurskortur.
I. 0. 0. F. — 128378% — 9 — III.
Messað á Akureyri n. k. sunnudag kl. 5
síðdegis. Séra Jóhann Hannesson, trúhoði
frá Kína, prédikar.
Mcssað í Glerárþorpi n. k. sunnudag kl.
1 síðdegis. Séra Pétur Sigurgeirsson pré-
dikar.
Fermingarbörn á Akureyri eru beðin að
mæta til viðtals í kirkjukapellunni á mánu
daga og föstudaga kl. 5.30, eins og áður
liafði verið ákveðið.
Hjúskapur. Sl. laugardag voru gefin
saman í hjónaband af séra Pétri Sigur-
geirssyni, ungfrú Kiara Strand og Lýður
Sigtryggsson, harmonikuleikari.
Hjúskapu}. SI. laugardag voru gefin sam
an í hjónaband af séra Pétri Sigurgeir6-
syni, ungfrú Hólmfríður Ellertsdóttir og
Kári Hermannsson, húsgagnasmiður.
Guðspekistúkan „S-ystkinabandið" held-
ur fund mánudaginn 10. þ. m. kl. 8.30 e. h.
stundvíslega á venjulegum stað.
Opinberar samkomur eru í Verzlunar-
mannafélagshúsinu, Gránufélagsg. 9, niðri,
á hverjum sunnudegi, kl. 8.30 e. h. og á
hverju fimmtudagskvöldi, kl. 8.30.,Allir vel-
komnir. — Fíladelfía.
Barnastúkan Sakleysið heldur fnnd-. í
Skjaldborg kl. 10 f. h. n. k. sunnudag. B-
flokkur sér um skemmtiatriði. Dansleikur
fyrir stúkufélaga verður kl. 1.30 á sama
stað. — Fjölmennið á fundinn.
Sérstök athygli skal vakin á auglýsingu
héraðslæknis í blaðinu í dag um maðka,
sem vart hefir orðið við í ferskjum, fíkjum
og sveskjum. Sumt af vöru þessari mun þó
vera óskemmt. Er ömurlegt að geta ekki
fengið óskemmda ávexti, en innflytjendur
skýra svo frá, að mjög torvelt sé að afla á-
vaxta, enda hefir mest af þeim ávöxtum,
er flutzt hafa til landsins að undanförnu,
verið meira og minna skemmt.
Stúkan ísafold-Fjallkonan heldur fund
næstk. mánudag 10. marz, kl. 8.30 s. d. á
venjulegum stað. Fundarefni: Venjuleg
fundarstörf. — Inntaka nýrra félaga. —
Utvarpsleikrit. — Upplestur o. fl. — Fé-
lagar, komið með nýja innsækjendur! —
Nýir félagar, gamlir sem ungir, alltaf vel-
komnir.
Barnaverndarnefnd Akureyrar hefir ný-
lega ákveðið, að unglingar skuli bera ald-
urs9kírteini til 18 ára aldurs, eins og aug-
lýst er á öðrum stað í blaðinu. Byggist
þetta á tvennu. í fyrsta lagi, að á 9kemmti-
stöðum, þar sém dvalarieyfi er bundið við
16 ára aldur, koma skírteini því aðeins að
notum að þau nái til 18 ára aldurs. Og í
öðru lagi því, að undir vissum kringum-
stæðum eru unglingar undir eftirliti nefnd-
arinnar að 18 ára aldri.
Framkvæmd barnaverndarlaganna í bæn-
um byggist að verulegu leyti á því, að
dyraverðir og umsjónarmenn skemmti-
staða krefji unglinga um 9kírteini, þar
sem vafi leikur á um aldur, og haldi settar
reglur í jieseu efni.
Á öskudag seldi Rauði krossinn hér á
Akureyri merki fyrir 7002 kr. Er það meiri
sala en nokkru sinni áður. í fyrra seldust
merki fyrir 3.515.00. — Stjórn,Rauðakross-
deildar Akttreyrar hefir beðið blaðið að
færa bæjarbúum beztu þakkir fyrir hið
myndarlega framlag þeirra til þeirra menn
ingar- og mannúðarmála, sem Rauði kross-
inn berst fyrir.
Tímarit Rauða krossins er nýkomið út.
Nýir áskrifendur geta snúið sér til Gylfa
Pálssonar c/o Vöruhúsið, sem annast út-
sölu ritsins.
„Skálholt“ hefir verið synt nokkrum
sinniim, og aðsókn yfirleitt verið góð. Tvær
síðustu sýningar var húsið fullskipað.
Snjókoma og ófærð liefir þó dregið tnjög
úr aðsókn sveitafólks. Övíst er, liversu lengi
sýningum verður haldið áfram, og ætti
fólk því ekki að láta dragast að sjá leik-
inn. Allir þeir, sem vilja sjá góðan og á-
hrifamikinn leik, ættu að sjá „Skálholt".
Frá starjinu í Zíon. Samkomur á hverju
kvöldi þessa viku, kl. 8.30. Séra Jáhann
Hannesson, kristniboði, talar og segir frá
Kína. Ólajur Ólajsson, kristniboði, er vænt
anlegur seinni hluta vikunnar. — Kristni-
boðsfélagið.
Heimilisiðnaðarfélag Norðurlands hefir
í hyggju að halda námskeið í hannyrðum
og rokkspuna hér á Akureyri. Hefjast nám-
skeiðin innan skamms, og stendur hvort
þeirra í 10 daga. Hannyrðaverzlun Ragn-
heiðar O. Björnsson annast hannyrðakennsl
una, en Guðný Björnsdóttir kennir spuna.
Sjá nánar í auglýsingu í blaðinu í dag.
Síðustu bœkur Máls og menningar fyrir
árið 1946, Ljóð frá ýmsum löndum, úrval
úr ljóðaþýðingum Magnúsar Ásgeirssonar,
og 3. hefti Tímaritsins, eru komnar. —
Félagsmenn vitji bókanna í Bókaverzlun
Pálma H. Jónssonar, Hafnarstræti 105.
Karlakór Akureyrar. Söngæfing og
fundur í Verklýðshúsinu í kvöld (miðviku-
dag), kl. 8.30. Minnið hver annan á. Kom-
ið allir.
Samvinnan, febrúarheftið, er nýkomin
út, fjölbreytt að efni óg skreytl fjölda
mynda. Forsíðumynd er „Á Gljúfrárjökli“
tekin af Edvard Sigurgeirssyni.
Leiðrétting. Meinlegt ranghermi var í
frásögn blaðsins síðast af bifreiðarslysi í
Eyjafirði. Óljósar upplýsingar ollu því, að
rangt var skýrt frá nöfnum manna þeirra,
✓
sem meiddust. Heita þeir Jún Sigurðsson,
bóndi á Borgarhóli, og Einar J. Thorla-
cius á Stokkahlöðum.
Haltu þig, jótgöngumaður, á gangstétt-
itnum, þegar þú getur. Aðalgötur bæjarins
eru nógu þröngar, þó að gangandi fólk sé
ekki á þeim að óþörfu.
Sparið vatnið
VATNSVEITA AKUREYRAR
birtir í blaðinu í dag áskorun til
bæjarbúa að fara sparlega með
vatnið. Er þess að vænta, að al-
menningur bregðist vel við og
noti ekki meira vatn en brýn
þörf krefur.
t
EGGERT STEFÁNSSON
heildsali andaðisl að heimili 'sínu hér
í bænum ffðf'aranótt miðvikudags
fyrir viku síðan. Hann var símritari
hér um margra ára skeið, en hefir
síðan rekið umboðs- og heildverzlun.
Hann var vinsæll, pnda tryggur vin-
um sínum. Eggert heitinn verður
jarðsunginn næstkomandi laugardag.
SamDingnr
milli
Bílstjórajélags Akureyrar
og
Vinnuveitendajélags Akureyrar
um kjör og kaupgreiðslu
vörubílaeigenda á Akureyri.
Gjald fyrir vörubifreiðar inn-
anbæjar, tveggja tonna og þar yf-
ir með vélsturtum, skal vera:
Dagvinna pr. klst. . . kr. 22.50
Eftirvinna pr. klst. . . — 27.00
Nætur- og helgidagav. — 31.50
Fyrir akstur á kolum í bing
greiðist kr. 1.50 hærra pr. klst.
Minnsta gjald sé kr. 6.00.
Skipting á dagvinnu, eflirvinnu, nætur-
og helgidagavinnu-tílna sé hin sama og
g'Idir hjá Verkamannafélagi Akureyrar-
kaupstaðar á hverjum tíma. Sama gildir og
um matar- og kaffitíma. Þó eru bifreiðar-
stjórar skyldir að vinna í matar- og kaffi-
tíma, ef þess er krafizt, enda raski það ekki
ofanrituðum ákvæðum.
Ef unnið er hjá sama atvinnurekanda og
ekið er meira en 100 km. miðað við 8
klst. vinnu, skal greiða viðbótargjald kr.
1.00 fyrir livern hlaupandi km., sem er
fram yfir 100 km. og hlutfallslega fyrir
skemmri tíma. Gjald þetta skal reiknast
daglega.
Allur akstur miðast við staðgreiðslu.
Þegar um stærri viðskipli er að ræða, geta
þeir sem þess óska, fengið mánaðarvið-
skipti, enda greiði þeir reikninga sína inn
á stöðvarnar eða til viðkomandi aðilja
fyrir 10. hvers mánaðar.
Atvinnubílstjórar á Akureyri skulu hafa
forgangsrétt til þeirrar vinnu, sem til fellst
á Akureyri og framkvæmd er þaðan. Á-
kvæði þetta skerðir þó ekki rétt vinnu-
veitenda til að nota sínar bifreiðar í eigin
þjónustu.
Samningur þessi gildir frá 1. marz 1947
til 1. sept. sama ár og framlengist af sjálfu
sér uni jafnlangan tíma, hafi honum ekki
verið sagt upp með mánaðar fyrirvaia.
F. h. Vinnuveitendafélags Akureyrar.
(undirskrift).
F. h. Bílstjórafélags Akureyrar.
(undirskrift).
TIL SÖLU:
2 kúlulegubukkar 1”
1 hjólsagarblað 10” og
handlaug með tilheyrandi.
Uppl. kl. 5—6 á miðvikudag.
Ebenharð Jónsson, Laxagötu 3.
Eins og frá er skýrt á öðrum stað
hér í blaðinu, er ófærð nú orðin svo
mikil, að allir vegir í nágrenni Ak-
ureyrar eru ófærir bifreiðum.
Blaðið átti í rnorgun tal við Mjólk-
ursamlag KEA um mj ólkurflutninga
til bæjarins. í gær kom engin injólk
úr sveitunum fyrir utan Akureyri
nema á sleðum og nokkrar fötur með
,,trukk“ frá Möðruvöllum. Úr inn-
sveitunum var þá enn bílfært, en tal-
in hætta á, að sú leið hafi einrtig lok-
ast í nótt vegna mikillar fannkomu.
Samlagið taldi ekki hættu á mjólk-
urskorti í bænum, þótt bifreiðaflutn-
ingar stöðvist, því að alhnikið muni
verða flutt á sleðum úr nærsveitun-
um, og frá Svalbarðseyri komi mjólk
sjóleiðis.
Séra Pétur Sigurgeirsson
íkominn til Akureyrar.
Séra Pétur Sigurgeirsson, sem mun
gegna hér störfum sem aðstoðar-
prestur séra Friðriks Rafnar fyrst
um sinn, er nú kominn til bæjarins
og tekinn til starfa. Messaði hann i
fyrsta sinn sl. sunnudag.
Eins og áður hefir verið skýrt frá
hér í blaðinu, er séra Pétur sonur
Sigurgeirs Sigurðssonar, biskups.
Lauk hann guðfræðiprófi vorið
1944, en fór skömmu seinna til Ame-
í'íku og var þar við háskóla um skeið.
Eftir að hann kom heim, starfaði
hann við „Kirkjublaðið“.
„íslendingur“ óskar séra Pétri til
hamingju með hið nýja starf sitt og
vonar, að hann uni sér vel hér á Ak-
ureyri.