Íslendingur


Íslendingur - 19.03.1947, Page 1

Íslendingur - 19.03.1947, Page 1
íkisstjórnin leggur fram frumvarp um stotnun Sklðamút Islands hefst á fðstudaginn 80 þátttakendur, þar af 19 frá Akureyri fjárhagsrábs Á að taka við störtum Nýbygginga- ráðs og' Viðskiptaráðs og gera heiid- aráætlanir um tramkvæmdir í fandinu Ríkisstjórnin hefir nú logt fratn ó Alþingi fyrsta frum- varp sitt til framkvæmdar ó stefnuskró sinni. Er þar lagt til, að sett verSi ó stofn sérstakt fjórhagsróS, er annist eftirlit meS fjórfestingu í landinu og fari auk þess meS þou störf, er NýbyggingarróS og ViSskipta- róS hefa fariS meS. Mun róS þetto fó í hendur meiri völd, en nokkur önnur nefnd @So róS, sem óSur hafa vercS sett é íaggirnar. Þvi ekki aS flytja landbún- aSarsýninguna norður? Landbúnaðarsýning sú. sem Bún- aðarfélag íslands, Stéttarsamband bænda og fleiri aðilar hafa ókveðið að efna til í Reykjavík á næsta sumri, og sem nákvæmlega hefir áð- ur verið skýrt frá í blöðum og út- varpi, er merkileg nýung í þróunar- sögu landbúnaðarins. Er mikils um vert, að sem allra flestum bændum landsins gefist kostur á að sjá þessa sýningu. Nú eru vitanlega mörg tormerki á því, að bændur geti fjölmennt til Reykjavíkur úr fjarlægari héröðum. An efa eru ýmsir annmarkar á því að flytja sýninguna t. d. hingað til Akureyrar, eftir að henni er lokið 1 Reykjavík, en bændur norðanlands og austan myndu áreiðanlega fagna því, ef hægt væri að flytja sýning- una norður. Er þess mjög að vænta, að framkvæmdanefnd sýningarinnar taki til rækilegrar athugunar, hvort ekki mundi auðið að koma þessu í framkvæmd. Ættu búnaðarsambönd- in hér nyrðra að vinna að þeirri at- hugun. Inflúenzan gengur hratf' yfir. 100 nemendur vantaði í gær í Menntaskólann Inflúenzan er nú orðin útbreidd hér á Akureyri, og á sumum heimil- um liggur nær allt heimilisfólkið. í gærmorgun vantaði 6 kennara og um 100 nemendur í Menntaskólann, og var skólanum lokað íil fimmtu- dags. Enn er kennt í Gagnfræðaskól- anum, en í gær mun hafa vantað þar 2 kennara og 57 nemendur. Þá hefir inflúenzan ekki heldur vægt læknunum, því að í gær munu fjórir læknar bæjaríns háfa legið, þeirra á meðal bæði héraðslæknir- inn og sjúkrnhússlæknirinn. Læknar hafa7skýrt blaðinu svo frá, að einkenni inflúenzunnar séu 38,5 til 40 stiga hiti í einn til tvo daga, þurr hósti, særindi í hálsi og barka og niður eftir brjósti, nefkvef og rauð augu. Inflúenzan sjálf er frem- ur væg, en varlegast er að fara ekki á fætur fyrr en daginn eftir að hiti er aftur orðinn eðlilegur, vegna hættulegra fylgikvilla, einkum lungna bólgu. Verzlunarjöfnuður mjög óhagstæður Fyrstu tvo mánuði þessa árs voru fluttar inn vörur fyrir 68 milj. kr., en út fyrir 21 milj. kr. Er því vöru- skiptajöfnuður óhagstæður um 47 milj. kr. Tíunda skíðamót íslands hefst nk. sunnudag. íþróttafélag Reykjavíkur sér um mótið. Átti það upphaflega allt að fara fram við Kolviðarhól, en vegna snjóleysis er ráðgert, að brun karla fari frani uppi í Borgar- firði. Að þessu sinni verður keppt í göngu óg stökki, A- og B- flokki og unglingaflokki, 17—19 ára. Þá verð- ur keppt í svigi og bruni karla og kvenna í A- og B-flokki, en keppni í C-flökki fer ekki fram nú. Ræst verður í brunið uppi á Svartatindi í Borgarfirði, og er fall brautarinnar um 600 metrar. Hægt er að ná allt að 50 metra stökki í stökkbrautinni við Kolviðarhól. 80 keppendur. Keppendur verða í þetta sinn 80. Frá Skíðaráði Reykjavíkur 36, frá Skíðaróði Akureyrar 19, frá Skíða- ráði Siglufjarðar 17, frá Héraðs- sambandi Suður-Þingeyinga 4, frá íþróttasambandi Strandamanna 2 og 2 frá Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands. Flestir kunnustu skíðamenn lands- ins keppa á landsmótinu, og mun þ'ví v.afalaust verða fylgzt með því af mikilli athygli. Skíðamenn þeir, sem kepptu á Holmenkollen og Sl. Moritzmótinu í Sviss, eru komnir heim. Hver verður skíðakóngur? Akureyringar munu fylgjast með landsmótinu með sérstökum óhuga, því að keppt verður þar um titilinn „skíðakóngur íslands“, en Akureyr- ingurinn Guðmundur Guðmundsson ber nú það virðingarheiti. Þa er Helga Júníusdóttir einnig núverandi svigmeistari kvenna. Samkvæmt upplýsingum Skíðaráðs Akureyrar, munu þessir Akureyring- ar keppa á landsmótinu: Guðmundur Guðmundsson, kepp- ir í öllum greinum, Magnús Bryn- jólfsson, Björgvin Júníusson. Júlíus B. Magnússon, Júlíus B. Jóhannesson og Eggert Steinsen, sem keppa í svigi og bruni A-fl.; Vígnir Guð- mundsson, Sigurður Þórðarson og Finnur Björnsson, sem keppa í svigi, bruni og stökki A-fl., Jón Vilhjálms- son, sem keppir í svigi og bruni í B-fl. og stökki í yngri fl.. Sigurður Samúelsson og Hreinn Oskarsson, sem keppa í svigi og bruni B-fl., Hákon Oddgeirsson, Björn Halldórs- son, og Albert Þorkelsson, sem keppa í stökki í B-fl.. Baldvin Haraldsson. sem keppir í stökki í yngri fl., Helga R. Júníusdóttir, og Björg Finnboga- dóttir.sem keppa í svigi og bruni A-fl., og Lovísa Jónsdóttir, sem kepp ir í svigi og bruni B-fl. Keppendur frá Akureyri fóru loftleiðis suður í gær. Gunnar Árna- son er fararstjóri. Sýniagum é „Skélholf" lokið Leikfélag Akureyrar hefir nú sýnt „Skólholt“ 14 sinnum, og hefir að- sókn verið góð, þótt ófærð hafi að mestu hindrað sveitafólk i að sjá leikinn, Frú Regína Þórðardóttir fer til Reykjavíkur i dag. Munu innilegar þakkir og hlýjar kveðjur leikhús- gesta fylgja henni. „HABEAS CORPUS“ 1 RÚSSLANDI ..Þjóðviljinn' skýrir frd því, sem miklum tíðindum, að rúss- neskir borgarar muni nú fú ,,ha- beas corpus“, en það felur í sér tryggingu gegn ólöglegri hand- töku og bann gegn því, að mönn- um sé haldið í varðhaldi, án þess að mál þeirra komi fyrir rétt. Vœri gott fyrir forráðamann ungra komjtiúnista á Akureyri að íhuga þessa frásögn, áður en hann staðhœfir nœst, að meira lýðrœði ríki í Rússlandi en á íslandi, því að íslenzkum borgurum liafa ver- ið tryggð þessi sjálfsögðu tnann- réttindi í stjórnarskrá lajidsins um langan aldur. Síldarútvegsnefnd hefir ný- lega verið kosin á Alþingi. Kosn ingu hlutu: Erlendur Þorsteins- son, Jón Þórða-rson og Björn Kristjánsson, til vara: Birgir Finnsson, Þorst. M. Jónsson og Óli Hertervig. Eins og kunnugt er, var það eitt helzta stefnumál núverandi ríkis- stjórnar að koma skipulagi í fram- kvæmdir í landinu og endurbæta ýmsar reglur, sem gilt hafa um inn- flutning og verðlag: Mun ætlunin, að frumvarp þetta miði í þó átt. Hafa umræður um fjárhagsráð staðið yfir i Alþingi undanfarna daga, og flestir þeirra þingmanna, er til máls hafa tekið. lýst stuðningi sínum við frumvarpið, að kommún- istum undanteknum. Við fyrstu umræðu málsins gerði forsætisráðherra all-ítarlega grein fyrir meginatriðum frumvarpsins. Dró hann höfuðnýmæli frumvarps- ins saman í 5 alriði: 1. Ákvarðanir um að samræma rekstur þjóðarbúsins, eins og ségir í 2. gr. 2. Ákvæði um fast skipulag á fjár- festingunnar í landinu. 3. Ákvæði um samvinnu atvinnu- rekenda og verkamanna um bætta aðstöðu verkafólks á vinnustöðUm, betri hagnýtingu vinnuafls og aukin vinnuafköst. 4. Nýjar reglur um veitingu inn- flutningsleyfa. 5. Skerpt og hætt verðlagseftirlit eftir nýjum reglum. Að öðru leyti eru lielztu atriði frumvarpsins þessi: Ríkisstjórnin skipar 4 manna nefnd, sem nefnist fjárhagsráð. Skal það órlega gera áætlun uni heildar- framkvæmdir í landinu og samræma framkvæmdir einstaklinga og hins opinbera. Þá sernur fjórhagsráð einnig árlega óætluii um innflutning og útflutning og fjárfestingu. Skal ráðið leita samvinnu einstaklinga, félaga og opinberra stofnana við samning áætlana sinna. Skulu þessir aðilar senda fjárhagsráði fyrir þann tíma, er það ókveður, áætlim um stoínfjárþörf sína, lánsfjárþörf, gjaldeyrisþörf og vinnuaflsþörf. Leyfi fjárhagsróðs þarf yfirleitt til allra framkvæmda, hvort sem um er að ræða nýjan atvinnurekstur. stækkun fyrirtækja, húsbyggingar eða önnur mannvirki, og gildir það einnig um framkvæmdir, sem þegar er byrjað ó. Margþaett verkðfni: Nónar tiltekið ber fjárhagsráði að rniða störf sín við eftirfarandi at- riði: 1. Að öll framleíðsla sé hagnýtt til fulls og öllum verkfærum mönnum tryggð næg og örugg atvinna. 2. Að öllum vinnandi mönnum, og þó sérstaklega þeim, er stunda framleiðsluvinnu til sjávar og sveita, séu tryggðar réttlátar tekjur fyrir vinnu sína, en komið í veg fyrir ó- eðlileg sérréttindi og spákaup- mennsku. 3. Að neytendur eigi kost á að kaupa neyzluvörur sínar og fram- leiðendur rekstrarvörur sínar á hag- kvæmasta hótt og vörukaup til lands- ins og vörudreifing innanlands gerð eins ódýr og hagkvæm og frekast er unnt. 4. Að áframhald verði á öflun nýrra og fullkoininna framleiðslu- tækja^til landsins, eftir því sem gjald- eyrisóstæður og vinnuafl leyfir frek- asl, enda verði tryggt fé til fram- kvæmdanna jafnóðum. 5. Að byggðar verði verksmiðjur og iðjuver til þess að vinna sem Framh. á 8. síðu.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.