Íslendingur - 02.04.1947, Page 1
Hekla vöknuð af
aldarsvefni.
Flogið að
Heklueldum.
STÓRKOSTLEGUR GOS-
MÖKKUR TEYGÐI
SIG TIL HIMINS.
Síðastliðinn sunnudag flaug
Dakota-flugvél Flugfélags
Íslands tvær ferðir frá Ak-
ureyri suður tii Heklu. Fyrri
ferðin var farin laust fyrir
hádegi og var á vegum
Ferðafélags Akureyrar. —
Ritstjórar Akureyrarblað-
anna voru einnig með í þeirri
ferð. Flugvélin var fullskip-
uð í bæði skiptin, en hún
tekur 21 farþega.
Lagt var af stað af Meigerðismelum
rétt fyrir hódegi. Glaðasólskin var
og logn. en þó veðrið væri fagurt.
var það ekki ókjósanlegt til þessarar
ferðar, eins og síðar kom í ljós.
Flogið var beint suður úr Eyja-
firði og stefnt á Heklu yfir Hofs-
jökul. Sá næstum hvergi á dökkan
díl á norðurhluta hálendisins. en
þegar kom nokkuð suður fyrir Hofs-
jökul, fór snjórinn mjög að minnka.
Skyggni var gott í allar áttir.
Svo að segja strax, er komið var
inn á hálendið, varð vart við dökk-
gráa móðu, sem þéttiöt sífellt, eftir
því, sem sunnar dró. Reyndist móða
þessi stafa fró gosinu.
Gosmökkurinn frá Heklu sást
langt norður yfir land, en manni
varð þó ekki fullljóst, hversu stór-
kostlegur hann var, fyrr en komið
var að eldstöðvunum. Bólstraðist
ínökkurinn eins í hringiðu allt upp
í '14000 feta hæð, ljós að ofan, en
dökknaði nokkuð, er neðar dró. Var
sem hann væri samfelldur veggur,
svo vel 'greindist hann frá loftinu
umliverfis. Flogið var tvisvar í hálf-
hring' um gosmökkinn, en lognið olli
því, að -móðan frá eldunum lá svo
þétt umhverfis reykjarmökkinn, að
hvergi sá í fjallið. Hinsvegar mátti
í gegnum móðuna greina hraunflóð
norðvestur úr fjallinu og var eld-
bjarmi yfir því.
Engum, sem á hinn stórkostlega
gosmökk yfir Heklu, gat dulizt, að
hér voru að verki ægileg náttúruöfl,
sem voru miklu kröftugri en nokkur
sú orka, sem mennirnir enn hafa get-
að framleitt — jafnvel sterkustu
kjarnorkusprengjur þeirra.
Stórkostlegt eldgos hófst úr Heklu snemma
síðastliðinn laugardagsmorgun. Hamfarirnar
ægilegar í byrjun, en dregið hefir nokkuð úr
gosinu.
Klukkan um 6,40 á laugardagsmorgun kom snöggur jarðskjálftakippur í sveitum
austanfjalls og skömmu síðan gaus mikill gosmökkur upp úr Heklu. Geisaði gos-
ið með miklum ofsa allan laugardaginn og úr flugvélum séð virtist efsti hluti
fjallsins eitt logandi eldhaf. Feikistór björg þyrluðust hátt í loft upp og logandi
hraunleðja vall niður hlíðarnar. Gosmökkurinn var í fyrstu allt að 12 kílómetr-
ar á hæð, Dunur og dynkir heyrðust víða um land. Mikið öskufall varð í ýmsum
sveitum Rangárvallasýslu og í Vestmannaeyjum og myrkur um hádaginn. Gosið
hefir staðið með fullum krafti í þrjá daga, en í gær hafði dregið allmikið úr því.
Fólk hefir farið í stórhópum með flugvélum til eldstöðvanna. Jarðfræðingar bú-
ast við löngu gosi.
Gosin koma í hviðum.
Eftir 102 ára hvíld er Hekla nú
aftur tekin að spú eldi og eimyrju
yfir landið. Nákvæmar lýsingar hafa
verið gefnar af gosinu á öllum stig-
um þess, bæði í útvarpi og dagblöð-
um og er því ástæðulaust að rekja
þá sögu nókvæmlega. Gosið hófst
með mikilli sprengingu og segja
sjónarvottar, að engu líkara hafi
verið, en toppur fjallsins hafi rifnað
af og þeyttst í loft upp. Smóm sam-
an mynduðust fleiri og fleiri gígir
í fjallinu, og hraunleðjan vellur í
allar áttir. Jarðskjálftar hafa oft
valdið miklu tjóni í sambandi við
Heklugos, en í þetta sinn urðn aðrir;,
tveir aiisnarpir kippir eunnanlands,
og mun ekkert tjón hafa orðið af
þeim.
Á laugardaginn varð allmikið
öskufall á nokkru svæði í Rangár-
vallasýslu og einnig í Vestmannaeyj-
um. Var öskuhríðin svo þétt, að
dimmt var um hádaginn og varð að
láta ljós loga, og bifreiðar óku með
ljósum í Vestmannaeyjum. Siðan
mun öskufall ekki hafa orðið telj-
andi, og í öðrum landshlutum hefir
þess ekki orðið vart.
Jarðfræðingar álíta, að aðalgosið
sé í mikilli sprungu, sem nái fró hó-
tindi Heklu, norðaustur eftir fjalls-
egginni og niður eftir hlíðum fjalls-
ins að nor'ðan og austan. Þar til í
gær hefir gosmökkurinn þó verið
svo mikill, að ekki hefir verið hægt
að rannsaka þetta til hlýtar, en marg
ir jarðfræðingar og nóttúrufræðing-
ar eru nú þar eystra við rannsókn
góssins og mó vafalaust vænta nán-
ari frósagna þeirra.
Þótt nú hafi dregið úr gosinu, eru
litlar líkur til að það boði endir þess.
Heklugos hafa venjulega komið í
hviðum, enda gera jarðfræðingar ráð
fyrir, að gosið geti orðið langvinnt.
Þá telja jarðfræðingar ekki ýkja
mikla hættu á jarðskjálftum, því að
þeir eru aðallega í byrjun goss, þeg-
ar eldurinn er að ryðja sér braut
upp úr fjallinu. Komi hinsvegar gos-
in í hviðum, getur það haft í för með
sér nokkrar jarðhræringar.
Bæium vndn hsBfL
Fólk og búpeningur hefir verið
flutt ó brott af nokkrum bæjum í
nánd við gosstaðinn, en ekki er þó
talið, að bæjum standi hætta af
hraunstraumnum. Aftur á móti hefir
öskufallið eyðilagt drvkkjarvatn og
hulið allan gróður. Ýmiskonar eitur-
efni eru oft í gosösku, en þó er a9ka
úr Heklu venjulega ekki eitruð, og
er því fólki eða búpeningi ekki talið
hælt af þeim sökum. Mikið öskufall
getur þó hæglega eyðilagt allan gróð-
ur.
Gamanið getur gránað.
Síðustu daga hefir Heklugosið ver-
ið á allra vörum og virðist jafnvel
vera litið á það sem skemmtilega til-
breytingu fremur en hættulegan at-
burð. Allur flugfloti landsins hefir
verið önnum kafinn og ekki haft und
an að flytja fólk til eldstöðvanna, og
ótal ljósmyndir og kvikmyndir hafa
verið teknar af gosinu.
Því verður ekki neitað, að hér er
um að ræða stórkostlegt náttúruund-
ur, sem eðlilegt er, að sem flestir
vilji sjá. Þótt íslendingar séu betur
ulidir það búnir að mæta erfiðleik-
um í sambandi við eldgos nú en fyrr
á tímum, verður ekki augunum lok-
að fyrir því, að langvinnt og mikið
gos getur haft geigvænlegar afleið-
ingar. Öskufall ga»ti eyðilagt allan
gróður í heilura héröðum og gert
ókleift að hafast þar við með búpen-
ing. Þó er jafnvel talið, að öskufall
yfir miðin kringum landið gæti eyði-
lagt veiði að miklu eða jafnvel öllu
leyti. Hinsvegar er auðvitað enginn
1' (r-1*rijy spo’*^1 ,
um vér aðeins aö vona hið hezte.
Áidarhvíld.
Hekla sjálf hefir ekki gosið í 102
ár, og er þetta því óvenju langur
hvíldartími. Vitað er um 23 gos úr
Heklu, og hafa mörg þeirra verið
langvinn og ægileg. Ektu heimildir
skýra frá Heklugosi, annað hvort ár-
ið 1104 eða 1106.
Fréttir frá Svíþjóð
herma, að vari hafi orðið
við öskufall í Helsing-
fors í Finnlandi. Er á-
litið, að hér sé um að
ræða ösku úr Heklu.
DRUKKINN HERMAt)-
UR RÆÐST A BRYNJ-
ÓLF BJARNASON
í kvöldfréttum útvarpsns í gær-
kvöldi var þess getið, að drukkinn
amerískur hermaður hefði ruðst inn
í bifreið Brynjólfs Bjarnasonar, fyrr-
verandi ráðherra, er hann var að
leggja af stað frá hÚ9Í nokkru í
Reykjavík í fyrrinótt. Þrengdi her-
maðurinn sér niður í aftursæti bif-
reiðarinnar hjá konum, sem þar sátu,
og þegar Brynjólfur skipaði honum
að hafa sig út, réðÍ9t hermaðurinn á
hann og barði hann með háðum
hnefum mörg högg í höfuðið- Kona
Brynjólfs hljóp aftur inn í húsið og
hringdi á lögregluna. Kom lögreglan
eftir skamma stund og handtók her-
manninn.
Utanríkísráðuneytið hefir tilkynnt,
að sendifulltrúi Bandaríkjanna hafi
látið í ljós hryggð sína yfir þessum
atburði og sagt, að hermanni þess-
um muni verða refsað þegar í stað.
Jafnframt tilkynnti ráðuneytið, að
samkomulag hefði orðið uro það
vegna þessa atburðar, að þeim fáu
amerísku hermönnúm, sera enn dvelj
ast hér, verði stranglega bannað hér
eftir að yfirgefa herbúðir sínar á
Kef lavíkurflugvellinum. V æntanlega
verða allir þessir hermenn fluttir sem
allra fyrst á brott.
1800 fjár skorið niður í
Fljótshlíð
í fyrradag hélt landbúnaðarráð-
herra og búnaðarmálastjóri fund með
bændum í Fljótshlíð. Samþykkt var
að skera niður allt fé á 9 bæjum
innst í Fljótshlíðinni, og mörgu fé að
slátra frá 8 bæjum í viðbót. Bændur
í Vestur-Eyjafjallahreppi komu sam-
an til fundar í gær, og var ákveðið
að reyna að koma fyrir annars stað-
ar fé af ýmsum bæjuro þar.
Samtals verður slátrað þriðjungi
alls sauðfjár í Flj ótshlíðinni, eða
um 1800 fjár.
KJÖ TIÐ ENN LÆKKAÐ
Verðlagsnefnd landbúnaðarafurða
hefir tilkynnt ennþá allmikla verð-
lækkun á kjöti, samkvæmt ósk ríkis-
stjórnarinnar. Kjötframleiðendum
verður endurgreidd þessi verðlækk-
un úr ríkisBjóði.