Íslendingur - 30.04.1947, Page 1
Kfistjí Iðiigyr 1. verður jarðsettiir í ig.
FORSETI ÍSLANDS VERÐUR
VIÐSTADDUR
Úffar iCrisíJéns tíunde Demokonurtgs fer fram í deg.
VerSur atböfnin nijög hétíðieg og með sama sniði og
venja hefir verið um útfarir Danakonunga. Mikiil fjöidli
stórmenna víðsvegor eð mun verða viðstaddur útför
konungs/ jreirra á meðaE forseti íslands.
Undajifarna daga hefir glöggt
komiS í ljós, hv#rsu hjartfólginn
Kristján tíundi hefir' verið þjóð
sinni. Margir tugir þúsunda manna
hafa gengið fram hjá kistu hans, þar
sem henni var komið fyrir í hallar-
kirkjunni, og er hún var flutt frá
Amalienborg til Hallarkirkjunnar
söfnuðust um 200 þúsund manns
sarnan við götur þær, sem kistan
var flutt eftir.
Jarðsettur s Roskilde.
Konungur verður jarðsettur í
Roskilde (Hróarskeldu), er þar er
legstaður Danakonunga. Búizt er
við að mikill fjöldi fólks verði yið-
statt athöfnina jafnvel um 100 þús.
manns. Þá verður þar bróðir kon-
ungs, Hákon Noregskonungur, Ól-
afur krónprina og Marta krónprins-
essa, Gústaf Adolf krónprins .Svía,
Georg Grikkjaprins og margt fieira
stórmenna.
Forsefi íslands yið útförina.
Forseti Islands, Sveinn Björnsson,
verður viðstaddur útför konungs.
Fór hann loftleiðis ásamt skrifstofu-
stj. utanríkÍ6ráðuneytisin9, Agnari
Kl. Jónssyni. Tók öll ísl. sendisveit-
in í Kaupmannahöfn og utanríkis-
ráðherra Dana á móti forsetanum
á Kastrupflugvellinum. Forsetinn
var mikill vinur konungs.
Sendiherra Dana á íslandi, C. Á.
C. Brun, fór til Danmerkur s.l. föstu-
dag til þess að vera viðstaddur, með-
an forseti íslands dvelur í Dan-
mörku.
Forsetinn hýr í koríúhgshöllinni.
Somúð Ssiertdmga.
Við fráfall konungs voru fánar
dregnir í hálfa stöng víðsvegar á
íslandi, enda hefir þjóðin margs
góðs að minnast í satnslciptum sínum
við Kristján konung tíunda. Mun
íslerídingúm almennt vera það gleði-
efni, að forseti landsins hefir séð
sér fært að vera við útför konungs.
Ríkisstjórnin hefir óskað þess,
að skrifstofum og verzlunum verði
almennt lokað frá kl. 12-4 í dag, og
kennsla Aalli niður í öllum skólum
Ræjarstjórn vill fá
nýja brú á Glerá
„Bæjarstjórn Akureyrar skorar á
hæstvirta ríkisstjórn að1 hlutast til
um, að ný brú verði gerð á Glerá á
Gleráreyrum, þar sem nú er göngu-
brú, og þjóðveginum til Akureyrar
verði breytt í samræmi við það.“
Merkur tórilistarviðburður
„Strengleikar” oratorio eítir
Björgvin Guðmundsson flutt
1 næstu viku.
„Strenglcikar44 ern elzta alíslenzka söngdrápan
Næsta |>riðjudagskvöid áformar Kantötukór Akur-
eyrar, með aðstoð Kariakórs Akureyrar, að flytja
„Strengieika", oratorio eftir Björgvin Guðmundsson,
tónskáid. Ér þetta fyrsta oratorio hans og um feið fyrsta
oratorio, sem ísiendingur hefir sarniö. Er ‘pví hér um að
ræða mjög eftirtektarverðan tónlistarviðburð, sem bæj-
arbúar veita væntanlega verðskuldaða athygli.
í tilefni þessa, átli ritstjóri „ís-
lendings“ viðtal við tónskáldið og
spurðist fyrir um þetta tón\Wk hans.
Björgvin kvað söngdrápu þessa
vera samda við ljóðaflokkinn „Streng
leikar", eftir Guðmund Guðmunds-
son. Væri þetta nánast sagt ástar-
harmleikur. Ungur námsmaður hafði
trúlofazt uppelclissystur sinni, en hún
dó sama daginn og hann kom heim
frá nárni. Sýnir ljóðið hugrenningar
hans við það tækifæri og er því eins
konar mansöngur.
Um tildrögin að tónverki þessu
komst Björgvin svo að órði: „Þegar
ég var úti í Ameríku árin fyrir fyrri
heimsstyrjöld kyríntist ég ungu ís-
lenzku tónskáldi þar. Rædduni við
oft urn sameiginleg áhugamál okkar
á sviði tónlistarinnar. Eitl sinn færði
hann það í tal við mig, að gaman
væri að semja oratorio við „Streng-
leika“ Guðmundar, og ætti ég nú að
reyna að gera það. Þetta varð til
þess, að ég sökkli mér niður í þetta
ljóð og niðurstaðan varð söngdrápa
sú, sem Kantötukórinn ætlar nú að
flytja með aðstoð Karlakórs Akur-
eyrar. Verkið var að meslu fullgért
veturinn 1915—1916, og hefi ég að-
eins gert smávægilegar breytingar á
því síðan.“
80 sÖngvarar flytja
tónvorkið.
„Strengleikar“ eru mjög efnismik-
ið tónverk. Er litlu sleppt úr ljóða-
flokknum, og taldi Björgvin, að taka
myndi urn 3 klukkustundir að flytja
það allt. í þella sinn verður sleppt
um það bil þriðjungi verksihs, en
það er í þremur meginþáttum.
Kantötukórinn nýtur aðstoðar
Karlakórs Akureyrar við flutning
„Strengleika“, ella hefði Kantötu-
kórnum naumast verið kleift að flytja
það. Hefir samstarf kóranna við und-
irbúning og æfingar verið með ágæt-
um. Æfingar hófust ekki fyrr en eft-
ir nýár. og hefir því mátt halda vel
áfram.
Samtals raunu um 80 söngvarar
flytja þetta mikla Oratorio Björg-
vins Guðmundssonar. Einsöngvarar
verða: Helga Jónsdóttir, Björg Bald-
vinsdóttir, Sigríður Schiöth, Mar-
grét Oddgeirsdóttir, Hreinn Pálsson,
Jóhann Konráðsson, Hermann Stef-
ánsson og Guðnrundur Gunnarsson.
Glsesilagf framlag fil
íslenskrar fónlisfar.
Með þessu mikla tónverki sínu
leggur Björgvin Guðmundsson enn
einu sinni fram ómetanlegt framlag
til íslenzkrar tónlistar. „Strengleik-
ar“ eru fyrsta söngdrápan, sem ís-
lenzkt tónskáld hefir samið. Tvö önn-
ur oratorio hefir Björgvin Guðmunds
son eimjig samið: „Friður á jörðu“,
og „Örlagagátan“, sem bæði hafa
verið áðrír flutt og vakið mikla at-
hygli, en eru bæði síðar samin en
„Strengleikar“. Önnur stórverk
Björgvins eru „Alþingishátíðarkan-
tatan“ og hátíðakantatan „Adveniat
regnum tuum“ (Til komi þitt ríki).
Björgvin Guðmundsson hefir með
þessum lónverkum sínum skapnð sér
virðingarsess meðal íslenzkra lón-
skálda, enda hefir hann unnið merki-
legt brautryðjandastarf. Vonandi
kann bær hans og þjóð að meta það
starf að verðleikum.
ORÐSENDING
til nemenda Menntaskólans á Akur-
eyri, Gagnjrœðaskóla Akureyrar og
Húsmœðraskólanna á Akufeyri og
Laugalúndi.
SKJALDBORGARBÍÓ hefir á-
kveðið að bjóða kennurum og nem-
endum fyrrtaldra skóla að sjá hina
merku mynd: Glötuð helgi þeim að
kostnaðarlausu.
Sýningar verða þannig: Fyrir
Mennta8kólann í deg kl. 5 (miðviku-
„KALDBAKUR"
fór reynsluför ó laugar-
doginn
Framkvæmdastj óri Utgerðarfé-
lags Akureyrar skýrir hlaðinu svo
frá, að hinn nýi togari þess,
„Kaldbakur“ liafi farið reynslu-
ferð sína sl. laugardag. Revndist
hraði hans þá 13.1 míla á klst.
,.Kaldhakur“ er væntanlegur
til Reykjavíkur um aðra helgi.
Þar verða sett í hann lýsisbræðslu
tæki. og er gert ráð fyrir, að hann
þurfi að staðnæmast þar í 3 eða 4
daga, en síðan mun liann koma
beina leið hingað til Akureyrar.
Guðmundur Jónsson
söngvari
er kominn til bæjarins og syngur
hér á vegum Tónlistarfélags Akur-
V
eyrar. Fyrsta söngskemmtunin, sem
er eingöngu fyrir styrktarfélaga og
gesti þeirra, verður í Nýja Bíó í
kvöld kl. 7, og aðgöngumiðar þeir,
sem sendir voru út fyrir viku síðan,
gilda að þessu söngkvöidi, en ef allir
styrktarfélagar hafa ekki fengið að-
göngumiða, má vitja þeirra við ínn-
ganginn um leið og söngskrár verðá
á boðstólum.
Onnur söngskemmtun Guðmundar
verður á fimmtudagskvöld, (1. maí)
í Nýja Bíó kl. 9 og hefst sala að-
göngumiða kl. 8 á sama stað. Óvíst
er hvort Guðmundur syngur hér oft-
ar að þessu sinni, en margir munu
bíða með eftirvæntingu söngs hans
og hins prýðilega undirleiks Fritz
Weisshappel.
Gjöf fil Sjúkrakússins
Á síðasta fundi byggingarnefndar
nýja sjúkrahússins skýrði ráðsmað-
ur sjúkrahússins frá því, að haun
hefði tekið við 15 þús. króna gjöf til
sjúkrahússins í ríkistryggðum raf-
veitubréfum. Gefandinn vill ekki láta
nafns síns getið.
dag) og á raorgun 1. maj kl. 1 e. h.
Aðgöngumiða sé vitjað í dag til
Árna FriSriðgeirssonar í Mennta-
skólanum. kl. 17—2.
Sýning fyrir Gagnfræðaskólann
verður kl. 3, iimmtudaginn 1. maí
'og geta kennarar og nemendur vitjað
miða í Skjaldborg næsta klukkutíma
áður en sýning hefst, meðan húsrúm
leyfir.
Húsmæðraskólunum er boðið á
sýningu laugard. 3. maí kl. 3 e. h.
Er þess sérstaklega óskað að þeir,
sem ekki hafa séð myndina áður,
noti sér boð þetta.