Íslendingur - 28.05.1947, Side 1
XXXIII. árg.
MiSvikudagur 28. maí 1947
21. t:bl.
Frá komu Kaldbaks.
Efst: Mannfjöldinn á bryggjunni. —
/ miðiS: Kaldbakur kemur f-yrir Tang-
ann. — NeSst: Forseti bœjarstjórnar
heldur rceSu af stjórnpalli skipsins. ViS
hliS lians eru framkv.stjóri JJtgerSar-
félags Akureyringa, GuSmundur GuS-
mundsson, Jakob Frímannsson, kaup-
félagsstjóri, Helgi Pálsson, formaSur
UtgerSarfélagsins, og Sœmundur AuS-
unnsson, skipstjóri.
(Ljósm. E. Sigurgeirsson).
Hinn árlegi sjómannadagur er há-
tíðlegur haldinn um land allt næst-
komandi sunnudag. Sérstakt sjó-
mannadagsráS sér um hátíSahöldin
hér á Akureyri.
Á laugardagskvöld fer fram kapp-
róSur hér á Pollinum, og verSur veS-
banki starfræktur í sambandi viS
róSurinn. Slysavarnasveit kvenna
hefir þegar látiS skrá fjórar sveitir
kvenna til þátttoku, en tjkki hefir sjó-
mannadagsráSinu enn veriS tilkynnt
um neina karlasveit. Væri þaS hin
mesta háSung fyrir karlmenn hér í
bæ, ef þeir létu konur einar mæta til
leiks í þessari íþrótt. Fer þá aS
minnsta kosli aS verSa æSi vafasamt
aS kalla kvenfólkiS veikara kyniS.
Ættu félög sjómanna og skipshafnir
Framhald á 8. síðu.
Víðtæk eignakönnun fram -
kvæmd í haust.
KVENNAFUNDUR
á Akureyri um áfengismál.
Ti/gangur að færa tramtöl manna í
rétt hort.
Alþingi samþykkti svo að segja breytingarlaust frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um eignakönnunina. Er þar með orðið að lögum
enn eitt stefnuskráratriði núverandi ríkisstjórnar, þótt enn sé ekki
sýnt um árangur eignakönnunar þessarar. Með henni er þó stefnt
að því mikilvæga takmarki, að hægt verði að verulegu leyti að
uppræta þau óhæfilegu skattsvik, sem tíðkast liafa undanfarið.
Vill láta stofna áfengis-
bandalag kvenna á
Akureyri.
Árið 1947, þriðjudaginn 20. maí
var haldinn fulltrúafundur kvenna
um áfengismál á Hótel KEA Akur-
eyri. Á fundinum mættu fulltrúar frá
fjórum félögum í bænum: Kvenfél.
Hlíf, kvenfél. Framtíðin, verkakv.fél.
Eining og Kvennadeild Slysavarna-
félagsins. Fundarstjóri var Guðný
Björnsdóttir en fundarritari Jónína
Steinþórsdóttir. Framsögu hafði
Elísabet Eiríksdóttir. Eftir talsverð-
ar umræður voru samþykktar eftir-
farandi tillögur. Og vill fundurinn
sérstaklega vekja athygli félaganna á
að taka afstöðu til síðustu tillögunn-
ar fyrir hinn tilnefnda tíma.
1. Fulltrúafundur kvenfélaga á Ak-
ureyri skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn, að áfengisútsölum á Norður-
landi verði lokað yfir síldveiðitím-
ann.
2. Fulltrúafundur kvenfélaga á Ak-
ureyri skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn að láta lögin um héraðabönn
koma til framkvæmda á þessu ári.
3. Fulltrúafundur kvenfélaga á Ak-
ureyri mótmælir frumvarpi, sem fram
hefir komið á Alþingi, um heimild
veitingahúsa til áfengissölu.
4. Fulltrúafundur kvenfélaga á Ak-
ureyri skorar á þingmenn, bæjarfull-
trúa og aðra trúnaðarmenn ríkis,
hæja- og sveitarfélaga að útiloka
með öllu vínveitingar í samsætum og
opinberum veizlum, sem haldnar eru
á þeirra vegum.
5. Fulltrúafundur kvenfélaga á Ak-
ureyri skorar á Alþingi og ríkisstjórn
að finna aðra fj áröflunarleið fyrir
ríkissjóð en áfengissölu.
6. Fulltrúafundur kvenfélaga á Ak-
ureyri skorar á bæjarfógetann á Ak-
ureyri að auka eftirlit með sölu á-
fengis til unglinga innan 21 árs og
einnig að herða á lögreglueftirliti
með leynisölu. Ennfremur að loka
ölstofunni í Geislágötu og knattborðs
stofunni í Glerárgötu.
7. Fulltrúafundur kvenfélaga á Ak-
ureyri leggur til að stofnað verði
hér á Akureyri áfengisvarnabanda-
lag kvenna og óskar eftir að öll kven-
félög bæjarins taki þátt í því, og gefi
svar fyrir 15. okt. næstkomandi.
Eignakönnunin hefir um langt
skeið verið ofarlega á baugi hjá al-
menningi, enda er nauðsynlegt, að
fólki sé til hlýtar kunnugt um höfuð-
atriði þessarar áður óþekktu löggjaf-
ar, þar eð framkvæmd hennar snert-
ir alla skattgreiðendur að einhverju
leyti.
Iíaup ríkisskuldabréfa.
Áður en eignakönnunin hefst, verð
ur almenningi gefinn kostur á að
kaupa ríkisskuldahandhafabréf, sem
Landsbankinn annast sölu á. Eru
bréf þessi til 25 ára og bera 1%
vexti. Gefst mönnum á þenna hátt
kostur á að losna við undandregið
fé sitt, því að bréf þessi verða undan-
þegin eignakönnuninni, og þau eru
skattfrjáls til ársloka 1952.
Framtöl.
Eftir að úthoðstími bréfa þessara
er liðinn, er gert ráð fyrir hinni raun-
verulegu eignakönnun og skal hún
fara fram á tímabilinu frá 1. seplem-
ber til 31. des. n. k. eftir nánari á-
kvörðun fjármálaráðherra. Skal þá
fara fram sérstakt framtal eigna og
tekna, og eru allir þeir framtalsskyld-
ir, sem fram eiga að telja til skatts,
skv. gildandi skattalögum. Komi þá
fram áður undandregið fé, fer sem
hér segir.
Af allt að 25 þús. kr. eign, er sannan
lega hefir verið til orðin fyrir 1. jan.
1940, og þá og síðan hefir verið und-
an framtali dregin, skal ekkert gjald
greiða. Af eign, sem til hefir orðið
eftir 1. jan. 1940, og dregin hefir
verið undan framtali, skal ekkert
gjald greiða af fyrstu 15 þús. kr., af
15—25 þús. kr. greiðist 5%, af 25—
35 þús kr. greiðist 10%, og af 35—
45 þús. kr. greiðist 15%. Af því, sem
umfram kann að vera, greiðist skatt-
ur skv. gildandi skattalögum án skatt-
sekta.
Sé ranglega skýrt frá eignum á
hinu sérstaka framtali, skal hin und-
andregna eign falla óskipt til ríkis-
sjóðs. Sé ekki talið fram, eða þá
ranglega, varðar það allt að 200 þús.
kr. sektum.
Innköllun peninga.
Landsbankinn skal á framtalsdegi
innkalla alla seðla sína, og verða ný-
ir seðlar afhentir í staðinn. Eigendur
seðla fá 9 daga frest til þess að af-
henda þá, en frá upphafi framtals-
dags er afhending, viðtaka og sér-
hver önnur ráðstöfun á innkölluðum
peningaseðlum óheimil manna á
milli. Framtalsdag og tvo næstu daga
er þó heimilt að nota 5 og 10 króna
eldri seðla til nauðsynlegra viðskipta.
$é seðlum ekki framvísað, verða
þeir ógildir.
Bankainnstæður og
handhafahréf.
Skrá skal allar bankainnstæður
manna og öll handhafabréf. Ber
hverjum innstæðueiganda að afhenda
hlutaðeigandi lánsstofnun yfirlýsingu
um innistæðu sína, og má lánsstofn-
un ekki greiða fé út fyrr en þessar
yfirlýsingar liggja fyrir og sannreynt
hefir verið, að þær séu réttar. Þá
skulu allir eigendur eða vörzlumenn
handhafabréfa láta skrá þau. Verða
bréfin þá stimpluð, og er sérhver
ráðstöfun á framtalsskyldu verðbréfi
óheimil og ógild eftir framtalsdag,
nema bréfið hafi verið stimplað.
f
Góð veiði hjá „Kaldbak“
Framkvæmdastjóri Útgerðar-
félags Akureyrar skýrði blaðinu
svo frá í gærkvöldi, að „Kald-
bakur“ hefð farið á veiðar s. 1,
fimmtudagskvöld, og hefð þeg-
ar fengð hálffermi. Væri það á-
gæt veiði á svo skömmum tíma,
og fá eða engin skip veitt betur
þessa daga.