Íslendingur


Íslendingur - 19.06.1947, Síða 1

Íslendingur - 19.06.1947, Síða 1
VÍSíTALAN GREIDD NiÐUR UM 55 STIG ViöskiptamálaráðuneytiS hefir tilkynnt, að niðurgreiðslur á vísi- tölu framfærslukostnaðar nemi nú samtals 55 stigum. Væri því vísi- talan nú 365 stig, ef ríkissjóður ekki eyddi tugmiljónum króna í niðurgreiðslur. Verð á kjöti, kart- öflum, smjöri og mjólk hefir ver- ið lækkað, sem nemur þessum 55 stigum. Þrátt fyrir þessa staðreynd reyna kommúnistar að telja fólki trú um, að allt sé í lagi, þótt dýr- tíðin sé enn stórkostlega aukin með nýjum grunnkaupshækkun- um. Væri ekki hyggilegra að beina orkunni að því að lækka dýrtíð- iná og bæta þannig kjör alþýð- unnar í landinu? BæjarstjdniarKosn- ingar á Sanðar- króki. ________ Þar sem Sauðárkrókur hefir nú hlotið bæjarréttindi, verður að fara fram kosning á bæjarstjórn, sem tek- ur við af hreppsnefndinni. Fram- boðsfrestur var útrunninn sl. laugar- dagskvöld, og höfðu þá borizt fjórir listar. . Kosið verður sunnudaginn 6. júlí. A-listi, Alþýðuflokkur: Magnús Bjarnason, kennari, Kristinn Gunnlaugsson, verkstjóri, Erlendur Hansen, iðnnemi, Brynjólfur Danívalsson, verkam. B-listi, Framsóknarmanna og óháðra: Guðm. Sveinssffn, fulltrúi, Friðrik Hansen, kennari, Þórðu'r P. Sighvats, símstjóri, Jón Björnsson frá Heiði. • C-listi, Sósíalistajlokkur: Skafti Magnússon, verkam., Hólmar Magnússon, sjóm., Hólmfríður Jónasdóttir, frú, Jónas Jónasson, vörður. D-listi, Sjálfstœðisflokkur: Eysteinn Bjarnason, framkv.stj .*, Guðjón Sigurðsson, bakari, Sig. P. Jönsson, kaupm., Pétur Jónasson, hreppstjóri. LÝÐVELDISHÁTÍÐIN Á ÁKUREYRI m m |Sl i pc;vÞ . 1 pfwiifor ícl •u Myml þessi var tekin við Ráðhústorg 17. júní 1944, þegar lýðveldi var stofnað á Þingvöllum. Sést skrúðgangan í Brekkugötunni, en jánar margir á torgi.nu, þar sem aðalhátíðahöldin fóru fram. (Ljósm. H. Sigurgeirsson). Hátíðahöldin á Alíureyri 17. júní. 17. júní hátíðahöldin hér á Akur- eyri fóru að mestu leyti fram á þann hátt, sem auglýst hafði verið. Kl. 2 lék Lúðrasveit Akureyrar á Ráðhústorgi ■ undir stjórn Askels Jónssonar, og kl. 2.15 hófst fjöl- menn skrúðganga frá Ráðhústorgi og upp á hátíðasvæðið sunn'an sund- láugarinnar. Lúðrasveitin gekk í far- arbroddi, >þá skátar með fjölda fána, ýms félagasamtök undir fánum sín- um og leks mikill fjöldi annarra bæj- arbúa. Á hátíðasvæðinu hafði verið reist- ur stór pallur og fallega skreyttur ræðustóll. Fyrst fór fram fánahyll- ing skáta, falleg og hátíðleg athöfn, og síðan setti bæjarstjóri, Steinn Steinsen hátíðina. Þá var guðsjjjón- usta, og prédikaði séra Pétur Sigur- geirsson, en kirkjukórinn söng und- ir stjórn Björgvins Guðmundsson- ar. Þorsteinn M. Jónsson, forseti bæjarstjórnar, flutti lýðveldisræðu og Kantötukór Akureyrar söng und- ir stjórn Björgvins Guðmundssonar. Frú Lena Otterstedt lék undir. Þá flutti einn hinna nýju stúdenta, Kristján Róbertsson, ræðu. Að lok- um var þjóðsöngurinn sunginn. Næsti þáttur hátíðahaldanna hófst kl. 4.30 með fimleikasýningu kvenna- flokks frá Gagnfræðaskóla Akureyr- ar undir sljórn Þórhöllu Þorsleins- dótlur. Karlakórinn Geysir söng und- ir stjórn Ingimundar Árnasonar. Þá var fimmtarþraútarkeppni. Sigraði í henni Haraldur Sigurðsson. Formaður hátíðanefndar, Ármann Dalmannsson, stjórnaði hátíðahöld- um þessum. Kl. 9 lék Lúðrasteit Akureyrar á hátíðasvæðinu og Karlakór Akureyr- ar söng undir sljórn Áskels Jónsson- ar, en dans og önnur dagskráratriði féllu niður vegna óhagstæðs veðurs. Dansleikur var á vegum hátíðanefnd- arinnar í Samkomuhúsinu, og var þar mikil þröng. Aðgangur að öllum samkomum dagsins var ókeypis. Fólk sýndi almennt fullkomna við- leitni til þess að hátíðahöldin væru með menningarblæ. Því miður voru þó nokkrir menn allmjög undir á- hrifum áfengis í Samkomuhúsinu, og var það leiðinlegur blettur á helgi dagsins. O * r Utvegsbankinn meira virði en Landsbankinn í yfirlitsreikningi Úlvegshankans er hankaliúsið og aðrar fasteignir hankans metnar á kr' 70.68. Virðast því fasteignir Úlvegsbankans nokkru verðmætari en Landsbankans, því að hið mikla hús bankans í Reykjavík með öllum húsbúnaði er metið í reikningum bankans á eina krónu! Æt/ar Ste/ngrímur AÖa/steinsson vís~ vitandi að valda Akureyrarbæ stór* kost/egu tfóni. Það er nú sífellt betur að koma í Ijós, að kommúnistar svífast einskis í uppreisnaraðgerðum sínum gegn nú- verandi ríkisstjórn. Þeir hika ekki við að reyna að stöðva síldveiðarnar í sumar, sem efnahagsleg afkoma þjóðar- innar ó þessu óri er algerlega komin undir. Síðasta af- reksverkið er að fyrirskipa verkamönnum i Glerórþorpi með hótunum og blekkingum að leggja niður vinnu við undirbúning að starfrækslu Krossanesverksmiðjunnar í sumar. Það hefir vakið almenna furðu hér í bænum, að Steingrímur Aðalsteinsson hefir gerzt forustumaður í þessu tilræði við fyrsta stórfyrirtæki Akureyrarbæjar. í síðasta „íslendingi“ var getið um'*óheyrileg lögbrot kommúnista í sanibandi við allsherjaratkvæSa- greiSslu sáttasemjara um málamiðl- unartillögu í deilu „Þróttar“ og síld- arverksmiðja ríkisins. Nú hafa koiumúnistar á hinn ódrengilegasta liált vegið aftan að Krossanesverk- smiðjunni, og er ekki annaS sjáan- legt en að hún geti ekki starfað í sumar, ef verkamenn í Glerárþorpi láta Steingrím ASalsteinsson og út- sendara Alþýðusambandsins hafa sig til þess aS eyðileggja sumaratvinnu sína. Verkfaíl óður en byrjað var að semja. Allur undirbúningur þessarar ó- gæfusamlegu vinnustöðvunar var með endemum. Undir eins og fram- kvæmdastj óri Krossanesverksmiðj - unnar kom hingað norður, hóf hann sainninga við Verkamannafélag Glerárþorps. Úr samningum varð þó ekki, því að félagið afsalaði sér samningsrétti í hendur samninga- nefndar frá Alþýðusambandi Norð- urlands, en það samband virðist ætla að' verða lipurt verkfæri í höndum kommúnisla. Sýndi Verkamannafé- lag Arnarnesshrepps þar meiri for- sjálni, því að það neitaði að afsala sér samningsrétti í hendur þessa sam- bands. Samninganefnd Alþýðusambands NorSurlands kom svo hingað til Ak- ureyrar 11. júní, en það furðulega gerðist, að Steingrímur Aðalsteins- son og hinn kommúnistiski verk- fallaerindreki Alþýðusambandsins fyrirskipa Verkamannafélagi Glerár- þorps að samþykkja á fundi 10. júní að gera verkfall þann 20. júní. Mun það eins dœmi að verkfall sé ákveð- ið, áður en nokkur leið liefir verið lil að hefja samningatilraunir. Þann 12. júní hélt verksmiðju- stjórn fund með samninganefndinni. Tjáði þá samninganefndin verk- smiðjustjórninni, að samningar við einstakar verksmiðjur yrðu ekki gerðir, nema fallizt væri að öllu leyti á tillögur nefndarinnar. Gagntilboð verksmiðju- sfjórnar. Verksmiðjustjórnin hefir bent sanminganefndinni á það, að Krossa- nessverksmiðjan hafi sérstöðu meðal síldarverksmiðjanna, því að miklum undirbúningi sé ólokið fyrir sumar- starfsemina, og nokkurra daga verk- fall gæti komið í veg fyrir starf- rækslu hennar í sumar. Hefir stjórn- in farið frarn á að fá að ljúka við undirbúning, þar eð deilan stendur um kaup yfir bræðslutímann, en því hefir verið synjað. Hejir verksmiðjustjórnin gert það tilboð, að hún skuli ganga inn í vamtanlega samnitiga við síldarverk- smiðjur ríkisins óbreytta. Felst í þessu beint tilboð um kauphœkkun, því að grunnlaun í Krossanesi hafa verið 15 aurum lœgri á klukkustund en á Siglufirði. J Framhald á 8. síðu. I

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.