Íslendingur


Íslendingur - 09.07.1947, Síða 1

Íslendingur - 09.07.1947, Síða 1
FeikiEeg oSsókn aS Eendbúnaðorsýrsinguirtííi Allmikið yfir 30 þúsund manns hefir nú séð landbúnaðarsýninguna, og enn er aðsókn mjög mikil. Marg- ir hafa farið oft að sjá sýninguna, því að þar er svo margt að sjá, að langan tíma þarf til þess að athuga alla sýningarmuni. Sýning þessi er tvímælalaust mjög mikilvæg og lík- leg til þess að auka skilning þjóðar- innar á landbúnaðinum og gildi hans. Þá geta bændur einnig sjálfir margt lært af þessari sýningu, því að þarna eru m. a. sýndar landbún- aðar: élar, sem ekki hafa áður verið notacar hérlendis. Söngskemmt'un Engel Lund Þjóðlagasöngkonan Engel Lund syngur fyrir slyiktarfélaga Tónlistar- félags Akureyrar í kvöld kl. 6.30 síð- degis. Annað kvöld kl. 9 heldur hún almenna söngskemmtun. Aðgöngu- miðar verða seldir í verzl. Ásbyrgi. Gagga Lund er kunn fyrir ágæta meðferð sína á þjóðlögum. Hefir hún sungið að undanförnu í Reykja- vík og víðar og hlotið hinar beztu undirtektir. Er naumast að efa, að marga Akureyringa muni fýsa að heyra söng hennar. Verkfallinn við sildarverksmiðjurnar lokið með algerum ósigri kommúnista. Eysteirtn Bjornason íorseti bæjorst'jórnar Souðérkróks Hin nýkjörna bæjarstjórn Sauðár- króks hélt fyrsta fund sinn í gær- kvöldi. Eysteinn Bjarnason var kos- inn forseti bæjarstjórnar með 4 atkv. Þrjár umsóknir lágu fyrir um bæjar- stjórastöðuna, frá Árna Þorbjörns- syni, lögfr., Björgvin Bjarnasyni, lögfr. og Pétri Péturssyni. Frestað var ákvörðun til næsla fundar, en Eysteini Bjarnasyni falið að gegna bæjarstjórastörfum þangað til. Komúnistar kærðu ýms atriði í fram- kvæmd kosninganna. Kærunni var vísað iil kjörstjórnar. Bæjarstjórn er þannig skipuð: Eysteinn Bjarnason, Sigurður P. Jónsson og Guðjón Sigurðsson frá Sjálfstfl., Magnús Bjarnason, Krist- inn Gunnlaugsson ' og Erlendur Hansen frá Alþfl. og Guðmundur Sveinsson frá Framsfl. Akureyringar greiða rúmar 2,3 miljónir í skatta. Til viðbótar tæpum 5 miljónum króna í útsvörum, þurfa Akureyringar í ór að greiða rúmar 2,3 milj. kr. í skatta til ríkisins. Þar að auki eru svo iðgjöld til almannatrygg- inganna, og nema iðntryggingarnar einar kr. 631.362. Stærsti skattgreiðandinn er Kaup- félag Eyfirðinga með rúmar 360 þús. kr., þar af rúmar 260 þús. kr. í stríðs gróðaskatt. Sundurliðaðir eru skattarnir sem hér segir — þess skal getið, að tölur þessar geta nokkuð breytzt, eftir að allar kærut hafa verið úrskurðaðar: Tekjuskattur kr. 1.225.374.00 Eignaskattur — 651.729.00 Stríðsgróðask. — 260.306.00 Tekjusk.viðauki — 181.465.00 Þessar tölur eru samkvæmt upp- lýsingum frá skattstofunni. Enn hefir ekki verið reiknað út, hversu miklar tekjur hafa verið taldar fram. Utsvarssiiginn. Margir liafa spurzt fyrir unt það hjá blaðinu, hversu hár sé sá útsvars sligi, sem notaður var í ár. Iiefir blaðið aflað sér nokkurra upplýsinga um þetta. Ekki var lagt á lægri tekjur en 5000,00, en á þær er lagt 7 af hundr- aði. Á kr. 5100-6000,00 var lagt 8 af hundraði, en síðan hækkar stig- inn um 1 af hundraði á hvert þúsund að kr. 13000,00 en frá kr. 13100- 5.0.000,00 hækkar álagningin um 0,4 af hundraði á hvert þúsund. Á þær tekjur, sem menn hafa fram yfir 50 þúsund krónur er lagt 30 af hundraði í útsvar. Eins og áður hefir verið skýrt frá, var útsvarsupphæðin hækkuð um 5 af hundraði. Persónufrádráttur var nokkuð hækkaður ög er nú kr. 1500 fyrir konu og einnig kr. 1500 fyrir hvert barn. Þess skal getið, að stríðsgróða- skaltur kemur á tekjur, sem eru yfir 45 þús. krónur. Dáleiðslusýningar Ernesf’O Waldoxa Hinn frægi dávaldur Waldoza sýndi listir sínar hér í samkomuhús- inu sl. laugardags- og sunnudags- kvöld fyrir troðfullu húsi. Jón Norð- fjörð kynnti dávaldinn og var túlkur hans. Sjálfboðaliðar gáfu sig fram til dáleiðslu. Sumir voru ekki mót- tækilegir fyrir dáleiðsluáhrif, en aðra dáleiddi Waldoza og gat íalið þeim trú um hina furðulegustu hluti. — Vakti sýningin mikla hrifningu áhorfenda. Waldoza hafði þriðju sýningu sína í gærkvöldi. Útgerðarfélag stofnað ó Hjalteyri Fyrir nokkru var stofnað á Hjalt- eyri útgerðarfélag, sem nefnist Grani h. f. Stofnendur eru Sveinn Einars- son, verksmiðjustjóri, Vésteinn Guð- mundson, verkfræðingur, Thor R. Thors, verzlm., Richard Thors, for- stjóri og Richard Thors cand. med. Vésteinn Guðmundgon er fram- kvæmdastjóri fqlagsins. Félagið mun í sumar gera út „Skeljung" til síldveiða. Nýtt skip til Akureyrar Fyrir nokkru kom hingað til Akur- eyrar 340 smálesta skip. Eigandi skips þessa er h. f. Straumey, og er Hreinn Pálsson framkvæmdastjóri félagsins. Skipið er ætlað til vöru- flutninga og síldveiða. Skipstjóri á síldveiðum verður Haraldur Thor- lacius. Sanið á gruidvelli niðlueartillögu sáttas8mjara. Verkfallinu vrð síldarverksmiðjurnar lauk loksins um síðustu helgi. Varð niðurstaðan sú, að samið var á grund velli tillagna sóttasemjara, Þorsteins M. Jónssonar, sem samþykktar höfðu verið í „Þrótti" við almenna atkvæða- greiðslu. Neyðast kommúnistar því til að kyngja öllum stóryrðunum um sóttasemjara og tillögur hans eða jóta ellri, að þeir hafi beðið herfilegan ósigur. Sannleikurinn er sá, að þetta er sá mesti ósigur, sem kommúnistar hafa beðið til þessa, og er hann sér- staklega tilfinnanlegur fyrir komm- únistaforingjana á Akureyri og Siglu firði. Ástæðan til þessa ósigurs er fyrst og fremst sú, að verkamenn við síldarverksmiðjurnar voru sífellt meir- að snúast gegn ofbeldisákvörð- unum kommúnista og ofbauð sú framkoma konnnúnista að ætla að skera á lífæð þjóðarinnar með því að stöðva síldarútveginn, þegar mestu varðaði að vel veiddist. Þóttur Steingríms. Oglæsilegust eru þessi úrslit tví- mælalaust fyrir uppbótarþingfnann kommúnista, bæjarfulltrúa og stjórn arnefndarmann Krossanesverksmiðj unnar, Steingrím Aðalsteinsson. Er harla ólíklegt, að Akureyringar gleymi fyrst um sinn hlutdeild hans í þe'ssu máli. Það er heldur ekki sennilegt, að verkamenn í Glæsibæj- arhreppi minnist með mikilli gleði vinnustöðvunar hans við Krossanes og Dagverðareyri, sem færði þeim mikið vinnutjón, en engan hagnað. Stöðvun undirbúningsframkvæmda við Krossanesverksmiðjuna var hreint tilræði við bæjarfélagið. Þar sýndu verkamenn í Arnarneshreppi meiri fyrirhyggju, enda hafa þeir aldrei látið kommúnista leiða sig í ógöngur. Steingrími var fullkunnugt um það, að yrði verksmiðjan ekki til í tæka tíð, niyndi hún missa öll skipin, sem ella sétluðu að leggja þar upp. Samt barðist hann gegn því að und- irbúningsvinna væri leyfð. Aðrir fulltrúar í verksmiðjustjórninni buð- ust til að ganga inn í þá sanminga, sem síðar yrðu gerðir, ef vinna fengi að halda áfram. Þessu snérist stjórnarnefndarmaður Steingrímur Aðalsteinsscn öndverður gegn. Hins vegar kom hann fram með þá liílögu að semja þá þegar um kr. 2,85 á klst., og átti það kaup að hækka — en ekki lœkka — eftir síðari samn- ingum. Nú þurfa aðrar verksmiðjur ekki að greiða nema kr. 2.70 á klst. Þá bauð Steingrímur og Guðmundur erindreki Krossanesverksmiðj unni að lokum þau kostaboð að undirrita samning um enn hærra kaup — sanming, sem algerlega var nú geng- ið framhjá. Þannig hefir herra Stein- grímur Aðalsteinsson gætt hagsmuna þess bæjarfélags, sem valið hefir hann til trúnaðarstarfa. Vonir standa að vísu til, að verksmiðjan verði starfrækt í sumar, en það er ekki honum að þakka. Félagsdómur. Alþýðusambandið setti það skil- yrði, að Félagsdómur yrði ekki Iát- inn ganga um mál „Þróttar“. Með þessu er i rauninni fengin full viður- kenning kommúnista fyrir því, að sáttasemjari hafi farið að fullum lög um, en þeir framið hinar mestu lög- leysur með aðgerðum sínum. Ei þetta óneitanlega mikilvæg játning og lærdómsrík fyrir þá verkamenn, sem létu hafa sig til að samþykkja ó- löglegt verkfall. Kaldbakur selur í Englandi „Kaldbakur seldi s. 1. fimmtudag 4160 kits af ísfiski í Grimsby. Sölu- verð var 10. 688 sterlingspund, eða ca. 280 þús. íslenzkar krónur. Hefir skipið þá selt fyrir nálega 600 þús. krónur í tveimur ferðum.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.