Íslendingur - 09.07.1947, Side 3
Miðvikudaginn 9. júlí 1947
ÍSLENDINGUR
3
Allar stéttir verða að sameinast um
framhald nýsköpunarstarfsins og
sköpun atvinnuöryggis
eru þar ómisandi aöili. Verkamenn
verða því að lialdi áfram því verki,
sem þeir hafa byrjað og hreinsa íil
fulls hinn komúnistiska sýkil úr sam-
tökum sínum.
Verkamenn {inrfa að svlfta komnmnista öllum
Töldnm I yerkalýössamtöknnum.
Verkamenn hafa nú sannað kommúnistum það, að
þeir geti ekki notað samtök verkalýðsins sem viljalaust
verkfæri sitt. Þessi úrslit hafa aukið traust þjóðarinn-
ar ó því að takast megi að fó þjóðareiningu um róðstaf-
anir til úrlausnar vandamólum þjóðarinnr, þrótt fyrir
andstöðu kommúnista. Framtíð íslenzkrar olþýðu og
allrar þjóðarinnar er undir því komin, að hægt verði oð
leysa dýrtíðarvandamólið og tryggja framhald nýsköp-
unarinnar.
Vonandi auðnast þjóðinni að varð
veita þá bjartsýni og stórhug, sem
nýsköpunarsteínan vakti lijá henni.
Sjálfstæðisflokkurinn mun ótrauður
stefna að því marki, sem sett var af
fyrrverandi stjórn undir forustu for-
manns flokksins. Hann er þess fullviss
að þessi stefna er í samræmi við hags
muni þjóðarinnar. Þjóðin verður að
forðast afturhalds- og öfgasjónarmið
og láta skynsemi og framsýni ráða
gerðum sínum. Þá mun vel fara.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu við andlót og jgrðarför
Jónasínu Sigurðardóttur.
Vandamenn.
I
X Þakka innilega öllum þeim, sem sýndu mér vinarhug á fertugs
^ afmœli mínu 1. þ. m., með heimsóknum, heillaskeytum, blómum og
ý margvíslegum gjöfum. — Lifið heil!
Yt
$ Helga Jónsdóttir, Garði, Hauganesi.
HRÍSEYJARFERJAN
ATH.
Ferjubóturinn „SÆVÁR" verður í förum milli
Hríseyjar og Litla-Árskógssands, í sambandi
við óætlunarbílana, kvölds og morgna ó þess-
um dögum:
mónudögum,
miðvikudögum,
föstudögum, og
aukaferðir á laugardagskvöldum.
þess ó milli fæst bóturinn í aukaferðir.
Forganga Sj álfstæðisflokksins um
myndun víðtækrar stéttasamvinnu
um stórfellda eflingu íslenzks atvinnu
lífs haustið 1944 marka tímamót í
atvinnusögu þjóðarinnar. Takmark
þessarar stefnu var það að skapa
þjóðinni þau framleiðsluskilyrði, að
hún gæti orðið fær um að keppa við
aðrar þjóðir og tryggt öllum lands-
"mönnum örugga lífsafkomu.
011 þjóðin mun nú sammála um
það, að þesi stefna var rétt, þótt
ýmsir reyndu þá að sporna á móti.
En þesi stefna er jafn rétt og nauð-
synleg nú og hún var þá/ Samt verð-
um vér að horfast í augu við þá stað-
reynd, að ýrnsir þeir, sem þá reyndu
að eigna sér hugmyndina að nýsköp-
unarstefnunni, hafa nú snúizt gegn
henni og skirrast ekki við að íefla
atvinnuöryggi Jrjóðarinnar í alvar-
lega hættu í von um að geta náð sér
niðri á ríkistjórn, sem er andvíg
hinum kommúnistisku flokkssjónar-
miðum.
Með bættum íramleiðsluaðferðum
og auknum afköstum var ætlunin sú
að trygja verkamönnum hærri laun
en þeir hefðu áður haft. Hitt er jafn
lj óst, að meðan ekki er búið að koma
hinum nýju atvinnutækj uiú á örugg-
an fjárhagsgrundvöll, verður að fara
gætilega í sakirnar. Nú er dýrtíð í
landi voru orðin svo stórkostleg, að
þrátt fyrir aukin afköst geturn vér
ekki vænzt þess að verða samkeppnis-
færir við aðrar þjóðir á heimsmark-
aðinum, nema framleiðslukostnaður
íslenzkra afurða verði stórlega lækk-
aður.
Lœkkun dýrtíðarinar er því óhjá-
kvœmileg til þes að nýsköpunin geti
haldið áfram af fullum krafti og bor-
ið þann árangur, sem til var ætlazt.
Allar stéttir verða að taka höndum
saman um lausn þesa alvarlega vanda
máls. Aðeins með frjálsum samtöhum
og samhomulagi framleiðetida og
neytenda verður hœgt að leysa það
á happasœlan hátt.
Núverandi ríkisstjórn heíir lofað
að halda nýsköpunarstefnunni áfram
og reyna að vinna að lækkun dýrtíð-
arinnar. Samvinna framleiðenda og
neytenda er nauðsynleg til þess að
geti tekizt. Hin pólitísku verkföll
kommúnista hafa tafið allar nauð-
synlegar aðgerðir í þessurn málum,
og hefðu verkamenn ekki sjálfir
tekið í taumana, eru líkur til, að
kommúnistum hefði tekizt að skapa
algert fjármálaöngþveiti í landinu
eins og þeir ætluðust til.
Allar stéttir þjóðfélagsins hafa
hyggt vonir sínar um efnahagslegt
öryggi^í framtíðinni á nýsköpun at-
vinnuveganna. Það erlíka óreiðanlegt,
að sé þar rélt á haldið, ætti þjóðin
ekki að þurfa að kvíða kreppu og
örbyrgð í náinni framtíð að minnsta
kosti. Markaður er nægur fyrir fram-
leiðsluvörur þjóðarinar, ef vér aðeins
geturn boðið þær með skaplegu verði.
Ný skip og nýjar verksmiðjur munu
tryggja aukna framleiðslu. Framtíð
landbúnaðarins er undir því komin,
að riægar vélar fáist til landbúnaðar-
starfa og hægt verði að leiða raforku
um hyggðir landsins. Vinnsla úr
ýmsum íslenzkum afurðum ætti að
geta stóraukizt og batnað.
Isletizha þjóðin hejir því sjálf í
iínurn höndum að hve milclu leyti
þesar vonir verða að veruleika. Skorti
liana þegnskap og fórnarlund, getur
þetta allt orðið að engu. Hver vill
verða valdur að því?
Atvinnuleysi hefir verið mesti vá-
gestur íslenzkra verkamanna. Það
hlýtur því að vera mest um vert fyrir
þá að trygja sig gegn því böli. Orugg-
asta leiðin til þess er ekki sú að gera
verkföll þegar mest á ríður að allir
leggist á eitt um að koma framleiðslu
þjóðarinnar og atvinnuvegum á ör-
uggan grundvöll. Atvinnuöryggið er
mihilvœgast fyrir verkalýðinn. —
Kommúnistar hafa með aðgerðum
sínum stuðlað að því að eyðileggja
þetta öryggi. Þeim verður ekki treyst
lil að taka af nokkurri einlægni upp
samvinnu við aðrar stéttir um lausn
dýrtíðarmálsins og anara þjóðfélags-
vandamála, en verkalýðssamtökin
íslendingor senda futltrúa
ó Parísarróðstefnuna
Sendiherra Breta, Sir Gerald
Shepherd, og sendiherra Frakka,
herra Voillery, gengu þann 3. júlí á
fund utanríkisráðherra og færðu
honum samhljóða orðsendingar rík-
issljórna sinna, þar sem íslandi er
boðið að senda fulltrúa á ráðstefnu
um viðreisn Evrópu, um áætlanir
varðandi framleiðslumöguleika og
þarfir Evrópulandanna og urn nauð-
synlega skipulagningu í því skyni að
koma þeim áformum fram.
Íslenzka ríkisstjórnin hefir nú á-
kveðið að taka þessu boði, en ekki
hefir enn verið tilkynnt, hverjir muni
verða fulltrúar íslands á ráðstefn-
unni.
SKYLDU ÞEIR GERA
VERKFALL?
Nýiega hefir rússneska stjórn
in hœkkað margar helztu nauð-
synjavörur almennings stórkost-
lega í verði. Frá því í haust hejir
meðalverðhœkkun á skömmtunar
vörum numið 166%, en launa-
hœkhun aðeins numið 25%. —
Meir en helmingur af kaupi rúSs-
neskra verkamanna fer nú til mat-
vœlakaupa.
Hvað skyldu íslenzkir kommúr
istar kalla svona atferli, þegai
tollahækkanir, sem að fullu verko
á vísitöluna, er+i á þeirra máh
„árás á kjör alþýðunnar“? —
Ætli þeir birti ekki stórletraðai
jyrirsagnir um verkalýðsfjand■
skap rússnesku stjórnarinnar?
Nei, við getum verið viss um það.
að þeir lofa og vegsama verka-
lýðsvináttu foringjanna í austri
engu minna en áður. Og stjórn
„ríkis verkalýðsins“ þarf ekki að
óttast verkföll, því að á þau er
litið sem uppreisn gegn ríkinu,
og fœsta langar til þess að hœtta
á að hljóta Síberíuvist. Finnst ís-
lenzkum verkamönnum þetta ekki
eftirsóknarvert?
Leikfélag Akureyrar
AÐALFUNDUR
Leikfélags Akureyrar verður haldinn í húsi Karlakórsins
„Geysir“, Hafnarstræti 73, þriðjudaginn 15. júlí kl. 8
síðdegis. — Fyrir fundinum liggja venjuleg aðalfundar-
störf. Fastlega^skorað á félaga að mæta stundvíslega. —
Stjórnin.
Fylgisaukning Sjálfstæöis
manna á Sauðárkróki
Kommúnistar og Framsókn tapa fylgi
Síðastliðinn sunnudag fóru fram
bæjarstjórnarkosningar á Sauðár-
króki. Alþýðuflokksmenn heimtuðu
þessar kosningar og hugðust vinna
mikinn sigur, en aðrir flokkar töldu
kosningar ástæðulausar og vildu láta
hreppsnefndina óbreytta taka við
störfum bæjarstjórnar út kjörtíma-
bilið. Voru flestir bæjarhúar andvíg-
ir kosningum, en tæp 80% kjósenda
greiddi þó atkvæði.
Lítið varð úr þeim mikla sigri,
sem Alþýðuflokkurinn hafði búizt
við. Bætti hann við sig 2 atkv. frá
síðustu kosningum, en fékk þó 1
fulltrúa í viðbót, vegna breytts hlut-
falls milli flokka. Kommúnistar
höfðu áður einn fulltrúa í hrepps-
nefnd, en töpuðu honum yfir til Al-
þýðuflokksins. Framsókn tapaði
einnig fylgi.
Sjálfstæðismenn juku hins vegar
mjög fylgi sitt og vantaði aðeins 3
atkv. til þess að fá fjóra menn kjörna
og fella 3. mann Alþýðuflokksins.
Þess er þó að gæta, að frá síðustu
kosningum hafa næstum 20 kjósend-
ur flokksins flutzt hurtu, en senni-
lega enginn af fylgismönnum Alþýðu
flokksins.
Úrslit urðu þessi:
A-listi (Alþfl.) 144 atkv. 3 ftr.
B-listi (Fr. og óh.) 84 — 3 <—
C-Iisti (Sós.) 47 — 0 —
D-listi (Sjálfl.) 190 — 3 —
Auðir seðlar voru 7 og 3 ógildir.
Við síðustu kosningar urðu úrslit
þessi:
A-listi (Alþfl. I
B-listi (Frfl.)
C-listi (Sós.)
D-listi (Sjfl.)
142 atkv. 2 ftr.
95 — 1 —
55 — 1 —
162 — 3 —
Bæjarstjóri hefir enn ekki verið
ráðinn.
Isienzknr pröfessor vlí
daiskan básköla
Hér er nú staddur í bænum Lárus
Einarsson, prófesor við háskólann
í Arósurn, ásamt konu sinni, fru Þur-
íði Ragnars, og þremur börnum
þeirra. Munu þau dvelja hér hjá móð-
ur frúarinnar þennan mánuð.
Prófessor Lárus Einarssoon mun
vera einn af lærðustu núlifandi ís-
lenzkunr læknum. Hann er sonur
Magnúsar Einarssonar, dýralæknis.
Lárus lauk læknisfræðiprófi 1928,
starfaði síðan við líffærastofnun
Hafnarháskóla og Múnchenháskóla
og síðan við lífeðlisfræðistofnun
Harvardháskóla í Boston og Hopkins-
háskóla í Baltimore. Hann kenndi
síðan um skeið hér við háskólann
og var aðstoðarlæknir á Kleppi, en
frá 1936 hefir hann verið prófessor
í lífærafræði við háskólann í Árós-
um Lárus hefir ritað margar merkar
bækur um læknisfræðileg efni.