Íslendingur - 16.07.1947, Síða 1
XXXIII. árg.
Miðvikudagur 16. júlí 1947
28. tbl.
FiórOungsþingið ítrekar áskorun sína
um fylkjasklpun.
Kraílzt aukinnar landhelgisgæzlu og rýrari
fjárveitingar til sýsluvega.
FJÓRÐUNGSÞING NORÐLENDINGA var háð á Ak-
ureyri dagana 12. og 13. júlí sl. Sátu þaS fulltrúar úr öll-
um sýslum og bæjarfélögum norðanlands, öðrum en
Vestur-Húnavatnssýslu og Siglufirði.
FRÚ
STEINUNN FRÍMANNS-
DÓTTSR
ekkja Stefáns Stefánssonar, skóla-
meistara, og móðir frá Huldu Stef-
ánsdóttur, forstöðukonu Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur, og Valtýs Stef-
ánssonar, ritstjóra Morgunblaðsins,
andaðist fyrir nokkrum dögum í
Reykjavík. Lík hennar verður flutt
hingað norður og jarðsett frá Akur-
eyrarkirkju á morgun.
KRÓNPRINS
NORÐMANNA
VÆNTANLEGUR
TÍL AKUREYRAR
Krónprins Norðmanna verður með
al gesta á Snorrahátíðinni í Reyk-
holti um næstu helgi. Búizt er við, að
hann komi hingað til Akureyrar um
miðja næstu viku, og mun hann
ferðast víðar um landið.
HLJÓMSVEIT
BJARNA BÖÐVARSSONAR
KEMUR TIL BÆJARINS
Ilin landskunna hljómsveit Bjarna
Böðvarssonar er að koma hingað til
bæjarins og heldur dansleik í Sam-
komuhúsinu n. k. föstudagskvöld.
Atta eða tíu hljóðfæraleikarar eru í
hljómsveit þessari.
Síldarverksmiðjan í Krossanesi er
nú tilbúin að taka á móti síld, og var
samningsskipum verksmiðjunnar til-
kynnt þetta í gær.
Verkfallið tafði mjög undirbún-
ingsvinnu við verksmiðjuna, en með
því að vinna svo að segja samfleytt
dag og nótt, hefir tekizt að búa verk-
smiðjuna undir bræðslu. Auðvitað
hefir þetta haft í för með sér mikinn
aukakostnað.
Blaðið átti í gær tal við fram-
kvæmdastjóra verksmiðj unnar, Hall-
grím Björnsson, verkfræðing. Kvað
hann miklár endurbætur hafa verið
gerðar á verksmiðjunni, en margt
vantaði þó til þess að hún gæti tal-
izt fullkomin. Tveir löndunarkranar
hafa verið settir upp og- færiband
upp bryggju og yfir þró. Þá hefir
háspennulína verið lögð frá Akur-
eyri og spennistöð sett upp þar ytra,
en áður var þar aðeins lítill mótor.
Landsmót stúdenta
um næstu helgi
Skólameistari og frú
/
heiðursgestir
Landsmót stúdenta hefst í Reykja-
vík n. k. laugardag, en síðan er á-
formað að stúdentar fari í Reykholt
og verði á Snorrahátíðinni, og hefir
verið samið við Ferðaskrifstofu rík-
isins um far frá Reykjavík. Eftir há-
tíðina verður mótinu væntanlega
haldið áfram í Reykjavík, og því
slitið þar.
Við setningu mótsins verða þeir
prófessorarnir dr. Olafur Lárusson
og dr. Sigurður Nordal aðalræðu-
menn. Búizt er við, að handritamálið
verið aðalumræðuefni á mótinu.
Þeir stúdentar héðan af Akureyri
eða í grennd, sem tök hafa á að
sækja mót þetta, eru vinsamlega beðn
ir að tilkynna það formanni Stúdenta
félags Akureyrar, Svavari Guð-
mundssyni, bankastjóra.
Þau Sigurður Guðmundsson,
skólameistari, og frú hans verða
heiðursgestir á mótinu.
Sett hafa verið upp mj ölblásturstæki,
en sá útbúnaður var áður mjög frum
stæður. Sjálfvirk vigt er væntanleg.
Hefir hún þegar tvisvar komið til
landsins með „Drottningunni“, en
orðið að flytja hana út aftur vegna
verkfallsins. Einnig á verksmiðjan
von á saumavél, en þangað til verð-
ur að handsauma fyrir pokana. Kola-
kynding er enn í vérksmiðjunni.
Þrjár nýjar skilvindur hafa verið
settar upp. í verksmiðjunni eru þrjár
pressur og tveir þurrkarar, hvort-
tveggja gamalt.
Fimm skip leggja upp í Krossa-
nesi, öll héðau úr bænum. Eru það
Auður, Akraborg, Kristján, Snæfell
og Straumey. Þá hefir verksmiðjan
samið við Ingólfsfjörð um það, að
samningsskip hvorrar verksmiðj unn-
ar um sig fái að leggja upp síld hjá
hinni.
JARÐSÍMI LAGÐUR
UM BÆINN
Blaðið hefir átt tal við Gunnar
Schram, símastjóra, og skýrir hann
svo frá, að undanfarnar vikur hafi
verið unnið að því að leggja jarð-
síma um hin nýrri hverfi bæjarins,
þar sem ekki voru línur áður. Von-
ast er til, að hægt verði að leggja
jarðsíma um mestan hluta bæjarins
í sumar. Símstjóri segir nauðsynlegt
að hafa lokið að leggja símann í
jörð, áður en sjálfvirka miðstöðin
kemur, sem væntanlega verður á
næsta ári.
Á SJÖTTA HUNDRAÐ
MANNS
SKOÐA KIRKJUNA
Síðastliðinn þriðjudag var lögð
fram gestabók í Akureyrarkirkju, en
hún er nú opin daglega. Hefir mikill
fjöldi aðkomufólks í bænum notað
tækifærið og skoðað kirkjuna, og
520 manns ritað nafn sitt í bókina
sl. viku. Björgvin Guðmundsson, tón-
skáld, hefir leikið á orgel kirkjunnar
kl. 6—7 á kvöldin og einnig oft fyrir
hádegi. Hefir mátt heyra orgeltónana
hljóma niður yfir miðbæinn úr há-
talara í kirkjuturninum. Jón Þor-
steinsson, kennari, er daglega í kirkj-
unni og leiðbeinir fólki, sem þangað
kemur, segir frá byggingu kirkjunn-
aj; og þeim listaverkum, sem þar eru.
Hér er um að ræða góða ný-
breyttni, sem vel má vera til fyrir-
myndar, því að yfirleitt eru íslenzkar
kirkjur ekki hafðar opnar fyrir al-
menning — utan guðsþjónustutíma
— eins og víða tíðkast erlendis.
GÓÐ SÍLDVEIÐI
UM SÍÐUSTU HELGI
•
Mikil síldveiði var um síðustu
helgi, og veiddist síldin einkum á
Húnaflóa og Skagagrunni. Sl. laug-
ardagskvöld var heildaraflinn rúm
64 þús. mál, en mun í gærkveldi hafa
verið hátt á annað hundrað þúsund
mál.
í gær var veiði treg, enda veður
ekki vel hagstætt. Söltun hófst í gær,
og lögðu mörg skip upp síld til sölt-
unar á Siglufirði í fyrrinótt.
Síldin er mjög feit, eða yfir 20%.
Forsetar þingsins voru Einar Árna
son, fyrrv. alþm., og Sigurður Sig-
urðsson, bæjarfógeti á Sauðárkróki,
en ritarar Sigurður Guðjónsson,
bæjarfógeti í Ólafsfirði, og Jón Sig-
urðsson, bóndi í Yzta-Felli.
Formaður sambandsins, sr. Páll
Þorleifsson á Skinnastað, flutti
skýrslu um störf Fjórðungsráðs á ár-
inu, Þórarinn Eldjárn um störf milli-
þinganefndar í vegamálum og Bragi
Sigurjónsson um álit milliþinganefnd
ar um fylkjaskipan.
Á þinginu var samþykkt tillaga frá
Brynjólfi Sveinssyni, menntaskóla-
kennara, uin skipun milliþinganefnd-
ar, er athugi og geri tillögur um auk-
ið vald og fjárráð héraða og fjórð-
unga. Verður leitað samráðs og sam-
starfs um þetta við Fjórðungssam-
band Austfirðinga, svipaðan félags-
skap á Vestfjörðum og félagsskap
um málefni sveita- og bæjarfélaga.
Mæltist þingið til, að allir þessir að-
ilar kysu nefndir í málið, er síðan
störfuðu saman og legðu álit sitt fyr-
ir næsta Fjórðungsþing. Var veitt fé
úr sjóði sambandsins til greiðslu
kostnaðar við nefndarstörfin.
í nefndina voru kosnir:
Einar Árnason, Eyrarlandi,
Sigurður Sigurðsson, bæjarfóg, og
Karl Kristjánssoií, Húsavík.
Þingið samþykkti tillögu, út af er-
indi frá sýslunefnd Skagafjarðar-
sýslu, um aukna landhelgisgæzlu fyr-
ir Norðurlandi. Þá var samþykkt til-
laga, vegna erindis sýslunefndar A-
Húnavatnssýslu um vegamál. Var
skorað á Alþingi að heimila verulega
hækkun á tekjustofnum sýsluvega-
sjóðanna og framlagi Ríkissjóðs til
þeirra.
Einnig var samþykkt áskorun um
endurskoðun á lögum urn almanna-
tryssinsar-
Veittar voru kr. 3000.00 úr sjóði
sambandsins til styrktar byggðasafni
í Skagafirði.
Fjórðungsráð er skipað þessum
mönnum:
Sr. Páll Þorleifsson, formaður,
Brynjólfur Sveinsson, gjaldkeri,
Karl Kristjánsson, ritari.
Ur Fjórðungsráði átti að ganga
Brynjólfur Sveinsson, en var endur-
kjörinn.
Þingfulltrúar sátu miðdegisverðar-
boð bæjarstjórnar Akureyrar að
Hótel KEA. Fluttu þar ávörp forseti
bæjarstjórnar, Þorsteinn M. Jónsson
og Steinn Steinsen, bæjarstjóri, en
ýmsir þingfulltrúar tóku til máls, og
þótti öllum ánægjuleg kynningar- og
skemmtistund.
MARGT FERÐAFÓLK
JBÆNUM
Samkvæmt viðtali við Ferðaskrif-
stofu Ríkisins á Akureyri, hefir verið
mjög mikið um ferðafólk í bænum
undanfarið. Hundruð manna hafa
daglega komið með flugvélum, áætl-
unar- og einkabifreiðum. Iiefir Ferða
skrifstofan greitt götu fjölda fólks,
sem til hennar hefir leitað, tekið á
móti hópferðum og séð fyrir bifreið-
um til slíkra ferða. Hún hefir útvegað
mat og gistingu á Akureyri og víðs-
vegar um Norðurland, leiðbeint er-
lendum ferðamönnum og verið þeim
innan handar á allan hátt. Þykir
mönnum, sem von er, mikil þægindi
að hafa þannig samastað að leita til
viðvíkjandi hverskonar fyrirgreiðslu.
Ferðaskrifstofan hefir aðsetur í
Strandgötu 5, og er opin frá 10—12
og 2—5, og ennfremur á kvöldin um
það leyti, er hraðferðin frá Reykja-
vík kemur.
Krossanesverksmiðjan tílbúin
að taka á móti síld.
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á verksm.