Íslendingur - 27.08.1947, Síða 1
Hastim eniln síld'
Tiill sílnsti Tlku.
Síðastliðna viku bárust að-
eins 17 þús. hl. bræðslusíldar á
land. Var bræðslusíldaraflinn
samtals orðinn 1.230.093 hl. á
miðnætti sl. laugardag, en var
á sama tíma í fyrra 1.143.014
hl., árið 1945 var aflinn 454,099
hl. og 1944 um sama leyti
I. 699.984 hl.
Um síðustu helgi hafði verið
saltað í 52,850 tn. á öllu land-
inu, en um sömu helgi í fyrra
var búið að salta í 126.452 tn.
Um sama leyti 1945 var salt-
síldin orðin 47.303 tn. og 1944
var hún 26.620 tn.
Fiskifélagið birti ekki skýrslu
um afla einstakra veiðiskipa um
síðustu helgi, enda er hún lítið
breytt frá fyrri helgi. Fimm
aflahæstu skipin eru: Edda frá
Hafnarfirði með 11.888 mál,
Eldborg frá Borgarnesi með
II. 508 mál, Sindri frá Akranesi
með 10.777, Huginn frá Reykja-
vík með 10.556 og Siglunes með
10.202 mál.
Slæmt veiðiveður.
Nokkur skip fengu góð köst
í fyrrakvöld og gærmorgun, en
í gærkvöldi var kominn strekk-
ingur á miðunum og ekki veiði-
veður. Mun engin síld hafa
veiðst í gærkvöldi og morgun.
Ávarp sjávarútvegsanálaráð-
herra.
Einstaka sildveiðiskip munu
vera hætt veiðum, að minnsta
kosti með herpinót. Sjávarút-
vegsmálaráðherra, Jóhann Þ.
Jósefsson, hefir sent sjómönn-
um og útgerðarmönnum áskor-
un um að hætta ekki veiðum
meðan nokkur von sé, því að
aldrei hafi meir verið komið
undir síldveiðinni en nú, þegar
fisksalan sé að verulegu leyti
háð því, að tiltekið magn síldar-
- afurða fylgi.
RlKISSKULDABRÉF KEYPT
FYRIR UM 10 MILJ. KRÓNA
Undanfarna mánuði hafa
bankar og verðbréfasalar haft
til sölu ríkisskuldabréf þau,
sem gefin voru út samkv. lög-
um um eignakönnun, en mönn-
um var þar gefinn kostur á að
lána ríkinu skattsvikið fé gegn
1% vöxtum.Sölu bréfanna er nú
lokið, og mun salan nema allt
að 10 milj. kr. Af þeirri upphæð
hafa rúmar 8 milj. kr. verið
greiddar með ýmiskonar verð-
bréfum.
ÓumflýjaRlegt að braða framkvæmd-
um í rafmagnsmálum bæjarins
Bæjarráð og Hafnarnefnd ræða hafnar-
málin.
Bæjarráð og hafnarnefnd komu
fyrir nokkru saman til fundar til
þess að ræða liið slæma ástand í
hafnarmálum bæjarins.
Bæjarstjóri skýrði frá því, að verk
fræðingur vitamálaskrifstofunnar,
Magnús Konráðsson, hefði tjáð sér,
að SÍS í Reykjavík hefði fengið til-
boð í járn til viðgerða á bryggjunui.
Nefndirnar samþykktu að fara fram
á við vitamálaskrifstofuna, að hún
sæki um innflutnings- og gjaldeyris-
leyfi fyrir efni til viðgerðar og stækk
unar á bryggjunni og geri pantanir
á efni í hana, að fengnu gjaldeyris-
og innflutningsleyfi. Jafnframt vilja
nefndirnar benda á, að nú muni fá-
anleg steinsleypt k'er, og óska eftir,
að vitamálaskrifstofan taki til alhug-
unar nú þegar, hvort til mála komi
að nota slík ker í bryggjuna, sérstak-
lega, hvort ekki megi í haust setja
eitt ker við endann á bryggjunni til
skýlis fyrir bátakvína í stað timbur-
ranans, sem bilaði á síðastliðnum
vetri.
Nefndirnar skoruðu á vitamála-
skrifstofuna að vinda bráðan bug að
þessum framkvæmdum, þar sem skipa
kvíin væri eina vetrarlagi fiskiskipa
Eyfirðinga, Þiugeyinga og fleiri, alis
40—50 skipa. Skipakvíin mætti nú
HLJÓMLEIKAR DÓRU OG
HARALDAR í KVÖLD.
Þau Dóra og Haraldur tíig-
urðsson halda hljómleikakvöld
í Nýja Bíó kl. 9 í kvöld. Þau eru
öllum Islendingum kunnari en
svo, að þörf sé að kynna þau.
Er ekki að efa, að Akureyring-
ar muni fjölmenna í Nýja Bíó
í kvöld og njóta þar fagurrar
listar og góðrar skemmtunar.
Trúboði frá Kína talar í Ak-
ureyrarkirltju. — Nýkomin er
hingað til bæjarins kona, sem
um langt skeið hefir verið við
trúboð i Kína. Heitir hún frk.
Kristine Vemmelund og mun
hún tala í kirkjunni við guðs-
þjónustu kl. 2 n. k. sunnudag.
teljast ónothæf og allur þessi skipa-
stóll í augljósri bættu á vetri kom-
andi.
Úvenjulepr tánlistar-
vlSburSur.
16 ára ptanóleikari.
I gærkvöldi hélt ungfrú Elísa-
bet Ilaraldsdóttir píanóhljóm-
leika í Nýja Bíó á Akureyri. —
Elísabet er dóttir þeirra Dóru
og Haraldar Sigurðssonar, 'sem
bæði eru hér kunn fyrir list
sina, og er hún aðeins 16 ára
að aldri.
Það er fátítt að heyra svo
unga listamenn halda sjálfstæða
tónleika, enda var húsið full-
skipað og eftirvænting gestanna
mikil. En unga listakonan vann
á svipstundu bæði hug og hjarta
áheyrenda sinna og hélt eftir-
tekt þeirra vakandi allt til enda.
Það var auðfundið, að hún
kunni góð skil á viðfangsefnum
sínum og túlkun hennar bar
vott um góða hæfileika og næm
an listasmekk, enda á hún ^kki
langt að sækja það. Hún lék
konsert eftir Bach, 32 tilbrigði
eftlr Beethoven, Sonatine eftir
Ravel, fantasie,vals og nocturne
eftir Chopin, rhapsodie eftir
Dohnanýi og að lokum eitt
aukalag.
Vafasamt er, hvort nokkrum
listamanni hefir verið fagnað
hér eins innilega og ungfrú
Elízabetu. Var hún kölluð fram
hvað eftir annað og færðir
margir blómvendir.
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands.
• Aðalfundur Skógræktarfé-
lags Islands verður haldinn í
Vaglaskógi n. k. laugardag og
sunnudag. Rúmlega 50 fulltrú-
ar munu sitja fundinn frá Skóg-
ræktardeildum víðsvegar um
land.
Ástandið í rafmagnsmálum Akureyrar er sízt betra en í hafnar-
málunum. Rafvirkjunin við Laxá fullnægir alls ekki þörfum bæj-
arbúa, og veldur það bæði miklum óþægindmn og tjóni fyrir ýms
iðnfyrirtæki. Þá ber brýna nauðsjTi til að reyna að búa svo um
háspennuleiðslurnar til bæjarins, að liann verði ekki ljóslaus í
hvert sinn, þegar óveður kemur. Aukin og öruggari raforka er
mál, sem varðar hvern einasta bæjarbúa.
FRU brunborg sýnir
„ENGLANDSFARANA“.
Frú Guðrún Brunborg sýndi
hér fyrir nökkru norsku kvik-
myndina ,,Englandsfarana“. —
Er þetta eftirtektarverð og vel
leikin kvikmynd um baráttu
Norðmanna á striðsárunum.
Allur ágóði af sýningum mynd-
ar þessarar rennur í sjóð, er frú
Brunborg hefir stofnað til efl-
ingar norsk-íslenzkum menning
ai’viðskiptum. Mynd þessi verð-
ur ef til vill sýnd hér aftur, og
ættu' bæjarbúar þá ekki að láta
hjá líða að sjá hana, ef þeir
hafa ekki gex’t það áður.
HLJÓMSVEIT THEO ANDER-
SEN NEI'itAÐ UM ATVINNU-
LEYFI.
F élagsmálaráðuneytið hefir
synjað hljómsveit Theo Ander-
sen, sem leikið hefir að Hótel
Noi’ðurland, um atvinnuleyfi,
og hefir henni verið bannað að
leika á hótelinu. Þessi ráðstöfun
mun án efa valda nokkrum von
brigðum hér í bænum, þvi að
hljómsveit þessi hefir notið mik
illa vinsælda í bænum og hljóm-
leikakvöld hennar verið
skemmtileg nýung í skemmt-
analífi bæjax’ins, sem ekki hefir
vex’ið of fjölskrúðugt. Bannið á
hljómsveitinni mun yera runnið
undan rifjurn hljóðfæraleikara
í Reykjavík, en hljóðfæraleikar-
ar hér hafa ekki amast neitt við
hljómsveitinni. Er þetta óvið-
unandi afskiptasemi, sem veld-
ur hótelinu verulegu tjóni.
Þegar Laxárvirkjunin var
gerð, var áætlað, að hún myndi
nægja bænum, og jafnvel nær-
liggjandi sveitum, um langan
tíma. En það er eins með þetta
og margar aðrar framkvæmdir
á landi hér, að þróunin er stór-
stígai’i en menn ætla. Nú er svo
komið, að mikil stækkun Laxár-
virkjunarinnar er óhjákvæmi-
leg, og henni hefði meira að
segja þurft að vera lokið, svo
brýn er þörfin á aukinni raf-
oi’-ku.
Blaðið hefir snúið sér til bæj-
arstjóra og spurzt fyrir um
gang þessa mikilvæga máls.
Segir hann, að fundur rafveitna
vei’ði haldinn hér nyrðra á
næstunni og muni Jakob Gísla-
son, raforkumálastjóri, skýra
þar ítarlega frá undii’búningi
Laxárvirkjunarinnar nýju, en
áætlað er, að hún muni kosta
um 11 milj. kr. Verður væntan-
lega hægt að skýra nánar frá
málinu eftir þenna fund.
Þá segir bæjarstjóri, að mikl-
um erfiðleikum hafi verið bund-
ið að fá gjaldeyrisleyfi fyrir
nægilegu efni til viðhalds og
endurbóta á bæjarkerfinu, en
þar er mikilla umbóta þörf, eins
og öllum bæjarbúum er kunn-
ugt.
Þvi miður eru engar líkur til
úrbóta á rafmagnsmálunum á
þessu hausti, en bæjarbúar
hljóta að leggja áherzlu á það,
að framkvæmdum verði hraðað
svo sem verða má. Verður jafn-
l’ramt að taka til rækilegrar at-
hugunar, hvort ekki er hægt að
leggja háspennulínuna í jörð
eða búa á annan hátt svo um,
að ekki slokkni öll ljós við
hvern goluþyt.