Íslendingur - 24.09.1947, Qupperneq 3
Miðvikudagur 24. september 1947
ÍSLENDINGUR
3
^wisno^
ambaod nnara Sjálfstæðismanna
Þjóðin verður að sameinast í baráttunni
gegn kommúnismanum.
Það er nú að verða gleggra með
degi hverjum, hvers vænta má af
kommúnistufn.
Er ríkisstjórnin var mynduð með
þáttlöku lýðræðisflokkanna þriggja
var vitað, að kommúnistar myndu
gera henni allan þann óleik, er þeir
gætu. Síðar liefir komiö i Ijós, að
kommúnistar ganga lengra í fjand-
skap sínum og skemmdarstarfsemi en
nokkurn gat raunverulega grunað.
Gegn betri vitund harnra komm-
únistar stöðugt á því, að ástæðulaust
sé að færa niður framleiðslukostnað-
inn og lækka dýrtíöina í landinu. í
blöðum sínum reyna þeir að telja
lesendum trú um, að leikur einn sé
að selja sjávarafurðir okkar fyrir
mjög hátt verð í löndum Rússaveldis
og Austur-Evrópu, enda þótt flokks-
bræður þeirra, sem sendir voru
þangað í þeim erindagerðum, hafi
komið þaðan með .þau svör, að verð-
ið væri allt of hátt. Þegar ríkisstjórn-
in kallar saman fulltrúa frá framleið-
endum og launþegum til þess að
reyna leysa dýrtíðarvandamálið,
gefa kommúnistar það í skyn, að
þeir muni verða á móti öllum ráð-
stöfunum, og senda málpípur flokks-
ins út um land allt til þess að sverta
ráðstefnuna í augum almennings.
LÍK'I’ HAFAST ÞEIR AÐ.
Framferði íslenzku kommúnist-
anna er í beinu samræmi við það,
sem flokksbræður þeirra gera erlend-
is. I öllum lýðfrjálsum löndum reyna
þeir að grafa undan þjóðskipulag-
inu og þá fyrst og fremst atvinnuveg-
unum, sem afkoma almennings bygg-
ist á. Þegar allt er komið í öngþveiti
og neyð telja kommúnistar líklegt,
að þeim megi takast að hrifsa til sín
völdin. „Þjóðviljinn“ telur bjálp
Bandaríkjanna lil hinna sveltandi
þjóða Evrópu „kúgunartilraun“ og
sama segja trúbræðurnir út um all-
an heim. Þessi afstaða kommúnista
markast af því einu, að þeir vilja
ekki velmegun á grundvelli ríkjandi
þjóðskipulags.
FJANDSAMLEGlll LÝÐRÆÐINU.
Það hefir hvað eftir annað t kom-
ið í ljós í viðskiptum við kommún-
ista hér á landi, að þeir bera harla
lilla virðingu fyrir grundvallaratrið-
um lýðræðisins. Ef kommúnistar
vilja hafa eitthvað fram, en lýðræð-
isreglur standa í veginum, hafa
kommúnistar ekki skirrst við að ýta
þeim til hliöar. Sömu sögu er að
segja erlendis frá. Þar sem komm-
únistar geta beitl fyrir sig vopna-
valdi, tjalda andslæðingarnir ekki
lengi í skjóli lýðræðisins.
„Þjóðviljinn“ hefir aldrei dregiö
dul á aðdáun. sína á aðförum er-
lendra skoðanabræðra. Hefðu Þjóð-
vilj amennirnir rússneska herinn að
bakhjarli, eins og sálufélagar þeirra
víða um Evrópu, yrði skammt að
bíða svipaðra kosninga hér á landi
og nýlega fóru fram í Ungverja-
landi. Þá þyrftu kommúnistar ekki
að ótlast rödd sannleikans í blöðum
andstæðinganna, því að hún yrði
brátt þögguð.
ÆSKULÝtíURlNN HEFIR ÞEGAR
TEKItí AFSTÖtíU GEGN
KOMÚNISTUM.
Islenzkur æskulýður hefir þegar
komið auga á áform kommúnista.
Andstaðan gegn ofbeldisstefnu þeirra
íslenzka þjóðin hefir keypt frelsi
og efnahagslegt sjálfstæði of dýru
verði tíl þess, að hún láti ábyrgðar-
lausa ofstækismenn traðka á því.
Kommúnistar liafa þegar sýnt, að
þeir eru bezt geymdir uta’n garðs í
stj órnmálalíf inu.
Framundan bíða verkefnin — og
þau verða leyst án íhlutunar komm-
únista.
hefir aldrei verið jafn öflug og ein-
mitt nú.
Fjölsótt skeramtun ungra sjálf-
stæðismanna í Ölafsfirði.
Um sl. helgi gekkst félag ungra
Sjálfstæðismanna í Olafsfirði fyrir
fundi og skemmtun í samkomuhúsi
bæjarins. Brynjólfur Sveinsson, kaup
maöur, sýndi ágæta kvikmynd úr 01-
afsfirði. Rætur fluttu: Magnús Jóns-
son, ritstjóri, og Jónas G. Rafnar,
form. Fjórðungssambands ungra
Sjálfstæðismanna á Norðurlandi.
Síðan var dansað af miklu fjöri til
kl. 3.30 um nóttina.
Skemmtunin var mjög vel sótt og
fór hið bezta fram.
Meðal ungra Sjálfstæðismanna í
Ölafsfirði ríkir nú mikill áhugi. Frá
því, er félag þeirra var stofnað, hefir
það tekið virkan þátt í starfsemi
ungra Sjálfstæðismanna á Norður-
landi. Ólafsfjörður er vaxandi bær,
sem án efa á glæsilega framtíð fyrir
höndum. Það hlýtur því að vera
Sjálfstæðisflokknum hið mesta fagn-
aðarefni, að hann skuli nú þegar
njóta fylgis meirihluta æskunnar í
bæjarfélaginu.
Ungir Sjálfstæðismenn í Ólafsfirði
hafa nú gefið félagi sínu nafnið
„Garðar“ til minningar um Garðar
Þorsteinsson, alþingismann, sem
vírtur var og dáður af ÓlafsfirÖing-
Frá samtökum ungra Sfáltstæðismanna
Ofiug starfsemi uigra Sjálfstæöismanna
á Suöurlandi.
1 sýslunum sunnanlands eru nú
víðast hvar slarfaudi íélög ungra
Sj álfstæðismanna.
„Fjölnir“, félag ungra Sjálfstæðis-
manna í Rangárvallasýslu, var stofn-
að árið 1933 og er því elsta félag
ungra Sjálfstæðismanna í sveit. Starf
semi „Fjölnis“ hefir jafnt og þétt
farið vaxandi, en hefir þó einkum
aukizt seinustu tvö árin. Um síðustu
alþingiskosningar gengu á 3. liundr-
að æskumanna og kvenna úr sýsl-
unni í félagiö, og er enginn vafi á
því, að fylgi unga fólksins átti drýgst
an þátt í kosningasigri Sjálfstæðis-
flokksins þar í sýslunni.
„Fjölnir“ hefir við og 'við geng-
ist fyrir úrbreiðslu- og skemmtifund-
um, sem hafa verið vel sóttir.
Núverandi formaður félagsins er
Guðmundur Þórðarson, stud. med.
frá Ulfsstaðahj áleigu.
#
í Arnessýslu hefir starfsemi ungra
Sjálfstæðismanna aukizt. Félög eru
þegar starfandi á Stokkseyri og Eyr-
arbakka, en undirbúningur hafinn
að stofnun fleiri félaga í sýslunni.
*
„Þór“, félag ungra Sjálfstæðis-
manna á Akranesi, var stofnað fyrir
bæj arstj órnarkosningarnar veturinn
1946. Félagið er þegar orðið mjög
fjölmennt. Það hefir átt veglegan og
mikinri þátt í því, að Sjálfstæðisfl.
hefir eignazt skála við Ölver, sem
rúmar um 600 manns, en þar liafa
þegar veriö haldnir útbreiðslu- og
skemmlifundir.
#
Félag ungra Sjálfstæðismanna á
Snæfellsnesi var stofnað fyrir síð-
ustu alþingiskosningar. Félagið nær
yfir alla sýsluna og munu félagar
vera hátt á 3. hundrað. Á Snæfells-
nesi ríkir nú mikill áhugi meðal
ungra Sjálfstæöismanna. Fyrir
skömmu síðan gengust þeir fyrir
fjölmennu héraðsmóti í sýslunni. —
Formaður félagsins er Þráinn Bjarna
son, Böövarsholti.
#
Félag ungra Sjálfstæðismanna í
Vestmannaeyjum var stofnað árið
1930. Það hefir starfað óslitið síð-
an. Fyrir síðustu alþingiskosniugar
bætlist félaginu góður liösauki. For-
niaður er Björn Guðmundsson.
„Stefnir“, félag ungra Sjálfstæðis-
VISITALAN
384 STIG
Á fundi í landsmálafélaginu
„Vörður“ í Reykjavík skýrðí
Bjarni Benediktsson, utanríkis-
ráðherra, frá því, að um næstu
mánaöainót myndi vísitalan raun-
verulega verða orðin 334 stig, en
í þessum mánuði mun vísitalan
hækka um 11 stig vegna verð-
hækkunar á landbúnaðarafurðum.
Ráðherrann sagði, að ríkið yrði
á þessu ári að greiða 40 milj. kr.
lil að halda niðri vísitöl'unni, en
auk þess myndi ríkissjóður verða
að greiða 30—40 n::Ij. kr. verð-
bætur á útfluttar sjávarafuröir.
HÉRAÐSMÓT
Á
AUSTURLANDI
Fjórðungssamband ungra Sjálf-
stæðismanna á Austurlandi gekkst
fyrir héraðsmóti í Egilsstaðaskógi
sunnudaginn 14. þ. m. Mótið var vel
sótt og fór hið bezta frarn.
Jón Gestsson, formaöur Sambands
ins, setli mótið. Ræður fluttu Gunn-
ar Björgvinsson, form. félags ungra
Sjálfstæðismanna á Eskifirði og
Sveinn Jónsson, bóndi, að Egilsstöð-
um. Lárus Sigurjónsson, skáld, flutti
kvæði urn Fljótsdalshérað. Séra
Marinó Kristinsson söng einsöng.
Einnig skemmti kvennakvartett frá
Eskifirði.
Um kvöldiá var dansað og skotið
flugeldum.
ANDSTAÐAN MAGNAST
GEGN BREZKU
STJÓRNINNI
Sú staðreynd, að brezka þjóðin
þarf sífellt að herða meir sultaról-
ina jafnhliða því, að flestar aðrar
þjóðir eru heldur að rétta við, hefir
orðið þess valdandi, að brezka þjóð-
in er nú sífellt meir að missa traust
á þjóðnýtingarbrölti brezku verka-
mannastjórnarinnar. Virðist þjóð-
nýtingin líka hafa haft þveröfug á-
hrif við það, sem sósíalistar víða um
heim útbásúna.
Brezka blaðiö „Daily Express“ lét
nýlega fram fara skoðanakönnun um
vinsældir brezku stjórnarinnar og
kom þar glöggt í ljós, að þeirn hefir
stórlega hrakað, ef borið er saman
við hliðstæðar alhuganir, sem blað-
ið hefir framkvæmt síðustu tvö ár-
in. 40% þeirra, sem spurðir voru,
töldu sig vera fylgjandi Verkamanna-
flokknum, en 38% íhaldsflokknum,
en hinir í öðrum flokkum eða utan
flokka. 59% voru óánægðir með
störf stjórnarinnar, 33% ánægðir,
en 8% létu enga skoðun í ljós.
manna í Hafnarfiröi hefir til langs
tíjna tekiÖ virkan þáll í starfsemi
Sjálfstæðisflokksins þar í bænum.
Formaður er Páll Daníelsson.
FRAMSOKN ARBLÖÐIN reyna
enn að telja lesendum sínum trú ujn
að núverandi örðugleikar í atvinnu-
líji þjóðarinnar og gjaldeyrisvand-
rœði eigi rót sína að rekja til ný-
sköþunarinnar, sein hafin var úhdir
joruslu Sjúlfstœðisjlokksins hauslið
1944. Eins og allir muna tóku Franv
sóknarmenn, sem þú urðu utangarðs
við stjórnarmyndunina, upp sömu
afstöðu og kommúnistar nú — að
vera ú móli öllurh rúðstöjunum
stjórnarinnar. Framsóknarmenn voru
þá á móti því að jramleiðslutœki
vœru keypt til landsins svo nokkru
nœmi. Togarakaupin, er ákveðið var
að kaupa 35 nýtízku togara til lands-
ins, jóru sérstaklega í „taugarnar“
á Framsóknarmönnum, sem töldu
þau hina mestu fávizku.
Reynzlan af togarakaupunum, sem
voru einn helzti þáltur nýsköpunar-
innar, er nú þessi: ELLEFU NÝ-
SKÖPUNARTOGARAR HAFA NÚ
Á SKÖMMUM TÍMA FARItí 37
SÖLUFERtílR OG SELT FYRIR
UM 9 MILJÓNIR KRÓNA. „Kald-
bakur“, togari Akureyrar, liefir jarið
5 sölujerðir og selt fyrir tœpar
1.400.000 krónur.
Ej farið liejði verið að ráðum
Framsóknarmanna, œttum við ís-
lendingar nú engan nýjan togara.
Sjómennirnir okkar yrðu enn að
sigla á ryðklúfunum, til þess að færa
björg í búið, er veitir þjóðinni nauð-
sýnlegan gjaldeyri.
„ÞJÓtíVILJINN“ hefir að uiulan-
förnu varið mörgum dálkum af hinu
dýrmœta lesmáli sínu í að verja of-
beldisverk komrnúnista í leppríkjum
Rússa.
„Mjölnir“, lilli bróðir á Siglufirði,
vill ekki láta sitt eftir liggja og birti
nýlega greinarstúf um kosningarnar
í Ungverjalandi, þar sern hann hœlir
þeim á lwerl reipi. Blaðið kemst að
þeirri skoplegu niðurstöðu, að nauð-
synlegt haji verið að handtaka for-
ingja Smábœndaflokksins og ann-
arra andstöðuflokka kommúnista
vegna þess, að það hafi verið œtlun
þeirra að „steypa stjórn landsins
með blóðugri uppreisn og koma ajt-
urhaldsmönnum og fasistum til
valda“. Þessi skýring blaðsins virð-
ist harla brosleg, þar sem vitað er,
að Rússar hafa enn geysijjölmennan
her í landinu, sem án efa hefði okki
verið lengi að bæla niður uppreisn,
enda þótt öll þjóðin liejði staðið að
baki hennar.
STÉTTARÁÐSTEFNUNNI hefir vi
ið frestað um stundarsakir, o
hafa þrjár nefndir veriö kjörm
til þess að athuga ýms gögn, <
ríldssjórnin lagði fyrir ráðstefi
HÁMARKSVERÐ á ísfiski hefir ver-
ið hækkað töluvert í Englandi.