Íslendingur


Íslendingur - 22.10.1947, Side 3

Íslendingur - 22.10.1947, Side 3
Miövikudaginn 22. október 1947 ÍSLENDINGUR 3 Alvktanir fjórðunyspinys fiskideiidanna Krefjast bættrar landhelgisgæzlu og betri hagnýtingar sjávar- afurða 17. fjórðungsiþing fislddeildanna í Norðlendingafjórðungi, sem háí'j var liér á Akureyri um fjTri helgi, gerði margar athyglis- verðar ályktanir auk þeirra, sem birtar voru í síðasta hlaði. Fara ]>ær liér á eftir. Helgi Pálsson, erindreki, skýrði frá því á þinginu, ,að vélstjóranámskeið yrði væntailaga haldið hér á Akureyri í janúar, og sjóvinnunámskeið hefðu verið haldin í nókkrnm ver- .stöðjvum og tekist vel. í framhaldi af ályktun þingsins uin dýrtíðaonál, sem birl var í síð- asta blaði, vílti þingið hina óhóf- legu skriffinnsku, sem væri orðiiln atvinnuvegunum fjötur um fót og taldi nauðsynlegt að fækka því fólki, er fengist við óarðbær störf. ORLOFSLÖGIN. „Vegna þess að orlofsfé er ialið með launum, og því bein kaup- greiðsla, og vitað er að greiðsla á orlofsfé með orlofsmerkjum hefir i för með sér mikinn kostnað fyrir at- vinnurekendur vegna aukins skrif- stofuhalds, þá skorar fjórðungsþing fiskideilda Norðlendingafjórðungs á stjórn Fiskifélags íslands og væntan- legt Fiskiþing, að beita sér fyrir þvi, að lögum um orlof verði breytt þannig, að heimilt sé að greiða or- lofsfé í peningum eins og önnur laun.“ Tillagan samþykkt í einu hljóði. MAT Á FISFISKIPUM. „Fjórðungsþing Norðlendinga- fjórðungs, haldið á Akureyri 11.— 13. okt. 1947, skorar á næsta fiski- þing að taka til athugunar mat það á fiskiskipum, er stofnlánadeild sjáf- arútvegsins við Landsbanka íslands, hefir látið fram fara, og á hverju það byggist að í velflestum tilfellum er matið til lántöku lægra en kostn- aðarverð skipanna. Jafnvel þótt reglugerð - stofnlánadeildarinnar greini frá því að kostnaðarverð skip- anna skuli vera grundvöllur fyrir matsverðinu.“ Samþ. í einu liljóði. VITI Á HRÓLFSSKERl. „Fjórðungsþing Norðlendinga- fjórðungs haldið á Akureyri 11.— 13. okt. 1947, skorar á Fiskifélagið og næstkomandi Fiski|)ing að fá því til vegar komið að á næsta ári verði hafizt handa um vitabyggingu á Hrólfsskeri í Eyjafirði og Lundey á Skjálfanda.“ Greinargerð: Á undanfarandi fjórðungsþingum hafa vilabyggingar þessar verið til umræðu og samþykktar liafa verið einróma áskoranir til Fiskiþings á- samt rökföstum greinargerðum um nytsemi þessara vilabygginga. Enn einu sinni vill Fjórðungsþingið vekja alhygli vitamálastjórnarinnar á mál- efni þessu, og í því sambandi benda á eftirfarandi: Óðurn líður að því, að hafnargerðirnar í Húsavík og Ól- afsfirði og Dalvík verði fullbúnar, og að sjálfsögðu þegar þeim rnann- virkjum er lokið, skapast möguleik- ar fyrir haust- og vetrarútræði á áð- urnefndum stöðum, það eilt ætti að vera nægjanleg rök fyrir nytsemi þessara vitabygginga. Tillagan samþykkt í einu hljóði. RÁDIÖ-VITI Á DALATANGA. „Fjórðungsþing Norðlendinga- fjórðungs haldið á Akureyri 11.— 13. okt. 1947, skorar á Fiskifélagið og Fiskiþing, að fá því til vegar kom- ið að Radio-viti verði settur á Dala- tanga ásainl slefnuvita á Langanestá. Þar sem togaraútvegur er nú að hefjast á Norðurlandi og leiðir tog- aranna liggja með austurströndinni að og frá landinu, telur þingið knýj- andi þörf á góðum lladio-vita á Dala- tanga.“ Tillagan samþykkt í einu hljóði. LANDHELGIN. „Fjórðungsþing Norðlendinga- fjórðungs haldið á Akureyri 11.— 13. okt 1947, skorar á Fiskiþing og Fiskifélagið að beita sér fyrir því, að íslenzka landhelgin verði stækk- uð og uppeldisstöðvar nytjafiskja verði friðaðar fyrir ágangi tog- og dragnótaveiða. Ennfremur að land- helgisgæzlan verði aukin að mun.“ Samþykkl í einu hljóði. FISKIÐNAÐUR. „Fjórðungsþing Fiskideilda Norð- lendingafjórðungs haldið á Akureyri 11.—13. okt. 1947, ítrekar samþykkt síðasta Fjórðungsþings um að ríkið láti byggja og reka verksmiðju til niðursuðu og niðurlagningar síldar, ásamt hraðfrystihúsi í Norðlendinga- fjórðungi, á þeirn stað, sem rann- sókn leiðir í ljós, að hentugt sé að dómi sérfróðra manna. Ennfremur að ríkið styrki einstaklinga og félög lil að koma upp iðnfyrirtækjum, sem unnið geti úr þeim fiskúrgangi, sem nú fellst til í hraðfryslilmsum og við aðgerð á fiski annars staðar, en sem nú er fleygt með ærnum kostnaði.“ Tillagan samþykkt í einu hljóði. AFNEMA FISKIMALANEFND. „Fjórðungsþingið telur enn sem fyrr, að eðlilegast og hagkvæmast verði á hverjum tíma að starfsemi í þágu sjávarútvegsins verði rekin undir áhrifum útgerðarmanna og sjómanna. Vill fjórðungsþingið því skora á Fiskiþing og stjórn Fiski- félagsins að hlutast til um við Al- þingi og ríkisstjórn, að starfsemi og störf Fiskimálanefndar verði fært undir yfirstjórn Fiskifélags íslands.“ Tillagan samþykkl í einu hljóði. VERBÚÐIR. „Fjórðungsþing fiskideilda Norð- lendingafjórðungs, haldið á Akur- eyri 11.—13. okt. 1947, telur bráð- nauðsynlegt að byggðar verði sem fyrst verbúðir í hinurn ýmsu ver- stöðvum á Norðurlandi, séfstaklega þar sem hafnarskilyrði og aðstæður til fiskveiða fyrir landróðrarbáta eru góðar, og skorar á Fiskifélagið að veila einstaklingum og félögum sem bezta aðstoð við útvegun styrkja og lána til slikra bygginga. Ennfremur skorar fj órðungsþing- ið á væntanlegt Fiskiþing og stjórn Fiskifélagsins, að hlutast til um við heilbrigðisyfirvöldin, að strangt eft- irlit verði haft með því, að verbúðir þær, sem nú eru til, uppfylli að minnsta kosli þær lágmarkskröfur, sem gerðar eru til jnannabústaða, -— og eru þá sérstaklega hafðar i huga verbúðir við Faxaflóa.“ SALA SJÁVARAFURÐA. „Fjórðungsþing fiskifélagsdeilda Norðlendingafjórðungs, haldið á Ak- ureyri 11.—13. okt. 1947, skorar á ríkisstj órn íslands að gera nú þegar fullnægjandi ráðstafanir til að tryggja afsetningu og sölu á fisk- afla vélbátaflotans í Norðlendinga- fjórðungi, t. d. með því að sjá um að fiskflutningaskip kaupi aflann eða taki við honum íil flutnings til sölu á erlendum markaði, þó þannig, að þeir, sem afla fiskjarins, fái hið ríkistryggða lágmarksverð fyrir hann, svo veiðar geti hafizt án frek- ari tafar. Vill Fjórðungsþingið, í sambandi við flutninga á ísvörðum bátafiski, benda á nauðsyn þess, að reynt verði að vinna á ný markað fyrir þá framleiðslu á meginlandi Evrópu. Ennfremur skorar Fjórðungsþing- ið á ríkisstjórnina að gera nú þegar ráðstafanir til að útvega hagstæðan markað fyrir útflutningsfranileiðslu sjávarafurða, þeirra er óseldar eru af þessa árs framleiðslu og átelur hve seint var hafizt handa um sölu á þessa árs framleiðslu. Að lokum vill Fjórðungsþingið benda á, að það telur sjálfsagt að fulltrúar framleiðenda fái íhlutun- arrétt um sölu á framleiðsluvörum þeirra.“ Samþykkt í einu hljóði. VÁTRYGGING VÉLBÁTA. „Nefndin telur að lög um vátrygg- ingu vélbáta, sem samþykkt voru á síðasta Alþingi, séu svo gölluð og óhagstæð fyrir eigendur bátanna, að ekki verði við unað. Nefndin leggur því til að fjórð- ungsþingið samþykki eftirfarandi: Fjórðungsþingið skorar á stjórn Fiskifélagsins að beila sér fyrir því að Alþingi það, er nú silur, tali lög um Vátryggingu vélbáta til endur- skoðunar og breyti þeim til samræm- is við iillögur tryggingarmálanefnd- ar síðasta Fiskiþings, svo og sauv þykktar aðalfundar Vélbátatrygging- ar Eyjafjarðar frá 10. okt. 1947.“ Tillagan samþykkt í einu bljóði. STJÓRNARKOSNING. I stjórn sambanda fiskideildanna voru kosnir: Aðalstjórn: Sigurvin Edilonsson, formaður Guðm. Guðmundsson, ritari Valtýr Þorsteinsson, gjaldkeri. Varastjórn: Hreinn Pálsson, varaform. Egill Júlíusson, vararitari Magnús Gamalíelsson, varagjaldk. Endurskoðendur voru kosnir þeir Guðmundur Pétursson og Guðmund- ur Jörundsson. Þingið gerði nokkrar ályktanir urn félagsmál fiskideildanna og Fiski- félagsins og eru þær ekki birtar hér. Ungiingar eða eldri maður óskast við blaðaútburð. — Tal- ið við afgreiðslu Islend- ings. Sími 354. Stoía til leigu í Norðurgötu 50. Sigfús Grimssoií. ©©©©©«©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©< Dráttarvextir falla á öll ógreidd útsvör í Akureyrarkaupstað, ef eigi er greitt fj7rir 1. nóvember næstk. Dráttarvextir eru 1% á mánuði og reiknast frá upphaflegum gjald- dögum útsvarsins. Þá eru allir þeir, er vinnulaun greiða, áminntir um að gæta þeirrar skyldu að halda eftir af vinnulaun- um til lúkningar ógreiddum útsvörum starfsmanna og gera skil á hinum innheimtu upphæðum jafnóðum til skrifstofu bæjargjaldkera. Dráttarvaxtaákvæðin ná eigi til þeirra launþega, er greiða útsvör sín mánaðarlega af kaupi. Akureyri, 20. okt. 1947 BÆJARGJALDKEm. Námskeið bifreiðastjöra á Akureyri Þeir bifreiðastjórar á Akureyri og nágrenni, er sótt hafa um námskeið það, er hefst 28. þ. m. eru beðnir að mæta í bifreiðaefíirlitinu n. k. fimmtu- dag, 24. þ. m. eða gera vart við sig í síma 570. — SNÆBJÖRN ÞORLEIFSSON. Aðalfundur % Ræktunarfélags Norðurlands verður haldinn í Gróðrarstöðinni á Akureyri laugar- daginn 8. nóv. n. k. og hefst kl. 1 e. h. Stjórnin.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.