Íslendingur - 22.10.1947, Page 8
2
HERBERGI
til leigu, lítið herbergi til
eldunar getur fylgt.
A. v. á.
Miðvikudaginn 22. október 1947
I. 0. 0. F. — 12910248Va — 9—0.
□ Rún — 59471027 .... Atkv. : —1
Sunnudagaskóli /t/cureyrarkirkju kl. 11
, n
MessaS verður í Lögmannshlíð n. k.
sunnudag kl. 2. Að lokinni guðsþjónustu
verður safnaðarfundur.
Æskulýðsjélag Akureyrarkirkju. Á fundi
fermingarbarna frá síðastliðnu vori, sem
haldinn var í kapellu kirkjunnar sl. sunnu-
dag, var stofnað Æskulýðsfélag Akur-
eyrarkirkju. Voru stefnendur 108. Fram-
haldsstofnfundur var ákveðinn, og verður
hann auglýstur síðar.
Nýlátin er hér á Akureyri frú GuSný
GuSfinnsdóttir, kona Egils Jóhannssonar,
skipstj. Lézt hún 16. þ. m., eftir langa van-
heilsu. Þessarar merkiskonu verður nán-
ar minnst síðar hér í blaðinu.
Sextug varð sl. sunnudag frú Ásdís
Rafnar, kona séra Friðriks J. Rafnar,
vígslubiskups. Frú Asdís hefir tekið mik-
inn þátt í félagsmálum kvenna hér í bæn-
um og er einkum kunn fyrir störf sín í
Kvenfélagi Akureyrarkirkju. Hún nýtur
mikils trausts og vinsælda, enda er hún í
hvívetna hin mesta sæmdarkona og hefir
reynst manni sínum mikil stoð í hans
þýðingarmikla starfi.
Fimmtugur verður þann 25. þ. m. Pétur
Björnsson, kaupmaður á Siglufirði.
Fertugur varð s. 1. laugardag Jóstein
Sölvberg, verksmiðjuverkstjóri á Hjalteyri.
Hjúskapur. Þann 16. okt. sl. voru gefin
saman í hjónaband af séra Friðrik J.
Rafnar, vígslubiskupi, ungfrú Guðrún Jóna
Jónsdóttir og Arni Björgvin Jósefsson,
vélstjóri.
Hjúskapur. Sl. sunnudag voru gefin
saman í hjónaband í Síðumúlakirkju í
Borgarfirði, ungfrú Ellen L. Rasmussen,
Sólbakka í Stafholtstungum, og Sverrir
Pálsson, cand mag., Akureyri. Ungu hjón-
in setjast að hér á Akureyri og kennir
Sverrir við Gagnfræðaskólann og lðnskól-
ann í vetur. L ,
HjálprœSisherinn, Akureyri. Sunnud. 26.
okt. kl. 11 helgunarsamkoma. Kl. 2 sunnu-
dagaskóli. KI. 8.30 fagnaðarsamkoma fyr-
ir kaptein Henny Driveklepp og aspirant
Guðfinna Jóhannesdóttir. Mánudag 27.
okt. kl. 4 heimilissambandið. Kl. 8.30
æskulýðsfélagið. Allir hjartanlega vel-
komnir.
LeiSrétting. I hjónaefnafrétt í síðasta
blaði misritaðist heimilisfang Maríu Ás-
grímsdóttur. Hún er frá Hálsi en ekki Hóli.
Barnastúkurnar Bernskan og Sakleysið
halda sameiginlegan fund í Skjaldborg
næstkomandi sunnudag kl. 10 f. h. Rætt
verður um vetrarstarfið. Kosnir embættis-
menn. Á eftir verður sýnd stutt kvikmynd.
Mætið öll! Verið stundvís!
Gœzlumenn.
Frá starjinu í Zíon. Annað kvöld -—
fimmtud. — fundur fyrir ungar stúlkur.
Sunnud. kl. 10.30 f. h. sunnudagaskóli, kl.
8.30 e. h. almenn samkoma. Frk. Lefdal
kristniboði talar. Allir velkomnir.
Aheit á Akureyrarkirkju: kr. 50.00 frá
Á. E., kr. 100.00 frá E. Ó. — Þakkir. Á. R.
Kvennadeild Slysavarnarfélagsiris heldur
sinn fyrsta málfund í Rotarysal KEA
föstudaginn 24. þ. m. ki. 9 e. h. Félags-
konur mætið allar. — Stjórnin.
KvenjélagiS „Framtíðin“ heldur fund
n. k. föstudagskvöld, 24. þ. m., kl. 8.30 í
Samkomuhúsinu (bæjarst jórnarsalnum)
Mætið allar og stundvíslega. — Stjórnin.
Frá Barnaskólanum. Vegna ýmiss konar
erfiðleika, sent af því stafa, er skólabörn-
in týna skófatnaði og fleiru, eða taka í
misgripum, eru foreldrar beðnir að sjá um,
að allur skófatnaður barnanna sé greini-
lega merktur, svo og húfur, vetllingar og
annað það, sem börnunum hættir helzt til
að týna. Jafnframt ertt foreldrar beðnir að
láta börn sín ætíð spyrja eftir týndum
munum í skólanum.
BlaSiS hefir verið beðið að geta þess,
að viðtalstími skólastjóra Barnaskölans er
kl. 1—3 alla virka daga.
Stúkan Isafold—Fjallkonan nr. 1 held-
ur fund næslk. mánudag 27. þ. nt. kl. 8.30
síðd. í Skjaidborg. Fundarefni: Inntaka
nýrra félaga. — Kosning embættistnanna.
— Sagðar fréttir af umdæmisstúkuþingi
o. fl. Til skemmtunar: Gunnlaugur Sveins-
son segir sögur af Vestfjörðum o. f 1., sem
verðttr nánar auglýst á götunum. Nýir fé-
Iagar alltaf velkomnir. Félögum barna-
stúknanna, sem orðnir eru 14 ára og hætt-
ir eru að starfa í barnastúkunum, er sér-
staklega boðið að koma og ganga i stúk-
una. Félagar fjölmennið!
Barnastúkan Samúð heldur fyrsta fund
sinn á þessu hausti næstk. sunnudag kl.
1.30 í Skjaldborg. Fundarefni: lnntaka
nýrra íélaga. — Rætt um vetrarstarfið. •—
Kosnir embættismenn. ■— Kosnir flokks-
stjórar. — Skemmtiatriði. — Mjög áríð-
andi er, að sem flestir félagar mæti. Nýir
félagar velkomnir.
FerSajélag Akurcyrar heldttr skemmti-
fund n. k. fimmtudag kl. 8.30 að Hótel
Norðurlandi. Kvikmynd frá Heklu o. fl.
— I fttndarbyrjun verða lagðir fram reikn-
ingar félagsins fyrir árið 1946.
VinnusíofusjóSi Kristneshælis ltafa bor-
izt þessar gjafir: Til minningar um Berg-
þóru Randversdóttur, Munkaþverárstræti
26, Akureyri, frá systkinum hennar, kr.
1000.00, K. S. kr. 50.00, N. N kr. 30.00,
Anna Laxdal til ntinningar um Elinór Jó-
hansson, Akureyri, kr. 1000.00, Friðjón
Jensson, Akureyri, kr. 10000.00. •— Beztu
þakkir. -— Jónas Rafnar.
Ný bók jrá NorSra: Rússneska liljóm-
kviSan, verðlaunasaga í bókmenniasam-
keppni Sameinuðu þjóðanna, lilaut að
vonum mikla frægð þegar hún kom út í
Englandi. Var það bæði, að verðlaun
þessi frá hálfu þeirrar stofnunar er stríðs-
þjáður heimur hefir bundið mestar vonir
við hin síðari ár, átti þar hlut að máli um
viðurkenningu og eigi síður hitt, að þessi
saga ber á sér snilldarbragð. Efnið sjálft
er sótt í æviferil hins rússneska tónskálds
Alexis Selkin og í baksýn sögunnar grein-
ir marga af hinttm frægustu listamönnutn-
Rússa á 19. qldinni, svo sem Rimsky Kor-
sakoff og Mttssorgsky. Meðferð efnisins
og form er nýstárlegt, sniðið eftir tón-
Jarðarfö'- sonar okkar og jiróðut
Sverrir Jónassonar frá Bandagerði
fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudagirm 28. okt. n. k.
kl. 1 e. h.
Foreldrar og systkini.
iioni
hefir sníðanámskeið í vinnustofu sinni ef nægileg þát(>
taka fæst, á tímabilinu frá og með 29. þ. m. til 6. des.—
Alls 30 tímar. Námstíminn er 2—3 klst., miðvikudags-
og laugardagskvöld. Kennari Valborg Sigurðardóttir.
Upplýsingar í síma 488, kvölds og morgna, hjá for-
manni félagsins, Halldóru Bjarnadóttur.
SkOmmtunarskrífstofa
rílcisins og
verðíagseftirlitið
liafa opnað slcrifstofu í verzlurlárhúsi Tómasar
Björnssonar vtð Kaupvangsstræli, 2. Itæð, herliergi
nr. 6.
Skömmtunarskrifstofan er opin kl. 10—12 og 1—5
nema laugardaga 10—12 og 1—4.
Verðlagseftirlitið opið kl. 11—-12 og 1—2. Ekki
opið á laugardögum fyrst um sinn.
Helgi Pólsson
trúnaðarmaður skömmtunarstjóra.
Gunnlaugur Stefánsson
trúna ðarma ður verðl agsstj óra.
Sími 83
Bændur
Getum útvegað nokkrar
mjaltavélar
með benzínmótor, ef samið er strax.
Verzlunin Eyjaf jörður h. f.
Vetrarstfllka
óskast hálfan eða allan
daginn. Gott kaup í boði.
Vilji einhver sinna þessu,
væri æskilegt að það væri
sem fyrst.
H. Einarsson, myndasmiður.
ODYRT
HEBBEKGI
til leigu.
A. v. á.
verki Serkins, syinfoniu í c-moll, liinu eina
verki hans, er umheimurinn þckkir af
ráði. — í lífi Serkins er franska leikkon-
an Janina l.oraene örlagavaldur. Um sam-
búð þeirra hefir höfundur skapað stór-
hrotna ástarsögti, fíngerða og djarflega í
senn.
Þessi glæsilega verðlaunasaga er nýkom-
in út hjá Norðra í þýðingu Hersteins Páls-
sonar ritstjóra.
Vetrarfrakkar — Rykfrakkar
Karlmannaföt — Kvenkápur og
kjólar — margt sem nýtt. —
Allt án skömmtunarmiða.
SÖLUSKÁLINN við Geislagötu
peningjapyngja með pening-
um og merktum skömmtunar-
seðli. Finnandi vinsaml. skili
á afgr. íslendings gegn fund-
arlaunum.
Karlmannaskjrtur
hvítar,
mjög vandaðar.
Verzl.
Eyjaf jörður h.f.
NÝKOMIÐ:
Kápur kvenrta
Karlm.frakkar
Plastic-kápar
Undirföt'
Kvenbuxur
Kvensokkar
alsilki og gervisilki
Gardínuefni.
Verzl.
Eyjaf jörður h.f.
Oliufatnaður
mjög ódýr,
nýkominn.
LerzL Eyjaf jörðurhf.
Ferðatöskur.
fást nú hjá
Verzl
Eyjafjörður h.f.
Olíuoínar
tveggja brennara
fást hjá
Verzl.
Eyjafjörður hf.
Nokkrir menn
geta fengið fæði. Hentugt
fyrir fólk, sem vinnur á
Verksmiðjunum á Gler-
áreyrum og þar í grend. —
A. v. á.
féfé'yi,',',',',',',',',j
MÓTA MYNDIR
eftir lifandi model, ljósmynd
og einnig hugmynd. Hentugt
til minningargjafa. — Sann-
gjarnt verð. —- Til viðtals á
Staðarhóli milli kl. 3—-4.