Íslendingur - 05.11.1947, Síða 1
z^Sigurður Guðmundsson, skó/ameistari, og Menntaskó/inn á Akureyri
Blaoið birtir hér mynd af Sigurði Guðmunds syni, skólameistara, við hliðina á mynd af húsi
Menníaskólans. Hæfir það vel, því að Sigurður Guðmundsson hefir um aldarfjórðungsskeið
mótað það menningarstarf, sem unnið hefir verið innan veggja þessa skóla. 1 þau 20 ár,
sem M. A. hefir starfað sem stúdentaskóli, hefir Sigurður Guðmundsson útskrifað þaðan
568 stúdenta.
MENNTASKÓLINN Á
AKUREYRI 20 ÁRA
Menntaskólinn á Akureyri minnt-
isl þess meS afmælishófi í Samkomu
húsi bæjarins sl. miðvikudagskvöld,
að 20 ár eru nú liðin síðan skólinn
lilaul réttindi til að útskrifa stúdenta.
Var húsið þétt skipað nemendum
skólans og ýmsum boðsgestum. Skóla
meistari, Sigurður Guðmundsson,
stjórnaði samkomunni, en aðal-
ræðuna flutti Brynleifur Tobíasson,
menntaskólakennari. Er ræða hans
birt á öðrum stað í blaðinu.
Ýmsir fleiri tóku þarna til máls;
færðu skólanum árnaðaróskir og
þökkuðu skólameistara frábærl starf
í þágu skólans og menningarmála
þjóðarinnar yfirleitt. Vígslubiskup,
Friðrik j. Rafnar, minntist á þá
miklu erfiðleika, sem nemendur að
norðan hefðu áll við að stríða, áður
en M. A. hlaut stúdentsskólarétlindi.
Þorsteinn M. Jónsson, forseli bæjar-
stjórnar, ræddi um gildi skólans fyr-
ir bæjarfélagið. Einar Árnason frá
Eyrarlandi minntist einkum starfs
skólameistarafrúarinnar. Grímur
Helgason, nemandi í 6. bekk, færði
skólanum og skólameistarahjónun-
um árnaðaróskir nemenda. Að lok-
um talaði skólameistari.
Eftir að staðið var upp frá kaffi-
drykkju, sýndi Edvard Sigurgeirs-
son snilldarfallega og vel tekna mynd
af Heklugosinu. Síðan var dansað
fram eftir nóttu.
KALDBAKIJR HEFIR SELT
FYRIR 1,7 MILJ.
Síðastliðinn miðvikudag seldi
„Kaldbakur“ sjöunda farm sinn i
Bretlandi, 4406 kits fyrir 12.009
sterlingspund. Hefir þá togarinn selt
fyrir samtals 1.7 milj. kr.
ÓFARIR ALÞÝÐUFLOKKS
INS í BRETLANDI
Orslit aukakosninga til bæj-
arstjórna í Englandi um síð-
ustu helgi liafa vakið mjög
mikla athygli. Verkamanna-
flokkurinn tapaði feikimiklu
fylgi og 641 sæti í samtals
390 bæjarstjórnum. Ihalds-
flokkurinn tvöfaldaði full-
trúatölu sína og vann sam-
tals 614 sæti. Kommúnistar
töpuðu 46 sætum, en frjáls-
lyndir unnu nokkur sæti. —
Óháðir frambjóðendur náðu
fleiri kosningu en síðast. —
Brezka útvarpið komst svo
að orði um kosningar þessar,
að þær hefðu verið „skriða
til hægri“. Virðist brezka
þjóðin ekki vera eins hrifin
af þjóðnýtingaráformum
stjórnarinnar eins og Alþýðu
flokksmenn hér heima vilja
vera láta.
Kantðiór flkureyrar
minnist 15 ára starfs.
Kantötukór Akureyrar minnt
ist, 15 ára afmælis síns sl. sunnu
dag með flutningi „Strengleika"
óratorio Björgvins Guðmunds-
sonar. Var verkið flutt í Nýja
Bíó. Húsið var fullskipað og
kórnum og söngstjóranum mjög
fagnað. Var enda allur flutning
ur verksins stórbrotinn og hríf-
andi.
Á sunnudagskvöld hélt kór-
inn afmælishóf að Hótel Norð-
urland. Voru þar margar ræður
fluttar og kórnum og tónskáld-
inu, Björgvin Guðmundssyni,
færðar margar árnaðaróskir og
þakkir fyrir ómetanlegt menn-
ingarstarf. Kórinn og einsöngv-
arar hans sungu nokkur lög úr
„Strengleikum". Kórnum bár-
ust mörg heillaskeyti og voru
þau lesin upp á samkomunni.
SAMKOMA SÁLFSTÆKIS,-
FÉLAGANNA Á SAUÐÁR-
KRÓKI.
Sjálfstæðisfélögin á Sauðár-
króki efndu til kvöldskemmtun-
ar í samkomuhúsinu „Bifröst"
sl. laugardagskvöld. Hófst sam-
koman með sameiginlegri kaffi-
drykkju. Eysteinn Bjarnason,
forseti bæjarstjórnar, setti sam-
komuna og stjórnaði henni. —
Ræður fluttu þeir Jónas G.
Rafnar, formaður fjórðungs-
sambands ungra Sjálfstæðis-
manna, og Magnús Jónsson, rit-
stjóri. Flokkur karla og kvenna
skemmti með söng. Undirleik
annaðist frú Sigríður Auðuns.
Að lokinni káffidrykku var stig
inn dans. Safhkoman var fjöl-
sótt.
Mikill áhugi er ríkjandi með-
al Sjálfstæðismanna á Sauðár-
króki, enda hafa þeir góðum
l'orustumönnum á að skipa. —
Unga fólkið hefir þar ötullega
stutt Sjálfstæðisflokkinn.
ÓGNARÖLDIN í Austur-Ev-
rópu heldur áfram. Bændaleið-
toginn Maniu í Rúmeníu hefir
verið handtekinn, aðalieiðtogi
pólska bændaflokksins flúið
land og einnig aðalleiðtogi ung-
versku stjórnarandstöðunnar.
Lýsisskemmdirnar í Krossanesi
eru að kenna verkfalli
kommúnista
VIDRKAMAÐURINN flytur nú síðast mikla vandlætingargrein
um skeiisimdir á lýsi Krossanesverksmiðjunnar. FljTur blað ð
eiiiiiig stóryrtar árásir á ríkissíjórnina og ýmsa opinbera aðOr.
fyrir fjandskap við verksmiðjuna. Einnig gefur blaðið í skyn, nð
v'arksmiðjustjóri hafi ekki staðið í stöðu sinni. Öll frásögn „Verka-
mannsins“ er þannig, að þar ©r naumast rétt farið með nokíturt
atrið*. Er sú framkoma í góðu samræmi við fyrri afstöðu komm-
únista til vcrksíniðjunnar og virðist miða að því einu að spilla
fyrir þessu fyrirtæki bæjarins. Fer Iiér á eftir athugasemd meiri
Iiluta verksmiðjustjórnarinnar við þessa furðul'egu frásögn komm-
únistablaðsins.
í tilefni af grein sem birtist í blað-
inu Verkamaðurinn hinn 31. október
sl. uni sölu á síldarlýsi frá Krossa-
nesverksmiSjunni, óskar meiri hluti
stjórnarnefndar verksmiSjunnar aS
taka fram eftirfarandi:
1. Samkvæmt efnarannsókn sem
gerS var hjá Atvinnudeild Háskól-
ans hinn 7. okt. 1947, reyndist sýru-
2. í fyrrgreindri grein er áætlaS
aS tjórí verksmiSjunnar muni verSa
kr. 170000.00 vegna hins ofháa sýru-
magns. Þetta er fjarri öllum sann-
leika, eins og nú skal sýnt fram á:
FramleiSsla verksmiSjunnar á
síldarlýsi mun vera 1150 tonn og er
verSiS til Bretlands £ 95 f. tonniS,
1150 tonn á kr. 2473.55 ...................... kr. 2850.332.50
Frádráttur vegna of mikils sýrumagns, 5,7%
— 3,5% (sem það má vera mest samkv. samn-
ingum) 2,2% af kr. 2850.332.50 ............. — 62.707.32
magn síldarlýsis sem framleitt var i
verksmiSjunni sl. síldarvertíð vera
5,7%. MeginástæSan fyrir því að
sýrumagnið er svo mikið er sú, að
síidin var orðin of gömul þegar hún
var tekin til vinnslu. Vegna verkfalls-
ins við undirbúningsvinnu við verk-
siniðjuna sl. sumar varð verksmiðj-
an ekki tilbúin til síldarvinnslu fyrr
en 26. júlí sl. En vegna samninga
sem verksmiðjan hafði gert við skip
um löndun, varS að liyrja að taka á
móti síld í verksmiðjuna hinn 15.
júlí sl. og bárust vérksmiðjunni á
tímabilinu frá 15. júlí til 1. ágúst
tæp 34 þús. mál síldar, eða meginið
af því sildarmagni sem verksmiðj-
unni barst sl. sumar. Ekki lókst að
bræða í verksmiðj unni fyrrgreint
tímabil nema 14 þúsund mál síldar.
OrsakaSisl þessi lága framleiðslugela
verksmiðjunnar þelta tímabil af
byrjunarerfiðleikum við bræðsluna
sem ekki urðu yfirunnir fyrr en
komið var fram í ágúst, og varð því
mikið af síldinni að liggja í þrónum
2—3 vikur áður en hún var tekin til
vinnslu, er hér að finna aðalástæð-
una fyrir hinu háa sýrumagni í lýs-
inu. Auk þess eru síldarþrærnar of
lílið hólfaðar sundur og geyma því
silflina verr en ella mundi.
Astæða fyrir skekkju þeirri sem
varð við ákvörðun á sýrumagni í
lýsinu meðan á framleiðslu þess
stóð liefir að fullu verið skýrð fyrir
stjórninni og breytir engu um ástand
lýsisins við útskipun þess.
Þá skal það tekiS fram aS verk-
smiðjan mun verða aðnjótandi verð-
jöfnunar af því lýsi sem selt kann
að verða utan brezku og rússnesku
sa>mninganna fyrir hærra verS en
þeir samningar ákveða, hvort heldur
það lýsi verður selt til Tékkoslóvakíu
eða annarra landa og kemur sú verð-
hækkun öllum verksmiðjum til góða
í lilutfalli við framleiðslumagn hverr-
ar verksmiðju.
3. Ut af ummælum greinarhöfund-
ar um „fjandskap stjórnarvalda í
garð Krossanesverksmiðj unnar“ viil
stjórnarnefndin taka fram að þessi
ummæli eru mjög ómakleg og eiga
enga stoS í veruleikanum. Hið rétta
er að málefni verksmiðjunnar hafa
frá upphafi mætt mikilli velvild og
skilningi og hún hefir fengið hina
beztu afgreiðslu á öllum málum, þeg-
ar þurft hefir að leita til opinberra
sljórnarvalda hennar vegna, svo sem
hlutaðeigandi ráðherra, Nýbygging-
arráðs, Landsbanka lslands, og nú
síðast Fjárhagsráðs, og er því síður
en svo að yfir neinu sé að kvarta
útaf viðskiptum verksmiðjunnar við
stjórnarvöld landsins.
Akureyri 3. nóv. 1947
Guðm. Guðlaugsson. Jón Sólnes.
(sign) (sign)
Jón M. Arnason. Steinn Steinsen.
(sign) (sign)
Verkamenn — munið atvinnu
leysisskráninguna á Vinnumiði-
unarskrifstofunni alla þessa
viku, kl. 2—6 e. h.