Íslendingur


Íslendingur - 19.11.1947, Qupperneq 1

Íslendingur - 19.11.1947, Qupperneq 1
XXXIII. irj. ss Miðvikudagur 19. nóvember 1947 45. tbl. Kommúnistar vilja láta allan islenzkan verkalýð lúta fámennri kliku í Rvik Verkalíísfélög þau. sem sýndu í sumar áhyrqí- artilflnnlngu gagnvart þjóöfélagiuu, sæta ákúr- um á þingi Alþýðnsambandsius Hinn kommúnistiski meiri hluti í Alþýðusambandi íslands kallaði fyrir nokkru saman Alþýðusambandsþing í Reykjavík. Sögðu þeir þingið eiga að ræða vandamál jjjóðarinnar. Mátti óneitanlega gera ráð fyrir, að þau voldugu samtök hefðu eitthvað inerkilegt til þeirra mála að leggj a, en begar til kom, var binginu aðeins ætlað- bað hlutverk að taka undir hinar fjarstæðu og ábyrgðarlausu ályktanir kommúnistaþingsins, sem háð var rétt áður. Er það enn, glöggt dæmi þess, hversu kommúnistar nota samtök verkalýðsins sem verkfæri í óheillastarfsemi sinni. Einar Arnason lótinn. Einar Árnason, bóndi á Eyrar landi, fyrruin ráðherra og aljim. lézt að heimili sínu að morgni sl. föstudags, tæplega 72 ára að aldri. Bar andlát hans mjög snöggt að. Einar Árnason er fæddur 27. nóv. 1875 á Hömrum við Akureyri. For- eldrar hans voru Árni Guðmunds- son, bóndi á Hömrum og síðar á Evrarlandi, og kona hans Petrea Jónsdóttir frá Ytra-Laugalandi. — Einar varð gagnfræðingur frá Möðruvallaskóla 1893 og stundaði síðan barnakennslu í sex ár. Hann hóf búskap á Eyrarlandi 1899 og hefir síðan búið þar miklu rausnar- búi. Hann hefir gegnt mörgum trún- aðarstörfum fyrir hrepp og sýslu, en í félagsmálum hefir hann mest unnið í þágu samvinnuhreyfingar- innar. Hann hefir verið í stjórn KEA frá 1906 og formaður þess frá 1917. Þá hefir hann um langt skeið átt sæti í stjórn SÍS og verið formaður þess síðan 1936. Forseti Landsbankanefndar hefir hann ver- ið síðan 1937. Fjármálaráðherra var hann 1929—1931 og þingm. Éyfirð- inga 1916—42. Á alþingi hlaut hann ýms trúnaðarstörf, var m. a. for- seli efri deildar um langt skeið. — Hann var kvæntur Margréti Eiríks- dóttur frá Hallanda á Svalbarðs- strönd. Einar Árnason hefir jafnan lagt sig fram um Jiað að vinna héraði sinu og þjóð sem mest gagn, og er að honum mikil eftirsjá. Simvinnu- hreyfingin missir hér einnig einn allra ötulasta og drenglyndasta for- ustumann sinn. STJÓRN K. A. í síðasta blaði var skýrt frá aðal- fundi Knattspyrnufélags Akureyrar, en blaðinu var þá ekki fullkunnugt um, hvernig stjórn þess væri skipuð, en hana skipa, auk formannsins Halldórs Helgasonar: Ófeigur Eiríksson, varaform., Björg Finn- bogadóttir, ritari, Jóhann Ingimars- son, gjaldkeri, og meðstjórnendur Sigurður Steindórsson og Einar Einarsson. Spjaldskrárritari er Árni Árnason og áhaldavörður Reynir Vilhjálmsson. Formaður frjáls- íþróttanefndar er Marteinn Friðriks- son, formaður handknattleiksnefnd- ar Ragnar Sigtryggsson, og form. tennis- og badmintonnefndar Har- aldur Sigurgeirsson. Missögn var það í síðasta blaði, að félagið yrði 25 ára á þessum vetri. Það verður 20 ára. Samþykktir þessara tveggja þinga, sem kommúnistar hafa stjórnað, mót- ast af slíku ábyrgðarleysi, að marga mun undra, að kommúnistar skuli leyfa sér að láta þær frá sér fara. Það er sameiginlegt einkenni allra ályktana jiessara þinga, að þeim er ætlað að ganga í augu fólks, sem lít- ið hirðir um að krefja mál til mergj- ar, en sem betur fer er það mikill minni hluti þjóðarinnar. Kröfunum á að halda áfram. Komtnúnistar heimta nýtt ábyrgðarverð á útflutn- ingsvörur landsmanna, sem myndi baka ríkissjóði 80—100 milj. kr. út- gjöld. Ekki gera Jieir sér það ómak að benda á, hvar eigi að fá Jiað fé. Þeir heiinta öryggi gegn atvinnuleysi og að framleiðsla þjóðariimar verði tryggð, eu telja Jdó sjálfsagt að gera auknar kröfur, er enn myndu auka dýrtiðina, sem er að sliga alla at- vinnuvegi og skapa atvinnuleysi. Þeir heimta lækkaðan viðgerðar- kostnað skipa, en heimta jafnframt hærra kaup handa þeim mönrium, sem vinna að skipaviðgerðum. Með þessu marki eru allar álykt- anir Aljiýðusambandsjiingsins. Þann- ig gera kommúnistar Jiing þessara heildarsamtaka verkalýðsins, sem liann treystir á til forustu um hags- munamál sín, að ábyrgðarlausri skripasamkomu. AljDýðusamband Suðurlands. En það var fleira, sem gerðist á þessu þingi og staðfestir, hversu öm- urlega verkalýðssamtökin eru á vegi stödd undir forustu kommúnista. Þingið neitaði Alþýðusambandi Suðurlands um viðurkenningu, af því að Reykjavíkurfélögin, sem kommúnistar stjórna, en hafa algera sérstöðu, voru ekki látin vera þar með. Ástæðan var þó auðvitað fyrst og fremst sú, að kommúnistar ráða ekki hinu nýja sambandi. Þá notuðu kommúnistar Jiingið til heiftarlegra árása á þau sambands- félög, sem neituðu að eiga hlutdeild í tilræði kommúnisla við atvinnulíf þjóðarinnar sl. vor. Karlakórinn Geysir minntist 25 ára starfsferils með afmælistónleik- um í Nýja Bíó síðastliðinn sunnu- dag. Kórinn flutti í þetta sinn ýms lög, sem liann hefir áður flutt. Var hæði val viðfangsefna og meðferð þeirra með ágætum. Var söng kórs- ins enda mjög vel fagnað, og varð hann að endurlaka flest lögin og syngja aukalag. Kórinn söng lög eftir ýmsa er- lenda höfunda og eitt lag eftir Björg- vin Guðmundsson. Fegursta lagið sem kórinn söng, var án efa Píla- grímskórinn eftir Wagner, en ann- ars var naumast hægt að gera upp á milli laganna. Tvö einsöngslög voru á dagskránni: Norrönafolket eftir Grieg, einsöngvari Hermann Stefánsson, og Þökk fyrir kossinn eftir ójjekktan höf., einsöngvari Jó- hann Guðmundsson. Var söngur beggja ágætur. Ingimundur Árna- son stjórnaði kórnum af sinni al- kunnu leikni, og lét kórinn sýnilega vel að stjórn hans. Mun J>að ekki ofmælt, að Ingimundur sé í fremstu röð íslenzkra söngstjóra. BIFREIÐARSTJÓRI SLASAST Það slys varð á bifreiðaverkstæði BSA hér í bænum fyrir helgina, að Valtýr Jónsson, bifreiðarstjóri, féll niður af lyftu þeirri, sem notuð er til að lyfta bifreiðum frá jörðu, er unnið er að hreinsnn Jjeirra eða við- gerð að neðan. Hafði bifreið Valtýs verið lyft urn það bil mannhæð frá jörðu, en Valtýr sat inni í bifreið- inni og var að hreinsa Jjar eitthvað. Mun hann hafa gleymt því, að bif- reiðinni hafði verið lyft svo langt frá jörðu og steig á hlið út úr henni. Féll hann á höfuðið niður á steingólfið. Var hann þegar fluttur í sjúkrahús. Lá hann lengi rænu- laus, en er nú kominn til meðvitund- ar og líður eftir atvikum sæmilega. Ekki er blaðinu kunnugt um, hversu meiðslin eru mikil, enda mun Jiað ekki fullljóst enn. Eftir aldarfjórðungsstarf sitt hef ir Karlakórinn Geysir unnið sér vinsældir og álit, ekki aðeins hér í bæ, heldur um allt land. Er })að að vonum, Jjví að fjör og þróttur hefir jafnan einkennt söng kórsins eins og vera ber. Akureyringar hafa sér- staka ástæðu til þess að minnast með þakklæti margra ánægjustunda, sem kórinn hefir veitt þeim, og Geysir hefir lagt mikilvægan skerf til menningarauka hér í bæ. Geysir mun endurtaka afmælis- tónleika sína næstkomandi sunnudag í Nýja Bíó kl. 2, og er þess að vænta, að bæjarbúar fjölmenni Jiangað og votti þannig bæði kórnum verð- skuldað Jjakklæti og njóti ánægju- legs söngs hans. SNÆFELL SELUR í ENGLANDI Snæfell annast nú fiskflutninga til Englands, og seldi það fyrsta farm sinn þar sl. föstudag, 2020 kits fyrir 7638 sterlingspund. Kaldbakur er á leið út til Englands. ALLIR VEGIR ÓFÆRIR Eftir stórhríðina i gær og nótt eru allir vegir innanbæjar og í nálægum sveitum ófærir bifreiðum. Gert ei ráð fyrir, að svo að segja engin mjólk berist til bæjarins í dag. Áætlunarbifreiðarnar frá Akra- nesi fóru frá Blönduósi kl. 5 í gær, en urðu að snúa við í Langadal. í morgun var stórhríð með 8 vind- stigum á Blönduósi. Hér á Akureyri var stórhríð í alla nótt og veðurhæð allt að 10 vind- stig. LEGA BILAÐI í NÝJU VÉLASAMSTÆÐU N NI VIÐ LAXÁ Undanfarið hefir verið mikið ó- lag á rafveitunni, og hefir blaðið spurt Sigurð Helgason, umsjónar- mann við rafveituna, um orsakir þessa. Á miðvikudagskvöld varð rafmagnslaust á Oddeyri, því að háspennuleiðslan þangað brann sundur. Var alla fimmtudagsnótt unnið að viðgerð hennar. Á laugar- dagsnótt bilaði svo lega í nýju véla- samstæðunni við Laxá. Ný lega var til, en vélin þarf að ganga álagslaus nokkurn tíma, meðan legan er að slípast. Var því í fyrstu ekki hægt að keyra nema eldri samstæðuna. Síðan hefir álagið á hina verið smá- aukið, en er ekki enn orðið fullt. Hefir Jiví orðið að halda spennunni niðri, og er þetta orsök hins litla rafstraums síðustu dagana. Við Jjetta bætist, að rafmagnsnotkun hef- ii einmitt verið óvenju mikil nú í kuldunum. Nokkur jakaburður er í Laxá, og hindrar það einnig fulla spennu. STÚKURNAR Á AKUR- EYRI MÓTMÆLA ÖL- FRUMVARPINU Á sameiginlegum fundi stúknanna Ísafold-Fjallkonan nr. 1 og Brynja nr. 99 á Akureyri, sem haldinn var sl. mánudagskvöld, var einróma samþykkt svohljóðandi tillaga: „Sameiginlegur fundur stúknanna Ísafold-Fjallkonan nr. 1 og Brynju nr. 99, haldinn á Akureyri 17. nóv. 1947, mótmælir eindregið ölfrum- varpi því, sem lagt hefir verið fram á Alþingi til samþykktar. Jafnframt og fundurinn lætur Jjað álit sitt í ljós, að sala á áfengu öli yrði hættulegur drykkjuskóli fyrir æsk- una í landinu, mótmælir hann harð- lega þeirri rökvilli flutningsmanna, að slikt gæti á nokkurn hátt dregið úr annarri áfengisnautn, nema síð- ur sé, og skorar á Alþingi að fella þetta frumvarp.“ „Geysir“ minnist aldar- íjórðungs afmælis síns Prýðilegir afmælistónleikar kórsins.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.