Íslendingur - 26.11.1947, Síða 1
XXXIII. árg. Miðvikudagur 26. nóvember 1947 46. tbl.
PÉTUR MAGNÚSSON
KJÖRINN
BANKASTJÓRI
Fyrir nokkrum dögum kaus banka-
ráð Landsbankans Pétur Magnússon,
fyrrum fj ármálaráðherra, bankastj.
í stað Magnúsar heitins Sigurðsson-
ar. Pétur Magnússon var bankasljóri j
við Landsbankann áður en bann
varð ráðherra, og munu án efa marg-
ir fagna því, að bann hefir nú aflur
verið kjörinn bankastjóri, því að
hann naut mikilla vinsælda í því
vandasama starfi.
Tveir þingmenn veikir
ur, var fyrir skömmu skorinn upp i
við botnlangabólgu, en mun nú á
balavegi.
Það slys varð í líeykjavík um
helgina, að bifreið ók í Auslurslræti
á Sigurð Kristjánsson, alþm. Illaul
bann nokkur meiðsl og var fluttur á
sjúkrahús, en líður nú mjög sæmi-
lega.
Nægilegur kommofur og kol
í bænum
Ekki mun ástæða lil að óttast
skort ó kornvörum á næstunni né
heldur kolaskort. Birgðakönnun á
kolnm, sem gerð var í sambandi við
kolaskömmtun þá, sem sett hefir
verið. leiddi í ljós, að birgðir kola-
verzlana bér í bænum voru ])á rúm-
lega 3500 smálestir. Þar að auki eru
kolabirgðir Gefjunnar og síldarverk-
smiðjanna í Krossanesi, Dagverðar-
eyri og Hjalteyri um 3.200 smálestir.
MERKILEG GJÖF
Lárus Tboraiensen hefir að und-
anförnu unnið að því að rita sögu
Akureyrar, en bann er einn af elzlu
borgurum bæjarins og hefir fylgzt
vel með þróun bans síðan alllöngu
fyrir aldamót. Hefir bann jafnan lát-
ið sig hag bæjarins miklu varða og
lagt sig fram um að safna sem mest-
um fróðleik um ýmsa gamla atburði
í bænum. Lárus liefir nú gefið Akur-
eyrarbæ handril sitt að sögu bæjar-
ins og þar með sýnt enn eitt dæmi
um þann hlýhug, sem hann jafnan
hefir borið til bæjar shis.
Kaldbokur selur í óftunda
sinn
Síðastliðinn föstudag seldi togar-
inn „Kaldbakur“ áttunda farm sinn
í Englandi ,rúmlega 4500 kit fiskjar
fyrir 11.829 sterlingspund.
hnn mikið síldarmagn í Hvalfirði
Ný/á'ft/órðungssjúkrahúsið
Fjórðungssjúkrahúsið er nú komið undir þak. Eins og sjú md aj mynd
þessari er það liið mesta stórhýsi. Margt er enn ógert við luísið og ber
brýna nauðsyn til að jullbúa það lil notkunar svo jljólt sein verða mú.
Fjúrhagsrúð liejir ajgreitt fjúrjestingarleyji til jramhaldsjramkvœinda.
Mynd þessa tólc Edv. Sigurgeirsson, er lokið hajði verið við að reisa/húsið.
Áætlunarferdir bifreiða
stððvaðar
Yegurinn fram á flugvöll ruddur
Eftir stórhríðar þær, sem geysað
hafa hér norðanlands að undan-
förnu, er nú svo komið, að allir vegir
í nágrenni Akureyrar og landleiðin
suður og austur eru algerlega ófærar
bifreiðum. Mun að sinni ekki verða
reynt að ryðja Oxnadalsheiði, en
vonast er til, að áætlunarbifreiðarn-
ar að sunnan komist til Sauðárkróks.
I gær og nólt hefir verið unnið
að því að hreinsa með snjóýtu veg-
inn fram á Melgerðismela, svo að
bægt verði að nota flugleiðina, þeg-
ar veður leyfir. Mjólk hefir að und-
anförnu verið flutt til bæjarins á
sleðuni, en ]ió munu bifreiðar eitt-
hvað liafa gengið nú síðustu dag-
ana.
Esja fór frá Reykjavík á mánu-
dagskvöld og mun bafa tekið allan
pósl, sem þá var til. Kemur hún
sennilega hingað á morgun. Póst-
bótilrinn er væntanlegur frá Sauðár-
króki í kvöld, og er hann með föslu-
dagspóstinn að sunnan. Póstbátur-
inn fer béðan til Sauðárkróks á
þriðjudögum og föstudögum.
RÚSSAR eru taldir hafa verið að
reyna kjarnorkusprengjur i Síberíu
.fyrir skömmu. Ekki er vitað, liversu
rannsóknum þeirra miðar áfram.
Dfrtlbarfrumvarp
stjórnariunar
væntanlegt.
TfMINN skýrir frá því í
fyrradag að vænlega horfi nú
um samkomulag milli stjórn-
arflokkanna um aðgerðir í
dýrtíðarmálunum, og sé frum
varp urn þa ðefni væntanlegt
frá ríkisstjórninni innan
skamms.
Kommúnistar hafa lagt
fyrir þingið frumvarp eitr.
mikið, sem þeir kalla lausn á
dýrtíðaröngþveitinu og
vandamálum útvegsins. Er
frumvarp þetta hinn furðu-
legasti samsetningur. Felur
það í sér tillögur um enn
meiri fjáraustur úr ríkissjóði
jafnhliða því, að tekjur ríkis-
ins eiga að minnka. Er frum-
varpið í samræmi við þá
stefnu kommúnista að bjóða
öllum stéttum allskonar fríð-
indi, án þess að hafa nokkra
hliðsjón af heildarhag þjóðar
innar.
Gera verður ráðstafanir til þess
að nýta sem bezt þessa miklu .
veiðistöð
FREGNIR í gærkvöldi lierindu, að mikil veiði hefði verið í Hval-
iirði tvo síðustu daga, og telja sjómenn mjög góðar veiðihorfur.
Mestu erfiðleikum liefir það valdið að koma síldinni alla leið til
Siglufjarðar. Virðist einsætt að gera v'erði í framtíð'inni ráðstaf-
anir til þess að tryggja það, að hægt verði til hlýtar að nýta
veiðimögidieika í Hvalfirði, því að margt bendir til þess, að síld
gangi þarna eigi sjaldnar en fyrir Norðlurlandi á sumrin.
UtvarpiS skýrSi frá því í gær-
kvöldi, aS 17 þús. mál síldar hefSu
borizl til Reykjavikur úr HvalfirSi
síSan í fyrrakvöld. Var sá afli í 23
skipum. Þá veiddust í gær 60 tunnur
síldar í HafnarfirSi.
BlaSinu hefir ekki tekizt aS afla
sér frétta um veiSi skipa héSan aS
norSan aSrar en þær, aS NjörSur
fékk 500 mál í fyrradag.
STÆKKUN
AKllAN ES V ERKSMIÐ J U.
Þelta er nú annaS haustiS, sem
síldveiSi hefir aS nokkru ráSi verið
slunduS í llvalfirSi, en ólíklegt er,
aS síldveiðin þessi skipti sé lilviljun.
Bendir margt lil þess, aS eigi sé síS-
ur ástæSa til að gera róS fyrir hausl-
vertíð þarna en sumarvertíS fyrir
NorSurlandi. Er því mjög aS vakna
áhugi útvegsmanna og sjómanna ó
því aS reyna aS sækja meira fé í
þessa gullkistu cn gerl hefir verið’.
Það er miklum erfiSlcikum bundið
aS flytja mestalla síldina norður til
j SiglufjarSar, ])ótt ötullega bafi nú
veriS aS því unniS af ríkisstjórninni
og samtökum útvegsmanna* VirSist
óhjákvæmilegt aS slækka verulega
FJÖLMENNUR FUNDUR
UM ÁFENGISMÁL
I gærkvöldi var haldinn í Sam-
komuhúsi bæjarins almennur fundur
um áfengismál aS tilhlutun Umdæm-
isstúku NorSurlands og áfengisvarn-
arnefndar kvenfélaganna á Akureyri.
Fluttu þar framsöguerindi frú Filipía
Kristjánsdóttir, skáldkona, Brynleif-
<n- Tobiasson, menntaskólakennari,
og Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri.
Eimiig lalaSi GuSmundur Karl Pét-
ursson, læknir. Eiríkur Sigurðsson,
kennari, var fundarstjóri. Fundur-
inn samþykkti eindregin mótmæli
gegn ölfrumvarpinu og gerði einnig
aðrar ályktanir, sem skýrt verður frá
í næsta blaði. Fundurimi var fjöl-
sóttur.
síldarverksmiðjuna á Akranesi, og
hefir þegar veriS borið fram frurn-
varp um þau efni á Alþingi. Þá hefir
bæjarstjórn Reykjavíkur kjörið
nefnd til atlmgunar á nýtingu Hval-
fjarðarsíldar. Er hér um að ræða
mál, sem alla þjóðina varðar, og
þarf nú þegar að gera ráðstafanir,
er fullnægjandi geti orSiS í frarn-
tíSinni.
★
VIRÐULEG ÚTFÖR
EINARS ÁRNASONAR
Einar Árnason, fyrruin ráSherra,
var jarðsetlur í gær að Kaupangi.
Hófst atböfnin unr hádegi meS bæn,
er séra Benjamín Kristjánsson flutti
heima aS Eyrarlandi. í kirkju og úr
kirkju báru sveilungar hins látna,
stjórn og starfsmenn KEA kistuna.
Séra Benjamín Kristjánsson jarð-
setti. Samband ísl. samvinnufélaga
og Kaupfélag Eyfirðinga höfðu ósk-
að að fá aS heiðra minningu þessa
merka samvimiufrömuSar með því
að sjó um útför hans. Margir krans-
ar bárust, og Framsóknarfélögin í
Eyjafirði gáfu skjöld á kistuna. Mik-
ill fjöldi fólks var viðstatt útförina,
og var hún öll mjög hátíöleg.
★
REYKJAVÍKURSTtFLKUR
GERA AÐStJG AÐ KVIK-
MYNDALEIKARA
Síðastliðinn sunnudag kom
kvikmyndaleikarinn Tyrone
Power til Reykjavíkur og fór
aftur á mánudag. Heill herskari
af ungum stúlkum þyrptist að
Hótel Borg um matar- og kaffi-
tíma til þess að fá að sjá kvik-
myndastjörnuna og fá eiginhand
arundirskrift hans. Var dýrkun
in sízt minni en í Ameríku, þótt
fötin muni ekki hafa verið rifin
utan af leikaranum, en þær
stúlkur töldu sig mjög sælar,
sem komust það nærri hinum
fræga leikara, að þær gætu
snert á honum.
S