Íslendingur - 18.12.1947, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 18. desember 1947
lSLKNDINGUR
t
íoan
Á iólunum oí> ávallt endranær eru
GÓÐAR BÆKIJR
handhægasta og varanlegasta vinargjöfin. Meðal neðan-
taldra bóka munuð þér finna þær, sem henta vinum
yðar og vandamönnum bezt.
Sagnaþættir Þjóðólfs
Fögur og smekkleg útgáfa af þessum gömlu og vinsælu þátt-
um, nokkuð aukin. Allir eru þessir þættir mjög Vel í stílinn
færðir og efnið fjölbreytt og skennntilegt, enda mun leitun
á vinsælli bók, þessarar tegundar. — „Útgáfa þessi er þarft
verk og þættirnir ntikilsverðar söguheimildir. . . . Frágangur
er góður og ritið eigulegt." (Dr. Björn Sigfússon). — Gils Guð-
mundsson bjó þættina til prentunar og er útgáfa þeirra mjög
vönduð. - Verð: kr. 40.00, 55.00 og 70.00.
Strandamanna saga
Gísla Konráðssonar er væntanleg fyrir jólin í útgáfu sr. Jóns
Guðnasonar á Prestbakka. Er þetta gagnmerkt rit og merk
heimild um persónusögu, aldarfar og lífskjör almennings, ekki
aðeins í Strandasýslu og á Vesturlandi, heldur einnig miklu
víðar á landinu.
Anna Boleyn,
drottning Englands. Saga Önnu Boleyn, limafögru, léttlyndu
stúlkunnar, sem varð drottning Englands, er eitt áhrifamesta
drama veraldarsögunnar, fyrr og síðar. Sigur hennar og upp-
hefð, niðurlæging og fall, er ævintýri líkara en veruleika, enda
er saga hennar svo spennandi, að engin skáldsaga jafnast á við
hana. — Sr. Sigurður Einarsson hefir þýtt bókina, sem er prýdd
mcirgum myndum og mjög vönduð að ölluni frágangi. — Verð:
kr. 35.00, 52.00 og 68.00.
Vísindamenn allra alda
•Ævisögur tuttugu heimsfrægra vísindamanna, skemmtilega
skrifaðar og fróðlegar. Sérstaklega falleg og vcinduð bcik. ,,Fali-
eg og frciðleg bók, vönduð útgáfa. . . . skemmtileg aflestrar."
(Kristmann Guðmundsson). — Heppileg gjöj handa ungum
monnum. — Verð: kr. 25.00 og 35.00.
Líf í læknis hendi
Víðfrægur amerískur róman um hugsjónir og baráttu ungs
læknis, vonbrigði hans og sigra, harma og hamingju. Sagan
gerist aðallega í sjúkrahúsum og lækningastofum og gefur ó-
venjulega innsýn að tjaldabaki á þessum stöðum. — Verð: kr.
50.00, 68.00 og 85.00.
Hershöfðinginn hennar
Skemmtilegur og spennandi róman eftir Daphne de Maurier,
höfnnd ,,Rebekku“. — „Þetta er ósvikin skemmtisaga, en hefir
þó allmikið bc'tkmenntalegt gildi.“ (Kristmann Guðmundsson).
- Verð: kr. 32.00 og 45.00.
Á skákborði örlaganna
Hin fræga metsölubók Hollendingsins Hans Martin. Áhrifa-
mikill og spennandi róman. Hröð og fjölþætt atburðarás, snjall-
ar persónulýsingar. — Verð: kr. 20.00 og 32.00.
Fast þeir sóttu sjóinn
Ævintýrin, sem sægarpurinn og karlmennið Kristófer Kalvaag
ratar í á hinni hrörlegu skútu sinni, „Noregi", munu verða
flestum minnisstæð, ekki síður en skipstjórinn sjálfur og há-
setar hans, enda leitun á jafn vinsælli sjómannasögu og þessari.
Þyrnivegur hamingjunnar
Skemmtileg og hugljúf ástarsaga eftir vinsælustu skáldkonu
Svía, Sigge Stark. — Þetta er önnur bókin í skáldsagnaflokknum
Gulu skáldsögurnar. — Verð: kr. 15.00 og 22.00.
Gestir í Miklagarði
Þessi saga hefir þegar verið sæmd titlinum „skemmtilegasta hók
ársins", og mun hún vissulega ekki kafna undir nafni, því að
trauðla mun fyrirfinnast fyndnari og skemmtilegri bók en hún.
„Góð var Ráðskonan á Grund“, en betri er þessi,“ varð manni
nokkrum að orði, þegar hann hafði lokið við að lesa „Gestir í
Miklagarði", og var auðheyrt, að honum þótti langt jafnað. —
Þetta er þriðja bókin í skáldsagnaflokkríum Gulu skáldsögurn-
ar. - Verð: kr. 15.00 og 22.00.
Bœkitr handa börnitm og unglingum:
Skautadrottningin,
Sonja Henie. Þetta er saga hins einstæða frægðarferils hinnar
dáðu norsku skautadrottningar, sem um árabil bar ægishjálm
yfir alla keppinauta sína á alþjóðakappmó'tum, en lagði að því
búnu leið sína inn í ævintýraheim kvikmyndanna. Þetta er
fjörleg bók og skemmtileg, prýdd fjolda glæsilegra mynda og
útgáfan vönduð. — Verð: kr. 23.00.
Drengirnir í Mafeking
Sjerstaklega þroskandi og skenuntileg saga banda drengjum
og unglingum, að nokkru leyti byggð á sönnum viðburðum úr
lífi Baden-Powells, skátaforingjans heimskunna. — „Bezt þykir
mér drengjabókin „Drengirnir í Mafeking", segir Kristmann
Guðmundsson, þegar hann ritar um þrjár barna- og unglinga
bækur, er allar fá lofsamlega dóma lians. — Verð: kr. 28.00.
Systkinin í Glaumbæ
Hin „klassiska" unglingabók ensku skáldkonunnar Ethel S,
Turner, einhver bezta barna- og unglingabók, sem þýdd hefir
verið á íslenzku. — Verð: kr. 20.00.
Leyndardómar fjallanna
Þessi ágæta drengjasaga Jóns Björnssonar kom íyrst út á dönsku
og hlaut mikið lof leiðandi manna í uppeldis- og skólamálum.
auk þess sem allir strákar voi'u vitlausir í hana vegna þess, hve
skemmtileg hún er. — „Eg mæli eindregið með þessari bók, því
að mér virtist lnin hafa alla helztu kosti góðrar unglingabókar.“
(Guðmundur Daníelsson). — Verð: kr. 18.00.
Pétur Pan og Vanda
Þetta er bók handa 6—11 ára gömlum börnum, eftir J. M. Bar-
rie, frægt brezkt skáld. Til marks um óvenjulegar vinsældir
þessarar sögu má geta þess, að aðalsöguhetjunni, Pétri Pan,
hefir íyrir löngu verið reist veglegt minnismerki í einum helzta
skemmtigarði Lundúna. — Margar myndir prýða bókina. —
„Þetta er afburða góð barnabók og snilldarlega rituð.“ (Andrés
Kristjánsson). — Verð: kr. 22.00.
Lífið kallar
Mjög skemmtileg og þroskandi saga um unga Stokkhólms-
stúlku, sem leggur hart að sér til að hjálpa móður sinni og yngri
systkinum, en á þó sínar gleði- og yndisstundir. Bókin er prýdd
fjölda heilsíðumynda. — Verð: kr. 20.00.
í víkinga höndum
Viðburðarík og spennandi saga frá víkingatímanum, prýdd
fjölda mynda. Þetta er bók, sem allir röskir strákar hafa sér-
stakt dálæti á. — Verð: kr. 23.00.
Uppreisn á Haiti
segir frá ævintýrum og mannraunum, sem stýrimannsefnið
Norman Mansell og félagar hans rata í, þegar þeir eru í einni
siglingu sinni milli heimsálfa. Sagan er eftir Westerman, einn
víðlesnasta unglingabókahöfund í heimi. — Verð: kr. 22.00.
Músaferðin
Myndir við barna hæfi, skemmtileg saga, þýdd af Freysteini
Gunnarssyni. Upþáhaldsbók litlu barnanna. — Verð: kr. 6.00.
Goggur glænefur
Sérstaklega vel gerðar tnyndir og skemmtileg saga, sem ofin er
utan um þær, hvort tveggja eftir norska listamanninn Eidem.
Þýðingin eftir Freystein. Lítil bc>rn taka alveg sérstöku ástfóstri
við þessa bók. — Verð: kr. 10.00.
Framantaldar bækur fást hjá bóksölu m um land allt og beint frá útgefanda.
Draupnisútgáfan - Iðunnarútgáfan
Pósthólf 561 — Reykjavík — Sími 2923