Íslendingur


Íslendingur - 18.12.1947, Qupperneq 6

Íslendingur - 18.12.1947, Qupperneq 6
ÍSLENDINGUR Fimmtudagur 18. desember 1947 Prentsmiðja Anstnrlands h. t„ Seydistiröi sem sendi frá sér fyrstu bókina 30. nóvember 1946, hefir gefið út eftirtaldar bækur SANNAR DRAUGASÖGUR eftir héimskunna dulspekinginn „ Cheiro“ (Louis llamon greija). 1 bók þessari eru færð fram sterkari rök fyrir persónulegu framhaldslífi en í flestum öSrum bókum. — Verð kr. 20.00 heft, kr. 32.00 í góöu bandi. SANNAR KYNJASÖGUR eftir sama höfund. I bók þessari segir frá mörgum merkilegum og ótrú- legum fyrirbærum og leggur höfundurinn heiður sinn í veð fyrir að rétt sé frá skýrt. Allir alvarlega hugsandi menn og þeir, sem hafa yndi af dul- spekilegum fræðum, verða að lesa bækur þessar. — Verð kr. 30.00 heft, kr. 2.00 í góðu bandi. UM DÁLEIÐSLU eftir þekktasta dáleiðslulækni Englendinga á þessari öld, Alexander Erskine. Bók þessi er stórfengleg og segir í henni frá lækningum höfundar á margs konar sjúkdómum, sem aðrir læknar höfðu gengið frá. Bók þessi gefur fjölda manna, sem þjáist af taugaveiklun og margs konar öðrum sjúk- dómum, t. d. ofnæmi fyrir áfengi, von um bata, sem ekki verður sótt til annarra lækninga aðferða. — Verð kr. 16.00 hefl, kr. 22.00 í góðu bandi. Þessi bók œtti að vera ti! á hverju heimili. „ÞRENNINGIN", Mjög skennntileg skáldsaga eftir enska skáldið heimsfræga E. Philips Oppenheirn, sem Englendingar nefndu „The Prince oj Slorytellers“. Gerist hún í Monte Carlo og segir frá ýmsum ævintýrum, sem ameríski miljóna- mæringurinn Billingham lendir í, ásamt fátækum frönskum markgreifa og bróðurdóttur hans. „TVÍFARINN" eftir sama höfund. Sagan segir frá enskum oog þýzkum aðalsmönnum, sem voru svo líkir, að þeir þekktust ekki að, og fjallar um ástir, njósnir og morð. „HIMNASTIGINN" eftir sama höfund. Sagan segir frá enskum kaupsýslumanni, sem varð gjald- þrota á því að leggja fé í olíufélag með bróður sínum. Síðar fannst olía í landareign þeirra og verða þeir þá stórríkir. Vildu þá margir verða vinir hans, sem ekki höfðu hirt um það fyrr, og margar tilraunir gerðar til þess að ná hlutdeild í auðnum og ekki allar sem heiðarlegastar. Kemur þar fram fjöldi manna, sem lýst er með hinni mestu snilld og fléttað ástar- sögu inn í frásögnina. Hver þessarra bóka kostar kr. 20.00 heft og kr. 28.00 í bandi. „VÍKINGURINN" eflir ítalska skáldið heimsfræga Rafael Sabatini, sem nefndur hefir verið „Dumas vorra tíma“. Sabatini er sagnfræðingur að menntun og hafa sagn- fræðilegar skáldsögur hans notið mikillar lýðhylli um öll lönd og verið gefnar út í miljónum eintaka. Bókin er þýdd af Jóni sál. Björnssyni skáldi. „SÆGAMMURINN" eftir sama höfund, í þýðingu Axels Thorsteinson, skálds. „í HYLLI KONUNGS" eftir sama höfund, í jiýðingu Sigurðar Arngrímssonar, fyrrv. ritstjóra. „LEIKSOPPUR ÖRLAGANNA" eftir sama höfund, í þýðingu Sigurðar Björgúlfssonar, ritstjóra. „Víkingurinn“ og „Sægammurinn“ hafa komið út áður, en „I hylli konungs" og „Leiksoppur örlaganna“ eru þýddar í fyrsta sinn. — Ef Esja fer aðra ferð austur koma einnig út fyrir jól „Drabbari“ og „Ævin- týraprinsinn“ eftir sama höfund, í þýðingu Árna Ola rithöfundar. Bækur þessar hver fyrir sig kosta kr. 25,00. Hægt er að fá þær í al- rexinbandi með ekta gyllingu, ef þær eru keyptar allar og kosta þá aðeins kr. 32,00 bókin. — Það er óþarji að mœla með bókum Sabatini. „HIRÐINGJAR í HÁSKADAL" eftir Charles E. Barnes er mjög spennandi reyfari, sem fjallar um svik, morð og bardaga, í þýðingu Sigurðar Björgúlfssonar. — Verð kr. 12,50. JASS-STJÖRNUR Æfiþættir þekktustu manna á sviði „jass“-hljómlistar, með myndum. Nauðsynleg handbók öllum „jass“-unnendum. Verð, kr. 10.00. 7—8—9—KNOCK OUT Saga keppninnar um heimsmeistaratitil í „boxi“, þungavigt. Nauðsyn- leg bók öllum íþrótfamönnum. — Tilvalin jólagjöf handa drengjum. — Fjöldi mynda. — Verð kr. 25.00. „LÍF OG LEIKUR" eða „SKUGGI FORTlÐARINNAR" eftir stórskáldið enska Jf. Somerset Maugham. Bók þessi er af mörgum talin bezta bók hans, enda mun hún vinsælust af bókum hans. Bókin héfir hlotið á- gæta ritdóma í stórblöðum heimsins, og er prýðilega þýdd af Skúla Bjarkan. — í þessari bók er verulegur skáldskapur, en hún hefir selzt minna en vonir stóðu til, að því er einn bóksalinn hér segir, af því að „bókin er oj góð“. — fíókin kostar kr. 25,00 hefl og kr. 32,00 í bandi. -— Það þarj enginn að skammast sín fyrir að geja hana í jólagjöj. „ÚRyALS ÁSTARSÖGUR I " í þessum bókaflokki er áformað að gefa út úrvalssögur heimsfrægra höfunda. Fyrsta bókin, er komin út og er í henni sagan „Fyrstu ástir“, eftir stórskáldið Ivan Turgenev. Þýðingu hefir annast Theodor Árnason.-Kostar heft kr. 10.00. „ÚRVALS NJÓSNASÖGUR I " í þessum bókaflokki verða á sama háll gefnar út úrvals njósnasögur eftir heimsfræga höfunda. •— í þessu hefti eru sögurnar: „Landrqðamaðurinn“, eftir W. Somerset Maugham, og „Bréfadúfnamaðurinn“, eftir Valentine Willi- ams. Bókin er þýdd af Sigurði Björgúlfssyni. — Verð kr. 10,00. j,ÚRVALS LEYNILÖGREGLUSÖGUR" eftir heimsfræga höfunda. Fyrsta hefti í þessum bókaflokki kemur í bóka- búðirnar þegar Esja kemur næst að austan og verður þá nánar auglýst. „BÓKASAFN BARNANNA" í þessum bókaflokki koma út ýms ævintýri handa börnum og mun hver bók ekki kosta yfir kr. 3,00. — 10 fyrstu bækuinar koma með Esju að austan næst og verða þá auglýstar nánar. „EINKALÍF NAPÓLEONS" eftir Octave Aubry í snilldarþýðingu Magnúsar Magnússonar, ritstjóra. — Höfundur bókarinnar varð heimsfrægur fyrir að rita hana, enda bregður hún nýju ljósi yfir Napóleon keisara, þannig að hann verður mennskari maður í huga manns eftir lesturinn, en fyrir. Bókin er 400 síður að stærð í stóru broti. prýdd fjölda mynda og kostar kr. 48.00 heft, en kr. 65.00 í rexinbandi og kr. 85.00 í skinnbandi. Bók þessi átti að verða jólabók forlagsins í fyrra, en varð svo síðbúin, að hún komst ekki í bókabúðir í Reykjavík fyrr en eftir miðjan desember og alls ekki í búðir víðast hvar úti um land. fíók þessi er tilvalin jólagjöf. „SJÁLFSÆVISAGA BENJAMÍNS FRANKLÍN" í þýðingu Guðm. sál. Hannessonar, prójessors, og Sigurðar Jónssonar, lœknis, er önnur jólabókin, sem prentsmiðjan sendir frá sér á þessu ári. Bókin er heims- fræg og sérstæð í heimsbókmenntunum. Benjamín Franklín er án efa eitt mesta mikilmenni, sem fæðst hefir á þessari jörð og líf hans í hvívetna til fyrirmyndar. Er það bending um ágæti mannsins að Jón forseli, er fyrsti íslendingurinn, sem kynnir þjóðinni hann með því að gefa út þýðingu af ævisögu hans og Tryggvi Gunnarsson, bankasljóri, sá næsti, með því að láta Þjóðvinafélagið endurprenta ævisöguna. Er sú bók með öllu uppseld. Næstir verða svo Guðm. sál. Hannesson og Sigurjón Jónsson, lil að vekja athygli núlifandi kynslóðar á þessum ágætismanni með því að þýða sjálfsævisögu hans. — Bókin er til- valin jóla- og tcekijærisgjöj til karla og kvenna, ungra og gamalla — verð kr. 30.00 heft, kr. 42.00 í shirtingsb., kr. 45.00 í rexinb. og kr. 63.00 í skinnb. „HÁLFA ÖLD Á HÖFUM ÚTI" eftir G. J. Whitfield, skipherra, í þýðingu Sigurðar fíjörgúlfssonar, fyrrverandi ritstjóra, hikum við ekki að telja, ásamt næstu bók ó undan, eina merkustu bók, sem þýdd hefir verið á íslenzka tungu. Bókin segir frá sjóferðareynslu höfund- . arins frá því að hann ræðst á langferðaskip 13 ára gamall og þar til hann hæltir starfi, sem skipherra á einu stærsta farþegaflutningaskipi Englendinga. jBók þessi sýnir það, að sannar jrásagnir rnanna, sem lenda í œvintýöum og'j kunna að segja jrá, taka hverri skáldsögu jram, hve góð sem hún er. — Hver einasli sjómaður verður að lesa jjessa bók og ekki síður þeir, sem í landi vinna. - Þetta er vafalaust einhver skemmtilegasta bók, sem út liejir komið á íslenzlca tungu, — Bókin er tilvalin jólagjöf. Verð kr. 35.00 heft, kr. 46.00 í shirtingb. og kr. 48.00 í rexinbandi. Bækur þessar fást hjá öllum bóksölum. Gjörir svo vel að klippa þessa auglýsingu úr blaðinu og geymq hana. Prentsmiðja Austurlands h.f„ Seyðisfirði

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.