Íslendingur


Íslendingur - 11.01.1950, Side 1

Íslendingur - 11.01.1950, Side 1
XXXVI. árg. Miðvikudagur 11. janúar 1950 H 2. tbl. JÓN GEIRSSON læknir lézt í Sjúkrahúsi Akureyrar 4. þ. m. Hafði hann veikzt skyndilega síðla nætur og var fluttur í sjúkrahúsið með morgninum, en þar lézt hann stundu eftir hádegi. Hann var að- eins 44 ára gamall. Jón Geirsson var mjög vinsæll í bæ og héraði, bæði sem læknir og maður. Er hans því sárt saknað. Hans mim síðar verða minnst nánar hér í blaðinu. Framboðslisti Sjálfstæðis- flokksins við bæjarstjórnarkosningar á Akur- eyri 29. janúar n. k. 1. Helgi Pálsson, forstjgri 2. Jón G. Sólnes, fulltrúi 3. Guðmundur Jörundsson, útg.m. 4. Sverrir Ragnars, kaupm. 5. Eiríkur Einarsson, verkam. 6. Karl Friðriksson, verkstjóri 7. Jón Hallur Sigurbjörnsson, bólstrari. 8. Gunnar H. Kristjánsson, kaupm. 9. Einar Kristjánsson, framkv.stj. 10. Eggert Jónsson, lögfr. 11. Magnús Bjarnason, skipaeftir- litsmaður. 12. Páll Sigurgeisson, kaupm. 13. Haraldur Guðmundsson, iðnvm. 14. Sigurður Guðlaugsson, rafv. 15. Snorri Kristjánsson, bakari 16. Jón Þorvaldsson, trésmíðam. 17. Guðmundur Jónasson, bílstjóri 18. Snorri Sigfússon, útgerðarm. 19. Vigfús Þ. Jónsson, framkv.stj. 20. Friðrik J. Rafnar, vígslubiskup 21. Jónas G. Rafnar, alþingism. 22. Indriði Helgason, rafvirkjam. Vegna fráfalls Jóns Geirssonar læknis, sem valinn hafði verið í 8. sæti listans, varð sú breyting gerð, að 9.—19. maður listans færast upp um 1 sæti, en í 19. sæti bætist Vig- fús Þ. Jónsson, 6em ekki var á list- auum, eins og frá honurn var gengið í fyrstu. BTfil Máleínayfirlýsing Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar 29. jan. Sjálfstœðisflokkurinn leggur á það megináherzlu, að fjárhagsafkoma bœjarins sé sem traustust, þar sem traust- ur fjárhagur er grundvallarskilyrði þess, að bœjarfélagið geti innt skyldur sínar af hendi. í samræmi við þetta höfuðsjónarmið mun flokkur- inn því ekki fallast á neinar þœr ákvarðanir eða fram- kvæmdir, er stefnt geta gjaldgetu bæjarins í hættu. Flokkurinn telur, að framkvæmdir allar beri fyrst og fremst að miða við þarfirnar og greiðslugetu bæjarins, eins og hún er hverju sinni. Jafnframt telur flokkurinn skylt, að verklegum framkvæmdum sé þannig hagað, að komið sé i veg fyrir atvinnuleysi, eftir því sem frekast er unnt og aðstæður leyfa. Sjálfstæðisflokkurinn leggur á það áherzlu, að sköp- uð séu skilyrði fyrir sem fjölbreyttastan atvinnurekstur i bænum, og að gætt sé hófs og sanngirni i útsvarsálög- um á einstaklinga og fyrirtæki. Flokkurinn er andvigur, að bærinn reki sjálfur at- vinnu, sem einstaklingar og félög fá ráðið við, nema sér- stakar ástæður séu fyrir hendi. Viðhorf Sjálfstæðisflokksins til einstakra mála: 1. Raforkumál. Flokkurinn leggur á það sérstaka áherzlu, að hraðað verði, sem frekast er unnt, framkvæmdum viðbótar- virkjunar Laxár. Ennfremur verði bæjarkerfi rafveit- unnar aukið og endurbætt, svo að það geti fullnægt þörf- um iðnaðarins og bæjarbúa að öðru leyti. 2. Hafnarmál. Flokkurinn mun beita sér fyrir því, að sem allra fyrst verði hafnar framkværndir við hin fyrirhuguðu nýju hafnarmannvirki, úr þvi efni, sem þegar er komið á staðinn og að bygging minni dráttarbrautarinnar, norðan á Oddeyri, verði fullgerð á næsta sumri. Ennfremur að sótt verði um fjárfestingarleyfi fyrir byggingu hafnarhúss og undirbúningur að byggingu hafinn, að því fengnu. 3. Útgerðarmál. ^ Sjálfstæðisflokkurinn vill vinna að því, að einstök- um bæjarmönnum eða félögum þeirra gefist kostur á kaupum, í það minnsta. eins af þeim 10 togurum, sem ríkisstjórnin hefir nú i smíðum. Þá vill flokkurinn stuðla að því, að einstaklingum og félögum verði veitt aðstaða til að reisa fiskþurrkunar- hús, sem mundi auka mjög á atvinnu i bœnum. Möguleikar verði athugaðir á að hagnýta Krossanes- verksmiðjuna á breiðara grundvelli en nú er gert. 4. Iðnaðarmál. Flokkurinn vill beita sér fyrir þvi, og leggja á það mikla áherzlu, að áburðarverksmiðju rikisins verði val- inn staður á Akureyri, eða i næsta nágrenni, og að undir- búningsaðgerðum verði hraðað, svo sem unnt er. Skorað verði á rikisstjórnina að hefja sem allra fyrst framkvæmdir á ný við tunnuverksmiðju þá, sem rikið á hér á Akureyri og veita innflutningsleyfi fyrir tunnu- efni, til þess að verksmiðjan geti hafið framkvæmdir, sem allra fyrst. Skorað verði á rikisstjórnina, að hefja nú þegar fram- kvæmdir að stofnun iðnaðarbanka, með útibúi hér i bæ, til styrktar og aukningar iðnaði á Akureyri. Flokkurinn vill ennfremur beita sér fyriv þvi, að öll- um sem verksmiðjuiðnað reka í bænum, verði veitt að- staða til eðlilegrar stækkunar, með þvi að takmarka ekki um of þau lóðarafnot, sem nauðsynleg eru, eða kunna að verða fyrir reksturinn. 5. Hitaveita. Að herða, eftir mætti, á framhaldandi rannsókn, af hálfu rikisins á skilyrðum til hitaveitu fyrir bæinn. 6. Iþróttamál. Iþróttasvæði bæjarins neðan Brekkugötu verði full- gert svo fljótt sem auðið er og hlynnt verði eftir föngum, að öðru leyti, að iþróttastarfsemi i bænum. Framkvæmdum við sundlaug bæjarins verði haldið áfram og fullgengið frá henni. 7. Heilbrigðismál. Flokkurinn mun beita sér fyrir, að byggingu fjórð-' ungssjúkrahússins verði lokið svo fljótt sem kostur er á og á það lögð rik áherzla, að útveguð verði öll nauðsyn- leg tæki til sjúkrahússins, svo að það geti tekið til starfa, eigi siðar en á árinu 1951. Komið verði upp hér i bænum gamalmennahæli, með stuðningi og i samráði við Kvenfélagið Framtíðin, sem hefir þetta mál á stefnuskrá sinni og hefir sýnt þvi sérstakan áhuga. Kvenfélagið Hlif verði styrkt til að fullgera barna- heimili sitt og reka það. Framh. á 6. síðu.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.