Íslendingur - 21.01.1950, Síða 1
a
XXXVI. árg. Laugardagur 21. janúar 1950 4. tbl.
Vaxandi ítöK Sjálístæöis-
manna í stjdrn bæjarins
munu tryggja velgengni hans
Ræða Sverris Ragnars á fundi Sjálfstæðismanna
18. janúar.
Glæsilegur tundur. Sjáif-
stæflisfélaganna á mifl-
vikudagskvOIdið.
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri efndu til fundar að
Hótel Norðurlandi s. I. miðvikudagskvöld. Var að-
sókn góð, og stóð fundurinn fram yfir miðnætti.
Þegar við stöndum nú enn and- 1
spænis bæjarstjórnarkosningum og
ég kem hér fram fyrir ykkur í fyrsta
skipti á þeim vettvangi, er ykkur ef
til vill nokkur forvitni á að kynnast
viðhorfi mínu til málefna bæjarins,
og vil ég því gera lítilsháttar grein
fyrir því.
Ég mun ræða þessi mál nokkuð al-
mennt, án þess að víkja verulega að
einstökum viðfangsefnum, sem nú
eru efst á baugi og bíða úrlausnar
á næsta kjörtímabili. Það, sem fyrst
verður fyrir manni, þegar farið er
að íhuga ástæður og rekstur bæjar-
ins, eru að sjálfsögðu fjármálin.
Þau eru óhjákvæmilega sá grund-
völlur, sem allt athafnalíf og þrifnað-
ur bæjarfélags og ríkis hvílir á. Pen-
ingarnir eru enn áfl þeirra hluta,
sem gera skal, og sé fjármálunum sá
sómi sýndur, sem þeim ber, á ekki
að vera hætta á ferðum. Sem betur
fer sjá þetta allflestir, sem um það
vilja hugsa, og er gott til þess að
vita, að fjármál bæjarins hafa farið
forráðamönnum hans vonum betur
úr hendi frá fyrstu tíð, þannig að
segja má, að Akureyrarbær sé nú í
tölu tiltölulega fárra bæjar- og sveit-
arfélaga, sem búa við sæmilegan
fjárhag.
Nú er það svo, að bæjar- og sveit-
arfélög eru engan veginn einráð um
fjármál sín, frekar en um 6vo margt
annað. Ríkisvaldið, •— þing og
stjórn, — fjalla þar um óhjákvæmi-
lega og í æ ríkara mæli, að því er
virðist, en á því þingi hafa landsins
börnum verið bundnir æ þyngri
baggar, með ískyggilega vaxandi
hraða á seinni árum. Enginn neitar
hins vegar þeim fj árhagserfiðleikum,
sem ríkið hefir ratað í, að nokkru
leyti sjálfsagt af óviðráðanlegum or-
sökum, en vafalaust vegna sjálfskap-
arvíta að verulegu leyti. Þó að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi átt ítök í stjórn
landsins lengstaf síðast liðin 10 ár,
hefir sjónarmiða hans því miður
ekki gætt þar sem skyldi, af eðlileg-
um ástæðum, þar sem hann hefir
neyðst til að viðhafa margskyns
kaupskap við hina flokkana, til úr-
lausnar vandamálunum. En hvað
sem því líður, verður ekki um það
deilt, að ríkið hefir haft forgöngu
unv óhæfilega þungar álögur á borg-
arana í ýrnsum myndum og skert
þannig tekjustofna bæjanna fram
yfir það, sem heilbrigt getur talizt.
Af þessum orsökum meðal annars
vilja og geta nú fáir, ótilneyddir,
lengur hætt fé sínu í útflutnings-
framleiðslu, eða aðrar fjárfrekar og
áhættusamar framkvæmdir, sem þó
eru að sjálfsögðu líftaug allra fram-
fara og undirslaða að mannsæmandi
lífi þjóðarinnar. Af þessum orsökum
hefir slík starfsemi í vaxandi mæli
færst yfir á herðar ríkisins og sveit-
arfélaganna. Þetta er öfugþróun, að
okkar viti. Það eru ákveðin takmörk
fyrir, hve langt er hæ'gt að fara of-
an í vasa borgaranna, án þess að
athafnaþrá þeirra bíði skaða við, en
þá er voðinn á næsta leiti, þegar svo
er komið.
Þó að ríkisvaldið eigi þannig
mikla sök á vandræðum sveitarfélag-
anna, verður hinu heldur ekki neit-
að, að þau eru enn að verulegu leyti
sinnar eigin gæfu smiðir. Það er dá-
lítið fróðlegt í þessu sanibandi að
skyggnast um og athuga hag hinna
ýmsu bæja- og sveitarfélaga hér á
landi, og skyldi það þá vera einber
tilviljim, hvernig virðist skipta í tvö
horn, eftir því hvaða flokkar marka
stefnuna á hinum ýmsu stöðum. Ég
held ekki. Við þekkjum þá sögu, —
það er óþarft að rekja hana hér.
Þó virðast mér Vestmannaeyjar vera
einna átakanlegast dæmi. Því bæjar-
félagi hefir öruggur Sjálfstæðis-
meirihluti stjórnað til fjölmargra
ára, við ágætan orðstír, fram að síð-
asta kjörtímabili, en þá náðu and-
stæðingarnir meirihluta aðstöðu, og
á þeim 4 árum, sem liðin eru síðan,
hefir svo hörmulega sigið á ógæfu-
hlið, að nýlega voru stór og mikil
mannvirki bæjarins auglýst til upp-
boðs fyrir opinberum gjöldum. Þetta
eru víti til vamaðar. Við eigum því
miður engum meirihluta á að skipa
í bæjarstjórn, en ég trúi því þó, að
fari ítök Sjálfstæðismanna vaxandi
í stjórn bæjarins, eins og efni
standa til nú, megi vænta þess, að
sæmilega takist um málefni hans, í
saravinnu við aðra góða menn.
Það er vafalaust, að sú bæjar-
stjórn, sem nú verður kosin, fær
nóga erfiðleika að stríða við. Mörg
úrlausnarefni bíða framkvæmda, og
sum þeirra risastór á okkar mæli-
kvarða, svo sem hin nýja virkjun
Laxár o. fl. Þið hafið sjálfsagt lesið
stefnuyfirlýsmgu flokksins hér í
bæjarmálum. Þar kennir margra
grasa, en flest af því, sem þar er
minnst á, eru harla nauðsynlegir
hlutir, sem sumpart verður að kom-
ast í framkvæmd strax, og annað,
sem verður að vinnast í áföngum,
eftir því sem geta leyfir.
Almenn bjartsýni og framfaraþrá
fátækrar þjóðar, sem flest átti ógert,
sakir getuleysis, ýtti af stað af mikl-
um dugnaði, en kannske. minni
fyrirhyggju á stundum, stórgerðum
framkvæmdum, jafnskjótt og færi
gafst, og þó að farið væri af stað
með auð fjár milli handa á okkar
vísu, hafa erfið ár, sérstaklega til
sjávarins, og líklega of ör fjárfest-
I ing, með tilheyrandi verðbólgu,
þurrausið sjóði okkar, svo að útlit
er fyrir, að ríkið muni eiga fullerfitt
með að standa við skuldbindingar
sínar frá feitu árunum, til fjárfram-
laga i mannvirki sveita- og bæjarfé-
laga. Auðséð er því, að gæta verður
varúðai' í meðferð fjár og ætla fót-
Framh. á 3. síðu
S.l. mánudag átti einn af elztu og
mætustu innfæddu Akureyringum
80 ára afmæli, en það er Friðrik Þor-
grímsson úrsmiður.
Hann fæddist í svonefndu Þor-
grímshúsi í Fjörunni, en það var
jafnan kennt við föður hans. Ólst
hann þar upp, ásamt 2 systkinum
sínum, Magðalenu og Pétri, en Pét-
ur er látinn fyrir nokkrum árurn.
Þau systkinin hafa alla sína tíð búið
á sama stað.
Þeir bræður voru góðir söng-
menn og miklir gleðimenn fram eft-
ir árum. Minnast gamlir bæjarbúar
þess, að oft, er leið þeirra lá fram
hjá Þorgrímshúsi, ómaði það af org-
elleik og söng. Voru þeir bræður
helztu söngkraftar kirkjukórsins
framan af aldri og ómissandi
skenmitikraftar á dansleikum . og
öðrmn mannfagnaði.
Ungur nam Friðrik úrsmíði hjá
Magnúsi heitnum Jónssyni úrsmið,
og hefir síðan stundað þá iðn með
mikilli prýði og stundar enn, þótt
sjón sé farin að daprast. Ekki mmi
Valgarður Stefánsson, varafor-
maður Sjálfstæðisfélags Akureyrar,
setti fundinn og stjórnaði honum.
Af ræðumönnum tók Jón G. Sól-
nes fyrstur til máls. Rakti hann
starfsferil fráfarandi bæjarstjórnar
síðasta kjörtímabil, lýsti málefna-
samningi flokkanna og framkvæmd
hans í ýmsum rnálurn, og þá sérstak-
lega kaupum og rekstri Krossanes-
verksmiðjunnar, og sneri síðan að
málum þeim, er úrlausnar bíða á
næsta kjörtímabili. Er kafli úr ræðu
hans birtur annars staðar í þessu
blaði.
Næstur Sólnes talaði Guðmundur
Jörundsson. Fjallaði fyrri hluti ræðu
hans um stefnur stjórnmálaflokk-
anna og áhrif þeirra á athafnalífið
honum þó hafa lærzt, að hækka við-
gerðir samkvæmt vísitölu eða öðr-
um dýrtíðartöxtum.
Þeir bræður ráku nokkurn búskap
framan af árum, og átti Friðrik
jafnan fallega og góða reiðhesta. Þá
var hann og kunnur fyrir skotfimi
sína og talinn ein bezta selaskytla
hér um slóðir.
Hann var allra manna greiðvikn-
astur, geðprúður og hvers manus
hugljúfi, enda kunningi og vinur
flestra bæjarbúa. Gestrisni var mik-
il á heimilinu og mátti oft sjá hóp
ferðamannahesta við Þorgrímshús-
ið, því að fjöldi utanbæj armanna
kom þar við' á leið sinni í bæinn eða
úr og naut góðgerða.
Friðrik á langan og nýtan starfs-
dag að baki, og óskar íslendingur
honum góðs ævikvölds.
x D -1 i s t ■ n n
í landinu. Síðan sneri hann sér að
bæjarmálunum og tók einkum til
meðferðar útgerðarmál og hafnar-
mál.
Þriðji ræðumaður var Sverrir
Ragnars. Er ræða hans birt í heild
á öðrum stað hér í blaðinu.
Þá tók til máls Helgi Pálsson. Kom
hann víða við í ræðu sinni og skil-
greindi ýtarlega stefnuyfirlýsingu
flokksins. Auk þess sem hann tók
iðnaðarmálin sérstaklega til með-
ferðar, ræddi hann afstöðu fram-
bjóðenda flokksins til ýmissa menn-
ingarmála og lýsti eindregnum
stuðningi við Elliheimilismálið,
barnaheimilið og fyrirhugað æsku-
lýðsheimili.
Næstur talaði Eiríkur Einarsson,
og tók til meðferðar atvinnu- og
verklýðsmálin, auk þess sem hann
ræddi nokkuð einstök atriði stefnu-
yfirlýsingarinnar.
Síðastur talaði Karl Friðriksson.
Var aðalefni ræðu hans hvatning til
fundarmanna um að fylgja fast eftir
sigri D-listans við bæjarstjórnarkosn
ingarnar og setja sér það takmark,
að koma 5 mönnum af listanum í
bæjarstjórn fyrir næsta kjörtíma-
bil.
Að þessum ræðmn loknum voru
boðnar frjálsar umræður. Tóku þá
til mgls Steingrímur G. Guðmunds-
son og Sveinn Bjarnason. Flutti
Sveinn langa og skörulega ræðu, þar
sem hann rakti og gagnrýndi mál-
efnasamning bæjarstjórnar s. 1. kjör-
tímabil og hver áhrif hann hefði
haft á afgreiðslu mála í bæjarstjórn-
inni. Taldi hann margar hinna fjár-
freku framkvæmda s. 1. kjörtímabil
mjög hæpnar og áhættusamar fyrir
bæjarfélagið.
Að síðustu töluðu 5 fruminælenda
nokkur orð hver, og var komið
nokkuð fram yfir miðnætti, er fundi
lauk. Voru fundarmenn liinir á-
nægðustu, enda var þetta einn fjöl-
sóttasti og ánægjulegasti fundur, er
Sjálfstæðisfélögin hafa haldið hér í
bæ.
Friðrik Porgrímsson áftræður.