Íslendingur


Íslendingur - 28.01.1950, Page 3

Íslendingur - 28.01.1950, Page 3
Laugardaginn 28. janúar 1950 ISLENDINGUR 3 Spurningar og svðr Skrifstofustjóri verkalýðsfélag- anna hér í bæ, Höskuldur Egllsson, sendir mér tóninn í „Verkamannin- um“ 24. jan. og segist gera það m.a. í tilefni af þvi, er ég hefi haldið fram, að skrifstofa verkalýðsfélag- anna annist upplýsinga- og út- breiðslustarf fyrir Sósíalistaflokk- inn. Virðisi svo, að þetta hafi kom- ið illa við kaunin, enda neitar hann þessu og biðst sannana, er hann skal fá að svo miklu leyti, sem þörf er á að sanna slíkt, þó að þetta sé að v.'su það, sem allur bærinn veit. Allt fram að síðasta þingi Alþýðu- sambandsins hafði skrifstofa verka- lýðsfélaganna hér í bæ á hendi út- breiðslu tímarits A.S.Í., „Vinnan“. En á s'Sasta þingi urðu stjórnarskipti i A. S. í. og sósialistar mlsstu þar yfirráð. Gripu þeir á braut með sér úr stjórninni nafn tímaritsins „Vinn- an“, sem s!nn eigin helgidóm. A. S. í. gaf út samnefnt rit eftir sem áður. Sósialistar einnig, og eru því tvö tímarit gefin út með þessu nafni. En nú brá svo við, að þegar s:jórn A. S. í. var ekki lengur í höndum kommúnista, neitaði skrif- stofa verkalýðsfélaganna á Akureyri að annast afgrelðslu „Vinnunnar“ fyrir A. S. í. Þrátt fyrir það þó að skrifstofan eigi að vera sambands- tæki, fyrst og fremst, milli A. S. í. og félaga þeirra, er að skrifstofunni standa og öll eru í A. S. í. Aftur á móti annast skrifs ofan útbreiðslu samnefnds rits fyrir Sósialistaflokk- inn og má H. E. neita því, ef hann getur, að í þessu fellst Ielðbein- ingar og útbreiðslustarf fyrir sóslal- ista, fyrir utan það að með þessum heimskulegu aðgerðum sýndi skrlf- stofan A. S. í. beinan fjandskap. Þessi atburður minnir á söguna af skapleiðri kerlingu, sem líkaði illa vistin, þar sem hún var, og „hafði allt á hornum sér.“ Kölski kom þá eitt sinn í heimsókn til kerlingar og bauð henni vist með sér. Lagði hún á braut með honurn, og grelp kopp- inn sinn með sér! Það var hennar helgidómUr. En hún átti líka koppinn sjálf! En fyrst við H. E. erum að spjalla um skrifstofuna, ætla ég nú að spyrja hann nokkurra spurninga við komandi rekstri hennar. H. E. segir mér í grein slnni, að ég sé fákunn- andi í félagsmálum, og er þá skylda hans fyrst ég spyr, að bæta mér þessa fávísi, þar sem ég er þó — þrátt fyr- ir allt — einn þeirra verkamanna, er greiði 75,00 kr. árgjald af þeim ca. 500 meðlimum Verkamannafél. Akureyrakaupstaðar. I. Það er vitað, að skrifs'.ofa verkalýðsfélaganna hefir því aðal- hlutverki að gegna, að hafa náið samband við A. S. í. og gefa því skýrslur um starfsemi og ályktanir félaganna á Akureyri. Hversu mörg bréf hefir skrifstofan skrifað A. S. í. sl. ár, og hve mörg erindi hefir A.S.Í. sent skrifstofunni til fyrirgreiðslu? II. Björn Jónsson upplýsti á aðal- fundi Verkam.fél. I fyrravetur, að j einn liður í starfseminni væri að skrifa bréf fyrir hina ýmsu meðlimi verkalýðsfélaganna og útfylla skýrsl- ur. Hve mörg bréf hefir hann skrif- að fyrir meðlimi félaganna, vegna embættis síns á skrifstofunni? j Hve margar skýrslur ú.fyllt? III. Mundi ekki nægja ein klukku stund á dag sem viðtalstími við.trún aðarmenn á vinnustöðvum í bænum, og aðra þá félaga, er samband þurfa að hafa við skrifstofuna, og 2 stund- ir á dag til að skrifa og svara bréf- um og erlndum vegna skrifstofunn- ar? Þar sem ég veit nú svona lítið, en H. E. alla skapaða hluti, sem hann vill vita, viðkomandi þessu, vil ég nú biðja hann að svara þessu, og einni gþví, hvort kvöldin væru ekki heppilegust til vinnu og afgreiðslu- starfa, eftir venjulegan vinnutíma, og mundu tveir menn vel geta, að mlnu áliti leyst þetta starf vél af hendi — til skiptis — á ca. 600 klst. á ári. Þó ég efist ekki um, að störf þau, er H. E. hefir á hendi fyrir skrifstof- una, séu í bezta lagi,og að hann mimi gefa greið svör, vil ég taka fram, j að ég ætlast alls ekki til, að hann gefi skýrslu um það í blaði sínu, þó að hann kynni að ræða um póli- tík við þá sósíal.sta, sem í yfirgnæf- , andi meiri hluta eiga þangað erindi, j miðað við þá, er aðhyllast stjórn- j málastefnu lýðræðisflokkanna í bænum. En ég tel mig hafa rétt á að fá að vita, hvernig starfsháttum er varið, er skrifstofan hefir með höndum, sem mér sýnist — að ó- reyndu — vera of dýr í rekstri. Þá upplýsir H. E. að flokkurinn hafi skrifstofu í Brekkugötu 7, og var það ekki meira en það, er ég vissi áður, enda byrjuöu sósíalistar fyrir löngu að undirbúa Alþingis- kosningar. Eg efast ekkert uln að þeir hafi hana þar áfram, með því að horfur eru á að þjóðin æ'.li sér nú að leggja aöallega fyrir sig kosn- ingar. Fyrir mínum augum er ekki Ijóst, hver skrifstofan er frekar flokksskrifstofa. Á meðan sósialistar hafa verkalýðsfélögin í bænum á valdi sínu, verður engin skrifstofa, er þeir ganga um, ósnortin af þeirra sefjum. Eiríkur Einarsson. - NYJA BIÓ - Sunnudag kl. 3 og 5: UPPNÁM í ÓPERUNNI (A Night at the Opera) Aðalhlutverk leika: MARX- bræSurnir. LÆSTAR DYR (Secret beyond the door) Spennandi amerísk sakamála- mynd. Aðalhlutverkin leika: JOAN BENNETT MICHAEL REDGRAVE Bönnuð börnum innan 16 ára. Skjaldborgar-bíó Hamingjusamt fólk (This happy breed) Ensk stórmynd í eðlilegura lit- im, samin og gerð af Noel Co- ward. Aðalhlutverk: Robert Newton Celia Johnson John Mills Kay Walsh. Skrifstota Sjáltstæðisflokksins verður á kjördegi í skrifstofu Jakobs Karlssonar (Eimskip). Bílasímar: 88 og 131. Upplýsingasímar: 578 og 401. Sjálfstæðisfólk! munið að kjósa tímanlega. Gefið skrifstofunni upplýsingar um allt sem að gagni má verða varðandi kosningarnar. x-D x-D S t ú 1 k a vön skrifstofustörfum getur fengið atvinnu nú þegar, eða í næsta mánuði. - Nokkur málakunn- átta er æskileg. Karlmaður til sömu starfa gæti einnig komið til mála. Upplýsingar hjá verksmiðjustjóranum, þó ekki í síma. Klœðaverksmiðjan GEFJUN. Máljundaklúbbur Æskulýðsfélags Ak- ureyrarkirkju heldur fund þriðjudaginn 31. þ.ra. kl. 8.30 e.h. í fundarsal Í.B.A. í íþróttahúsinu. Jón Bjarman flytur fram- söguræðu. Þeir Æskulýðsfélagar, sem hafa hugsað sér að starfa í klúbbnum, mæti. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trú- lofun sína ungfrú Jakobína Jónsdóttir, Norðurgötu 38, Akureyri, og Nils Hansen frá Danmörku. Einnig Jóna Alfreðsdóttir, verzlunarmær, Akureyri, og Þór Árnason, bifreiðarstjóri. Geysir heldur almennan dansleik í Lóni laugardaginn 28. þ.m. kl. 10 e.h. og sunnu- daginn 29. þ.m. kl. 9 e.h. Hljómsveit leik- ur. Ekki samkvæmisklæðnaður. Aðgöngu- miðar seldir á staðnum frá kl. 8.30 báða dagana. T I L S O L Tvær Hansagardínur (Persian Blinds) með tækifæris verði. — Upplýsingar í síma 46 eða 246. Litun Viðskiptavinir okkar eru vin- samlegast beðnir að sækja sem fyrst fatnað sinn, sem við höfmn litað. Efnalaugin SKÍRNIR. Sjálfstæfliskjösendur! Gerið kosningasigur D-listans á morgun sem glæsilegastan. Mætið snemma á kjörstað. — Munið, að auk þess sem Sjálfstæðisflokkurinn vinnur sæti af kommúnistum hefir hann möguleika á að vinna annað, ef allir Sjálfstæðismenn leggja sig fram. Svarið Rússaliðinu, ásókn KEA valdsins og litla embættismannaflokknum með atkvæði yðar. iistinn

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.