Íslendingur - 28.01.1950, Síða 4
4
ÍSLENDINGUR
Laugardaginn 28. janúar 1950
Sjnishorn at kjOrseðli
til bæjarstjórnarkosninga á Akureyri, sem fram eiga að fara 29. þ. m.
Kjósandinn setur blýantskross framan við bókstaf þess llsta er hann kýs. Þegar kjósandi hefir kosiÖ D-listann, lítur kjörseðillinn þannig út.
j^-Iisti G-iisti Q-listi X D-urf
Steindór Steindórsson Jakob Frímannsson Elíabet Eiríksdóttir Jón G. Sólnes
Bragi Sigurjónsson Þorsteinn M. Jónsson Tryggvi Helgason Helgi Pálsson Guðmundur Jörundsson
o. s. frv. o. s. frv. o. s. frv. Sverrir Ragnars Eiríkur Einarsson
.
AthugiÖ, að önnur merki á kjörseðlinum geta auðveldlega gert hann ógildan.
Aðalfundur „Varðar”
Nær uáiit hundrað nýir féiagar.
TÚLKVNARGÁFA HAUKS.
Dagur getur átt það til að vera
skemmtilegur. Sérstaklega kemur
það vel fram í síðasta blaði.
í stefnuskrá Sjálfstæðismanna í
bæjarmálum er þess getið, að flokk-
urinn vilji láta framkvæma 3. gr.
húsaleigulaganna.
Túlkun Hauks: Sjálfstæðismenn
ætla að bera út allt fólk, sem flutt
hefir í bæinn síðustu 6—7 árin.
í „ísl.“ hefir nokkuð verið rætt
um skattfríðindi KEA, sem mjög eru
umtöluð í bænum innan allra flokka,
og munu allir nema helztu forvígis-
menn félagsins á einu máli um það,
að þörf sé breytinga á samvinnulög-
gjöfinni frá 1921.
Túlkun Hauks: Sj álfstæðismenn
vilja eyðileggja samvinnufélögin. Ef
þeir réðu hér á Akureyri, mundi út-
svar KEA vera á aðra milljón króna.
ísl. gerði athugasemd við það, að
Framsókn kallar það eyðslufé, sem
fer til kaupa á framleiðslutækjum
og benti á, að frekar væri að nefna
það eyðslufé, sem fer til stórbygg-
inga yfir fámenna skóla víðs vegar
á landinu.
Túlkun Hauks: Sjálfstæðismenn
hafa lýst stefnu sinni í skólamálum.
Þeir eru á móti menntun æskunnar.
Heildarútkoma á stefnuyfirlýsingu
Sjálfstæðismanna og skrifum þeirra
sýnir, að þeir eru 50 árum á eftir
tímanum!
AFTURHALDSSTEFNA
FRAMSÓKNAR.
Framhald af 1. síðu.
tvær Framsóknarniennirnir, og
þeir nota þær óspart báðar. Eti
þetta er nú fyrir kosningar. Bíði
menn nú við og taki eftir, hvort
ekki kemur annað hljóð í strokk-
inn eftir kosningar. Ætli Dagur
verði þá seinn á sér að taka und-
ir við Tímann og ráðast á fyrr-
verandi fjármálaráðherra með
óbótaskömmum fyrir það, að
hann tryggði það, að tveir Akur-
eyrartogaranna komust á veiðar.
E. J.
DAGUR GLEYPIR BLEKKINGAR
TÍMANS HRÁAR.
Tíminn reyndi nýlega að færa
sönnur á, að útsvörin í Reykjavík
væru þau hæstu á landinu. Fór hann
þannig að, að reikna út, hvað út-
svarsupphæðin næmi miklu á hvert
mannsbarn í bænum.
Þetta þó'.ti Degi góð latina, og
birti tölurnar eftir Tímanum og það
með, að 6 bæir byggju við þyngri
úlsvarsbyrðar en Akureyri. Því er
alveg sleppt, að meðaltekjur manna
og fyrirtækja i Reykjavík og Hafn-
arfirði eru langtum hærri en hér á
Akureyri.
Hver maður með heilbrigðri
skynsemi, veit, að útsvarsstiginn
segir til tun þunga útsvaranna, en
hann mun vera lægsiur í Reykjavík
en hæstur, eða með þeim hæstu hér
á Akureyri. S.l. vor var gerður sam-
anburður á útsvörum í Reykjavík og
á Akureyri hér í blaðinu af sömu
tckjum, og sýndi hann, að verka-
maður, sem hefir 1300 kr. útsvar í
Reykjavík hefir hér á Akureyri af
sömu tekjum fullar 1800 krónur.
Blekkingar Tímans um útsvörin
ganga ekki í kjósendur á Akureyri,
þótt þær séu prentaðar upp í Degi.
KEA-MAÐUR GERIR GREIN
FYRIR ATKVÆÐl SÍNU.
í síðasta Degi svarar einn KEA-
maður spurningu, sera hann leggur
fyrir sjálfan sig: „Hvers vegna kýs
ég lista Framsóknarflokksins?“
Hann kveðst ekki geta kosið Sjálf-
stæðisflokkinn, af því að stefna hans
sé að „viðhalda sérréttindaklíku“(!).
Þess vegna vilji hann kjósa listann,
sem framkvæmdastjóri KEA sé efst-
ur á, því að þannig hyggur hann
bezt unnið gegn sérréttindunum hér
í bæ.
Og maður spyr mann þessa dag-
ana: „Hví birtir Dagur svona „flnt
grín“ um KEA-listann?
TEK
að mór hreingerningar.
RÖGNVALDUR RÖGNVALDSSON
Norðurgötu 47.
Miðvikudaginn 25. þ. m. var hald-
inn aðalfundur í félagi ungra Sjálf-
stæðismanna hér í bæ ,,\erði“. I
ftmdarbyrjun voru samþykktar 46
inntökubeiðnir frá nýjum féiögum,
og er þessi aukning enn einn vottur
um traust æskumanna á Sjálfstæðis-
flokknum, og áhuga manna á því að
þau stefnumál, sem flokkurinn berst
fyrir nái fram að ganga. Síðan gaf
fráfarandi formaðin-, Eggert Jóns-
son, skýrslu um starfsemi félagsins
á árinu. Hið margþætta félagslíf var
með svipuðum hætti og veturinn áð-
ur, fundir haldnir, spilakvöld, dans-
leikir og hinar vinsælu kvöldvökur,
sem flestum munu vera kunnar.
Félagið sendi auk þessa tug fulltrúa
á Sambandsþing ungra Sjálfstæðis-
manna, sem haldið var í Reykjavík
síðara hluta júnímánaðar sl. Einnig
lögðu félagsmenn fram mikið og
gott starf í sambandi við hinn glæsi-
lega kosningasigur Jónasar G. Rafn-
ar á sl. hausti. Þá fór fram stjórnar-
kosning, og baðst form. félagsins,
Eggert Jónsson, lögfr. eindregið imd
an endurkosningu sökum margvís-
legra og umfangsmikilla starfa. í
hans stað var Gunnar G. Schram
kjörinn formaður. Aðrir í hinni
nýju stjórn eru: Magnús Óskarsson,
varaform., Sigurður Steindórsson,
ritari, Snorri Kristjánsson gjaldkeri,
Sigurður Ringsted, Hugi Ásgríms-
son og Gylfi Pálsson. Varastjórn
skipa Vignir Guðmundsson, Magnús
Björnsson og Ólafur Einarsson. —
Spilanefnd: Sigurpáll Helgason, Við-
ar Samúelsson og Hreinn Svavars-
son. — Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag-
anna: Eggert Jónsson, Sig. Ring-
sted og Haraldur Jakobsson. Á fund-
inum fór einnig fram breyting á
lögum félagsins, þannig að í stað
HERBERGI
til leigu. — Upplýsingar í
Norðurgötu 31 (1. hæð).
þess að aðalfundur hefir verið hald-
inn í janúar ár hvert, fer hann nú
fram í október.
Þá flutti Guðmundur Jörundsson
snjallt erindi um bæjarstjórnarkosn-
ingarnar og einstök mál í sambandi
við þær, og spunnust af því nokkrar
umræður. Guðmundur gaf m. a. ýt-
arlegt yfirlit yfir Krossanesverk-
smiðjuna, framleiðslugetu hennar og
framtíðarmöguleika.
„Vörður“ er nú fjölmennasta
stjórnmálafélagið hér í bæ og mun
meðlimatalan vera hátt á þriðja
hundrað. Með þessu hefír æska Ak-
ureyrar sýnt í verki að hún metur
meira, og telur heillavænlegri, hina
heilbrigðu umbóta- og frelsisstefnu
Sj álfstæðisflokksins, en haf'astefnur
og ríkisáþján rauðu flokkanna
beggja, og brauðpólitík Framsóknar
undir merki kaupfélaganna.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir átt því
Iáni að fagna að hafa notið fylgis
æskminar, hvar sem er á landinu, í
ríkari mæli, en nokkur hinna flokk-
anna. Ávextir þessa liafa þegar koin-
ið í Ijós, en eiga þó eftir að verða
enn augsýnilegri.
„Vörður“ er ekki ómerkur þáttur
í þeirri baráttu, sem nú er háð undir
fána Sjálfstæðisflokksins fyrir á-
framhaldandi velmegun og hagsæld
allra þeirra, sem land þetta byggja,
og með áhugasömu s:arfi og sam-
stilltum kröftum mun hann leysa
hlutverk sitt af hendi.
Á engan hátt annan getur ungt
jóllc hér i bœ stutt betur að því að
hér megi jramvegis ríkja viðsýni,
jramfaravilji og athajnafrelsi á ölL
um sviðum þjóðlifsins, en með þvi
að skipa sér í fylkingu undir merki
Varðar, og gera baráttu Sjá1fstœðis-
flokksins fyrir heill alþjóðar að
sinni baráttu.
X D-llsti
EOttOOOOOttOSttttattfettOOOCOCOittCií
>0000000000000000000000000
Helgi Pálsson.
Jón G. Sólnes.
Guðmundur Jörundsson.
Eirikur Einarsson.
cccottttsccottttc.tttt.aaotta
Sverrir Ragnars.