Íslendingur


Íslendingur - 28.01.1950, Qupperneq 4

Íslendingur - 28.01.1950, Qupperneq 4
4 ÍSLENDINGUR Laugardaginn 28. janúar 1950 Sjnishorn at kjOrseðli til bæjarstjórnarkosninga á Akureyri, sem fram eiga að fara 29. þ. m. Kjósandinn setur blýantskross framan við bókstaf þess llsta er hann kýs. Þegar kjósandi hefir kosiÖ D-listann, lítur kjörseðillinn þannig út. j^-Iisti G-iisti Q-listi X D-urf Steindór Steindórsson Jakob Frímannsson Elíabet Eiríksdóttir Jón G. Sólnes Bragi Sigurjónsson Þorsteinn M. Jónsson Tryggvi Helgason Helgi Pálsson Guðmundur Jörundsson o. s. frv. o. s. frv. o. s. frv. Sverrir Ragnars Eiríkur Einarsson . AthugiÖ, að önnur merki á kjörseðlinum geta auðveldlega gert hann ógildan. Aðalfundur „Varðar” Nær uáiit hundrað nýir féiagar. TÚLKVNARGÁFA HAUKS. Dagur getur átt það til að vera skemmtilegur. Sérstaklega kemur það vel fram í síðasta blaði. í stefnuskrá Sjálfstæðismanna í bæjarmálum er þess getið, að flokk- urinn vilji láta framkvæma 3. gr. húsaleigulaganna. Túlkun Hauks: Sjálfstæðismenn ætla að bera út allt fólk, sem flutt hefir í bæinn síðustu 6—7 árin. í „ísl.“ hefir nokkuð verið rætt um skattfríðindi KEA, sem mjög eru umtöluð í bænum innan allra flokka, og munu allir nema helztu forvígis- menn félagsins á einu máli um það, að þörf sé breytinga á samvinnulög- gjöfinni frá 1921. Túlkun Hauks: Sj álfstæðismenn vilja eyðileggja samvinnufélögin. Ef þeir réðu hér á Akureyri, mundi út- svar KEA vera á aðra milljón króna. ísl. gerði athugasemd við það, að Framsókn kallar það eyðslufé, sem fer til kaupa á framleiðslutækjum og benti á, að frekar væri að nefna það eyðslufé, sem fer til stórbygg- inga yfir fámenna skóla víðs vegar á landinu. Túlkun Hauks: Sjálfstæðismenn hafa lýst stefnu sinni í skólamálum. Þeir eru á móti menntun æskunnar. Heildarútkoma á stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðismanna og skrifum þeirra sýnir, að þeir eru 50 árum á eftir tímanum! AFTURHALDSSTEFNA FRAMSÓKNAR. Framhald af 1. síðu. tvær Framsóknarniennirnir, og þeir nota þær óspart báðar. Eti þetta er nú fyrir kosningar. Bíði menn nú við og taki eftir, hvort ekki kemur annað hljóð í strokk- inn eftir kosningar. Ætli Dagur verði þá seinn á sér að taka und- ir við Tímann og ráðast á fyrr- verandi fjármálaráðherra með óbótaskömmum fyrir það, að hann tryggði það, að tveir Akur- eyrartogaranna komust á veiðar. E. J. DAGUR GLEYPIR BLEKKINGAR TÍMANS HRÁAR. Tíminn reyndi nýlega að færa sönnur á, að útsvörin í Reykjavík væru þau hæstu á landinu. Fór hann þannig að, að reikna út, hvað út- svarsupphæðin næmi miklu á hvert mannsbarn í bænum. Þetta þó'.ti Degi góð latina, og birti tölurnar eftir Tímanum og það með, að 6 bæir byggju við þyngri úlsvarsbyrðar en Akureyri. Því er alveg sleppt, að meðaltekjur manna og fyrirtækja i Reykjavík og Hafn- arfirði eru langtum hærri en hér á Akureyri. Hver maður með heilbrigðri skynsemi, veit, að útsvarsstiginn segir til tun þunga útsvaranna, en hann mun vera lægsiur í Reykjavík en hæstur, eða með þeim hæstu hér á Akureyri. S.l. vor var gerður sam- anburður á útsvörum í Reykjavík og á Akureyri hér í blaðinu af sömu tckjum, og sýndi hann, að verka- maður, sem hefir 1300 kr. útsvar í Reykjavík hefir hér á Akureyri af sömu tekjum fullar 1800 krónur. Blekkingar Tímans um útsvörin ganga ekki í kjósendur á Akureyri, þótt þær séu prentaðar upp í Degi. KEA-MAÐUR GERIR GREIN FYRIR ATKVÆÐl SÍNU. í síðasta Degi svarar einn KEA- maður spurningu, sera hann leggur fyrir sjálfan sig: „Hvers vegna kýs ég lista Framsóknarflokksins?“ Hann kveðst ekki geta kosið Sjálf- stæðisflokkinn, af því að stefna hans sé að „viðhalda sérréttindaklíku“(!). Þess vegna vilji hann kjósa listann, sem framkvæmdastjóri KEA sé efst- ur á, því að þannig hyggur hann bezt unnið gegn sérréttindunum hér í bæ. Og maður spyr mann þessa dag- ana: „Hví birtir Dagur svona „flnt grín“ um KEA-listann? TEK að mór hreingerningar. RÖGNVALDUR RÖGNVALDSSON Norðurgötu 47. Miðvikudaginn 25. þ. m. var hald- inn aðalfundur í félagi ungra Sjálf- stæðismanna hér í bæ ,,\erði“. I ftmdarbyrjun voru samþykktar 46 inntökubeiðnir frá nýjum féiögum, og er þessi aukning enn einn vottur um traust æskumanna á Sjálfstæðis- flokknum, og áhuga manna á því að þau stefnumál, sem flokkurinn berst fyrir nái fram að ganga. Síðan gaf fráfarandi formaðin-, Eggert Jóns- son, skýrslu um starfsemi félagsins á árinu. Hið margþætta félagslíf var með svipuðum hætti og veturinn áð- ur, fundir haldnir, spilakvöld, dans- leikir og hinar vinsælu kvöldvökur, sem flestum munu vera kunnar. Félagið sendi auk þessa tug fulltrúa á Sambandsþing ungra Sjálfstæðis- manna, sem haldið var í Reykjavík síðara hluta júnímánaðar sl. Einnig lögðu félagsmenn fram mikið og gott starf í sambandi við hinn glæsi- lega kosningasigur Jónasar G. Rafn- ar á sl. hausti. Þá fór fram stjórnar- kosning, og baðst form. félagsins, Eggert Jónsson, lögfr. eindregið imd an endurkosningu sökum margvís- legra og umfangsmikilla starfa. í hans stað var Gunnar G. Schram kjörinn formaður. Aðrir í hinni nýju stjórn eru: Magnús Óskarsson, varaform., Sigurður Steindórsson, ritari, Snorri Kristjánsson gjaldkeri, Sigurður Ringsted, Hugi Ásgríms- son og Gylfi Pálsson. Varastjórn skipa Vignir Guðmundsson, Magnús Björnsson og Ólafur Einarsson. — Spilanefnd: Sigurpáll Helgason, Við- ar Samúelsson og Hreinn Svavars- son. — Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag- anna: Eggert Jónsson, Sig. Ring- sted og Haraldur Jakobsson. Á fund- inum fór einnig fram breyting á lögum félagsins, þannig að í stað HERBERGI til leigu. — Upplýsingar í Norðurgötu 31 (1. hæð). þess að aðalfundur hefir verið hald- inn í janúar ár hvert, fer hann nú fram í október. Þá flutti Guðmundur Jörundsson snjallt erindi um bæjarstjórnarkosn- ingarnar og einstök mál í sambandi við þær, og spunnust af því nokkrar umræður. Guðmundur gaf m. a. ýt- arlegt yfirlit yfir Krossanesverk- smiðjuna, framleiðslugetu hennar og framtíðarmöguleika. „Vörður“ er nú fjölmennasta stjórnmálafélagið hér í bæ og mun meðlimatalan vera hátt á þriðja hundrað. Með þessu hefír æska Ak- ureyrar sýnt í verki að hún metur meira, og telur heillavænlegri, hina heilbrigðu umbóta- og frelsisstefnu Sj álfstæðisflokksins, en haf'astefnur og ríkisáþján rauðu flokkanna beggja, og brauðpólitík Framsóknar undir merki kaupfélaganna. Sjálfstæðisflokkurinn hefir átt því Iáni að fagna að hafa notið fylgis æskminar, hvar sem er á landinu, í ríkari mæli, en nokkur hinna flokk- anna. Ávextir þessa liafa þegar koin- ið í Ijós, en eiga þó eftir að verða enn augsýnilegri. „Vörður“ er ekki ómerkur þáttur í þeirri baráttu, sem nú er háð undir fána Sjálfstæðisflokksins fyrir á- framhaldandi velmegun og hagsæld allra þeirra, sem land þetta byggja, og með áhugasömu s:arfi og sam- stilltum kröftum mun hann leysa hlutverk sitt af hendi. Á engan hátt annan getur ungt jóllc hér i bœ stutt betur að því að hér megi jramvegis ríkja viðsýni, jramfaravilji og athajnafrelsi á ölL um sviðum þjóðlifsins, en með þvi að skipa sér í fylkingu undir merki Varðar, og gera baráttu Sjá1fstœðis- flokksins fyrir heill alþjóðar að sinni baráttu. X D-llsti EOttOOOOOttOSttttattfettOOOCOCOittCií >0000000000000000000000000 Helgi Pálsson. Jón G. Sólnes. Guðmundur Jörundsson. Eirikur Einarsson. cccottttsccottttc.tttt.aaotta Sverrir Ragnars.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.