Íslendingur


Íslendingur - 28.01.1950, Síða 6

Íslendingur - 28.01.1950, Síða 6
6 ÍSLENDINGUR Laugardaginn 28. janúar 1950 Kappræflufundurinn ER EKKI ÞÖRF NÝRRAR BRYGGJU? í útvarpsumrœðunum í gærkvöldi sagði fulltrúaefni Framsóknarflokks- ins, Jakob Frímannsson, að Torfu- nefsbryggjan væri nú að fá þá að- gerð, að ekki væri þörf nýrrar haf- skipabryggju hér á Akureyri fyrst um sinn. Hvers vegna segir J. F. þetta? Hann veit jafnvel og allir aðrir, sem kæra sig um að vita það, eða þurfa eitthvað á sæmilegum hafnarmann- virkjum að halda, að sú endurbót, sem nú er að fara fram á Torfunefs- bryggjunni, bætir á engan hátt úr þeim hafskipabryggjuskorti, sem hér er, vegna þess að dýpið við hana er hið sama og verið hefir og komast því ekkert stærri skip að henni en áður. Endurbótin er aðeins sú, að hún er styrkt og breikkar um 1.5 metra. Fyrir örfáum árum kom skip hing- að á höfnina með 3600 smálestir af sementi. Rúmlega helminginn af farminum varð að losa með selflutn- ingi á smáskipum, áður en skipið flaut við bryggjuna. Þetta hefði J. F. átt að muna, því að KEA átti um helming af farmi skipsins. „Trölla- foss“ flýtur ekki að bryggjunni full- hlaðinn o.s.frv. Á seinni árum hefir sú breyting orðið á, yfirleitt, að stærri og stærri skip eru notuð til flutninga, þar eð það er hlutfallslega ódýrara, en að nota smærri skipin. Akureyrarhöfn var alveg óviðbúin að mæta þessari þróun siglinganna og er það enn og verður, þangað til ný hafskipa- bryggja verður byggð og við hana svo mikið dýpi, að 5—^000 smál. skip a.m.k. geti lagst við hana full- fermd. Þá fyrst er hægt að tala um Akureyri sem umskipunarhöfn fyrir Norðurland. Hitt er rétt. að bæði „Arnarfell“ og „Hvassafell“ geta lagst fullfermd að Torfunefsbryggjunni eins og dýp- ið við hana er, og er e.t.v. í því að leita skýringarinnar á því, að J. F. telur að ekki sé þörf nýrrar hafskipa- bryggju hér á Akureyri. Áheyrandi. Hjúskapur. Ungfrú Hulda Haraldsdóttir og Sigurður Ringsted bankamaður. Ung- frú Jakobína Stefánsdóttir Siglufirði og Haraldur Ringsted. Æskulýðsfylldngiii segir unga Sjálfstæðis- menn liættulegasta andstæðinga sína Bauð Verði þó ekki á kappræðufundinn S.l. mánudag var háður kapp- ræðufundur að tilhlutan Æskulýðs- fylkingarinnar í Samkomuhúsi bæj- arins. Það vakti undrun hér í bæn- um að kommúnistar skyldu hvorki bjóða F.U.F. né F.U.S. Verði, fjöl- mennas'a stjórnmálafélagi bæjarins, heldur aðeins ungum jafnaðarmönn- im. Má af þessu marka, að komm- únistar hafa talið að þeim mundi e’tast auðvelt að ráða við kratana, en reyndin varð allt önnur. Þótt mál- flutningur kratanna væri ekki nema í meðallagi, nægði það þó til þess að kommúnistarnir fóru hinar mestu hrakfarir. Af þessu er augljóst hvernig farið hefði, ef t.d. Vörður hefði einnig tekið þátt í fundinun. \ðalframsöguræðuna flutti Þor- steinn Jónatansson, og ber mönnum saman um að hún hafi verið einhver hin lélegasta sem hér hefir heyrzt á opinberum fundi. Aðalefni hennar var sundurlausar svívirðingar um einstaka menn hér í bæ, auk hinnar margendurteknu tuggu um blessun þess og farsæld að handhafar Moskvuvaldsins fari með völdin hér í bæ. Einnig skýrði hann frá því, sem raunar flestir vissu, að ungir Sj álfstæðismenn væru skeleggas' ir andstæðingar hinnar austrænu ein- ræð.’sstefnu, koinmúnismans, en gaf þó enga fullnægjandi skýringu á hvers vegna þeim hefði eigi verið leyfð þátttaka í fundinum. Þórir Daníelsson talaði einnig fyrir Kommúnista, en lítið gat hann bætt úr hinni lélegu frammistöðu Þor- steins. Menn bros'u almennt þegar kommúnistar sögðust tala bara við krata af því að þeir væru að deyja út, en deildu samt harðlega á þá fvrir að vilja ekki ganga í sam- fylkingu við sig og ná meirihluta í bæiarstjórn með því móti(!). Mönnum ber saman um að komm- únistar hafi hlotið hina verstu út- reið á fundi þessum, og að þeim hafi verið nær að fara hvergi, enda munu þeir hafa hlotið ávítur sinna eigin flokksmanna fyrir frumhlaup- ið. — JAKOB FRÍMANNSSON MÓTM/ELIR SKJALFESTUM HEIMILDUM f útvarpsumræðunum í gærkvöldi lýsti Jakob Frímannsson Jón Sólnes ósannindamann að því, að Fram- sóknarmenn hefðu gengið inn á bæj- arrekstur togara í málefnasanmingi milli Framsóknar, Alþýðuflokksins og Konmiúnista eftir bæjarstjórnar- kosningarnar 1946. Jón Sólnes sannaði þá mál sitt með því að lesa upp 1. grein samn- ingsins, er þessir 3 flokkar buðu Sjálfstæðisflokknum aðild að, en hún er svohljóðandi: „Að komið verði á bœjarútgerð með einum togara (lbr. hér), auk þátltöku bæjarins í ú'gerð eins tog- ara í Utgerðarfélagi Akureyringa, og unnið verði að því, að þeir verði reknir báðir undir sameiginlegri framkvæmdastj órn.“ Svo fór um sjóferð þá. KJÓSA N DI ! Á morgun getur þú með afkvæði þínu haft rík óhrif ó það, hvort sósíalisminn með bæjarrekstri og heft- ingu á einkaframtaki verði innleiddur hér ó Akureyri, eða að hér verði persónu- frelsi og framtak virt og stutt. Sértu andvígur bæjar- rekstri óttu aðeins um einn lista að velja — D-listann. Strandarkirkja. Áheit frá S. G. kr. 10. Frá G. n. kr. 10. Móttekið á afgreiðslu ís- lemlings. Sent áleiðis. LÉREFTSTUSKUR kaupum við hæsta verði. Prentsmiðja Björns Jónssonar h * Alþýðuflokkurinn býður ykkur fulltrúa til að ráða fram úr vanda- málum þeim, sem óumflýjanlega eru framundan á næstu 4 árum. Flokk- urinn, sem átti forsætisráðherrann, er hljóp á burt af landinu í fyrra- vetur, þegar vísiialan hafði þotið upp og þjóðln horfði spyrjandi aug- um til hans, og gerði með þessu flóttaför sína að einu spurningar- merki. J Flokkurinn, sem átti forsætisráð- herrann, er bauð collegum sínum frá Norðurlöndum til’ Arnarhóls og menn stóðu með sjónauka i höndum á tröppum húsa sinna í Reykjavík og horfðu á, vegna þess að ekki mátti sjá hofmennsku og rausn Al- þýðuflokksins og ráðherrans með beruin augum. Flokkurinn, sem ætíð verður að einu stóru spurningarmerki í hvert sinn, er vanda ber að höndum með þjóðinni. Þessi flokkur býður okkur full- trúa, bæjarbúmn, í kosningunum á sunnudaginn. Flokkurinn, sem reikar eins og visið laufblað fyrir haust- svala. Bæjarbúar! Munið, að Sjálfstæðisflokkurinn mun horfa móti vandanum, án þess að líta undan. Kjósið D-listann! EIGA ÞEIR SÉR ILLS VON? Dagur biður kjósendur í morgun að varast „blekkingafregnir“, sem „dreift er út á slðustu stundu fyrir kosningar“, eins og blaðið kemst að orði. Það hefir að vísu áður kveðið við sama tón hjá blaðinu, og er cins og það eigi sér jafnan ills von „á síðustu s'.undu“. Annars er bæja- slúður í sambandi við kosningar öllu viðsjárverðara en prentuð plögg, en Dagur varar ekki við því. Eitt var það, sem Dagur geymdi sér fram á „síðustu stundu“, en það var að sýna kjósendum ásjónur frambjóðenda Frainsóknarflokksins. A kureyrarbœr Laxdrvirk iun Tilkynning Þann 26. janúar 1950 framkvæmdi notarius publicus í Akur- eyrarkaupstað hinn árlega útdrátt á skuldabréfum bæjarsjóðs Akureyrar fyrir 6% láni til raforkuveitu frá Laxárvirkj un, teknu 1939. Þessi bréf voru dregin út: LITRA A. Nr. 32, 59, 61, 75, 83, 102, 137, 142. LITRA B. Nr. 50, 75, 77, 101, 118, 131, 137, 153. LITRA C. Nr. 45. 105, 116, 141, 152, 165, 193, 199, 207, 229, 250, 271, 448, 458, 482, 484, 500, 507, 510, 521, 528, 537, 548, 567, 578, 618, 619, 638, 661, 693. Skuldabréf þessi verða greidd á skrifstofu bæjargjaldkerans á Akureyri þann 1. júlí 1950 ásamt hálfum vöxtum fyrir yfirstand- andi ár. Bæjarstjórinn á Akureyri, 27. janúar 1950. Steinn Steinsen. Kjösíö snemma! il Listi Sjáltstæflisfl. er fj - listinn

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.