Íslendingur - 15.02.1950, Side 1
XXXVI. árg.
Miðvikudaginn 15. febrúar 1950
9. tbl.
íþróttasamband íslands heiðrar 1
atrcksmenn og inethala sl. árs.
Á 38 ára afmæli íþróttasam-
bands íslands, hinn 28. janúar
s.l. bauð framkvæmdastjórn í S f
ýmsum íþróttaleiðtogum, afreks-
mönnum, methöfum og Norður-
landameisturum 1949 í leikvangs
iþróttum og sundi, til kvöldhófs
í Kaffihúsinu Höllinni. Hófið sátu
um 30 manns.
Forseti ÍSÍ Ben G. Waage,
bauð gestina velkomna og flutti
aðalræðuna. Hann þakkaði af-
reksmönnum fyrir unnin íþrótta-
afrek, utan lands og innan. Vakti
athygli á hinu mikilsverða land-
kynningar-starfi, sem íþrótta
menn vorir hefðu unnið og væru
að vinna að. Þar væru það verk-
in sem töluðu. Hinar mörgu og
glæsilegu utanfarir t.d. bæru
þeim fagurt vitni. Það inætti með
sanni segja, að alls staðar þar
sem íþróttamenn vorir hefðu
komið, hefði vegur ÍSLANDS
vaxið. Hin háttprúða, hrausta og
drengilega íþróttaæska hefði vak
ið óskipta athygii og eftirtekt er-
lendis fyrir iþi’óttaafrek sín. Fá-
ir inyndu hafa trúað því, ef ein-
hver hefði sagt fyrir þrjátíu ár-
um síðan, að ísland myndi eiga
marga Norðurlanda-meistara í
leikvangs íþróttum og sundi 1949
En sú varð raunin, og svo er með
fleira á íþróttasviðinu, sem yrði
of langt mál að rekja hér. Þá gat
försetinn þess, að það hefði ver-
ið stjórn ÍSÍ, sem fyrir um 30 ár-
um siðan hefði skrifað alþingi
Islendinga um nauðsyn þess, að
fimleikar, gliina og sund, yrðu
skyldunámsgreinar í skólum
landsins, og ítrekað það oft síðan.
Að ÍSf hefði komið á læknisskoð-
un iþróttamanna; barizt fyrir
sundlaugarbyggingum og Sund-
höllinni í Reykjavík, svo og bent
á nauðsynina á að byggja leik-
velli, leikskála og margt fleira.
Þá rakti hann hið mikilsverða
verkefni ÍSÍ og sérsambandanna
bæði innanlands og utan. Nú
væri þegar ágætt samstarf við
nágrannaþjóðirnar á íþróttasvið-
inu, jafnt um kappraunir og mót,
sem um ýmiskonar íþróttaráð-
stefnur. En öll þessi milliríkja-
málefni yrði að rækja sem bezt,
ef vegur vor ætti að vaxa, og
íþróttakynningin að aukast. Það
væri gleðilegt hvað nágranna-
þjóðirnar sækjast nú eftir því að
fá iþróttagarpa vora til þátttöku
í mótum þeirra. Ef til vili eru það
beztu meðmælin. Því þau bæru
beztan vott utn hinar stórstígu
framfarir afreksmanna vorra síð
ari árin. —
Loks hvatti hann afreksmenn-
ina til að æfa sig reglulega og
svikalaust, og minntist þá á
milliríkjamótin, sem fram undan
væru og loks á ólympíuleikana
1952.
Framhald.
Frá Brigdefélagi
Akurejrar
Starfsemi Bridgefélags Akur-
eyrar hefir verið mjög víðtæk í
vetur. Hún hófst með undirbún-
ingskeppni undir landsmót, og
kepptu þar sex sveitir. Sigur úr
býtum bar sveit Svavar Zophoni-
assonar og keppti hún á Iands-
mótinu,er háð var hér á Akureyri
s.l.haust. Næst var háð tvimenn-
ingskeppni, kepptu þar 20 pör
og urðu þeir hlutskarpastir
Björn Einarsson og Jónas Stef-
ánsson. Þá er nýlokið 1. flokks
keppni. Þar urðu þrjár sveitir
jafnar og keppa þær til úrslita
s'.'ðar, en það eru sveitir Friðriks
Hjaltalín, Halldórs Helgasonar
og Karls Friðrikssonar. Þessar
þrjár sveitir flytjast upp í meist-
araflokk og niunu keppa þar á-
samt þeim þrem sveitum, sem
þar eru fyrir, en það er sveit
Svavars Zophoníassonar sem nú
eru Akureyrarmeistarar, sveit
Indriða Pálmasonar og sveit
Þórðar Sveinssonar. Sú keppni
hefst n. k. sunnudag eins og
auglýst er annars staðar í blað-
inu. Firmakeppni er fyrirhuguð
siðar lí vetur með sama fyrirkomu
lagi og í Reykjavík, Siglufirði og
víðar. Hafa slíkar keppnir náð
miklum vinsældum, og hefir Karl
Fi'iðriksson formaður félagsins
gefið til þeirrar keppni mjög
fagran silfurbikar. Spilafundir
fyrir félaga, eru á hverju þriðju-
dagskveldi á Gildaskála KEA,
fá þeir ókeypis aðgang að öllum
keppnum félagsins. Öllum öðrum
er heimill aðgangur að keppnum
gegn vægu gjaldi, meðan húsrúm
leyfir.
Sunnudagaskóli
Akureyrarkirkj u
getur ekki starfað
n. k. sunnudag
vegna þess, að' það' er verið að mála kirkj-
una að innan.
/Eskulýðsfélag Akur-
eyrarkirkju. Fundur í
2. deild n.k. sunnu-
dag kL 8.30 í kapel’-
unni. (Myndataka.) Fu.idur í 3. deild n.k.
mánudagskvöld kl. 8.30 á sama stað. Á
deildarfundi 1. deildar s.l. sunnudag flutti
Hreiðar Jónsson þáttinn: Ur bæjarlífinu.
Var rætt um billiard-stofuna, og það
liarmað, að hún skyldi enn hafa verið sett
á stofn, því að frá henni myndi stafa óheill
fyrir æsku bæjarins, ef ekkert yrði að
gert. Var óskað yftir því, að enginn Æsku-
lýðsfélagi vendi kontur sínar þangað.
Æskulýðskórinn. Munið söngæfingarnar
á sunnudögmn kl. 5.30 c. h. og miðviku-
dögum kl. 7.30 e. h. í kapellunni. Blaða-
mannaklúbburinn er beðinn að mæta i
kapellunni kl. 8.30 e.h. á föstudaginn.
□ Rún:. 59502157 2
I. O. O. F. = 131217814
Messað í kapellu Akureyrarkirkju kl. 2
e. h. næstk. sunnudag. — P. S.
Dánardœgur. Nýlátin eru hér í bænum
ckkjan Sigríður Sigurðardóttir Oddeyrar-
götu 30, Sigursteinn Steinþórsson afgr.m.
Geislagötu 37 og Steinþór Sigurðsson
verkamaður Oddagötu 1.
// jáskapur. Ungfrú Kristín Jónsdóttir
Rvík og Sigurður Kristjánsson skrifstofu-
maður hjá K.V.A.
„Jörundur“ seldi afla sinn í Aberdeen í
byrjun þessa mánaðar, 2400 kit, fyrir 7687
j sterlingspund.
| Munið aðalfund Náttúrulækningafélags
Akureyrar n. k. sunnudag kl. 3.30 í Tún-
götu 2.
Höjnin. Skipakomur: 1. febr. Annik, 3
febr. Esja, 7. Jörundur (af veiðum), Kald-
bakur og Hekla, 14. febr. Esja.
Saumanámskeið lleimilisiðnaðarfélags
Norðurlands hefst á föstudaginn og bók-
bandsnámskeið sama kvöld.
Strandarkirkja. Áheit frá N. N. kr. 50.
Áheit frá K. S. kr. 175. Móttekið á afgr.
íslendings og sent áleiðis.
Kvenfélag Akureyrarkirkju heldur aðal-
fund í kirkjukapellunni föstudaginn 17.
febrúar kl. 5 e. h. Venjuleg aðalfundar-
störf. Konur fjölmennið.
Aheit á Akureyrarkirkju kr. 100 frá N.
N. Afhent af séra Pétri Sigurgeirssyni kr.
100 frá konu. — Þakkir. Á. R.
Jónas G. Rafnar enflurkoS'
inn tormaður Sjálístæðistél.
Akureyrar.
Aðalfundur félagslns fjfilsöttnr Jrátt fjrlr
rersta veiar.
Sjálístæðisfélag Akureyrar hélt
aðalfund sinn í Samkomuhúsinu í
fyrrakvöld, og var hann vel sóttur.
Varaformaður félagsins, Valgarður
Stefánsson setti fundinn og stjórnaði
honum. Er inntöku nýrra félaga var
lokið, gaf hann glöggt yfirlit yfir
starfsemi félagsins á liðnu ári, en
hún var þá með mesla móti.
Þá lagði gjaldkeri fram endurskoð
aða reikninga félagsins, og formað-
ur Naustaborgaráðs gerði grein fyr-
ir sumarstarfsemi ráðsins. Urðu
nokkrar umræður á eftir.
Þá var gengið til kosninga. Var
Jónas G. Rajnar endurkjörinn for-
maður félagsins, en varaformaður
Axel Schiöth
áttræður
í gær átti Axel Schiöth bakara-
meislari áttræðisafmæli. Fæddur er
hann hér á Akureyri og hefir minið
hér allt lífsstarf sitt, sem orðið er
langt og mikið. Hafði hann lengi á
hendi forstöðu brauðgerðarhúss
Höepfnersverzlunar, er hann tók við
af föður sínum, Hendrik P. 'F.
Schiöth. Keypti hann brauðgerðina
síðar og rak hana árum saman af
miklum myndarskap, en samhliða
liæði verzlun og búskap. Var Axel
þrekmaður mikill, sístarfandi og
starfsglaður. Hann kvæntist ungur
ágætri konu, Margrethe Friis, sem
auk húsmóðurstarfanna hefir unnið
mikið og óeigingjarnt starf við blóm-
rækt og trjárækt. Garðinum um-
hverfis Schiöths-heimilið hefir löng-
um verið viðbrugðið fyrir fegurð,
og enginn einstaklingur átti jafn
drjúgan þátt í vexti og framförum
Lystigarðsins og frú Schiöth.
Axel Schiöth hefir hin 6Íðustu ár
ált við vanheilsu að stríða og legið
lengi í sjúkrahúsi. Þrátt fyrir það
hefir ellin átt fullt í fangi með að
lama hið meðfædda lífsfjör hans, og
ekki mun það að skapi afmælis-
barnsins að láta hlut sinn fyrir
henni fyrr en í fulla hnefana.
Blaðið óskar Axel Schiöth allra
heilla á þessum tímamótum æfi hans.
var kosinn Helgi Pálsson, Sveinn
Bjarnason, sem verið hefir gjaldkeri
félagsins um 10 ára skeið, baðst nú
eindregið undan endurkjöri. I stað
hans var kjörinn Gunnar H. Krist-
jánsson. Ritari var kjörinn Jakob
Ó. Péturs6on, en í varastjórn (auk
Helga Pálssonar) Jón H. Sigur-
björnsson og Arni Sigurðsson. End-
urskoðendur Einar Sigurðsson og
Páll Einarsson.
Þá fór fram kosning í fulltrúaráð
félagsins og hlutu þessir kosningu:
Valgarður Stefánsson,
Páll Sigurgeirsson,
Jón G. Sólnes,
Karl Friðriksson,
Helgi Pálsson og
Einar Kristjánsson.
Og til vara:
Guðm. Jörundsson, -
Þorvaldur Stefánsson og
Sverrir Ragnars.
í Naustaborgaráð voru kosnir:
Anton Ásgrímsson,
Guðm. Jónasson,
Haraldur Karlsson,
Jens Eyjólfsson og
Magnús Bjarnason.
Að kosningum loknum þakkaði
Helgi Pálsson fráfarandi stjórn og
fulltrúaráði gott starf á hinu liðna
ári og þá fyrst og fremst formanni
fulltrúaráðsins, Valgarði Stefáns-
syni, sem jafnframt annaðist for-
mannsstörf í félaginu í fjarveru
Jónasar G. Rafnar.
Viðskiptanefndin
lögð niður
Um s.l. mánaðamót hætti Við-
skiptanefnd störfum samkvæmt
ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Störf
hennar annast nú gjaldeyris- og inn-
flutningsdeild Fjárhagsráðs, en þar
starfa þeir dr. Oddur Guðjónsson og
Sigtryggur Klemenzson. Mun Fjár-
hagsráð skera úr, ef þá greinir á um
úthlutun leyfa. Verðlags- og
skömmtunarmál munu þeir einnig
annast.