Íslendingur - 05.04.1950, Síða 1
XX XVI. árg.
Miðvikudagur 5. apríl 1950
16. tbl.
Framiög ríkisins til verk-
legra franikvæmda á
Akureyri.
milj. kr. bankalán, og auk þess
hefir bæjarsjóöur lánað höfninni
300.000,00 kr., og greitt til bráða
birgöa 200.000,UO kr. Þaö er
Ijós., aö bæjariélaginu er nieð
öllu ofviða að standa undir
þessuni lánurn, ef rikissjóður
leggur ekki verulega af mörkum
til nafnarinnar á þessu ári. Margt
hvílir á bæjarsjoði og ekki sízt í
sumar, er franikvæmdir hefjast
við Laxá, sein allir vonast til.
Þess má geta,að Vitamiálaskrif
stofan heíir áætlað, að þær fram-
kvæmdir, sem þegar er byrjað á,
muni kosta alls um 5.364.000,00
kr. Hætt er við, að áætlun þessi
raskist í verulegum atriðum og
þá til liækkunar.
í fjárlagafrumvarpi 1950 eru
4t/2 milj. kr. áætlaðar til hafnar-
rnannvirkja og lendingarbóta.
Skiptist þessi upphæð niður á
milli hinna einstöku hafna.
Hversu mikið Akureyrarhöin fær
í sinn hlut er ekki unnt að ráða í,
að svo komnu máli, þar sem
Vitamálaskrifstofan hefir enn
ekki skilað tillögu um skiptingu
íjárins til Fjárveitinganefndar.
Til þess að fyrirbyggja mis-
skilning er rétt að taka það fram
að mörg bæjar- og sveitarfélög
eiga nú inni stórfé hjá rikissjóði
vegna hafnarframkvæmda, og er
Akureyri því síður en svo noklc
ur undantekning.
í fjárlagafrumvarpi 1950 eru
300.000,00 kr. áætlaðar til sjúkra
hússins. Er það sama upphæð og
verið hefir á fjárlögum.
Af 300.000,00 kr. fjárveitingu
árið 1948 hafa 100.000,00 kr.
enn ekki verið greiddar. Verður
ef til vill ástæða til þess að v.kja
að því atriði síðar.
Viðbygging barnaskólans.
Fyrir nokkru var lokið við
stækkun á barnaskólahúsinu, Þær
framkvæmdir munu hafa kostað
sem næst 811.000,00 kr.
í lögum frá 1946 um fræðslu
barna er gert ráð fyrir því, að
ríkissjóður greiði allt að lielm-
ingi slofnkostnaðar heimangöngu
skóla. Nú mun bæjarsjóður ekki
hafa fengið meir en 72.500,00 kr.
upp í framlag ríkissjóðs. Efti'-
samtali sem ég átti við fræðslu-
málastjóra er vonlaust, að aukið
íramlag fáizt fyrr en fjárlög
hafa verið afgreidd, þar sem
þegar er búið að nota heimildir,
sem veittar voru fyrir s. I. ár.
Þá voru veittar 3,8 milj. til allra
skólabygginga, kennarabústaðir
þar með taldir.
Þegar litið er á þessa upphæð
er augljóst, að Akureyri hefir
verið sett frekar hjá víð úlhlutun
mennntamálaráðuneytisins á
styrkjum til skólabygginga. Fær
Akureyrarbær vonandi leiðrétt-
ingu á þessu ári.
í grein þessari vil ég lei'.ast
við aö gefa nokkurt yíinit yfir
það, hvað rikissjóöur hefir aö
undanförnu lagt af mörkum til
hinna ýmsu iramkvæmda á Akur
eyri. Undirbúningur að af-
greiðslu fjárlaga yfirstandandi
árs er enn skammt á veg kominn
enda þótt fjárlagafrumvarpið
hafi verið tilbúið fyrir áramót.
Er því erfitt að gera sér grein
fyrir því, hvers vænta megi um
fjárframlög á þessu ári. Munu
fjárveitingar að sjálfsögðu fara
eftir afkomu ríkisms, sem óhjá-
kvæmiiega byggist á gagnsemi
þeirra ráðstaiana, sem gerðar
kunna að verða í efnahags. og
atvinnumálum þjóðannnar.
Hafnarframkvæmdir.
Samkvæmt lögum um hafnar-
gerðir og lendingarbætur frá
1946 greiðir ríkissjóður íil hafn-
argerðar á Akureyri % kostnað-
ar enda séu áætlánir um fram-
kvæmdir allar samþykktar af
samgöngumálaráðuneytinu, eign-
ii- og tekjur hafnar og lendingar
bótasjóðs ekki fullnægjandi til
þess að stánda undir byggingu
hafnarinnar eða lendingarbót-
anna og fé veitt til þess í fjár-
lögum.
Eins og bæjarbúum er kunn-
ugt hefir mikið verið unnið að
alls konar framkvæmdum við
höfnina að undanförnu og þá
sérstaklega á s. 1. ári.(Hafríar-
mannvirkin á Oddeyrartanga,
endurbygging Torf une fsbry ggj u
og Torfunefsgranda).
Samkvæmt upplýsingum Vita-
málaskrifstofunnar hefir heildar-
kostnaðurinn við þessar fram-
kvæmdir numið við síðustu ára-
mót rúmum 3.300.000,00 kr. Þar
af hefir ríkissjóður greitt upp í
framlag sitt um 580.000,00 Virð-
ist ríkissjóður því hafa átt van-
greitt til hafnarinnar um s ðustu
áramót um 740.000,00 kr.
Til þess að standa straum af
þessum framkvæmdum hefir orð-
ið að leggja fram allt reiðufó
hafnarinnar. Einnig að taka 1
Fj órðungss júkrahúsið
Svipuðu máli gegnir um fjórð-
imgssjúkrahúsið og höfnina, að
ríkissjóður á ógreiddan veruleg-
an hluta af framlagi sínu. Sam-
kvæmt lögum frá 1945 ber ríkis-
sjóði að greiða allt að % bygg-
ingarkostnaður sjúkrahússins, þar
sem það hefir verið viðurkennt af
ráðherra sem fjórðungssjúkra-
hús.
Gunnar Jónsson, framkvæmd-
arstjóri, he-'ir gefið þær upplýs-
ingar, að byggingarkostn. nemi
nú um 3.730.000,00 kr. Þar af
hefir ríkissjóður greitt 1.610.
000,00 kr. Virðist slculd ríkisins
því nema um 630.000,00 kr.
Viðbygging sundlaugar og
nýja iþróttasvæðið.
Samkv. upplýsingum Þorsteins
Einarssonar, íþróttafulltrúa,
mun kostnaðurinn við þær endur-
bætur, sem gerðar hafa verið á
sundlauginni til siðustu áramóta
hafa numið um 360.000,00 kr.
Þar af hafa verið greiddar á
þessum vetri úr íþróttasjóði kr.
60.000,00.
í íþróttalögum frá 1940 er gert
ráð fyrir framlögum úr íþrótta-
s.ióði m. a, til hvers kon- r mann-
virkja, sem miða að bættuni skil-
yrðum til íþróttaiðkana Til
íþróttasjóðs er áætluð upphæð á
fjárlögum og nam hún á s.l. ári
y2 niilj. kr.
Iþróttafulltrúi taldi líklegt að j
á þessu ári myndu fást úr íþrótta !
sjóði um 80.000,00 kr til sund-
laugarinnar, ef samþykkt yrði
sama fjárveiting til sjóðsins og
veitt hefir verið.
Til íþróttasvæðisins, neðan
Brekkugötu, munu nú vera komn
ai um 130.000,00 kr. þar af hefir
íþróttasjóður lagt fram 29.750,00
kr.. Á þessu ári má gera ráð fyr-
ii verulegu framlagi úr sjóðnum
til þessara framkvæmda.
Það mun láta nærri, að Akur
cyrarbær hafi um síðustu áramót
átt um 1,7 miljónir kr. inni hjá
ííkissjóði, vegna framkvæmda
þeirra, sem hér hefir verið drep-
ið á.
Flest, ef ekki öil bæjarfélög,
eiga nú verulegar fjárupphæðir
hjá rikissjóði vegna löggjafar
siðari ára um framlagsskyldu
ríkisins til ýmislegra verklegra
framkvæmda. Hvernig ríkissjóði
tekst að ynna þær skyldur af
hendi, er ekki unnt að segja eins
og stendur. Hins vegar er það
Ijóst, að bæjarfélögin fá ekki ein
til langframa risið undir þeim
framkvæmdum, sem hafnar hafa
verið í trausti þess, að ríkissjóð-
ur legði sitt lögákveðna framlag
af mörkum.
Reykjavik 11/3 1950
JÓNAS G. RAFNAR.
Viðbóta’ virkjanir Laxár og
Sogs framkvæmdar
samtímis
Itafveilunefnd Akureyrar, ásamt I
bæjarstjóra og rafveitustjóra, er ný-
komin heim frá Reykjavík, en þang-
að fór hún fyrir skömmu til við^als
við ríkisstj órnina og raforkumála-
stjóra um viSbótarvirkjun Laxár.
Rafveitur ríkisins hafa tekiS aS
sér undirbúning málsins, m. a. að
gera útboðslýsingu og annast útboð,
og eru þær í þann veginn að ganga
frá útboðslýsingu.
Marshallféð, sem til þessara fram-
kvæmda var ætlað, er nú fyrir hendi,
og mun ganga til þeirra, ef ríkis-
sljórnin telur sér fært að ganga að
Undirréttardómur fallinn í
mólum upphlaupsmanna
við Alþingishúsið 30. marz
í fyrra.
Hinn 25. marz s.l. kvaS sakadóm-
arinn í Reykjavik upp dóma í mál-
um þeirra manna, er ákærðir höfðu
verið vegna uppþotsins við Alþingis-
húsið 30. marz 1949, og öllum lands-
mönnum er í fersku minni. — Alls
höfðu 24 menn verið kærðir, og
hlulu 4 þeirra sýknudóm. Þyngs an
dóm hlaut Stefán Ögmundsson, 18
mánaða fangelsi og svipting kosn-
ingaréttar og kjörgengis. Þrír hlutu
12 mánuði og sama réttindamissi og
Stefán. Þrír hlutu 6 mánuði, fimm 4
mánuði og átla þrjá mánuði.
Sakborningar munu hafa ’áfrýjað
dómunum.
skilyrðum þeim, er fylgja kunna. En
því hefir ríkisstjórnin lofað, að láta
báðar stórvirkjanirnar, við Laxá og
Sog, fylgjast að.
Svo getur farið, að skjót fram-
kvæmd málsins velti á því, að bæj-
arbúar og aðrir, sem virkjunarinnar
eiga að njóta, kaupi skuldabréf í
henni, hver eftir sinni getu. Verðm-
nánar skýrt frá gangi málsins innan
skamms.
142 þús. dollarar
til Islands
Efnahagssamvinnustofnuniii í
Washington liefur tilkynnt, að
innkaupaheimildir til íslands liafi
numið alls 142.000 dollurum í
febrúarmánuði. Langsíærsti lið-
urinn í þessum heimildum voru
vélar og tæki fyrir síldarverk-
smiðjuna í Örfirisey, er náðu að
verðmæti 121.000 dollurum.
í þessari upphæð eru ekki með
taldar fyrri heimildir fyrir kaup
a vélum, sem þegar eru komnar
í verksmiðjuna. Efnahagssam-
vinnustjórnin hefur einnig veitt
21.000 dollara heifnild fyrir kaup
um á grasfræi frá Kanada, fyrir
íslenzkan landbúnað.
Aö meðtöldum innkaupaheim-
iidum þeim, er veittar voru ;
febrúar, nema innkaupaheimildir
til fslands alls 10.948.000 dollur-
um frá því er efnahagssamvinn-
an hófst í apríl 1948.