Íslendingur - 05.04.1950, Side 2
I
ÍSLENDINGUR
Sigurður Hliðar 65 ára
2
Útgefandi: Útgáfuíélag íslendings.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Jakob Ó. Pélursson.
Auglýsingar og afgreiðsla:
Svanberg Einarsson.
Skrifstofa Cránufélagsgata 4.
Sími 354.
Prcnlsmiðja Björns Jónssonar h.j.
GBiigisskráningar'
frumvarpið orðiö að
lijgum.
Gengisskráningarfrumvarp það,
er r.'kisstjórn Ólafs Thors lagði fyrir
Alþingi í lok febrúarmánaðar, og
svo mjög hefir verið um deilt síðan,
var afgreitt sem lög frá Alþingi
18. marz s. 1. og staðfest af forseta
daginn eftir. Á frumvaipinu voru
gerðar nokkrar breytingar, einkurn
um eignaskattinn og framleiðslu-
gjöldin.
Breytingar þær, sem orðið hafa á
frumvarpinu, munu að miklu leyti
runnar undan rifjum Framsóknar-
flokksins, því að um þær mun hafa
verið samið milli núverandi stjórnar-
flokka, áður en samsljórn Sjálfstæð-
ismanna og Framsóknarmanna sett-
ist í stóla fráfarandi stjórnar. Eink-
um eru fingraför Framsóknar þekkj-
anleg á því, að milljónafyrirtæki,
sem rekin eru í félagsskap, þ. e.
hlutaféiög og samvinnufélög, eiga
ekki að greiða stóreignaskatt, held-
ur jafna eignunum niður á einstakl-
ingana, sem hluti eiga í félögunum.
Þetta ákvæði tryggir, að milljóna-
fyrirtæki eins og Kaupfélag Eyfirð-
inga, sem á geysilegar eignir í gisti-
húsum og öðrum húseignum, sem að
meira eða minna leyti eru leigðar út
einstaklingum, getur nú dreift þess-
um eignum á 4—5 þús. einstaklinga
og þannig sloppið við að greiða stór-
eignaskatt. Enda segir Halldór á
Kirkjubóli nýlega í Tímanum, að í
skattaálagningu á slíkar eignir, þ. e.
eignir samvinnufélaga, sé verið „að
taka lamb fátæka mannsins fyrir
auðmanninn“ (!).
Þegar eins er farið með hlutafé-
lögin, sem kunna að eiga eignir upp
á Y2 milljón króna, komast slíkar
eignir í mörgum tilfellum undan
skatti, þegar húið er að skipta þeim
niður á 5—10 einstaklinga eða fleiri.
Á móti þeirri rýrnun, sem þessar
breytingar óhj ákvæmilega valda á
skatttekjunum, er fasteignamat
hækkað úr fimmföldu upp í sexfalt í
Reykjavík og hlutfallslega jafnmikið
annars staðar. Einnig er s'.óreigna-
skatturinn látinn vera stighækkandi,
og ætti þar að nást nokkur upphæð
að auki. Þá eru og sett sérstök fyrir-
mæli um meðferð þess fjár, er nást
á með stóreignaskattinum.
Blaðið Tíminn hefir tekið undir
hinn venjulega söng kommúnista, að
með gengisskráningarfrumvarpinu
Tíminn líður, ekki hægt og sila-
lega, heldur geysist áfxam með risa-
skrefum. Svo finnst mér að minnsta
kosti, er ég hugleiði það, að nú eru
liðin 26 ár síðan ég fyrst kynntist
Sigurði Hlíðar cg gisti mína fyrstu
nótt ó Akureyri á heimili hans í
Lækjargötunni, þar sem ég síðan
mátti heiia stöðugur heimagangur í
nær 20 ár, eða þar til þau hjónin
fluttu til Reykjavíkur 1943. Mér
finnst svo örskammt, síðan þessi
fyrstu kynni mín urðu af því ágæta
heimili, sem vafalaust ótti drjúgan
þátt í því, að ég frá upphafi undi hag
mínum vel hér á Akureyri, að mér
finnst sem þetta hafi gerzt í gær —
og nú er Sigurður Hlíðar 65 ára í
dag, 4. apríl.
Það er í raun og veru óþarfi að
kynna Sigurð Hlíðar Akureyringum
eða Eyfirðingum. Flestir þeirra
muna hann áreiðanlega vel, því að
svo er skammt um liðið s.ðan hann
flutti héðan og þó eru það sjö ár. En
það er aldrei óþarft að minnast góðra
manna, því að „þar sem góðir menn
fara þar eru guðs vegir“, segir
Björnstjerne Björnsson í einni af
skáldsögum sínum.
Hvers er þá fyrst að minnast á 65
ára afmæli Sigurðar Hlíðar?
í einni stuttri blaðagrein er svo
örlítið hægt að nefna af því, sem þó
væri ástæða til að rekja. Ég held ég
kjósi fyrst að nefna prúðmennsku
Slgurðar, ósérplægni hans og sam-
vizkusemi, en öllum þessum eigin-
leikum er hann gæddur í óvenjulega
ríkum mæli og einkenna þeir alla
hans framkomu og athöfn.
Hér af leiðir fyrst og fremst, að
Sigurður Hlíðar hefir jafnan verið
mjög eftirsóttur félagi og vinsæll
maður. Ég held það sé ekki ofmælt,
að Sigurður eigi hara vini en enga
óvini. Því að þótt hann um langt
skeið tæki mjög virkah þátt í opin-
berum málum og slæði gjarnan þar,
sem skarst í odda, því að honum var
aldrei lagið að hlífa sér, þá er samt
íafi verið stefnt að því að skerða
;jör ahnennings á kostnað hinna
íku. Þetta hafi nauðsynlega þurft
að lagfæra, og hess vegna hafi van-
traustið verið borið fram á stjórn
□lafs Thors, sem Tíminn nefnir í
einum svartleiðara sínum „óhjá-
kvæmilega þjóðarnauðsyn“.
Framsóknarflokkurinn hafði ekk-
ert að athuga við 1. grein frumvarps-
ins, er ákveður, hversu mikil gengls-
lækkunin skuli vera. Ekki heldur við
þá grein þess, er kveður á um kjör
launafólks í landinu. En honum hef-
ir samt tekizt að bjarga „lambi fá-
tæka mannsins“. þ. e. milljónafyrir-
tækjum, sem rekin eru sem hlutafé-
lög eða samvinnufélög, frá eðlilegri
þátttöku í efnahagslegri viðreisn
þjóðarinnar.
/.
öllum vel til hans, jafnt skoðana-
bræðrum sem andstæðingum. Sjálf-
sagt má rekja þetta til þess, að Sig-
urður flutti mál sitt ávallt heiðarlega
og af fullum drengskap.
Ósérplægni Sigurðar leiddi eðli-
lega til þess, að hann varð hlaðinn
borgaralegum og félagslegum skyldu-
s örfum. Yrði allt of langt mál upp
að telja allt það, sem Sigurður varð
þannlg við riðinn. Skal aðeins drepa
á það helzta: Hann sat í bæjar-
stjórn Akureyrar í meira en 20 ár
og var um skeið forseti hennar. Sæti
á Búnaðarþingi átti hann frá 1921—
1931 og alþinglsmaður fyrir Akur-
eyri var hann frá 1937—1949. Þótt
Sigurður Hlíðar hafi þannig verið
mikið viðriðinn opinber mál, sem
oft krefjast harðrar og óvægrar bar-
áttu, heflr hann aldrei verið nelnn
baráltuinaður. Framkoma hans hef-
:r ávallt fyrsl og fremst verið mörk-
uð af sanngirni, velvilja og sáttfýsi.
Kostum, sem líka eru gjaldgengir á
vettvangi þjóðmálanna.
í stjórn Ræktunarfélags Norður-
lands sat Sigurður frá 1912—1943
og var lengst af formaður þess. Auk
þess var hann í fjölmörgum öðrum
framfara- og menningarfélögum, svo
sem leikfélagi, söngfélögum, stúdenta-
félagi, taflfélagi svo að nokkur séu
nefnd. Venjulega var hann í s'jórn
þeirra félaga, sem hann starfaði í,
oft formaður, því að hann reyndi
aldrei að hliðra sér hjá skyldustörf-
unum. Oft hefi ég undrazt það og
dáðst að því, hvernig Sigurði tókst
að rækja skyldur sínar í öllum þess-
um mörgu félögum, en það gerði
hann vissulega flestum betur og var
oftast mjög virkur þátttakandi í fé-
lagss'.arfinu.
Vel hefði mátt ætla, að þátttaka
Sigurðar í oplnberum málum og fé-
lagslífi truflaði höfuðstarf hans,
dýralækningarnar, en því fór fjarri.
Samvizkusemi hans í þeim efnum
var aðdáunarverð. Ávallt lét hann
embættisskylduna sitja fyrir öllu
öðru og ávallt var hann reiðubúinn
í erfiðar sjúkravitjanir, næslum því
á hvaða tíma sólarhrings sem var og
hvernig sem á stóð. Oft varð hann
þá að sæta misjöfnum flutningum og
farartækj um, jafnvel ganga, ef
sjúklingurinn var í bænum eða ná-
grenni hans.
Sigurður var ágætur dýralæknir.
Hann hefir líka orðið mjög mikla
reynslu, en ávalll, fannst mér hand-
lækningar honum tamastar. Fór þar
saman þekking, æfing og handlagni,
en einnig það að Sigurður er mikill
dýravinur og hefir einkar gott lag á
að spekja skepnur þær, er hann fer
höndum um. Venjulega spjallar hann
við þær og stundum óþvegið, en allt
í þeim tón, að það verkar róandi á
sjúklingana. í þessu sambandi kem-
ur mér í hug það, er ég heyrði eina
greinda konu segja. Henni fórust
þannig orð:
„Mér flnnst það eiginlega aldrei
blót, þótt hann Sigurður Hlíðar tauti
eitthvað.“
Ekki heflr Sigurður Hlíðar safnað
veraldlegum auði, en ekki hefir
hann þó eytt fjármunum sínum í
óhófi af neinni tegund, því að þess
háttar er mjög f iarri öllu eðli hans.
Llfnaða: hæ: tir Hlíðarfj ölskyldunnar
munu og jafnan hafa verið mjög
óbrotnir og heimilið burðarlaust og
blátt áfram. Þrátt fyrir þetta er
margt, sem því veldur, að fé hefir
elgi orðið Sigurði fast við hendur.
Fjölmörg störf hans hafa fremur
kostað fjárútlát heldur en þau hafi
geflð tekjur. Fyrir lækningar sínar
hefir Sigurður of ast tekið mjög lít-
ið og oft genglð slælega eftir greiðsl-
um. Jafnan hefir hann verið manna
fúsastur til að grelða úr vandræðum
annarra og stundum orðið að láta
sér nægja þakkirnar einar. Börn sín
hefir hann kostað til menn a og sum
til langs náms og loks eru þau hjón
bæði gestrisin með afbrigðum og
því var oft gestkvæmt á heimili
þeirra.
Það er oft örðugt og hæpið að
kveða upp dóm um innra líf manna
og tilfinningar. Þó held ég að ég þori
að teljaSig. Hlíðar barn hamlngjunn-
ar og því til staðíestu nefni ég helzt:
Hann er vel kvæntur. Guðrún kona
hans er að sínu leyti jafnmikill öðl-
ingur og jafn vinsæl og bóndi henn-
ar og honum mjög samhent. Hún
hefir allð honum mannvænleg börn,
er virðast hafa erft mannkosti for-
eldranna í ríkum mæli, og loks hafa
þau hjónin eignast fjölda vlna, sem
nú og jafnan senda þeim hlýjar
kveðjur og hugsanir. Veit ég eigi,
hvort annar auður er betri eða meiri.
Þcgar metln cru embættis-, borg-
araleg og félagsleg störf Sigurðar
Hlíðar mætti ætla, að honum hefði
lítlll tími gefizt til ritstarfa og fræði-
mennsku, en þvl er þó öðru nær. Um
skeið fékkst hann við blaðamennsku,
slofnaði t. d. blaðið íslendlng og var
ritstjóri þess í nokkur ár. Þá hefir
hann ritað og gefið út tvær bækur
um búfjársjúkdóma og auk þess rit-
að margar greinar um það efni. Síð-
ustu árin iðkar hann æltfræðlrann-
sóknir í tómstundum sínum af miklu
kappi. Ættfræðin virðist honum eins
og reyndar mörgum íslendingum,
mjög í blóð borin, sem meðal annars
lýsir sér í því, að hann er framúr-
skarandi mannglöggur og mlnnugur
á mannanöfn.
Þótt Sigurður Hlíðar sé orðinn 65
ára er það ekki hár aldur, og vafa-
laust óska og vona allir hinir mörgu
vinir hans, að hann eigi ef.ir að
njóta margra og ánægjulegra líf-
daga. í huga mínum er Sigurður
Hlíðar síungur og mun æ verða svo.
Engan þekki ég, sem er hressari í
máli, Jéttari í skapi og kann betur
tökin á því að lá'.a tímann og aldur-
inn gleymast.
Nú á þessum límamótum sendi ég
Sigurði Hlíðar innilegar kveðjur og
árnaðaróskir. Hann er einn þeirra
manna, er ég hefi unnið flest með,
kynnst bezt og met mest. Veit ég að
ég mæli hér fyrir munn fjölmargra
annarra vina hans, en það mun sam-
Miðvikudagur 5. apríl 1950
Petta eru beztu
páskadrykkirnir
- NYJA BIÓ -
Annan páskadag kl. 5 og 9:
HVE GLÖÐ ER VOR
ÆSKA
Aðalhlulverk leika:
June Allyson
Peter Lawford
Palricia Marshall
Joan McCracken
Ray McDonald.
ÍBÚÐ
1—2 herbergi og eldhús ósk-
ast til lelgu nú þegar eða 14.
maí næstkomandi.
Upplýsingar í síma 24.
RAFELDAVÉL
sem ný, til sölu í Oddeyrar-
götu 12.
Til fermingargjafa og
tækifærisgjafa:
Skrifborð
Skatf-hol
Bókahillur
Stofuborð
Stofuskópar
Úfyarpsskópar
Rúmfataskópar
Kommóður
Saumakassar
Fricörstólar
o. fl.
BÓLSTRUÐ HÚSGÖGN h.f.
Hafnarslrœti 88 . Sími 491.
eiginlegt álit allra þeirra, er einhver
kynni hafa haft af Sigurði Hlíðar,
að hann sé drengur góður.
Akureyri 4. apríl 1950.
Ólajur Jónsson.
!