Íslendingur - 05.04.1950, Side 3
Miðvikudagur 5. apríl 1950
ÍSLENDINGUR
3
ÖLLUM, sem heimsóttu mig á 70 ára ajmœli mínu 25. marz s. I.
og jærðu mér gjafir, ásamt hamingjuóskum votta ég mitt inni-
legasta þakklœti. Einivg þeim, er sendu mér skeyti og glöddu mig
á margan hátt. — Guð blessi ylckur öll.
Gilsá 3. apríl 1950.
JÓHANNES FRÍMANNSSON.
Ritgerðarsamkeppni
um neitunarvaldið
og sameinuða pioð-
irnar.
anBarasssaæsscæassasi
JarSarför móður minnar,
Katrínar Hallgrímsdótfur,
sem andaðist 1. þ. m., fer fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn
8. apríl kl. 1 e. h. — Blóm og kransar afbeðið, en þeir, sem vildu
minnast hinnar látnu, eru vinsamlegast beðnir að láta Nýja sjúkra-
húsið á Akureyri njóta þess.
Vegna okkar systkinanna
Kristófer Vilhjálmsson.
Skjaldborgar-bíó
Páskamynd:
Astir tðnskáltisins
Stórfengleg þýzk kvikmynd um ævi og ástir rúss-
neska tónskáldsins Tsjaikovskí.
Aðalhlutverk leika:
ZARAH LEANDER
hin heimsfræga sænska leikkona,
MARIKA RÖKK
frægasta dansmær Þýzkalands og
HANS STÚWE
Hljómsveit ríkisóperunnar í Berlín flyt'ur tón-
verk eftir Tsjaikovskí.
S æ n s k u r t e x t i
Smjörlíkiíigerð og Pylsu-
gerð K E A. fluft í ný
húsakynni
Siðastliðinn föstudag bauð fram-
kvæmdastjóri KEA líðindamönnum
blaða og útvarps, héraðslækni og
heilbrigðisfulltrúa að skoða Smjör-
líkisgerð og pylsugerð félagsins, sem
nýlega eru fluttar í ný húsakynni.
Byggt var yf!r Smjörlíkisgerðina eft-
ir styrjöldina við hlið gamla verk-
smiðjuhússhis og nýtízku vélar
fengnar til framleiðslunnar, sem
munu vera þær fullkomnustu, sem nú
eru í notkun hér á landi. Aðalfram-
leiðsluvélarnar eru frá Danmörku
en pökkunarvélin frá Sviss. Frá því
olíurnar fara í bræðslu- og blöndun-
arkerin og þangað til pökkunarvélin
skilar smjörlíkinu innpökkuðu,
snertir engin mannshönd við efninu.
Er mjög verklegt að sjá þessar vélar
vinna, en þær munu skila af sér ca.
35 stykkjum á mínútu.
Þegar Smjörlíkisgerðin tók til
starfa fyrir 20 árum, tók danskur
maður, Ottó Nielsen, við sljórn
hennar og var forstöðumaður henn-
ar fram á sumar 1949, er hann flu.t-
ist til Danmerkur, en þá tók við
verksmiðjunni Svavar Helgason, er
unn.ð hefir v:ð smjörlíkisframleiðsl-
una s.l. 10 ár. Alls vinna 5 menn í
verksmiðjunni.
Pylsugerðin, er áður var til húsa
að baki kjölbúðarinnar, flutli ný-
lega í hin eldri húsakynni Smjörlík-
isgerðarinnar, og er það slórum
belra pláss en hún hafði áður. Var
komið fyrir í húsinu suðu- og reyk-
ingaklefum, frysti- og kæliklefar
stækkaðir o. fl. Þar er og afgreiðslu-
salur, þar sem íramleiðsluvörur
pylsugerðarinnar eru afgrelddar til
útibúanna og tekið á móti afurðum
framleiðenda. Pylsugerðin fram-
leiðir allar tegundir af bjúgum og
pylsum, kjöt- og fiskfars og ýmsar
áleggstegundir. Ennfremur annast
hún heildsölu fél. til kjölbúða og
verzlana í bænum og út um land á
þessum vörum og nýju, frystu, sölt-
uðu og reyktu kjöti.
Verkstjóri í pylsugerðinni er
danskur pylsumeistari, O. Jörgensen
en forslöðumaður Valdimar Haralds-
son, er unnið hefir við kjötbúðina í
full 20 ár.
Er gestum hafði verið sýnt það
markverðasta í smjörlíkis- og pylsu-
gerðinni, bauð f ramkvæmdastj óri
KEA, Jakob Frímannsson, til dög-
urðar í h’num gönilu húsakynnum
pylsugerðarinnar. sem nú hefir ver-
ið breytt í eldhús og matsal. Er þar
um nýja starfsgrein að ræða hjá fé-
laginu. í eldhúsinu er matur soðinn
og seldur tilbúinn tll framleiðslu á
matborðið, og er sú vara þegar all-
mikið keypt, einkum af þeim, er
vinna úti, og hafa því eigi tíma iil
matseldar um hádegið. Þá eru þar
framleidd ýms salöt, álegg skorið
nlður o.s.frv. Voru eingöngu á borð
bornar matvörur, framleiddar hjá
Sameinuðu þjóðirtiar ejna ná til
ritgerðasapiheppni um neitunarvald-
ið í öryggisráðinu. Ritgerðarefnið
er: „Hefir neitunarvaldið í öryggis-
ráðinu hindrað starfsemi sameinuðu
þjóðanna á stjórnmálasviðinu?“ —
Höjundar tíu beztu ritgerðanna fá
ókeypis námsför til Lake Success. Þó
getur aðeins einn frá hverju landi
hlotið verðlaun. Hver sem er, á aldr-
inum 20—35 ára, getur tekið þátt í
samkeppni þessari, og skulu ritgerð-
irnar vera um 2000 orð.
íslend.ngar, sem vilja taka þátt í
þessari samkeppni skulu senda rit-
gerðirnar til Félags sameinuðu þjóð-
anna í Reykjavík fyrir 1. maí n. k.
Ritgerðirnar mega vera á íslenzku
eða ensku. Skulu þær vélritaðar og
sendar í 5 eintökum.
Dómnefnd um íslenzku ritgerðirn-
ar skipa: Olafur Jóhannesson, pró-
fessor, Hans Andersen, þjóðréttar-
fræðingur, og Steingrímur Arason,
kennari.
Af ritgerðum þeim, sem kunna að
berast, velur dómnefndin a. m. k.
tvær ritgerðir, sem sendar verða til
dómnefndar í Lake Success, er tekur
endanlega ákvörðun um úthlutun
verðlauna.
Með hverri ritgerð skal send grein-
argerð, ca. 500 orð, um þá starfsemi
S. Þ., sem höfundurinn hefir sérstak-
lega áhuga á, og um það hvað hann
einkum hyggst að kynna sér í náms-
ferðinni. Þessi greinargerð skal skrif-
uð á ensku, frönsku eða spönsku. Er
gert ráð fyrir að þátttakandi kunni
eitthvert þessara mála. Greinargerð
þessi á að vera vélrituð og í sama
eintakafjölda og ritgerðin.
Þeir, sem verðlaun hljóta, fá eins
og áður er sagt, ókeypis för til Lake
Success og heim aftur. Ennfremur fá
I þeir greiddan dvalarkostnað í 30
daga, 10 dollara á dag. Námsförin
verður í haust, annað hvort 5. sept.
til 6. okt., eða 25. sept. til 27. okt. —
Nánari upplýsingar er hægt að fá
hj á dómnefndarmönnunum eða
stjórn Félags S. Þ. í Reykjavík.
félaginu og matreiddar í hinu nýja
-eldhúsi, og var þar margvíslegt góð-
meti samankomið.
Forstöðukona eldhússins er frk.
Ingibjörg Júlíusdóttir, en yfirstjórn
þess annast Sigmundur Björnsson,
kjölbúðarstjóri.
scmoGaaasam
KVENMAÐUR
óskar eftir atvinnu. Margt kem-
ur til greina. — Upplýsingar í
Ránargötu 6, III. hæð.
Aknreyringar!
Höfum opnað brauð- og kökugerð
að Ránargötu 14.
Reynið viðskiptin!
EYRARBAKARÍ
Höfum opnað
raftækjavinnustotn
k
í Kaupvangsstræti 3, uppi.
Önnumst raflagnir í hús, verksmiðjur, skip og uppsetningu á raf-
stöðvum fyrir sveitabæi.
Viðgerðir á raflögnum og raftækjum.
FLJÓT AFGREIÐSLA. REYNIÐ VIÐSKIPTIN.
RAFORKA H.F.
Kaupvangsstrceti 3.
ÚTSALA
Þriðjudaginn 11. þ. m. hefst hin árlega útsala.
Allar eldri vörur seldar með mjög niðursettu
verði.
Karlmannahattar -t- 20%
Karlmannafrakkar -h 20%
Prjónafatnaður -v- 20%
Regnkápur og slög -v- 50%
Kvenkápur -f- 20-50%
Kventöskur (eitt verð) kr. 50.00
Verzlun B. Laxdal
L©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©
s©©©©©©©©©©©©©^©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©
Sjáifstæðisíélögin á Akureyri
halda fund n.k. þriðjudag 11. apríl kl. 8.30 síðd.
í Samkomuhúsinu.
i
Fundarefni:
Stjórnmálaviðhorfið (Jónas G. Rafnar alþm.)
Félagsmál (Helgi Pálsson bæjarfulltrúi).
Önnur mál. sem fram kunna að verða borin.
Allt Sjálfstæðisfólk velkomið á fundinn.
Stjórnir Sjálfstœðisfélaganna.