Íslendingur - 05.04.1950, Qupperneq 6
Æ VISÖGU R
Roosevelts Bandaríkjaforseta eftir Emil Lud-
wig og sjálfsævisögu frú Roosevelts, ætti allt
ungt fólk að kaupa og lesa.
Bókaverzlun Björns Árnasonar.
Gránufélagsgötu 4 — Akureyri.
nonr
Miðvikudagur 5. apríl 1950
KAUPUMGAMLAR
B ÆKU R
Bókaverzl. EDDA h.f.
Hátíðamcscur. Skírdagur: Akureyri kl.
2, altarisganga. F. J. R. — Föstudagur
langi: Akureyri kl. 2. P. S. Lögmannshlíð
kl. 2. F. J. R. — Páskadagur: Akureyri kl.
2. F. J. R. Lögmannshlíð kl. 2. P. S. —
2. í páskum: Akureyri kl. 5. P. S.
Dansleik heldur Iþróttafélagið Þór ann-
an páskadag kl. 9 e.h. í Samkomuhúsi bæj-
arins fyrir félaga og gesti. Sjá götuauglýs-
ingar.
StangveiSijélagið Straumar. Fundur í
Gilda:kála KEA á morgun (skírdag), kl.
2 e. h. Aríðandi mál á dagskrá.
Dánardœgur. I gær lézt að heimili sínu,
Lundargötu 5 frú Alfheiður Einarsdóttir,
kona Halldórs Frlðjónssonar, skrifstofu-
stjóra, rúmlega sjötug að aldri. Frú Álf-
heiður var vinsæl og vel metin af öllum,
er hana þekktu.
Einnig er nýlátinn Þorsteinn Kristjáns-
son á Þingvöllum við Akureyri.
Einnig er nýlátin í sjúkrahúsinu hér frú
Katrín Hallgrím:dóltir, ekkja Vilhjálms
Guðjónssonar innheimtumanns.
Vinnustojusjáði Kristneshælis hafa bor-
izt þessar gjafir: Frá Sesselju Stefánsdótt-
ur, Guðmundarstöðum, til minningar um
Onnu Asbjarnardóttur frá Guðmundar-
stöðum, kr. 100.00. Ágóði af sláturhúsballi
afhent af Helga Steinarr, Akureyri, kr.
445.00. — Beztu þakkir. Jónas Rafnar.
Frá Amtsbókasajninu. Safnið verður lok-
að frá 5.—10. apríl, að báðum dögum með-
töldum.
Leikjélag Akureyrar æfir nú sjónleikinn
„Uppstigning“ eftir Sigurð Nordal, undir
stjórn Ágústar Kvaran. Nánar sagt frá í
næsta blaði.
A 15 ára afmælisfagnaði Kvennadeildar
Slysavarnafélagsins s.l. föstudag barst
deildinni peningagjöf að upphæð 4500.00
kr. frá hjónunum Siguróla Tryggvasyni og
Björgu Sigurjónsdóttur. Er þetta minning-
argjöf um dóttur þeirra Rögnu, sem var
meðlimur deildarinnar og voru þetta spari-
peningar hennar. Kvennadeildin sendir
gefendunum sínar hjartans beztu kveðjur
og þakkir fyrir þessa stórhöfðinglegu gjöf.
Ejtir páska fer f:am firmakeppni á veg-
um Bridgefélags Akureyrar. Alls keppa 32
firmu í bænum. Keppt er um fagran silf-
urbikar, sem Karl Friðriksson, forstjóri,
hefir gefið til þessarar keppni. Um pásk-
ana verður bikarinn til sýnis í sýningar-
glugga vefnaðarvörudeildar KEA.
Strandakirkja. Áheit frá A.G. kr. 100.00.
Móltekið á afgr. ísl. Sent áleiðis.
Fáskasamkomur í Nýja Bíó. Á föstudag-
inn langá og páskadag kl. 5 báða dagana:
Ræður, vitnisburðir, söngur, hljóðfæra-
sláttur. Aðgangur ókeypis. Allir velkomn-
ir. Börn innan 10 ára komi aðeins í fylgd
með fullorðnum. — Sjónarhæðarstarfið.
Páskasamkomur í kristniboðshúsinu
Zíon: Föstudaginn langa kl. 8.30 e. h. —
Páskadag kl. 8 f. h. morgunsamkoma kl.
8.30 e. h. almenn samkoma. — Annan
Almenn samkoma kl. 8.30 e. h. Allir vel-
komnir.
Nýr héraðsdómslögmaður. Eggert Jóns-
son frá Akri fyrrv. ritstj. Islendings hefir
nýlega lokið dómprófi og öðlast réttindi
sem héraðsdómslögmaður.
Sunnudagaskóli
A kureyrarkirk ju
verður 2. páska-
dag kl. 10.30 f.h.
7—13 ára börn í kirkjunni, 5—6 ára börn
í kapellunni. Bekkjarstjórar! Mætið kl.
10 f.h. Foreldrar eru vinsamlegast beðnir
um að vekja athygli barnanna á þes:ari
auglýsingu.
Æskulýðsjélag Ak-
reyrarkirkju. Sam-
iginlegur f u n d u r
yrir 1., 2. og 3. deild
verður á páskadagskvöld í kirkjunni kl.
8.30 e. h. Biblíulestrarklúbbunnn er kl.
3 á laugardag, blaðamannaklúbburinn kl.
4.30 sama dag í kapellunni.
Akureyringarl Munið eftir fuglunum.
Fíladeljía. Samkomur um páskana verða
sem hér segir í Verzlunarmannahúsinu,
Gránufélagsgötu 9: Á skírdag almenn sam-
koma kl. 8.30 e. h. Á páskadag kl. 8.30 e.h.
og á annan dag páska kl. 8.30 e. li. Söng-
ur með guitarundirleik. Allir velkomnir.
.. í*
\j/ ^
/'"• rfS-.
y/ fó
Hjálprœðisherinn, Strandgölu 19b. —
Páskasamkomur. Skírdag kl. 8.30 Getse-
inanesamkoma. Föstudaginn langa kl. 11
bæna amkoma; kl. 8.30 samkoma. Páska-
dag kl. 8 f. h. sameiginleg samkoma í
Zíon; kl. 2 sunnudagaskóli; kl. 8.30 páska-
gleði. Æskulýðsstrengjasveitin spilar
páskadagskvöld. — Verið hjartanlega vel-
komin.
Barnaverndarjýl. Akureyrar heldur fund
í Skjaldborg á f kírdag kl. 4 e. h. Fundar-
efni: Erindi um uppeldi og skóla (Snorri
Sigfússon, námsstjóri), kvikmynd af ís-
lenzkum barnaheimilum. Tillögur frá
stjórninni o. fl. Félagsmenn fjölmennið og
takið með ykkur gesti. Allir velkomnir.
Sklfla-
iandsmfltifl
fer fram á Siglufirði nú um pásk-
ana. Þátttakendur verða 87 frá 8
samböndum og félögum.
Keppendur frá íþróltabandalagi
Akureyrar á mótinu verða þessir:
A-flokkur. Svig og brun karla:
Magnús Brynjólfsson KA
Baldvin Haraldsson KA.
B-flokkur:
Hermann Ingimarsson Þór
Bergur Eiríksson KA
Halldór Ólafsson KA.
Ganga og s’.ökk, yngri flokkur:
Guðmundur Guðmundsson KA
Þráinn Þórhallsson KA
Haukur Jakobsson KA
Ólafur Einarsson ÍMA.
^Bergur Eiríksson keppir einnig í
18 km. göngu B-fl. og stökki B-fl.
Sveit ÍBA mun keppa í boðgöngu.
Sýslutnndi
lokið
Sýslufundur Eyjafjarðarsýslu hófsi
23. marz og lauk 31. s. m. Mörg mál
lágu fyrir fundinum. M. a. samþykkti
hann að skora á vitamálastjórnina,
að láta setja upp radiostefnuvita í
Hrísey.
Til viðhalds sýsluvega voru veittar
74500 krónur. Til nýbygginga kr.
83000 og til brúar á Öxnadalsá kr.
30000.
Þá tók sýslunefndin upp þá ný-
breytni að heimila þeim hreppum,
sem vildu flýta sýsluvegagerð hjá
sér, að taka lán til þess. Lán þessi
yrðu svo greidd úr sýsluvegasjóði á
5 til 10 árum. Á þessum sýslufundi
samþykkti sýslunefndin Iánsheimild-
ir til þessa fyrir kr. 375000.00.
Veitt var til menntamála 39600.00
kr., þar af lil viðbótarbyggingar
Laugalandsskóla kr. 30000.00 og
reksturs hans kr. 7000.00.
Til heilbrigðismála kr. 39700.00,
þar í ljósmóðurlaun.
Til búnaðarmála kr. 11900.00.
Sýslusjóðsgjald var ákveðið kr.
80000.00.
iVIikið brunatjön
í Rejxjavík
í fyrrakvöld kviknaði í fiskþurrk-
unarhúsi S.I.F. við Elliðaárvog í
Reykjavík, og brann það til ösku,
enda erfiðar aðstæður til slökkvi-
starfsins. Eyðilögðust þar fiskbirgð-
ir, vélar og vörur af ýmsu tagi, og
nemur tjónið af völdum brunans
ekki undir 2 millj. króna auk tjóns af
rekstursstöðvun, en þarna munu
hafa unnið um 50 manns.
Eldurinn sást fyrst í olíukynding-
arklefa, og er vafalaust talið, að olíu-
kyndingin eigi sök á þessum bruna
eins og svo mörgum öðrum í seinni
tíð.
Veikindi 1 bænura
Kvefpest, (influenza) gengur nú
hér í bænum, en mun vera heldur
að réna. Skólastarfsemin varð fyrir
mikilli truflun af völdum hennar, svo
að loka varð framhaldsskólunum í
tvo daga fyrir skömmu, en sumir
bekkir hafa ekki verið nema hálf-
setnir við og við. Auk kvefpestarinn
ar hafa he.tusótt og hlaupabóla stung
ið sér niður.
Bæjarkeppni
í Bridge milli Akureyrar og Siglu
fjarðar stendur yfir þessa dagana
hér í bænum.
Maðurinn minn
Þorsteinn Kristjánsson,
Þingvöllum, andaðist í Sjúkrahúsi Akureyrar 1. apríl síðastliðinn.
Guðný Einarsdóttir.
Góð íbúð til sölu
Tilboð óskast í íbúð mína í Munkaþverárstræti 30, neðri hæð.
íbúðin er t.l sýn s frá ld. 2—6 e. h. fimmtudag og föstudag n. k. og
sé tilboðunum skilað lil undirrilaðs eigi síðar en mánudaginn 10.
þ. m. (annan páskadag).
Marteinn Friðriksson,
Munkaþverárstræti 30, Akureyri.
Slökkvilið Akureyra 1950
Liðsmenn slökkviliðs Akureyrar eru 40, auk
slökkviliðsstjóra.
Slökkví I iðsstjóri:
Eggert St. Melstað, Bjarmastíg 2, sími 1 15.
Varaslökkviliðsstjóri og óhaldavörður:
Sveinn Tómasson, Laugargötu 3, sími 239.
2. varamaður:
Gústav Andersen, Krabbastíg 4.
Flokksforingi í innbænum:
Karl Jónsson, Hafnarstræti 15, sími 282.
Akureyri, 1. apríl 1950.
Eggert St. Melstað, sími 1 1 5.
Um páskana
verða mjólkurbúðirnar opnar sem hér segir:
Á Sk.'rdag frá kl. 10—14.
Á Fösludaginn langa frá kl. 10—12.
Á Páskadaginn verður búðunum lokað allan daginn.
2. Páskadag verður opið frá kl. 10—12.
Jafnframt skal vakin athygli á því, að brauðbúðin í Hafnarstræti
87 verður lokuð á Föstudaginn langa og Páskadaginn.
Mjólkurútsölurnar í Brekkugötu 47 og Hamarsstíg 5 verða lok-
aðar alla þessa daga.
Kaupfélag Eyfirðinga.
— Auglýsið í íslendingi —
páskadag sunnudagaskóli kl. 10.30 f. h.