Íslendingur - 24.05.1950, Page 1
XXXVI. árg.
Miðvikudagur 24, maí 1950
23. tbl.
Ríkið mðuí meðeigandi Laxárvirkjunar
■ *casr^r ■-~r .?•.?:» ■*•■ "
--------0—0-------
Frumvarp þess etnis samþykkt
á Alþingi í þinglok.
Skömmu íyrir slit Alþingis á dög-
unum var lagt fyrir þingið frumvarp
frá fjárhagsnefnd um breytingu á
lögum nr. 54 25. maí 1949 um Lax-
árvirkjunina. Var það samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum þing-
manna. Er frumvarpið svohljóðandi:
1. grein. í stað orðanna „allt að
22 milljónum króna“ í 2. gr. laganna
komi: allt að 38 milljónum króna.
2. grein. 3. gr. laganna orðist svo:
Ríkissjóður getur hvenær sem er
gerzt meðeigandi að Laxárvirkj un-
inni. Frá því lög þessi ganga í gildi
og þar til lokið er næs’.u framhalds-
virkjun á hann rétt á að gerast eig-
andi að 15 hundraðshlutum, að 35
hundraðshlutum, þegar henni er lok-
ið, en að helmingi, þegar lokið er
næstu aukningu virkj unarinnar þar
á eftir. Kaupir ríkissjóður þá tiltölu-
legan hluta af þeim mannvirkjum,
sem fyrir eru í fyrirtækinu. Kaup-
verðið eða hluta þess má ríkissjóð-
ur inna af hendi með því að taka að
sér greiðslu á tilsvarandi hlula lána
og annarra greiðsluskuldbindinga
fyrirtækisins. Kaupverð mannvirkja,
sem fyrir eru, þegar lög þessi ganga
í gildi, skal, e/ samkomulag fœst
ekki, ákveðið með mati samkvœmt
lögum um jramkvœmd eignarnáms,
en kaupverð þeirra mannvirkja, sem
gerð eru eftir þann tíma, skal vera
koslnaðarverð þeirra, að frá dreg-
inni eðlilegri jyrningu. (Lbr. hér.)
Þegar ríkissjóður er orðinn með-
eigandi að Laxárvirkjuninni, fram-
kvæma Akureyrarkaupstaður og rík-
issjóður í félagi aukningar virkjun-
arinnar og kosta þær að réttri tiltölu
við eignahlutdeildir þeirra, unz fall-
ið við Brúar er fullvirkjað, nema
samkomulag verði milli aðila um
aðra tilhögun. Ríkisstjórnin getur þá
heimilað stjórn Laxárvirkjunarinnar
að ráðast í virkjunaraukingar, þeg-
ar þeirra er þörf að dómi ríkisstjórn
arinnar, og tekið til þess lán eða á-
byrgzt lán, sem stjórn Laxárvirkjun-
arinnar tekur í því skyni, að upphæð
allt að 45 milljónum króna.
3. grein. 4. gr. laganna orðist svo:
Þegar ríkissjóður er orðinn með-
eigandi að Laxárvirkjunirini, skal
stjórn fyrirtækisins falin nefnd 5
manna, sein nefnist stjórn Laxár-
virkjunarinnar. Þar til ríkissjóður er
orðinn eigandi að helmingi Laxár-
virkjunarinnar, tilnefnir bæjarstjórn
Akureyrar 3 menn í stjórnina, en
rlkisstjórnin 2. Þegar ríkissjóður er
orðinn eigandi að hálfu fyrirtækinu,
tilnefnir bæjarstjórn 2 inenn í stjórn
ina, ríkiss’.jórnin 2, en hæstiréttur
tilnefnir þá 5. manninn. Stjórnin
skal skipuð til þriggja ára í senn.
Stjórn Laxárvirkj unarinnar hefir
á hendi stjórn og rekstur hennar,
undirbúning og framkvæmd aukn-
inga og breytinga á mannvirkjum
hennar. Hún getur ekki skuldbundið
eigendurna að því er snertir ábyrgð
á lánum og greiðsluskuldbindingum
til aukinna framkvæmda eða breyt-
inga á mannvirkjum, nema að
fengnu samþykki þeirra hvors um
sig.
Þegar ríkissjóður er orðinn með-
eigandi að Laxárvirkjuninni, skulu
nánari fyrirmæli um stjórn og rekst-
ur virkj unarinnar sett í reglugerð,
sem sljórn Laxárvirkjunarinnar set-
ur með samþykki beggja eigenda og
ráðherra staðfestir, sbr. og 1. gr.
4. grein. Lög þessi öðlast þegar
gildi.
í greinargerð, sem frumvarpinu
fylgir, segir m. a. svo:
Lög um Laxárvirkj unina, nr. 54
25. maí 1949, gera ráð fyrir því, að
Akureyrarkaupstaður muni sjálfur
annast þá viðbótarvirkjun, sem nú
er fyrirhuguð, og er í lögunum ekki
um annan stuðning frá hendi ríkis-
ins til þeirrar framkvæmdar að
ræða en ábyrgð ríkissjóðs á lánum,
sem Akureyrarkaupstaður tæki til
virkjunarinnar, allt að 85% af
kostnaðarverði hennar. Hafði Akur-
eyrarkaupstaður þá leitað nokkuð
fyrir sér um öflun nauðsynlegs fjár
til fyamkvæmdanna, en þó var enn
allt í óvissu, á hvern hátt það mætti
takast.
Ríkisstjórnin hefir síðan unnið
að öflun fjár bæði til Sogsvirkjunar-
innar og Laxárvirkj unarinnar, og
hefir í því efni ávallt verið látið eitt
yfir báðar virkjanirnar ganga. Er nú
svo komið, að tryggð eru ECA-lán
til þeirra beggja fyrir andvirði meiri
hluta þess efnis, sem kaupa þarf frá
útlöndum, og má telja líklegt, að
með tilstilli Alþingis og ríkisstjórn-
arinnar takist að tryggja virkjunun-
um það, sem á vantar fyrir erlenda
kostnaðinum og fyrir innlendum
kostnaði, a^því leyti er kaupstaðirn-
ir ekki sjá fyrir fé til virkjananna,
en sem stendur er gert ráð fyrir, að
kaupstaðirnir annist útvegun á sem
nemur um 9 hundraðshlutum af
heildarf j árþörfinni.
Með því breytta viðhorfi, sem verð
ur við þetta, þykir eðlilegt að gera
ráð fyrir því, að framhald samvinnu
ríkis og Akureyrarkaupstaðar um
framkvæind viðbótarvirkjunar Laxár
verði einnig með sama hætti og er
milli ríkis og Reykjavíkur við Sogs-
virkjunina, en sem kunnugt er hefir
ríkið gerzt meðeigandi í Sogsvirkj-
uninni og samningur verið gerður
milli Reykjavíkurkaupstaðar og rík-
isstjórnarinnar um sameignina og
rekslurinn. Nú heimila lögin um
Laxárvirkjunina ekki, að ríkissjóður
gerist meðeigandi að henni fyrr en
síðar, og þarf því að gera á þeim
lögum nokkra breytingu til þess að
samskonar samvinna geti orðið um
Síðastliðinn laugardag kom hið
nýja farþegaskip Eimskipafélagsins,
„Gullfoss11, til Reykjavíkur, og fór
þar fram hátíðleg athöfn til að fagna
skipinu, en þúsundir manna söfnuð-
ust saman við höfnina. Ræður fluttu
Eggert Claessen formaður 6tjórnar
Eimskipafélags íslands og Ólafur
Thors sjávarútvegsinálaráðherra, en
lúðrasveit lék. Fjórir „Fossar11, sem
staddir voru i Reykjavík, héldu fán-
um prýddir út úr höfninni til móts
við Gullfoss, og flugvélar sveimuðu
yfir honum.
Stjórn Eimskipafél. hefir ákveðið,
að Gullfoss fari nú í vikunni í hring-
ferð norður og austur um land, til
þess að sem flestum landsmönnum
gefist kostur á að skoða þetta glæsi-
legasta skip íslenzka siglingaflotans.
Viðkomustaðir verða: Patreksfjörð-
ur, ísafjörður, Sauðárkrókur, Siglu-
fjörður, Akureyri, Húsavík, Seyðis-
fjörður, Norðfjörður, Reyðarfjörð-
hina fyrirhuguðu aukningu Laxár-
virkjunarinnar sem um Sogsvirkjun-
ina. Með frv. þessu, ef að lögum
verður, er gerð sú breyting á lögmn
nr. 54 1949, um Laxárvirkjunina,
sem nauðsynleg er til þess að nú þeg-
ar sé hægt að ganga til samninga
urn sameign og samvinnu um fram-
kvæmdirnar.11
Helztu rökin, sem færð munu
hafa verið fyrir frumvarpinu, eru
þau, að í fyrsta lagi sé ríkið áður
orðinn meðeigandi að annarri stór-
virkjun, þ. e. Sogsvirkjuninni, í öðru
lagi sé Laxárvirkj uninni ætlað að
sjá miklum hluta Mið-Norðurlands
fyrir raforku og í þriðja lagi mæði
mest á ríkinu að annast fjárhagshlið
málsins.
Margir munu hafa ótrú á, að vel
fari á sameign ríkissjóðs og ein-
stakra bæjarfélaga á fyrirtækjum.
Reynsla mun lítil vera fyrir hendi á
slíkri sameign og samábyrgð. Sú er
þó bót í máli, að gert er ráð fyrir,
að Akureyri eigi 3 af 5 stjórnendum
fyrirtækisins meðan ríkissjóður á
ekki helming þess, og að kaupverð
þeirra mannvirkja, sem fyrir eru,
skuli ákveðin með mati, ef samning-
ar nást ekki um kaupverð..
ur og Vestmannaeyjar. Verður skip-
ið væntanlega statt hér á Hvítasunnu-
dag.
TVEIR BREZKIR TOGAR-
AR TEKNIR í LANDHELGI
Á SKAGAFIRÐI
Fyrra mánudag kom varðskipið
Óðinn hingað til Akureyrar með tvo
brezka togara, er hann tók að veið-
um tæpa hálfa sjómílu innan land-
helgi, norður af Málmey á Skaga-
firði. Annar togarinn var nýlegur
(ársgamall) og heitir Cape Cleveland
frá Hull, en hitt var gamall togari,
Lacerta frá Grimsby.
í undirrétti voru skipstj órarnir
dæmdir í 80 þús. kr. sekt hvor en
afli og veiðarfæri upptækt gert. Skip-
stjórarnir vildu ekki viðurkenna, að
þeir væru brotlegir og hafa báðir
áfrýjað dómunum.
Alþingi slitið 17.maf
Þingslit fóru fram 17. þ. m., en
þá hafði þingið staðið 185 daga og
því verið meðal lengstu þinga. Af-
greiddi það 62 lög og 17 þingsálykt-
anir en hafði alls fengið 17ð mál til
meðferðar. Tvisvar var skipt um rík-
isstjórn á þingtímanum, enþrátt fyrir
mikla erfiðleika á stjórnarmyndim
fram eftir vetri, afgreiddi þingið eitt
mesta stórmál síðari ára, lögin um
gengisskráningu o. fl.
Steingrímur Steinþórsson forsæt-
isráðherra sleit þinginu í forföllum
forseta, en Jón Pálmason forseti
Samein. Alþingis, ávarpaði þing-
heiin og hvatti til meira samstarfs
og meiri gagnkvæms skilnings með-
al þingfulltrúa, þótt þeir hefðu oft
eldað grátt silfur á vettvangi þjóð-
málanna.
ÝMSAR
FREGNIR
Landliðskeppni í skák var nýlega
háð í Reykjavík, og voru þátttak-
endur 12. Baldur Möller varð skák-
meistari íslands, hlaut 10 vinninga
af 11 mögulegum. Annar varð Guðm.
Ágústsson með 8 og þriðji Guðjón
M. Sigurðsson með l1/? vinning.
«
Rétt fyrir helgina vildi það slys til
í Ólafsvík, að 5 ára gamall drengur
varð undir vörubíl og beið bana af
samstundis.
Geysimikil flóð hafa að undan-
förnu verið í Rauðánni, sem fellur
í gegnum Winnipegborg í Canada,
þar sem fjöldi Vestur-íslendinga býr.
Hefir um þriðjungur borgarbúa ver-
ið fluttur á brott, og er tjónið af
flóðinu lauslega áællað um 300 milj.
dollara.
*
Fyrir nokkrum dögum varð stór-
bruni í Þórshöfn í Færeyjum.
Brunnu þar mörg vörugeymsluhús
við höfnina, og varð stórtjón á hús-
um og vörum.
*
Húsaleigulögin hafa verið til með-
ferðar á Alþingi, og voru gerðar á
þeim breytingar. Hámark húsaleigu
skv. þeim er ákveðið 7 krónur á fer-
metra íbúðar sem byggð er fyrir
1945, en 8—9 krónur í nýrri húsum.
Ýms ákvæði laganna falla úr gildi á
næstu mánuðum íl. okt. 1950 og 14.
maí 1951) og önuur ákvæði 14. maí
1952. Þó geta bæja- og sveitastjórnir
ákveðið að halda einstökum ákvæð-
um í gildi lengur, en bera þá sjálf
allan kostnað af framkvæmd þeirra.
Gnlltoss hinn nýi
kominn heim.