Íslendingur - 21.06.1950, Side 2
2
ISLENDINQUR
Miðvikudagur 21. júní 1950
Úlgefandi: Útgáíufélag íttlindiiigs.
Kitstjóri og ábyrgðarmaður:
Tómas Tómasson.
Auglýsingar ng afgreiðsla:
Árdís Suanbergsdóllir.
Skrifstofa Gránufélagsgala 4.
Sfmi 1354.
PrentsmiSja Björns Jónssonar h.j.
Lýðveldis
minnst
Það eru liðin 6 ár síðan lýðveldi
var stofnað á íslandi. Þjóðhátíðar-
dagurinn okkar, 17. júní, er liðinn
að þessu sinni með öllum þeim há-
tíðahöldum og gleði, sem honum
hafa fylgt, og sem þjóðin öll vonar,
að honum eigi eftir að fylgja um
ókomin ár og aldir.
Þó að íslenzka lýðveldið sé ekki
gamalt að árurn, þá hefir þó verið
ritað í sögu þess alllangur og merki-
legur kapiiuli. Þessi kapituli hefst á
því, þegar þjóðin með sameiginlegu
átaki bindur enda á aldagömul yfir-
ráð og ítök Dana hér á landi og stíg-
ur þannig lokasporið í jafngamalli
frelsisbaráttu, því að enda þótt oft
hafi dofnað yfir baráttuvilja lands-
manna þá verður þó alla tíð vart
andstöðu við hina erlendu drottnara,
þó að ekki verði úr því skipulögð
samiök fyrr en á 19. öld. 17. júní
1944 stóðu íslendingar einhuga,
þeir lögðu þrætumál sín á hilluna
og beindu sameiginlegu átaki að einu
marki, að því marki að vinna þjóð
sinni sigur, enda sigruðu þeir og
glæsilega. Þeir slóðu sameinlega
1944, en féllu sundraðir 1262.
Sá cinhugur^ sem ríkti um stofnun
lýðveldisins, varpar slíkum ljóma á
atburðina, sem þá gerðust, að þeir
munu skína sem perlur í sögu þjóð-
arinnar um ókomin ár, og verða ó-
brotgjarnt tákn þess, sem hægt er
að áorka, ef þjóðin einungis vill og
er samtaka þegar til framkvæmda
kemur.
A þeim stulta tíma, sem liðinn er
frá stofnun lýðveldisins, hefir orðið
gagnger bylting á búskaparháttum
landsmanna bæði til lands og sjávar.
Stórvirk framleiðslutæki hafa verið
flutt 'til landsins og allskyns vinnu-
vélar teknar í þjónustu manna í
miklu ríkari mæli, en áður þekktist,
svo að afköst þjóðarinnar hafa stór-
aukizt. Þá hafa og kjör alls almenn-
ings í landinu stórbatnað. Húsa-
kostur landsmanna hefir aldrei ver-
ið betri né bjartari en nú. Þá er og
óhætt að fullyrða að æska landsins
hefir aldrei áður haft betri skilyrði
til menntunar og andlegs og líkam-
legs þroska en nú.
En þrátt fyrir allar þessar glæsi-
legu framfarir, sem orðið hafa, þá
eru þó sífellt uppi háværar raddir
um það, að þjóðin standi á barmi
glötunarinnar, að æskumenn lands-
Qíerár-
þorp
Jónas G. Rafnar, alþm.
Síðari grein.
Máleíni Akureyrar, 09
fjárlagaafgreiðslan.
í 16. tbl. „íslendings“ í vetUr drap
ég á nokkur atriði í sambandi við
framlög ríkissjóðs til verklegra fram
kvæmda hér í bænum. Nú er gengið
hefir verið frá fjárlögum yfirstand-
andi árs vildi ég víkja að afgreiðslu
mála, sem varða bæjarfélagið.
HÖFNIN.
Til hafnarmannvirkja og lending-
arbóta eru ædaðar á þessu ári í fjárl.
4,6 milj. kr., sem skiptast niður á
63 hafnir. í fyrra var þessi liður um
150 þús. kr. hærri.
Um síðustu áramót áttu fimm
hafnir, þar á meðal Akureyri, yfir
% milj. kr. inni hjá rikissjóði vegna
hafnarframkvæmda. Um það náðist
að lokum samkomulag, að hver þess-
ara hafna fengju 280 þús. kr. Þetta
framlag til stærri hafnanna hrekkur
skammt til þess að greiða áhvílandi
skuldir, en hefði það verið hækkað,
varð að draga verulega úr nauðsyn-
legustu nýbyggingum og endurbót-
um við hinar smærri hafnir víðsveg-
ar um land, en það var ekki talið
fært.
Til hafnarsjóðs eru veittar IV2
milj. kr. og má gera ráð fyrir því,
að Akureyri fái nokkurt framlag
þaðan eins og aðrar hafnir, sem
mikið fé eiga inni hjá ríkissj óði.
Á s. 1. ári fékk Akureyri á fjárl.
100 þús. kr. til hafnarinnar, en ekk-
ert úr hafnarbótasjóði, þrátt fyrir
miklar framkvæmdir.
veitt til þessara þarfa, en hún hrekk-
ur hvergi nærri fyrir skuldum, þar
sem ríkissjóður mun eiga vangreidd-
ar um 5 milj. kr. til þeirra barna-
skólabygginga, sem lokið er við eða
nú eru í smíðum. Fræðslumálaráðu-
neytið skiptir fjárveitingunni niður
á milli barnaskólanna, og mun verða
lögð áherzla á það, að Akureyri fái
meira í ár en í fyrra, en þá varð
bærinn að sætta sig við 72.500 kr.
HEIMAVIST M. A.
Hið nýja heimavistarhús mennta-
skólans fékk sömu upphæð á fjárlög-
um og í fyrra eða 400 þús. kr. •—
Stefán Reykjalín, byggingameistari,
sem séð hefir um bygglngu hússins,
telur að unnt verði fyrir þessa upp-
hæð að ljúka við að steypa húsið
upp, fullgera íbúð handa 28 nemend-
um fyrir næsta skólaár og fullgera
eldhús og matsal fyrir næstu áramót.
Eftir atvikum má því vel una við
fjárveitinguna, en fj árfestingarleyfi
hafa enn ekki fenglst fyrir þessum
framkvæmdum, þrátt fyrir marg-
ýtrekaðar beiðnir.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Fjárveiting íil sjúkrahússins fékkst
hækkuð um 50 þús. kr. og er nú 350
þús. kr. Þessi fjárveiting til sjúkra-
hússins er þó alls kostar ófullnægj-
andi, þar sem ríkissjóður átti um
síðustu áramót ógreiddar af lög-
bundnu framlagi sínu um 630 þús.
kr. Á það ber þó að líta, að mörg
bæjar- og sveitarfélög fóru fram á
að fá fjárveitingu til sjúkrahúss-
bygginga, en ekki var talið fært að
verða við neinni af þeim beiðnum.
Segja má, að í sj úkrahúsmálum
þjóðarinar ríki hið mesta ófremdar-
ásland, meðan sjúklingar þurfa oft
að bíða margar vikur eftir plássi.
Þarf því mikið átak á næstu árum til
þess að koma þeim í viðunandi
horf. Er sjálfsagt, að láta aðrar bygg
ingar sitja frekar á hakanum.
Vonandi verður þess ekki langt að
b ða, að fjórðungssjúkrahúsið hér á
Akureyri geti tekið til starfa. Sem
dæmi um þörfina, má geta þess, að
sjúkrasamlag Akureyrar greiddi á
árinu 1948 fyrir 1320 legudaga í
Reykjavík og 1876 legudaga á s. 1.
ári.
Fjármálaráðuneytið greiddi í vor
100 þús. kr. til fjórðungssjúkrahúss-
ins, sem voru efarstöðvar af fjár-
veitingu á fjárlögum 1948.
Vikublaðið „Dagur“ getur þess í
frétt 24. maí s. I., að fyrrverandi
fjármálaráðherra, Jóhann Þ. Jósefs-
son, hafi þá á árinu notað heimild í
fjárlögum til þess að skera fjárveit-
inguna til sjúkrahússins niður um
Ys. Þótt það skipti raunar ekki máli,
vil ég leiðrétta þessa frásögn blaðs-
Asarnir út meS sjó,
uppurinn báru svörS. —
Gaddhestar gnögSu tó,
gnöltruSu um holt og börS. —
Svo þeirra sögukorn
seig fram um aldafjöld.
Harka og hungurnorn
háSu þar st.ríS — um völd.
Hartnœr í hálfa öld
hefir þó mjög um breytzt.
— LýSir, meS lítil gjöld,
lítt máttu fara geyst.
TróSu fyrst troSninginn,
torfhúsa völdu gerS, —
bœttu um brunngröft sinn.
— BlásnauSir oft á ferS.
Auknum meS efnahag
umbóta sóttist leiS. —
BústaSa batnar lag,
brautin er víSast greiS.
Illmýri í sem lá,
örtröS merkt kólgurún, .
eSa sem ei bar strá,
— eru nú rœktuS tún.
Þurrkunin þessa lands
þerrSi upp margan brunn.
— VatnsburSur verkamanns
viS bœttist kjörin þunn. —
Volk stundum veikti dug,
vá jók og sýkimögn. —
— Drengi, meS dáS í hug,
dreymdi um félagslögn.
Oft þeir ,sem opna leiS,
andspyrnu reyna él. —
Loksins, þá gata er greiS,
gagnast hún öllum vel. —
Fimm ára félagiS
firSi oss þungum geig.
— Hefir hvert heimilið
háfjalla guSaveig.
Asarnir út meS sjó,
eru þorps kjarna-grunn. —
Björt hús meS blómga tó,
bera þeir dreift viS unn. —
— Handtökin happa drjúg,
hróSur hins snauSa manns.
LandnámiS, byggS og bú,
blessast meS niSjum hans.*
SigurSur G. SigurSsson.
* Kvæði þetta var flutt í Glerárþorpi
1. apríl s. ]., í afmælisfagnaði Vatnsveitu-
félag6 Glerárþorps.
ins. Mun þessi misskilningur blaðsins
sennilega vera þannig til kominn, að
greiðslum til ýmissa framkvæmda,
ef lil vill þar á meðal fjórðungs-
sjúkrahússins, var frestað að nokkru
leyti frá síðari hluta árs, en ekki
varð úr niðurskurði, þrátt fyrir
heimild fjárlaga. Enda kæmi ekki til
mála, að fé þetta hefði verið greitt
nú, ef um endanlegan niðurskurð
hefði verið að ræða.
ins séu ekki þeim vanda vaxnir, sem
lýðveldið leggur þeim á herðar.
Það er vissulega satt að ýmsir
erfiðleikar steðja nú að þjóðinni,
erfiðleikar, sem nauðsynlegt er að
þjóðin geti yfirunnið hið bráðasta,
ef vel á að vera. En ef menn minnast
sögu þjóðarinnar þá reka þeir fljótt
augun í það, að oftlega hafa að
henni steðjað örðugleikar og þeir
oft miklu stórkostlegri en nú, jafn-
framt því sem landsmenn höfðu þá
hverfandi lítil ytri skilyrði til þess
að mæta slíkum hörmungum, en
þrátt fyrir það hefir þjóðin staðið
þær af sér.
Nú, þegar enn einu sinni harðnar
í ári fyrir okkur, þá skulum við
ekki vanmeta sjálfa okkur, við skul-
um ekki vantreysta okkur um of til
þess að sigrast á örðugleikunum,
slíkt er ekki sigurstranglegt í upp-
hafi baráltunnar. Við skulum trúa á
land vort og þjóð. Þjóðin verður
vafalaust að leggja hart að sér í
þeirri baráttu, sem framundan er,
en ef hún er minnug þess, sem gerð-
ist 1944, þegar hún sameinuð braut
á bak aftur allar hindranir, sem á
vegi hennar voru og leiddi hið dýr-
asta mál hennar fram til sigurs, og
ef þjóðin lætur sér þetta að kenningu
verða nú, og hefur aftur á loft merki
sameiningarinnar, en hverfur af vegi
sundrungarinnar og stéltarígsins, þá
mun henni auðnast að vinna bug á
erfiðleikunum.
Þjóðinni mun nú eins og endranær
verða happadrýgst að berjast undir
merkinu: stélt meS stétt.
Eins og ég gat um í grein minni í
marzmánuði átti ríkissjóður van-
greitt til Akureyrarhafnar um síð-
ustu áramót um 740 þús. kr. Svipað
stendur á um fleiri hafnir, að þær
eiga stórfé inni hjá ríkinu vegna lok-
inna framkvæmda. Samkvæmt upp-
lýsingum, sem vitamálastjórnin gaf
fjárveitinganefnd í vetur námu þess-
ar skuldir ríkissjóðs um s. 1. áramót
rúmum 6 milj. kr. Eins og gefur að
skilja hefir það komið sér mjög illa
fyrir bæjar- og sveitarfélögin, hve
lengi þau hafa oft þurft að bíða eftir
framlagi ríkisins Hefir það seinkað
framkvæmdum við hafnargerðir og
orðið lil ýmiskonar óþæginda.
Samkvæmt lögum um hafnargerð-
ir og lendingarbætur frá 1946 þarf
það ráðuneyti, sem hafnarmálin
heyra undir, að samþykkja allar á-
ætlanir um framkvæmdir í hafnar-
málum, svo að þær verði aðnjótandi
styrks úr ríkissjóði. Yfirstjórn þess-
ara mála hefir það því nokkurn veg-
inn í hendi sér, hvar byrjað er á
nýjum mannvirkjum og hvar gerðar
eru endurbætur. Það væri miklu
betra fyrir bæjar- og sveitarfélögin,
að vitamálastjórnin samþykkti ekki
meiri framkvæmdir en unnt er að
ráða við fjárhagslega á hverjum
tíma. Yæri þess gætt myndi skulda-
söfnun ríkisins á þessu sviði hverfa.
Þegar fé verður fyrir hendi eru
eftirfarandi framkvænidir fyrirhug-
aðar í hafnarmálunum hér í bænum:
Framlenging innri Torfunefsbryggju,
efni í bryggjuna er þegar fyrir
hendi. Unnið verður við dráttar-
brautina og að aðgerð á ytri Torfu-
nefsbryggju. Auk þessara fram-
kvæmda liggja fyrir önnur aðkall-
andi verk, sem ráðist verður í svo
fljótt, sem fé fæst til þeirra. Þar er
fyrst að telja nýtt bólverk, sem ráð-
gert er að gera á Oddeyri. Efni í
bólverk þetta hefir þegar verið keypt
og er komið hingað, en uppsetning
þess ásamt útgreftri o. fl. er áætlað
að muni kosta rúmlega 1 milj. kr.
BARNASKÓLINN
Um síðustu áramót átti Akureyri
um 330 þús. kr. inni hjá ríkissjóði
vegna viðbyggingar barnaskólans.
Á s. 1. ári voru á fjárl. veittar 2 milj.
kr. til barnaskólabygginga og kenn-
arabústaða. Nú er sama upphæð