Íslendingur - 05.07.1950, Qupperneq 1
XX XVI. árg.
Miðvikudagur 5. júlí 1950
29. tbl.
Tvær sönyskemmtanir
FLÓTTAFÓLK
Eitt af allra alvarlegustu. vandamálunum, sem risu upp eftir styrjaldarlokin,
var flóttamanna vandamáliS. Sameinuðu þjóðirnar tóku málið í sínar hendur,
en þrátt fyrir að mikið hefir áunnizt eru þó enn tugir þúsunda flóttamanna,
sem hvergi hafa jengið landvistarleyfi. Alþjóðlega jlóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna (IRO) hejir nýlega gert samning við stjórn Israel og hafa
með honum ca. 3000 flóttamenn fengið ný heimili í ísrael. — Á myndinni
sést livar verið er að hjálpa þýzkum Gyðingi, sem þjáðist af hjartasjúkdómi,
um borð í ísraeliskt skip í Neapel. IRO greiðir 2.5 millj. dollara til Israel til
fyrirgreiðslu jlót'.amönnunum.
Einar Krisfjánsson, óperusöngvari.
hélt söngskemmtun hér í Nýja-Bíó
s. 1. miðvikudag. Við píanóið var
frk. Guðrún Kristinsdóttir. Söngvar-
inn söng lög eftir Schubert, Melar-
tin. Grieg, Donizetti, Puccihi, |
Björgvin Guðmundsson, Sigfús Ein-
arsson og Sigvalda Kaldalóns.
Var söngvaranum tekið forkunn-
arvel, enda unun á hann að hlýða,
og varð hann að syngja 3 aukalög.
Aulikki Rautawaara.
hélt söngskemmtun í Nýja-Bíó í gær-
kvöldi á vegum Tónl'starfélags Ak-
ureyrar. Undirleik annaðist Jussi
Jalas. Söngskráin skiptist í tvo þætti,
fvrst söng söngkonan lög eftir Hán-
del, Brahms, Wolf og Respighi. Síð-
ar lög ef ir Rangström, Jalas og Si-
belius. Húsið var þéttskipað áheyr-
endum og fögnuðu þeir finnsku
Ijgtamönnunum ákaft.
IltsvarsskráÍD 1950
f morgun kom út skrá yfir skatta
og útsvör í Akureyrarkaupstað árið
1950. Eftirtaldir einstaklingar hafa
yfir 10 þús. kr. i úrsvar:
Auðun Auð.unsson 18170.00
Friðjón Axfjörð 15650.00
Bergsveinn Guðmundss. 13390.00
Edvard Sigurgeirsson 12500.00
Hallur Helgason 15520.00
Helgi Skúlason 15750.00
Höskuldur S. Steindórss. 12260.00
Jakob Frímannsson 11800.00
Jakob Karlsson 28970.00
Jón Kr. Guðmundsson 17570.00
Jón E. Sigurðsson 13930.00
Jónas Þorsteinsson 13310.00
Kristinn Guðmundsson 12080.00
Kr. Nói Kris jánsson 13220.00
Bernharð Laxdal 13220.00
Oskar S. Gíslason 10920.00
Páll Sigurgeirsson 13560.00
Pálmi H. Jónsson 10550.00
Pétur Jónsson 11970.00
Sverrir Ragnars 11180.00
Sigurður Jónsson 10380.00
Sigurður Pálsson 11120.00
Sigurður Sölvason 11200.00
Sæmundur Auðunsson 27710.00
Fró bæjarstjórninni:
Samningur urn
Brynleifur Tobiasson
sæmdur Fálkaorðunni.
Laxárvirkjun
þykktur.
sam-
í tilefni 50. þings Stórstúku ís-
lands hefir forseíi íslands sæmt
Brynleif Tobiasson, menntaskóla-
kennara, riddarakrossi Fálkaorðunn-
ar, en eins og menn munu vita, þá
hefir Brynleifur verið einhver helzti
forvígismaður bindindismála hér á
landi um langt skeið.
ÍSLAND VANN
landskeppnina með
18 stigum
Landskeppni í frjálsum íþróttum
milli íslands og Danmerkur var háð
í Reykjavík mánudag og þriðjudag
sl. Lauk keppninni með sigri íslend-
inga, hlutu þeir 108 stig, en Danir
fengu 90 stig. Eftir fyrri daginn
voru stigin 50:49 Islendingum í vil.
Keppnin var afar hörð og jöfn enda
fuku þar bæði íslenzk og dönsk met.
SÍLD
Undanfarna daga hefir verið all-
góð síldveiði á austursvæðinu, á
Þistilfirði og út af Langanesi. Fá
skip eru enn komin á miðin, en
mörg á leiðinni.
Flest öll Akureyrarskipin eru þeg-
ar farin út eða eru alveg í þann veg-
inn að fara.
Oddur C. Thorarensen 21960.00
Valgarður Stefánsson 21290.00
Þorsteinn Auðunsson 18590.00
Sverrir Þór 14840.00
Fyrirtœki yfir 20000.00 kr.:
Amaro 47910.00
Byggingarvöruv. T. Bj. 22080.00
Kaffibr. Akureyrar 24270.00
KEA 140450.00
Nýja B.ó 23930.00
Prentv. O. Björnssonar 25690.00
SÍS 116590.00
J. S. Kvaran, Skóv.sm. 20720.00
Smjörlíkisg. Akureyrar 26310.00
Útg.félag Akureyringa 49380.00
Útgerðarfélag KEA 22870.00
Verzl. Eyjafjörður 22580.00
Fðst sæti sett i
LAXÁRVIRKJUNIN.
Á síðasta fundi s.'num samþykkti
bæjarstjórnin eftirfarandi tillögu
um frumdrög þau að samningi, sem
fyrir lá, milli Akureyrarbæjar og
ríkisins:
„Bæjarstjórn samþykkir að gefa
bæjarstjóra fullt og ótakmarkað
umboð til að undirrita samning
milli ríkisstjórnarinnar og bæjar-
stjórnar Akureyrar um að Laxár-
virkjunin verði sameign þeirra, eins
og uppkastið liggur fyrir.“
Meginatriði samningsins eru þau,
að Laxárvirkjunin verði sameign
ríkisins og bæjarins, verði sjálfstætt
fyrirtæki með sérstöku reiknings-
haldi. en selji Rafveitu Akureyrar
og Rafmagnsveitum ríkisins raforku
við kostnaðarverði að viðbæltum
allt að 5%. Tekjuafgangur, er verða
kann af rekstri virkjunarinnar, renn-
ur í varasjóð hennar.
Eignahlulföll eru sem hér segir:
Frá undirskriftardegi verður Ak-
ureyrarbær eigandi að 85% en rík-
issjóður 15%, og helzt þetta hlut-
SENDIHERRA DANA
DVALDI Á AKUREYRI
Sendiherra Dana á íslandi, frú
Bodil Begtrup, dvaldi hér norðan-
lands í vikulokin síðustu. Frúin kom
hér til Akureyrar á fimmtudag, fór
austur að Mývatni á föstudag, en
hélt svo suður aftur á sunnudag, en
stanzaði á Skagaströnd og sat þar
fund Sambands norðlenzkra kvenna,
en sendiherrann er sem kunnugt er
þekktur leið.ogi í málefnum kvenna.
Frúin skoðaði bæinn hér og ná-
grenni, kirkjuna, nýja sjúkrahúsið,
barnaheimilið , lystigarðinn o. fl. Á
laugardagskvöldið flutti frúin ávarp
á Jónsmessuhátíð Framtíðarinnar..
og var það mikill fengur fvrir kven-
félagasamtök bæjarins.
Laugardaginn kl. 4—6 hafði Bald-
uin Ryel, danskur konsúll hér í bæ.
boð inni sendiherranum til heiðurs
og var þangað boðið fjölda manns,
og var það allt með þeim rausnar-
brag sem vænta mátti.
Samkomuhúsið.
fall þ ar til lokið er næstu viðbótar-
virkjun í Laxá, en að henni lokinni
verður Akureyrarbær eigandi að
65%, ríkissjóður að 35%. Þetta
eignahlutfall helzt þar til enn verð-
ur aukið við virkjunina og eftir það
verður skipt til helminga.
Ríkissjóður og bæjarsjóður Ak-
ureyrar bera sameiginlega, báðir
fyrir annan og annar fyrir báða,
ábyrgð gagnvart þriðja aðila á öll-
um skuldbindingum Laxárvirkj un-
arinnar.
Á bæjarstjórnarfundinum var
einnig samþykkt eftirfarandi tillaga:
„Með tilvísun til ákvörðunar um
undirskrift samnings við ríkisstjórn-
ina um sameign Akureyrarbæjar og
ríkisins á Laxárvirkjun, felur bæjar-
stjórn bæjarstjóra að skrifa ríkis-
stjórn, þar sem fram sé tekið, að
bæjarstjórn Akureyrar treysti því,
að samningur ríkis og bæjar á Lax-
árvirkjun samkvæmt umræddum
samningi gangi ekki í gildi fyrr en
gengið er frá fjármálum fyrirtækis-
ins og bygging orkuversins tryggð.
Jafnframt, að í reglugerð Laxár-
virkjunar komi ákvæði samkvæmt
munnlegum loforðum ríkisstjórnar-
innar um, að stjórn virkj unarinnar
verði búsett á Akureyri eða grennd
og heimili og varnarþing verði á
Akureyri.“
Fulltrúar bæjarins í stjórn virkj-
unarinnar voru kosnir eftirtaldir
menn:
Steinn Steinsen. Kristinn Guð-
mundsson og Steindór Steindórsson.
SÆTI í
SAMKOMUHÚSIÐ.
Á síðasta fundi bæjarstjórnarinn-
ar var einnig samþykkt að sett
skyldu föst sæti a hallandi gólfi í
Samkomuhúsið.
Um þetia mál hefir niikið verið
deilt í blöðum og annars staðar. En
vafalaust verður ekki um það deilt.
að nauðsyn sé á víðtækari umbótum
á Samkomuhúsinu. en þær að að
sett séu föst sæti í húsið, til þess að
það verði sæmilega boðlegt til leik-
sarfsemi.