Íslendingur - 12.07.1950, Blaðsíða 1
'AJLMian3J%\
OcQl ÍlÖÍ :SI íiiilJni •
S?^, S'SSiVs!J!C©»>*í6Si«K5«©i i ^\^s\\>íSív\\N\viiVA\W-i
lítUuUrtnl
>a \
XXXVI. árg.
Miðvikudagur 12. júlí 1950
30. tbl.
Fyrirhuflaöar fram-
kvæmtiir Landssímans
Á vegum Landssímans eru nú í
þann veginn að hefjast allmiklar
framkvæmdir við lagningu jarðsíma-
strengja út frá Akureyri, bæði til
norðurs og suðurs.
Eftir því sem síms'.öðvarstjórinn
Gunnar Schram, tjáði blaðinu, verð-
ur nú alveg á næstunni hafist handa
um að grafa fyrir jarðsímastreng
norður á Moldhaugaháls, er það
byrjun á fyrirhuguðum jarðstreng,
sem ná á til Reykjavíkur. Jafnhliða
þeim streng verður og lögð jarðlína
sem ætlað er að halda áfram út fjörð-
inn. I fyrstu verða þessir strengir
notaðir til þess að léttá álagið á
línum þeim, sem liggj a í sveitina ut-
an Akureyrar og Glerárþorpið.
Samtímis þessu, þá verður einnig
ráðizt í að leggja jarðstreng suður
á Kristneshæli, og er honum ætlað
er frá líður að ná inn allan fjörð.
Líklegt er að þessu verki verði ekki
lokið fyrr en í haust, en ekki er enn
hægt að segja með fullri vissu, hversu
margt manna muni fá vinnu við
framkvæmdirnar, né heldur hversu
miklu fé verði til þeirra varið, en
vonir s'anda til, að þær muni veru-
lega bæta úr þeim atvinnuskorti, sem
verið hefur hér á Akureyri að undan-
förnu.
NÍUTÍU ÁRA
Jóhanna Þorsteinsdóttir frá Öxn-
hóli í Hörgárdal, riú til heimilis að
Skjaldarvík, verður 90 ára 21. þ.m.
Hún hefir verið sérstæð dugnað-
arkona, hraustbyggð og heilsugóð
allá sína löngu ævi. Óheflaður hefir
vegur hennar verið, alloft örðugur
og andbyr svalur. Hún hefir smalað
hæðir og hálsa berfætt og soltin.
Hún hefir fengið 20 krónur í árs-
laun. Hún hefir hokrað í afdala-
moldarkofum við harðæri og þröng-
an kost, og haldið velli, en komið á
legg mannvænlegum barnahóp. Eitt
þeirra'er Snæbjörn Magnússon, vél-
smiður, Eiðsvallagöiu 13, Akureyri.
St.
Hátfuleg furidarbodnn
kommúnista
Kommúnistar boðuðu til almenns
launþegafundar næstliðið mánu-
dagskvöld að Hótel Norðurlandi.
Sögðu þeir „flest launþegafélög bæj-
arins" standa að fundinum en aug-
lýstuhann í nafni fullírúaráðs verka-
lýðsins. Fundurinn hafði verið ræki-
lega auglýstur, bæði á götum úti og
í útvarpinu og hátölurum hafði ver-
ið komið fyrir bæði innan húss og
utan á fundarstaðnum. Á þeim tíma
sem fundurinn skyldi hefjast voru
engir mættir utan kommúnistafor-
sprakkanna sjálfra, en af launþegum
bæjárins, sem munu frékar skipta
þúsundum en hundruðum sást
hvorki iangur né tetur. Fundur þessi
átti að hefjast klukkan 8.30. Á ti-
unda tímanum steig Jón Ingimars-
son í stólinn og aflýsti fundinum.
Voru þá mættir 37 menn til þess að
hlýða á sálumessu kommúnista í
dýrtíðar- og launamálunum.
1 þetta sinn gáfu bæjarmenn
kommúnislum ótviræð og viðeig-
andi svör. Þunnskipuð fylking þeirra
1. maí í vor og tómt fundarhús í
júlíbyrjun eru þau svör almennings,
sem þeir verða að skilja, hve sárt
Sem þeim annars svíður það. Þetta
er ekki aimað en bein afleiðing af
framferði þeirra í íslenzkum stjórn-
málum síðast liðin ár. Ábyrgðar-
lausar, háværar kröfur á hendur
ríkisins og bæjarins en undir niðri
hljómar sami grunntónninn: Hvað
varðar okkur um þjóðarhag. Akur-
eyrskir launþegar sýndu á áþreifan-
legan hátt fyrra mánudagskvöld að
þeir sjá í gegnum blekkingarvef
„leiðtoga almennings", að þeir eru
orðnir þreyttir á marklausu hjali
þeirra, jafnt sem sálufélaga þeirra,
sem þessa dagana klóra friðardúf-
unni á bringunni með hægri hend-
inni um leið og þeir höggva sjálf-
slæða smáþjóð í spað með þeirri
vins'ri. Kommúnistar munu ekki
fyrr komast til' áhrifa í launþega-
samtökum landsins á nýjan leik fyrr
en þeim skilst að kröfur verða að
vera bornar fram af ábyrgðartil-
finningu og að réttindum fylgja
einnig skyldur.
Tvö hörmuleg slys
1. júlí sl. vildi það hörmulega slys
til vestur í Arnarfirði, að sex ára
gömul telpa* Halla Ragnarsdóttir,
hrapaði í svonefndum Lokinhömr-
um og lemstraðist hún svo, einkum
á höfði, að hún lézt um það bil sól-
arhring síðar.
Þá vildi það sviplega slys til suð-
ur á Álftanesi 3. júlí sl„ að tveggja
ára stúlkubarn, Sigríður Rakel
Karlsdóttb:, kafnaði. Slysið mun
sennilega hafa orðið með þeim
hælti, að litla stúlkan hafi verið að
reyna að skríða undir girðingu, en
húfan hennar festst í girðingunni,
og við það hafi kverkbandið þrengt
svo að hálsi hennar að hún kafnaði.
Síldarverðið 65 09 110 kr.
Bræðslusíldarverðið hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins var ákveðið
sl. miðvikudag. Atvinnumálarað-
herra samþykkti tillögur frá meiri-
hluta síldarútyegsnefndar um. að
fastákveðið verð skyldi vera 65 kr.
fyrir málið. Er verð þetta 25 krón-
um hærra en greitt var fyrir málið
í fyrra.
Bæði fulltrúar kommúnista og
Alþýðuflokksmanna í nefndinni
báru þar fram ýmsar sýndarlillögur
um síldarverðið, en meirihlutinn
hafnaði þeim.
Þá hefir saltsíldarverðið einnig
verið ákveðið og varð síldarútvegs-
nefnd sammála um, að lágmarks-
verð skuli í suraar vera 110 krónur
fyrir hverja uppsaltaða tunnu síldar.
1 fyrra var saltsildarverðið 60 kr.
fyrir cunnuna.
TOGÁRARNIR
AFLA VEL
Um sl. helgi voru allir togararnir
á Akureyri inni með fullfermi af
; karfa, sem landað er í Krossanes-
i verksniiðjuna til bræðslu.
Landað var úr Jörundi á laugar-
daginn var rúmlega 359 tonnum. Á
sunnudaginn var landað úr Svalbak
420 tonnum og í fyrradag úr Kald-
bak. •
Verksmiðjan hefir nú unnið að
bræðslu á karfa í um það bil 2 mán-
uði og hefir vinnzlah gengið ágæt'-
lega, en í ráði er að hætta strax
bræðslu karfa og síld berst, því að
þá mun verksmiðjan verða tekin til
síldarbræðslu. Þegar hafa verið
brædd um 350 mál síldar, sem Snæ-
fell landaði þar.
10 skip munu leggja síld upp í
Krossanesi í sumar og er það nokkru
fleira en var á sl. sumri.
GEGN EITURLYFJANOTKUN.
Hér á myndinni sézt Gary Cooper, kvikmyndaleikarinn góðkunni,. sem allir
kvikmyndahúsgestir kannast vib", ásamt Benjamin Cohen, en hann er einn af
nánustu samstarfsmbnnum Tryggve Lie hjá Sameinuðu Þjóðunum. — Gary
Cooper heimsótti nýlega aðalbœkistöðvar S.Þ. í Lake Success og annaðist pá
útvarpsdagskrá, sem var þar tekin á pl'ótur, og jjallaði hún um störf nefndar
þeirrar, sem starfar á vegum S.Þ. um heftingu ólöglegrar verzlunar með eiturlyf.
Bærinn að Tjiirimm brennur
Þau hörmulegu tíðindi gerðust
um kl. 4 e.h. á laugardaginn var, að
það kviknaði í íbúðarhúsinu að
Tjörnum, innsta bænum í Eyjafirði
austan árinnar, og branri húsið allt,
það sem brunnið gat, en það er svo
til nýtt steinhús.
Hjónin voru ekki heima, þegar
þessi tíðindi gerðust, en heima voru
piltur og s'.úlka um tvítugs aldur og
5 börn yngri. Elzti sonur hjónanna,
sem vinnur hér á Akureyri, var á
heimleið og sá þegar eldurinn brauzt
út.
Ekki var viðlit að reyna að
slökkva eldinn með vatnsburði, þar
eð alllangt er í vatn, og þau svona
fáliðuð heima en langt til næstu
bæja.
Börnunum tókst þó með dugnaði
að bjarga út úr hinu brennandi húsi
svo að segja öllum innanhúsmunum
öðrum en þeim. sem í eldhúsinu
voru, þar brann allt, en talið er að
kviknað hafi í út frá olíukyntri elda-
vél.
Fyrir 4—5 árum síðan brann
íbúðarhúsið á þessum sama bæ og
bjó þá sami bóndinn þar. Þá brann
allt til kaldra kola, óvátryggt.
Það má því segja, að hver raunin
I annarri þyngri hlaðist á bóndann af
elds völdum, og er tjón hans núna
alveg ómetanlegt.
F. U. S. VÖRÐUR
hefir ákveðið að gangast fyrir
skemmtiferð að Hólum í Hjaltadal.
Lagt verður af' stað héðan laugar- ,
daginn 12. ágúst og gist að Hólum.
Ferðin er farin i sambandi við
væntanleg hátíðahöld þar og vígslu
minnismerkis Jóns Arasonar.
Nánar verður tilkynnt síðar um
tilhögun ferðarinnar, en áskrifialisti
liggur frammi í Bókabúð Axels.
VEGNA sumarleyfa í
prenfsmiðjunni k o m a
ekki fleiri fbl af íslend-
ingi í þessum mánuði. —
Næsta blað kemur út
miðvikudaginn 2. ágúst.