Íslendingur


Íslendingur - 23.08.1950, Side 1

Íslendingur - 23.08.1950, Side 1
Hörmulegt slys Fimm manns býður hana í skriðuhlaupi á Seyðistirði. Gífurlegt eiguatjóu varð þar einnig og á ýms- um öðrum stöðum á Austurlandi. Stórrigning- ar ollu skriðuföllunum. Þau hörmulegu tíðindi gerÖust á Seyðisfirði s.l. laugardagsmorgun, að aurskriða féll úr Strandatindi á yzta íbúðarliúsið á Fjarðarströnd, með þeim skelfilegu afleiðingum, að fimm rnanns beið bana, en tvennt meiddist nolckuð. Þau, sem fórust, voru Ingibjörg Magnúsdóttir, kona Aðalbjörns Jónssonar á Seyðisfirði, 36 ára að aldri, og fjögur Lörn þeirra hjóna, þau: Jónína Ingibjörg, 18 ára; Baldur Þór, 12 ára; Bragi Már, 6 ára og óskírt stúlkubarn, sex mán- aða. Eina barnið, sem lifir. Eina barn þeirra hjónanna, Aðal- björns og Ingibjargar heitinnar, sem nú lifir, Guðrún Sigríður, 15 ára gömul, var einnig í húsinu, þeg- ar skriðan féll á það og fyllti það og braut. Luklist hún inni í rústun- um í aurskriðunni, en var grafin upp eftir að hafa verið röska þrjá klukkutíma í skriðunni. Hún var eitthvað meidd, en líður nú sæmi- lega eftir atvikum. Fólkið ætlaði að yfirgefa húsið. Vegna hins gengdarlausa vatns- veðurs, sem gengið hafði, var fólk farið að óttast um að skriður kynnu að falla, og var Aðalbjörn þegar farinn inn í bæinn til þess að ná í bíl til þess að flytja fólk sitt og aðra þá, sem í húsinu voru, burt úr því. í húsinu bjuggu einnig hjónin Gunnar Sigurðsson og Kristlaug Þorvaldsdóttir og tveir synir þeirra. Var konan farin úr húsinu og út í rigninguna með yngri soninn um morguninn áður en skriðan féll. en feðgarnir björguðust, annar eitt- hvað meiddur. Anrtað tjón. Þegar sl'k hörmungaslys sem þetta verða, þá falla minni hát:ar atburðir í skugga þeirra, en ótal skriður féllu víðs vegar um Austurland og ollu miklu tjóni á mannvirkjum, en óger- ’-egt er ennþá að gera sér fullkom- lega ljóst hversu miklum fjárverð- J mætum tjónið nemur. mmmm FDNDDR verður haldinn í Sjálfstœðisfélagi Akureyrar annað kvöld (24. þ. m.) í bæjarstjórnarsalnum í Samkomuhúsi bæjarins. Hefst fundurinn stund- vdslega kl. 8,30 e. h. Jónas G. Raftiar, alþm., ræðir fjárlagaaf- greiðslu síðasta alþingis og nokkur mál- efni, sem sérstaklega varða Akureyrar- kaupstað. Hel.gi Pálsson, bæjarfulltr., hefur þá um- ræður um atvinnumálin á komandi vetri. Um þessi mál verða vafalaust miklar um- ræður og eru félagsmenn því sérstaklega hvattir til að fjölmenna á fundinn. Með þessum fundi er hafin vetrarstarfsemi Sjálfstæðisfélagsins, m ' i mmmmmmmmmmmmmmmmimm MÁLVERKASÝNINGU oj)nar Garðar Loftsson í Rotary- salnum að llótel KEA n.k. laugar- dag. Mun sýning þessi verða opin fyrir almenning eitthvað fram eftir næsiu viku. Garðar Loftsson er Ak- ureyringum þegar að nokkru kunn- ur sem teiknari og málari og mun marga fýsa að kynnast frekar þess- ari iðju hans, sem hann hefir helg- að flestar sínar tómstundir. Á sýningunni verða 50—60 mynd- ir, olíumálverk, vatnslitamyndir og teikningar, frá Akureyri, Svarfaðar- dal, Mývatnssveit og víðar. Á sýn- ingum frístundamálara, sem hann hefir tekið þátt í, hafa myndir hans fengið mjög lofsainlega dóma. BALDUIN RYEL OG FRÚ BOÐIÐ TIL GRÆNLANDS Á mánudagskvöldið var fór héð- an frá Akureyri danska Grænlands- farið Amdrup á leið til Grænlands. Danski konsúllinn hér, Balduin Ryel og kona hans voru meðal þeirra, sem fóru með skipinu. Danska stjórnin bauð þeim í þessa ferð, sem nckkurn vott ágæts starfs, og er gert ráð fyrir að ferð- in muni taka um það bil viku tíma. Ætlunin er að fara lil Scoresbys- sund og ef til vxll annarra staða á Austur-Grænlandi. 65 ára afmæli Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri, varð 65 ára 20 ágúst s. 1. — Þorsteinn hefir gengt ýmsum umfangsmiklum opinberum störfum, auk þess .-em hann hefur lengi stað.ð fyrir umfangoiuikilli bókaútgáfu og útgáfu tímarita. llann hefur verið alþing- ismaður, bæjarfulltrúi, sáttasemjari í vinnudeilum. Hann átti um skeið sæti í stjórn síldarverksmiðja ríkisins og 1918 var hann kosinn í rantninganefnd við Dani. Þá hefur hann og tekið virkan þátt í störfum góðtemplarareglunnar og ung- mennafélagsskaparins. UM KJARNORKUVANDAMÁLIÐ Sameinuðu þjóðirnar haja gert mikið að þvi, að útvarpa um allan heim umræðum um helztu vandamálin, zem uppi eru hverju sinni. Ein slík útvarps- dagskrá var helguð kjarnorkuvandamálinu og vígbúnaðarkapphlaupi stórveld- anna. Þar kom meðal ai.nars jram vísindamaðurinn heimskunni, Albert Ein- stein. Kvikmyndaleikarinn John Garjield var þulur við upptöku dagskrárinn- ar, og sést liann hér á myndinni (til vinstri) ásamt öðrum starjsmönnum. Fjðrðaoysþing Norðlend inga haldið á Akureyri Dagana 20. og 21. ágúst s. 1. var haldið hér í bænum 5. Fjórðungs- þing Norðlendinga. Formaður fjóxðungsráðs, séra Páil Þorleifsson á Skinnastað, setti ! þingið. Sigurður Sigurðsson. bæjarfógeti var kjörintt forseti þingsins, en Þór- arinn Eldjárn vaTaforseti. Oll sýslu- og bæiarfélögin i Norð- lendingafjórðungi eru meðlimir í sambandinu, að undanskildum Siglu firði og V.-Húnavatnssýslu. Alls rnættu 16 fulltrúdr á þinginu. Þingið tók til meðferðar fjölmörg merkileg og þýðingarmikil mál. bæði fyrir landsfjórðunginn og land ið í heild. Að sinni verður ekki unnt að geta nema lielztu málanna og birta aðrar en þær þingsamþykktir, sem gerðar voru í þýðingarmestu málunum. —- Aðrar verða að bíða betri tíma. STJDRNARSKRÁRMÁLIÐ. Um stjórnarskrármálið flutti Karl Kristjánsson. alþnt. frá Húsavík. framsögu. Fjórðungsmálanefnd, en i henni eiga sæti Karl Kristjánsson, Jónas G. Rafnar. Friðjón Skarphéðinsson. j G sli Magnússon og Steingrímur Daviðsson, hafði svo rnálið til at- hugutiar og var samþykkt samhljóða eftirfarandi lillaga frá nefndinni í því máli: ..Fjórðungsþing Norðlendinga haldið á Akureyii dagana 20.—21. ágúst 1950 lýsir vfir því, að það tel- ur mi' ilsvert, að öll sýslu- og bæjar- félagasambönd. sem þegar liafa ver- ið stofnuð í landshlutunum, leitist við að sameína sip. um tillögur til breytinga á stjórnarskránni. Þess vegna felur þingið fjórðungs ráði að gangast fyrir því. að sam- böndin lialdi sem fyrst sameigin- lega fulltrúaráðstefnu um stjórnar- skrármálið, þar sem rétt hafi til þátt- töku 2 menn frá hverju sambandi. Samþykkir fjórðungsþingið að kjósa 2 menn og aðra 2 lil vara lil þess að mæta fyrir fjórðungssam- band Norðlendinga á ráðstefnuna.“ Var þessi tillaga samþykkt sam- hljóða og voru kjörnir þeir Karl Kr.stjánsson og Jónas G. Rafnar til þess að vera fulkrúar sambandsins. FRÆÐSLUMÁL Um fræðslumál voru flutt tvö ýtarleg erindi á þinginu. flutti ann- að Þórarinn Björnsson, skólameist- ari. og hitt Snoni Sigfússon, náms- stjóri. Allsherjarnefnd fékk svo málið til frekari meðferðar og lagði hún eftir Framh. á 6. síðu

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.